Tíminn - 08.04.1992, Side 8
8 Tfminn
8. aprfl 1992
Best varðveitta
leyndarmálið í
Hollywoo
Mikil eftirvæntíng ríkir alltaf fyrir afhendingu Óskarsverðlauna, ekki
bara í kvikmyndaheiminum heldur um veröld alla. I þetta sinn vorum
við íslendingar sérlega áhugasamir vegna góðs gengis kvikmyndar Frið-
riks Þórs Friðrikssonar, Börn náttúrunnar, sem góðar líkur þóttu til að
hreppti verðlaunin sem besta erlenda myndin. En viti menn, öllum að
óvörum var það ítölsk mynd sem hlaut heiðurínn, og hafði hún þó lítið
verið til umræðu sem líklegur verðlaunahafi.
Óskarsverölaunahafar fyrir ári: Jeremy Irons, Kathy Bates og Whoopi Goldberg.
Hvað gerðist og hvað kom til?
Það veit svo sem enginn, nema
þeir sem atkvæðisréttinn hafa í
„akademíunni". Og hverjir eru
þessir 4.986 sem þar fara með öll
völd? Ja, þar stendur hnífurinn í
kúnni, því að svo virðist sem eng-
inn viti það heldur. Eftirfarandi
grein er úr The Sunday Times.
Hverjir eru þetta? Hverjir eru
félagar í því, sem gengur undir því
íburðarmikla nafni .Academy of
Motion Picture Arts and Sciences"
og úthluta gullnum styttum, tafar-
lausri frægð og í sumum tilfellum
ódauðlegri til 20 útvalinna? Ósk-
arsverðlaunin hafa nú verið afhent
64 sinnum.
Leikarar langfjöl-
mennasti hópurinn
Til að byrja með skulum við
nefna að akademíufélagarnir til-
heyra sérlega útvöldum hópi. í
akademíunni eru 4.986 manns
með atkvæðisrétt og í hana fær
enginn inngöngu nema vegna
verðleika. Leikarar eru langfjöl-
mennastir, 1.338 alls, og til að geta
gert sér vonir um að koma til álita
þarf viðkomandi að hafa sýnt góð-
an árangur í a.m.k. þrem kvik-
myndum sem máli skipta og jafn-
vel þá má búast við að vilyrði fyrir
inngöngu geti dregist um nokkur
ár. Önnur aðferð til að fá inngöngu
er að vera tilnefndur til Óskars-
verðlauna. Þá er viðkomandi sjálf-
krafa tækur í selskapinn.
En það er ekki bara það að aka-
demían sé bara ætluð útvöldum,
hún er líka umvafin leyndardóms-
hjúp. Öfugt við það, sem gerist í
flestum öðrum klúbbum, er hvergi
hægt að komast í félagaskrá, svo að
jafnvel sumir þeirra, sem þar eru
inni, vita ekki með vissu hverjir
hinir eru. Allt og sumt, sem skrif-
stofa akademíunnar er tilbúin að
gefa upplýsingar um, er fjöldi fé-
laga úr hinum ýmsu greinum
kvikmyndalistarinnar: 290 list-
rænir stjórnendur, 142 mynda-
tökumenn, 282 leikstjórar, 379
handritahöfundar o.s.frv. Hinar
einstöku deildir velja tilnefning-
arnar fimm fyrir hverja Óskars-
verðlaunahátíð á sínu sviði og síð-
an greiða félagarnir sem ein heild
um sæti vinningshafa. Undantekn-
ingarnar frá þessu fyrirkomulagi
eru virtustu Óskarsverðlaunin,
fyrir bestu myndina, sem allir
meðlimir akademíunnar útnefna.
Af hverju öll þessi
leynd?
Hvemig stendur þá á allri þess-
ari leynd? „Við viljum ekki að fé-
lagar okkar verði fyrir ónæði,“ seg-
ir framkvæmdastjóri akademíunn-
ar, Bruce Davis, „þó að þeir í kvik-
myndavemnum haldi að þeir hafi
allgóða hugmynd um hverjir þeir
em."
