Tíminn - 07.05.1992, Blaðsíða 9

Tíminn - 07.05.1992, Blaðsíða 9
Tíminn 9 Fimmtudagur 7. maí 1992 DAGBÓK Unnið við glertist hjá féiagsstarfi aldraöra f Kópavogi. Frá Félagsstarfi aldraðra Kópavogi Nú fer að lifna náttúran, nú fara að vakna blómin, nú fer að syngja sóiskríkjan, svanur að hcekka róminn. Margt annað skeður við vor- og sumar- komu. Félög, skólar, klúbbar, kórar og ýmis samtök sýna árangur vetrarstarfs. Félagsstarf aldraðra í Kópavogi, sem nú á að baki 20 starfsvetur, heldur sýningu á unnum munum frá þessum vetri í dag, 7. maí, og á morgun, 8. maí, kl. 14 í félags- heimili bæjarins, Fannborg 2, II. hæð. Á sama tíma verður basar og kaffisala, en um hana sjá að þessu sinni kórfélagar úr kór FAK., „Söngvinir". í kaffitíman- um koma í heimsókn vinakórar úr ná- grenninu. Á fimmtudag: Kórinn Vorboð- ar úr Mosfellsbæ, stjómandi Páll Helga- son, og á föstudag: Kór Félagsstarfs aldr- aðra í Reykjavík, stjómandi Sigurbjörg Hólmgrímsdóttir. Allur ágóði af kaffisöl- unni rennur til kórsins, en ágóði af basar rennur beint til eigenda basarmuna. Að þessu sinni mun glerlist og vefnað- ur setja mestan svip á sýninguna. En að henni lokinni lýkur hinu hefðbundna vetrarstarfi og meiri áhersla er lögð á ferðalög og útivist. Strax sunnudaginn 10. maí verður farin kirkjuferð að Sel- fossi, og 10. júní verður ferð til Suður- Englands. Vinir og velunnarar, gjörið svo vel og lítið inn. Norræna húsið: Fyrirlestur um stefnumótun í listum í Finnlandi Föstudaginn 8. maí kl. 17 heldur finnski listfræðingurinn Tuulikki Karjalainen fýrirlestur í fundarsal Norræna hússins og nefnir hann: „Hur administreras konsten i Finland?" Tuulikki Karjalainen er formaður embættismannanefndar, sem fjallar um stefnumótun í listum í Finnlandi. Hún hefur verið formaður frá 1. sept. 1990. Formaður er ríkisstarfsmaður í fullu starfi. Það er ríkisráðið sem skipar í nefndina til þriggja ára. í henni starfa kosnir fulltrúar frá ýmsum listafélögum og samtökum. Mikil og fjörug umræða hefur átt sér stað um listapólitíkina í Finnlandi að undanfömu, og í fyrra var mikið skrifað í blöðum um listamannalaun og styrki. Finnar settu fyrir rúmlega 20 árum lög um að efla og styrkja Iistir, og hafa þau reynst góður grunnur að þeirri listsköp- un sem fram hefur fariö þar í landi. En nú eru tímamir að breytast. Þróunin á alþjóðavettvangi (Efnahagsbandalagið og Austur- Evrópa), endurskipulagning í stjórnsýslu og ástand efnahagsmála gæt- ir einnig í finnskri menningar- og lista- pólitík. Finnska menntamálaráðuneytið hefur skipað nefnd til aö marka menningar- stefnuna í Finnlandi í framtíðinni. í janúar sl. kom út skýrsla um stefnu- mörkun á sviði menningarmála á 9. ára- tugnum. Menningarmálaráðherra Finna, Tytti Isohookana-Asunmaa, hefúr beðið menningarráð Evrópuráðsins um mat á menningarstefnu Finnlands. Mál- þing um stöðu listamanna verður haldið í Helsinki í byrjun júní með þátttöku Evrópulanda. Framhald á bls. 10 BÆNDUR Áhugasamur 12 ára drengur óskar eftir að komast í