Tíminn - 07.04.1992, Qupperneq 6
6 Tíminn
Þriðjudagur 7. apríl 1992
Moskva - Boris Jeltsín, forseti
Rússlands, slapp með skrekk-
inn í gaer þegar þingmenn á
rússnenska þinginu felldu það
með naumun meirihluta að taka
ekki til umræðu vantrauststill-
ögu á ríkisstjóm Jeltsíns. Á
sama tíma flutti Interfax frétta-
stofan fréttir af því að forsæti-
ráðherra Azerbaijan, Hasan
Hasanov, hafi verið steypt af
stóli í innanríkisátökum í lýð-
veldinu.
Sarajevo, Júgóslavíu -
Skotmenn hófu skotríð á þús-
undir friðarsinna sem voru sam-
ankomnir í kröfugöngu fyrir friði
í Sarajevo, höfuðborg lýðveldis-
ins Bosníu-Herzegóvínu, í gær
eftir að átök fóru dvínandi þar.
Talið er að þessir skotmenn hafi
veriö Serbar. Á sama tíma hitt-
ust utanríkisráðherrar Evrópu-
bandaiagsríkjanna í Lúxemborg
til að ráðgast um það hvort við-
urkenna ætti lýöveldin Bosníu-
Herzegóvínu og Makedóníu
sem sjálfstæð fullvalda ríki og
varð niðurstaðan jákvæð.
Róm - Samkvæmt fýrstu tölum
í ítölsku þingkosningunum sem
fram fóru um helgina er sam-
steypustjóm mið- og vinstri-
manna á Ítalíu fallin.
Tokyo - Kínverskir og japansk-
ir forráöamenn skiptust á gjöf-
um og vináttukveðju í gær þeg-
ar formaður kínverska kommún-
istaflokksins, Jiang Zemin, kom
til Japan í heimsókn. Embættis-
menn í japanska utanríkisráðu-
neytinu sögðu í gær að allt benti
til þess að gengið yrði frá 5,26
miiljarða dollara láni til Kínverja
á næstu vikum.
Nikosía - Iranir hafa sakað
vestrænar ríkisstjórnir um að
vera í slagtogi með skemmdar-
verkamönnum sem ráðist hafa
gegn sendiráðum Irans í hinum
ýmsu borgum á Vesturlöndum
að undanförnu. Iranir krefjast
framsals ofbeldismannanna.
Genf - Einn hæst setti embætt-
ismaður umhverfismála hjá
Sameinuðu þjóðunum sagði í
gær aö skemmdir á ósonlaginu
væru mun meiri en hingað til
hafði verið talið og lagöi með
formlegum hætti til að bann við
ósóneyöandi efnum myndi taka
gildi strax að Ijórum árum liðn-
um eða áriö 1996.
London - Öflug sprengja
sprakk í Sohohverfi í London í
gær og leikur grunur á um að
Irski lýöveldisherinn hafi verið
þar að verki. Sprengingin veldur
Bretum nokkrum áhyggjum
enda verður gengið til kosninga
þar á morgun.
Bonn - Talsmenn stóru flokk-
anna tveggja í Þýskalandi töl-
uðu í gær um nauðsyn þess að
leysa með hraði þann vanda
sem fylgdi sívaxandi ásókn er-
lendra flóttamanna á að komast
inn ( landið. Þessi áhugi stóru
flokkanna kemur í kjölfar þess
að öfgaöfl til hægri, fjandsamleg
útlendingum, unnu mikið á í
fylkiskosningum í tveimur fylkj-
um um helgina.
Úrslitakeppni ísiandsmótsins í körfuknattleik:
Frá Margréti Sanders, fréttaritara
Timans á Suðumesjum:
Valsmenn náöu að hefna ófaranna í
Keflavík á fostudagskvöldiö, með því
aö sigra Keflvíkinga örugglega á
sunnudagskvöld, 104-91. Liöin
standa því jöfn að vfgi eftir tvo leiki,
en það liö sem sigrar í þremur leikj-
um stendur uppi sem Islandsmeist-
ari. Valsmenn hafa leikið mjög skyn-
samlega þaö sem af er úrslitanna og
ljóst að um spennandi keppni veröur
að ræða. Hins vegar virðast Keflvík-
ingar ávallt eiga í erflðleikum í fyrri
hálfleik og hlýtur það að vera
áhyggjuefni.