Og félagarnir verða reyndar fyr-
ir sífelldu ónæði á hverju ári, áður
en verðlaunaafhendingin fer fram.
Þeir fá ýmsar sendingar í pósti, s.s.
hljóðupptökur á geisladiskum og
myndbandsupptökur sem eiga að
koma þeim á þá skoðun að greiða
ákveðinni kvikmynd eða persónu
atkvæði sitt. Varaforseti kynning-
ardeildarinnar við eitt stóm kvik-
myndaveranna var nokkurn veg-
inn viss um að þar á bæ þekktu
menn flest nöfnin, hann gat jafn-
vel tilgreint þá 183 meðlimi aka-
demíunnar sem búsettir em í
Bretlandi.
Kynningarfulltrúar hafa ein-
staka innsýn í hvernig akademían
starfar, þar sem 331 úr þeirra hópi
tilheyra henni. Því er það að ekki
aðeins sendir kynningarfulltrúi
Paramount-kvikmyndafélagsins
starfsbróður sínum hjá Warner
Hverjir
eigasœti
iaka-
demíunni?
SwWMSwwwwwwwwwSwwwÍtttSwwwwiwíwfwlSOwWWOTÍwCwSBwÍwwSÍwíl
Bros. myndband með The Addams
Family í þeirri von að fá atkvæði
hans, heldur fær hann líka eintak
af JFK frá Warners í nákvæmlega
sama tilgangi. í gamla daga ætluð-
ust kvikmyndaverin til að þeirra
menn greiddu eigin framleiðslu
atkvæðið sitt, en atkvæðagreiðslan
er leynileg og nú á dögum er þrýst-
ingurinn ekki sá sami og áður var.
Það er þrætuepli í Hollywood að
þó að kynningarfulltrúar séu í sér-
deild innan akademíunnar, fái um-
boðsmenn ekki enn aðgang, en
sumir halda því fram að það séu
þeir sem ráða hverjir komast til
frægðar og hverjir ekki í greininni.
Þannig að þeir, sem byggja upp
mestu viðskiptin í bænum, eru
undanskildir. Jafnvel tilraunir til
inngöngu undir fölsku flaggi, s.s.
að titla sig framkvæmda- eða að-
stoðarframleiðendur kvikmynda,
hafa verið hindraðar. Engin deild
fær fleiri hafnanir um inngöngu
en framleiðendadeildin, sem hefur
403 meðlimi.
Af hverju er svona
eftirsótt að komast í
akademíuna?
Hver er ástæðan til þess að fólk
vill endilega fá að vera í þessum fé-
lagsskap? „Því fylgir mikill heið-
ur,“ segir breski framleiðandinn
Davina Belling, og sömu skoðunar
er framkvæmdastjóri akadem-
íunnar. „Svo að segja hver einasti
maður, sem hefur getið sér nafn í
greininni, er meðlimur," segir Da-
vis framkvæmdastjóri. „Þar eru
saman komnir þeir, sem mestrar
virðingar njóta í kvikmyndabrans-
anum.“
Aðildin gefur líka kost á því að
fara á ódýran hátt í bíó. Gegn 125
dollara árlegu félagsgjaldi getur
viðkomandi tekið vin sinn með sér
að sjá allar nýjustu kvikmyndirnar
á laugardögum og sunnudögum í
íburðarmiklum sýningarsal aka-
demíunnar við Wilshire Boule-
vard, og á meðan Óskarsverð-
launavertíðin stendur þarf ekki
annað en að veifa félagsskírteininu
í miðasölu næstum hvaða kvik-
myndahúss sem er til að vera
hleypt inn á flestar myndir án þess
að borga.
— ...................
ao utan
Viðbrögð áhorfenda á sýningun-
um í akademíusalnum eru góður
mælikvarði til að gera sér grein
rir mögulegum tilnefningum til
skarsverðlaunanna. „Ég vissi að
ekki var líklegt að Cape Fear (Víg-
höfði) hlyti tilnefningu sem besta
myndin í ár, þegar ég sá einhvern
kasta upp á karlaklósettinu eftir
sýninguna," sagði einn bíógest-
anna.
