Tíminn - 07.05.1992, Síða 2
2 Tíminn
Fimmtudagur 7. maí 1992
Nefnd um sameiningu sveitarfélaga hefur skoðað möguleika á að sameina sveitarfélög á tveimur
svæðum á landinu í tilraunaskyni og að um þau verði sett sérstök lög:
Tilraun gerö með sam-
einingu sveitarfélaga?
Nefnd um sameiningu sveitarfélaga hefur rætt þann möguieika að
gera sérstaka tilraun með sameiningu sveitarfélaga á tveimur stöð-
um á landinu, í ísafjarðarsýslum og A-Skaftafellssýsiu eða Rangár-
vallasýslu. Gert er ráð fyrir að um tiltekið árabil gildi sérstök lög um
þessa sameiningu sem snúi að verkaskiptingu og tekjustofnum.
Miðað er við að sveitarfélögin fái eina óskipta heildarupphæð á fjár-
lögum til reksturs grunnskóla, heilsugæslu, málefna fatlaðra, hafn-
armála, löggæslu og fleiri verkefna sem þau skipti sjálf.
Hugmyndin er að velja tvö ólík
svæði á landsbyggðinni og sameina
þar sveitarfélög. Hugsunin er sú að
veita sveitarfélögunum sjálfstæði og
færa til þeirra verkefni sem ríkis-
valdið sinnir í dag. Til þess að þetta
sé hægt er nauðsynlegt að sam-
þykkja sérstök lög um sameiningu
þessara sveitarfélaga. Lögin munu
ná til verkaskiptingar, tekjustofna
og önnur atriði er varða stjórn sveit-
arfélaga á eigin .málum. Um er að
ræða málaflokka sem menn sjá fram
Frumvarp þess efnis að ráðherrar
myndi sérstaka nefnd sem fari með
bygginga- og skipulagsmá! uppi á
hálendinu í stað sveitarstjómanna
eins og nú er, mætir mikilli and-
stöðu meðal Sunnlendinga. Það
kemur fram í könnun sem Gallup á
íslandi hefur gert fyrir Samtök
sunnlenskra sveitarfélaga.
á að gætu hugsanlega orðið á verk-
sviði sveitarfélaga í framtíðinni. Um
er að ræða málaflokka eins og rekst-
ur grunnskóla, heilsugæslu, málefni
fatlaðra, hafnarmála, löggæslu og ef
til vill fleiri verkefni.
Tekjustofnar tilraunasveitarfélag-
anna yrðu lagaðir að hinum nýju
reglum þannig að þau fengju eina
óskipta heildarupphæð af fjárlögum
til þess að kosta verkefni sem þau
taka við af ríkinu. Sveitarstjórnirnar
hefðu síðan frelsi til að framkvæma
Ef marka má könnunina vilja
82,7% aðspurðra óbreytt fyrirkomu-
lag en aðeins 13,9% að þessi mál
flytjist til ráðherranefndarinnar.
Ljóst er þó að frumvarpið er ekki á
allra vitorði, því 1,2% segist þekkja
það mjög mikið, 7,5% frekar mikið,
27,6% frekar lítið og 62,7% mjög lít-
ið. —SBS/Selfossi
skyldur sínar með þeim hætti sem
þeim sýndist affærasælastar.
Gert er ráð fyrir að mikilvægur
hluti tilraunarinnar yrði að þessi
sveitarfélög yrðu gerð mun sjálf-
stæðari en sveitarfélögin eru nú
með því að tekin yrðu úr sambandi
margs konar ákvæði í lögum sem
leggja sveitarfélögunum alls konar
skyldur á herðar af hálfu ríkisins.
Fyrir nefndarmönnum vakir að
gera tilraun sem opnað gæti augu
íbúa á landsbyggðinni fyrir því að
þeir geti tekið á sig aukna ábyrgð og
verkefni með því að vinna saman.
Nefndin telur að með því að gera
þetta í formi tilraunar sé hægt að
sníða agnúa af á mun auðveldari
hátt en ef þetta er gert fyrir Iandið
allt í einu. Nefndin vonast eftir að
tilraunin geti haft jákvæð áhrif á
byggðaþróun á viðkomandi svæði,
ekki síst ef breytingin eykur sjálfs-
traust meðal íbúanna.
Albert Eymundsson, oddviti
sýslunefndar A-Skaftafellssýslu,
sagði að hugmyndin hefði verið
kynnt fyrir sveitarstjómarmönnum
í sýslunni á sýsluþingi fyrr í vor. Al-
bert sagði að menn hefðu almennt
tekið nokkuð vel í að skoða þessa
hugmynd, en þó væri nokkur
hræðsla við þetta í minni sveitarfé-
lögum sem liggja fjærst Höfn. Sam-
þykkt var tillaga á þinginu um að
sameiningarnefnd félagsmálaráðu-
neytisins léti kanna kosti og galla
hugmyndarinnar fyrir 1. ágúst
næstkomandi og í framhaldi af því
fari fram umfjöllun um málið í
sveitarfélögunum.
