Tíminn - 08.04.1992, Page 9

Tíminn - 08.04.1992, Page 9
Miövikudagur 8. apríl 1992 Tíminn 9 ■ DAGBÓK Fyrirlestur á vegum Stofnunar Siguröar Nordals Dr. Birgir Þór Runólfsson lektor flytur opinberan fyrirlestur um endalok ís- lenska þjóðveldisins í boði Stofhunar Sigurðar Nordals, fimmtudaginn 9. apríl 1992, kl. 17.15, í stofu 101 í Odda, hug- vísindahúsi Háskóla íslands. FVrirlesturinn nefnist „Reddusókn og ríkjamyndun: Hrun þjóðveldisins frá sjónarhomi stofnanahagfraeði." Birgir Þór stundaði nám í hagfræði við Lewis & Clark- háskóla í Oregon og George Mason-háskóla í Virginíu f Bandaríkjunum. Fjallar doktorsrit hans um tilurð þjóðskipulags á íslandi og þró- un þess á þjóðveldistímanum og nefnist „Ordered Anarchy, State, and Rent Seek- ing: The Icelandic Commonwealth, 930- 1264.“ - Stofrum Sigurðar Nordals Safnaðarheimili Áskirkju Hið árlega páskaeggjabingó verður hald- ið í safnaðarheimilinu fimmtudaginn 9. apríl og hefst kl. 20.30 - Stjómin Opinn fyrirlestur um Norður- löndin og Evrópubandalagið Fimmtudaginn 9. apríl heldur Rutger Lindahl, prófessor í stjómmálafræði við Gautaborgarháskóla, fyrirlestur í boði Alþjóðamálastofnunar Háskóla íslands um efnið „Norðurlöndin og Evrópu- bandalagið". Fyrirlesturinn hefst kl. 18 í stofu 101 í Lögbergi og er öllum opinn meðan húsrúm leyfir. Fyrirlesturinn fer fram á ensku. Rutger Lindahl er deildarforseti við stjómmálafræðideild Gautaborgarhá- skóla og hefúr sérhæft sig í alþjóða- stjómmálum. Þessa stundina vinnur hann að rannsóknum á stjómmálasam- vinnu innan Evrópubandalagsins og við- horfum Svía til bandalagsins. Alþjóðamdlastofnun Háskóla íslands Hallgrímssókn — Starf aldraðra Opið hús verður í dag, miðvikudag, og hefst kl. 14.30. Séra Sigurður Pálsson annast dagskrána. Ferðir sumarsins kynntar. Hafnarfjörður Skrifstofa Framsóknarfélaganna að Hverfisgötu 25, er opin alla þriðjudaga frá H. 17.00-19.00. Lltið inn I kaffi og spjall. Framsóknarfélögin I Hafnarfírðl. Kópavogur — Heitt á könnunni Skrifstofan að Digranesvegi 12 verður framvegis opin á laug- ardögum kl. 10.00-12.00. Lltið inn og fáið ykkur kaffisopa og spjallið saman. Framsóknarfélögin I Kópavogl. Sigurður Geirdal Félag ungra framsóknarmanna á Fljótsdalshéraði Námskeið í ræðumennsku og framsögn Helgina 10.-12. april næstkomandi fyrirhugar Félag ungra framsóknarmanna á Fljótsdalshéraði að standa fyrir námskeiði I raeðumennsku og almennri framsögn. Auk þess er ætlunin að taka fyrir ýmsa þá þætti sem að félagsmálum snúa. Námskeiðiö verður öllum opið sem hug hafa á að auka kunnáttu sina á umræddum sviðum. Áhugasamir vinsamlegast hafið samband við Sigurð I sima 97-11480. Stjóm F.U.F.F. Borgfirðingar — Nærsveitir Spilum félagsvist I Félagsbæ föstudaginn 10. apríl kl. 20.30. Fyrsta kvöldiö f þriggja kvölda keppni. Mætum vel og stundvíslega. Framsóknarfélag Borgamess. Málefnahópur þlngffokks framsóknarmanna um atvinnu- og kjaramál boðar til fundar með launþegaráðum Framsóknarflokksins og félögum I verkalýðs- hreyfingunni sem hér segin Suöurfand 8. aprfl kl. 21.00 i Eyrarvegi 15, Selfossi. Vesturtand 13. apríi kl. 20.30 f Félagsbæ, Borgamesi. Norðuriand eystra eftlr páska. Nánar auglýst slðar. Þingfíokkur framsóknarmanna. FJÖLBRAUTASKÓLI SUÐURLANDS TRYGGVAGOTU 25 • B00 SELFOSSl • SIMl 96 22111 • (ŒNWiAlA 491161 - 02B9 Fjölbrautaskóli Suðurlands á Selfossi auglýsir eftir kennurum í íslensku, stærðfræði og sérkennslu. Upplýsingarveitirskólameistari (sími 98-22111). Umsóknir berist honum fyrir 30. apríl 1992. Skólameistari — Þökkum af alhug auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför Sigurjóns Guðmundssonar Stóra-Saurbæ, Ölfusl Sérstakar þakkir til starfsfólks Sjúkrahúss Suöuriands. Jón