„Við ætluðum að sigra á heimavelli
og það tókst. Það hleypti illu blóði í
okkur að eftir leikinn í Keflavík,
hlógu áhorfendur og gerðu grín að
okkur. Okkur tókst að sýna hvað í
okkur býr. Það er þó áhyggjuefni að
við áttum í miklum erfiðleikum með
pressuvörn Keflvíkinga, en við mæt-
um grimmir til leiks í Keflavík á
þriðjudag og við látum það sama
ekki gerast þar aftur,“ sagði Tómas
Holton, þjálfari og leikmaður Vals.
Valsmenn hófu þennan leik á sama
hátt og þeir gerðu í íyrsta leiknum,
af miklum krafti, spiluðu mjög vel
saman og hittu vel og var þá alveg
sama hvaða leikmaður átti í hlut.
Þeir hreinlega yfirspiluðu Keflvík-
inga. Staðan í hálfleik var 53-30.
Keflvíkingar komu grimmari til síð-
ari hálfleiks, beittu pressuvöm upp
allan völl og náðu með þeim hætti að
hirða boltann hvað eftir annað af
Valsmönnum, sem áttu ekkert svar
við vörninni. Keflvíkingar náðu að
minnka muninn í níu stig, 91-82, og
fór þá að fara um áhangendur Vals-
manna, hvort leikurinn frá því í
Keflavík væri að endurtaka sig. En
svo fór þó ekki. Hittnin hjá Vals-
mönnum var í lagi og munaði þar
um vítaskotin á lokamínútunum og
stóðu þeir því uppi sem sigurvegarar.
Valsmenn léku þennan leik mjög
skynsamlega og ef hraðaupphlaup
nýttust ekki, var spiluð sókn sem í
flestum tilfellum tók nær allar þær
þrjátíu sekúndur sem þeir hafa til
umráða. Liðsheildin stóð sig vel í
fyrri hálfleik, en í síðari hálfleik voru
það þeir Tómas Holton, Franc Book-
er og Magnús Matthíasson, sem voru
burðarásar og bestu menn liðsins.
Booker náði sér vel á strik í þessum
leik í heild sinni og munar þar miklu
frá fyrsta leik liðanna.
Keflvíkingar hafa átt slaka fyrri
hálfleiki í báðum leikjum liðanna og
hlýtur það að vera áhyggjuefni. Mun-
urinn í hálfleik var of mikill og þrátt
fyrir góða vöm og ágæta hittni þá
náðu þeir ekki að minnka muninn
meira en raun bar vitni. Bestu menn
liðins voru þeir Nökkvi Már Jónsson,
sem er mjög skemmtilegur leikmað-
ur, og þá lék Jón Kr. Gíslason ávallt
vel upp á samherja sína, átti 10 stoð-
sendingar, en var þó með daufara
móti í leiknum. Kristinn Friðriksson
hitti mjög vel í síðari hálfleik, en var
þó allt of lengi utan vallar. Einnig
munaði um þriggja stiga körfur
Guðjóns Skúlasonar. „Eflaust höfum
við verið of öruggir og það gekk allt
upp hjá þeim, en ekkert hjá okkur.
Strákarnir léku eins og þeir væru
hræddir við Valsmenn, en það má
fastlega búast við jöfnum og spenn-
andi leik og við leikum til sigurs,"
sagði Sigurður Ingimundarsson,
leikmaður ÍBK, en hann varð að
horfa á þennan leik, vegna meiðsla í
baki.
Magnús Matthíasson
Dómarar leiksins voru þeir Kristján
Möller og Leifur Garðarsson.
Stig Vals: Franc Booker 34, Tómas
24, Magnús 12, Svali 12, Ragnar 9,
Matthías 7, Símon 4 og Guðni Hafst.
2.
Stig ÍBK: Kristinn Friðriksson 21,
Nökkvi 20, Guðjón 17, Bow 16, Jón
Kr. 9, Hjörtur 6, Albert 2.
Tölur úr Ieiknum: 7-7, 22-13, 35-
24, 44-24, 53-30 — 63-35, 67-45,
72-53, 84-72, 91-82,104-91.