í A-Skaftafellssýslu eru sex sveit-
arfélög. Þau hafa á seinni árum haft
með sér allnáið samstarf og því er
talið vænlegt að gera þessa tilraun í
sýslunni. Sveitarfélögin hafa verið
með sameiginlegar brunavamir,
sameiginlegan heilbrigðisfulltrúa
og byggingafulltrúa. Þá er náið sam-
starf á sviði heilbrigðis- og öldrun-
armála.
Albert sagði að vissulega væru
menn ekki algerlega sammála um
ágæti sameiningar sveitarfélaganna
í sýslunni, en hann sagðist þó telja
að almennt fylgi sé við nánari sam-
vinnu þeirra. Hann sagði að minni
sveitarfélögin hefðu mestar áhyggj-
ur af skólamálum, en sá málaflokkur
er stærsti útgjaldaliður litlu sveitar-
félaganna.
Bygginga- og skipulagsmál á hálendinu:
Andstaða gegn
ráðherranefnd
-EÓ
ísland á góða von í Söngvakeppni
evrópskra sjónvarpsstööva:
Island eitt
af sex efstu
Mest er veðjað á Júgóslavíu, fr-
land og Möltu í Söngvakeppni
evrópskra sjónvarpsstöðva hjá
breskum veðbönkum um þessar
mundir.
íiiand og Bretland eru enn með
9 á móti 2, Þýskaland með 6 á
móti 1 og Júgóslavía með 7 á
móti 1.
ísland og Noregur eru á sama
róli meb 8 á móti 1. Malta eykur
vinsældir sínar og er komin í hóp
Austurríkis og Svíþjóðar sem eru
með 10 á móti 1.
Frakkland er með 12 á móti 1,
Luxemborg með 14 á móti 1 og
Ðanmörk og Hoiland með 16 á
móti 1. ísraei hefur lækkað sig og
hefur aðeins 20 á móti 1 ásamt
Spáni og Týrkiandi. Belgta, Fhm-
land, Sviss, Portúga! og Kýpur
eru með 25 á móti 1. Grilddr og
ftalir eru ennþá neðstir.
Talsmaður veðbankans segist
telja ísland geta átt von í góðum
árangri í keppninnL Hann segir
jafnframt að Bretar veðji furðu
lítiö á sitt eigið lag í ár miðað við
undanfarin ár.
—GKG.
íslensku keppendurnir í Eurovision söngvakeppninni:
Sigga og Sissa
vekja athygli
íslensku söngkonumar í Eurovision söngvakeppninni, þær Sigrún
Eva Armannsdóttir og Sigríður Beinteinsdóttir, vöktu mikla athygli í
móttöku sem haldin var fyrir keppendur í ráðhúsi Málmeyjar.
„Þama var fullt af ljósmyndurum
og maður var endalaust að „pósa“,“
segir Sigrún Eva.“ Við klæðum okk-
ur yfirleitt alveg eins og þess vegna
er alltaf verið að spyrja okkur hvort
við séum systur."
Sigríði og Sigrúnu virðist líða vel
úti í Svíþjóð, allavega spurði einn úr
gríska liöinu þær í móttökunni:
„Why are you always so happy?" Það
komu einhverjar vöflur á þær stöllur
en þær svöruðu því þó til að það
væri bara svona gaman.
Sigrún Eva segir Austurríki þykja
hvað sigurstranglegast þama úti. Is-
lendingahópurinn er um 30 manns
að þessu sinni og hefur svo fjöl-
mennt lið ekki farið áður út í keppn-
ina en nú hafa allir keppendumir
maka sína með sér.
Jakob Magnússon tónlistarmaður
bættist í hópinn í gær ásamt Ragn-
hildi Gísladóttur og verður hann
blaðafulltrúi íslenska Iiðsins. í kvöld
verður haldinn íslenskur blaða-
mannafundur þar sem boðið verður
upp á íslenskan mat og er ekki að efa
að lagið verður tekið.
Á milli blaðamannafunda og æf-
inga geta keppendur og þeirra fylgd-
arlið heimsótt skemmtistað sem
tekinn hefur verið á leigu fyrir þá.
Þar geta þeir snætt, fengið sér snún-
ing eða spreytt sig á „karaoke-söng“.
Á morgun verður fyrsta æfingin í
búningum og um kvöidið verður
önnur æfing með áhorfendum. Á
laugardaginn verður svo þriðja æf-
ingin með áhorfendum og tilbúinni
atkvæðagreiðslu en keppnin sjálf er
kl. 21:00 að sænskum tíma en kl.
19:00 að íslenskum tíma.
, Atriðið okkar verður mjög svipað
og á myndbandinu," segir Sigrún
Eva, „nema hvað hljómsveitin verð-
ur miklu nær okkur. Við verðum
meira í hnapp.“
Sigrún segist ekki vera orðin
taugaóstyrk vegna keppninnar en
því miður væri hún örlítið hás, sem
væri að sjálfsögðu ekki gott. „Það
muna ótrúlega margir eftir Siggu og
Grétari síðan í keppninni í Júgóslav-
íu,“ segir hún, „og þau vekja mikla
athygli hér fyrir það.“
Sigrún segist ekki alveg vera viss
hvort hún myndi taka aftur þátt í
Eurovision-keppni aftur: „Það fer
eftir því hvemig gengur núna og
hvortvið Iendum í 16. sæti.“
íslenski hópurinn kemur aftur
sunnudaginn 10. maí. —GKG.