Guðmundsson Halldóra Þórðardóttir Friðrik Krlstjánsson Óiína Siguróardóttir Sean Connery greip tækifæriö þegar tilefni gafst til Parfsarferðar og gerði hana að fjölskylduskemmtun í og með. í för með honum slógust Micheline kona hans, Jason sonur hans og Suzy Riley kærasta Ja- sons, auk Stephane sonar Micheline og konu hans Tania. PARÍSARHELGI SEANS C0NNERY Nýlega fékk Sean Connery kær- komiö tilefni til að taka fjölskyldu sína með í helgarferð til Parísar, en hann mun annars oftast halda sig á Marbella á Spáni núorðið. í París voru saman komin Sean, kona hans Micheline, sonur Seans Ja- son, og vinkona Jasons Suzy Riley, svo og Stephane sonur Micheline og kona hans Tania. Tilefni ferðarinnar var hreint ekki svo lítið né ómerkilegt. Sean hafði verið sæmdur orðu frönsku heið- ursfylkingarinnar og veitti hann henni viðtöku á hátíðarfrumsýn- ingu á nýjasta ballett Mikhails Baryshnikov, sem haldin var til styrktar krabbameinsrannsóknar- stofnun sem kennd er við Weiz- mann, en Sean er einn ötulasti stuðningsmaður hennar. Því fer víðs fjarri að Sean Connery sé sestur í helgan stein. Stutt er síðan við sögðum frá því hér í spegli Tímans að hann tæki virkan þátt í stjórnmálabaráttunni í föð- urlandi sínu fyrir Skoska þjóðar- flokkinn, og nýlega hefur verið tekin til sýninga kvikmyndin .Medicine Man“, sem gerist í regn- skógum Suður-Ameríku. Þar leik- ur Sean Connery á móti leikkon- unni Lorraine Bracco. Bill Clinton sækist eftir að verða forseti Bandaríkjanna, en: Bróðir hans er tukthúslimur! Bill Clinton lagði inn gott orð fyr- ir bróður sinn hjá framleiðend- um sjónvarpsþáttanna Design- ing Women. Það virðist vera vísasti vegur til að glata mannorðinu í Bandaríkjun- um að sækjast eftir þvf að vera í framboði til forsetakosninga. Það hefur mörgum orðið hált á því á undanförnum árum og langt í frá að bjöminn sé unninn, jafnvel þó að því langþráða takmarki verði náð að komast í framboðið. Nú virðist Bill Clinton, ríkisstjóri Arkansas, eiga góða möguleika á því að hljóta útnefningu demó- krata til framboðs og hefur ekki linnt uppljóstrunum um skugga- lega fortíð ríkisstjórans síðan, sönnum eða upplognum. Nú hefur bæst þar við að upplýst er að hálf- bróðir hans, Roger, hefur setið í 15 mánuði í fangelsi fyrir fíknilyfja- dreifingu, og reyndar sjálfúr verið undir áhrifum eiturlyfja mun lengur. Roger hefur nú fengið starf sem aðstoðarframleiðandi sjón- varpsþátta, fyrir tilstilli bróður síns og mágkonu, og segist vinna við þá 60 tíma á viku, auk þess sem hann spilar í hijómsveit á kvöldin. Reyndar finnst þeim illkvittnustu alveg með fádæmum að forsetaefni sé að beita áhrifum sínum við að útvega mgludallinum bróður sín- um eftirsótta vinnu. Ríkisstjórinn hefur ekkert reynt að halda því leyndu að bæði stjúp- faðir hans og hálfbróðir hafi átt í baráttu við brennivín og fíknilyf, en honum hafí samt þótt vænt um Roger Clinton gerir þaö gott f Hollywood þessa dagana og fíknineystudagarnir vonandi að baki. þá. Bill Clinton hefur Ifka tekist að gefa trúverðugar skýringar á bréfi þar sem hann þakkaði veitta að- stoð við að komast hjá herþjón- ustu í Víetnam. Sömuleiðis hefur verið tekin til greina afdráttarlaus neitun hans um að hafa staðið í ástarsambandi utan hjónabands í 12 ár með Gennifer nokkurri Flo- wers, hvernig sem honum á eftir að ganga að sverja af sér annað framhjáhald. En framhjáhald virð- ist vera helsta kosningamálið í Bandaríkjunum þessi árin, og er þess skemmst að minnast að Hill- ary Clinton, kona frambjóðanda- efnisins, hefur beðist afsökunar á því að gefa í skyn að George Bush væri sjálfur ekki við eina fjölina felldur í þeim málum!

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.