Aldraðir akademíu-
meðlimir velja helst
fullorðna
verðlaunahafa
Ef litið er í kringum sig á síð-
degissýningu á sunnudegi í aka-
demíusalnum, fæst það staðfest að
félagarnir eru ekki á æskuskeiði.
„Meðalaldurinn er handan fimm-
tugs“ þykir vægt áætlað, 30 árum
hærri en meðalaldur venjulegra
bíógesta. Það kemur því ekki al-
gerlega á óvart að meðalaldur
þeirra, sem tilnefndir voru fyrir
bestan leik í aðalhlutverki karla
nú, er því sem næst nákvæmlega
50 ár. Óþekktu ungu mennirnir í
leikarastétt hafa ekki enn hlotið
náð fyrir augum háttvirtra aka-
demíumeðlima.
Oft hefur akademían verið gagn-
rýnd fyrir að þar séu of margir
karlmenn, of margir hvítir og fé-
lagarnir séu of gamlir. Bruce Davis
viðurkennir að ólíklegt sé að fólki
úr tæknideildunum (201 klippari,
359 hljóðmenn, 236 tónlistar-
menn) sé veitt innganga innan
hálffertugs. Hins vegar er alveg til
í dæminu að leikurum sé hleypt
inn um hálfþrítugsaldurinn. Just-
in Henry var hleypt inn sjö ára
gömlum, eftir að hann var til-
nefndur fyrir leik sinn í Kramer
gegn Kramer (1979), en hann
greiðir ekki lengur atkvæði. Hann
yfirgaf leikarastéttina til að ná sér í
skólamenntun.
Gamlir leikarar, framleiðendur
og tæknimenn hafa hins vegar til-
hneigingu til að kveðja þetta líf,
meðan þeir bíða enn eftir að sím-
inn hringi og þeim verði boðið
nýtt starf. Það eru aðeins þeir, sem
eru orðnir eldgamlir, sem setjast í
helgan stein og hætta aö greiða at-
kvæði.
í Motion Picture Country
House, rétt að baki Hollywood-
hæðanna, búa í góðu yfirlæti 140
af þeim sem dregið hafa sig í hlé
frá kvikmyndaiðnaðinum fyrir ald-
urs sakir. Frægust er Mae Clarke,
sem náði ódauðlegri frægð þegar
James Cagney þrýsti greipaldini í
andlit hennar í myndinni Public
Enemy.
Þó að bíósalur sé á elliheimilinu,
þar sem nýjustu myndirnar eru
sýndar, er engan atkvæðagreið-
anda að finna meðal íbúanna.
Henry Ephron er glaðlegur átt-
ræður maður, sem var tilnefndur
til Óskarsverðlauna fyrir handritið
að Captain Newman 1963. Hann
hefur látið aðildina sína renna út.
Honum var bent á að hann gæti
stutt dóttur sína Nora (Heartbum,
When Harry Met Sally) með at-
kvæði sínu til að vinna til nokk-
urra Óskarsverðlauna. „Hún þarf
enga hjálp," sagði hann og brosti
föðurlega.
Hal Elias er orðinn 92ja ára og
voru veitt Óskarsverðlaun fyrir að
hafa veitt akademíunni forstöðu í
28 ár eða lengst allra. Hann les enn
kvikmyndatímaritin, en hætti að
greiða atkvæði þegar 88 ára gam-
all. Hann segist ekki þekkja 80%
nafnanna, sem nú prýða kvik-
myndaiðnaðinn.
Það er þó ekki víst að honum
hafi fundist hann utangátta, þegar
hann fylgdist með forseta akadem-
íunnar, Karl Malden, setja athöfn-
ina í sjónvarpinu, og unglinga eins
og Paul Newman, Audrey Hepbum
og Elizabeth Taylor afhenda verð-
launin og Hal Roach 100 ára taka á
móti sínum. „Ég sé fjöldann allan
af nýjum andlitum," sagði Johnny
Carson, þegar hann leit yfir áhorf-
endahópinn við verðlaunaveiting-
una fyrir nokkrum ámm. „Sér-
staklega á gömlu andlitunum."