ÍBK-sigur í fyrsta leik
Fyrsti leikurinn í úrslitunum fór
fram í Keflavík á föstudagskvöldið fyr-
ir troðfullu húsi og sigruðu Keflvík-
ingar í þeim leik 106-84, eftir að hafa
verið 9 stigum undir í hálfleik, 39-48.
Valsmenn léku íyrri hálfleikinn mjög
vel og höfðu mest 15 stiga forystu. I
síðari hálfleik snerist dæmið við og
Keflvíkingar höfðu þá undirtökin.
„Við lékum fyrri hálfleikinn eins og
liðsheild og mjög skynsamlega. Ef
hraðaupphlaup gengu ekki upp var
stillt upp og spilað. Aftur á móti vor-
um við of bráðir í síðari hálfleik. Ef við
spilum okkar leik á heimavelli okkar,
þá vinnum við leikinn," sagði Tómas
Holton, þjálfari og leikmaður Vals.
Keflvíkingar komu mjög öruggir til
leiks í síðari hálfleik og fóru á kostum
á meðan ekkert gekk upp hjá Vals-
mönnum. Nökkvi var besti maður
vallarins, skoraði mikið og var mjög
grimmur í fráköstum. „Þetta var ffá-
bært og ég er himinlifandi yfir þessu.
Ég fann mig mjög vel í leiknum, en
búast má við að næsti leikur verði jafn
og spennandi," sagði Nökkvi Már
Jónsson, leikmaður IBK. Jón Kr. gætti
Bookers mjög vel og lék uppi meðspil-
ara sína.
VAlsmenn léku allir vel í fyrri hálfleik
og áberandi var hve liðsheildin starf-
aði vel saman og hittnin var ótrúlega
góð. Liðið var hins vegar mjög slakt í
síðari hálfleik. Flautuglaðir dómarar
voru Jón Otti Ólafsson og Leifur Garð-
arsson.
Stig ÍBK: Nökkvi 28, Bow 21, Guðjón
19, Kristinn Fr. 15, Jón Kr. 9, Albert Ó
7, Hjörtur Harðarson 7.
Stig Valsmanna: Magnús 21, Ragnar
16, Booker 13, Tómas 12, Símon 12,
Svali 8, Ari G. 2. -P.S.
Himr nýju
Fram er komín á AJþingi þings-
ályktunartíUaga þar sem fyrstí
flutningsmaður er Ámi Johnsen,
en hann hefur fengið þingmenn úr
öUum flokkum tíl að flytja tiUöguna
með sér. Tillögugerðarmenn vilja
„fela forsætisráðuneytínu og
menntamálaráðuneytínu að semja
við sjónvarpið um gerð fræðslu- og
kynningarþátta um störf Alþingls
og alþíngismanna.**
Óhætt er að segja að þessi tíUaga
sé tímanna tákn, þvi í henni opin-
berast ótrúlega margbreytílegur
sannleikur. Það fyrsta, sem þessi
tillaga opinberar, er að einhverjir
þingmenn gera sér grein fyrir því að
iöggjafarsamkoma þjóðarinnar og
þó öllu heidur sumir fuUtrúar, sem
þar sitja, njóta ekki mikils trausts
landsmanna um þessar mundir. í
öðru lagi ber tíUagan vott um að
einhverjir þingmenn telja þrátt fyr-
ir aUt að þeir séu emhvers trausts
verðir. Síðast en ekld síst sýnir
þessi tíUaga greinilega hvers vegna
alþingismenn njóta takmarkaðs
trausts meðal abnennings, þar sem
tUiagan sjálf er vanhugsuð og tíl
þess eins fallin að
gera þingmenn enn tortryggilegri
en áður.
20-25 þátta spennti-
spjaU við alþingismenn
I greinargerð með þessari þings-
áfyktunartUIögu segir að nauðsyn-
legt sé að landsmenn fái óbrenglað-
ar uppfysingar um storf alþingis-
manna, en „margt bendir tíi þess f
umræðu á Islandi að fóik hafi mjög
bjagaða mynd af þeirri fjölþættu og
viðamUdu starfsemi sem fer fram í
Alþingi og hjá alþingismönnum.“
Vissulega kann það að vera rétt hjá
Áma Johnsen og félögum að þörf
sé á því að kynna störf Alþingis bet-
ur en gert hefur verið. Einhvem
veginn læðist þó sá gmnur að Garra
að það, sem Áma Uggi þyngst á
hjarta, sé að útskýra að oft þurfí
þingmenn að vera að aka eftír
Miklubrautinni með bflasímann
kláran, eða vera í fótbolta f KR-
heimilinu þegar verið er að greiða
atkvæði í þingsaL
Þá vekur það athygli í þessari
þingsáfyktunartUlögu hve flutn-
ingsmenn virðast gjörsamlega
sneyddir raunveruleikaskyni, þegar
kemur að hugmyndum þeirra um
áhugamál og skoðanir þjóöarinnar.
Talað er um að æskilegt væri að
gera 20-25 stutta sjónvarpsþættí,
sem væm 5-7 mínútna langir og
tengdust markvisst frettatímum
sjónvarpsins. Sfðan segir f greinar-
gerð: „Þá væri hægt að gera efnið
spennandi með vibtölum við þing-
menn og aðra um verklag, umræð-
ur á bak við tjöldin og ýmsa þætti
sem sjaldan eru í svíðsljósinu.14
Skyldu þeir vera margir, sem telja
að enn eitt viðtalið við Áma John-
sen um starfshætti Alþingis sé
„spennandi sjónvarpsefni"? Trú-
Iega tæki þá a.mJc. einhver þing-
maður undir með Spaugstofunni:
„Ég vildi ég væri að leika í betri
mynd!"
Dagskrá samkvæmt
tilskipun
Alvariegast af öllu er þó það dóm-
greindarieysi, sem bbrtist í sjálfri
hugmyndinni um sjónvarpsþætt-
ina. Dagskráigerð samkvæmt tíl-
skipun frá Alþingi er stórt skref aft-
urábak í fsienskri flölmiðlun, jafn-
vel þó verið sé að taJa um ríkássjón-
varp. Einhvem veginn hefur Garri
það á tilfinningunni að starfsmenn
sjónvarpsins Utu það ekki hýru
auga ef forsætísráðuneytíð og/eða
menntamálaráðuneytið færu að
krefjast þess af fréttastofu sjón-
varps eða einhverjum öðrum deild-
um þess, að hún útbyggi þessa
kynningarþætti frá Aiþingi. Mikið
hefúr veríð rætt og ritað um hlut-
verk útvarpsráðs og pólitíska skip-
anþess, enþrátt fyriraðþaðmálsé
allt hið viðkvæmasta, hefur mönn-
um tekist að koma sér upp viðun-
andi starfsreglum. Samkvæmmt
þeim reglum sldptir ráðlð sér ddd
af einstökum ákvörðunum f dag-
skrárgerð og er ekki fyrirfram með
puttana í þvf sem starfsfólkið er að
gera. Tilskipanir frá Alþingi um tíl-
tekna dagskrárgerð ásamt tíllögum
um efnistök koma því eins og
skrattínn úr sauðarieggnum og
verða í raun bamalegar þegar þær
eru hugsaðar tíl enda.
Annar möguleiki er þó til í þesso
sambandi, og hann er sá að Ámi
Johnsen og félagar hafi hugsað sér
að þessir þættir og kynningar-
myndir yrðu unnar og birtar sem
auglýsingar frá Alþingi. í því tilfelli
væri kostnaðurinn orðinn svimandi
og miðað við umræður á Alþingi
um auglýsingakostnað ríkistns að
undanfömu er ólfldegt að flutn-
ingsmenn telji verjandi aö fara
þannig meö skattpeninga lands-
manna. Niðurstaðan er því sú að ef
þingmenn vilja bæta ímynd sma
meðal almennings, þurfa þeir ein-
faldlega að vanda málflutning shm
og hugsa tíllögur sínar ö! enda. Á
þingi eru (jölmargir þingmenn,
sem þannig fara að, og þeir njóta
virðingar. Þeír hins vegar, sem brn
á borð fyrir fólk ótraustvekjandi
skyndilausnir, uppskera eins og tíl
er sáð. Þeir verða sjálfir ótrúverð-
ugir. Garri