sveit í sumar. Upplýsingar í síma 91-611319. Nauðungaruppboð Aö kröfu Magnúsar Ólafssonar bónda, Efra-Skarði, Hvalfjarðarstrand- arhreppi, verða seld á opinberu uppboði fjögur ung hross. Uppboöið fer fram í Tungu, Hvalfjarðarstrandarhreppi, laugardaginn 16. maí kl. 14.00. Hreppstjóri Hvalfjarðarstrandarhrepps. Hafnarfjörður Skrifstofa Framsóknarfélaganna að Hverfisgötu 25, er opin alla þriðjudaga frá kl. 17.00-19.00. Lítið inn í kaffi og spjall. Framsóknarfélögin í Hafnarfírði. Borgnesingar— Nærsveitir Spilum félagsvist í Félagsbæ föstudaginn 8. mai kl. 20.30. Siðasta kvöldið i þriggja kvölda keppni. Mætum vel og stundvislega. Framsóknarfélag Borgamess. Kópavogur— Umhverfismál Almennur opinn fundur á vegum Fulltrúaráðs framsóknarfélaganna I Kópavogi verð- ur haldinn fimmtudaginn 7. mal n.k. kl. 20.30 að Digranesvegi 12. Dagskrá: 1. Haukur Ingibergsson, formaður umhverfisráðs, kynnir umhverfisráð. 2. Einar E. Sæmundsen garðyrkjustjóri talar um sumarstarf vinnuskólans og almennt um umhverfismál i Kópavogi. 3. Fyrirspumir og þeim svarað. Stjómin. Kópavogur — Félagsvist Spiluð verður félagsvist að Digranesvegi 12 sunnudaginn 10. maí kl. 15.00. Góð verðlaun og veglegar kaffiveitingar. Fœyja, félag framsóknarkvenna. Sonur Humphreys Bogart og Lauren Bacall, Steve, var mættur ásamt konu sinni, Barbara. Með þeim á myndinni eru Isabella Rossellini og Julius Epstein, einn þriggja handritshöfunda en þeir fengu Oskars- verðlaun fyrir Casablanca. 50 ára afmæl- is kvikmyndar- innar Casa- blanca minnst Þess er nú minnst að 50 ár eru lið- in frá því hin ógleymanlega og sí- gilda kvikmynd Casablanca var gerð. Eitt fyrirtækja fjölmiðla- kóngsins Teds Tltrner á nú sýning- arréttinn á myndinni og bauð hann til hátíðar í tilefni afmælisins, þar sem meðal annarra gesta voru full- trúar aðalleikendanna Ingrid Berg- man og Humphreys Bogart. Paul Henreid, sem var í þriðja stærsta hlutverkinu, lést aðeins viku fyrir sýningarhátíðina. Eini núlifandi leikarinn, Dan Seymour, var líka viðstaddur, svo og tveir af handrits- höfundunum þrem, en þeir fengu Óskarsverðlaun fyrir verk sitt. Ekkja þess þriðja var líka viðstödd. Casablanca er nú sýnd í Museum of Modem Art í New York. Ingrid Bergman og Humphrey Bogart fóru með aðalhlutverkin í Casablanca. Þessi 50 ár hefur myndin notið stöðugra vinsælda og aldrei fallið í gleymsku. Hver man td. ekki efdr laginu ,As Time Goes by“, sem Rick bað Sam að leika hvað eftir annað? Eða viðkvæm og rómantísk atriðin milli Ricks og Ilse, sem Humphrey Bogart og Ingrid Bergman fóru svo ljúflega með meðan Ilse beið að- stoðar Ricks við að komast frá Casablanca ásamt manni sfnum Victor Laszlo (Paul Henreid) á flótta undan nasistum á árum síð- ari heimsstyrjaldarinnar? í ljósi þess hvað vel tókst til með Casablanca er svolítið kúnstugt að hugsa til þess að upphaflega mun hafa verið stungið upp á Ronald Reagan, Ann Sheridan og Dennis Morgan í aðalhlutverkin. Dætur Ingrid Bergman, Pia Lindstrom og tvíburasysturnar Ingrid og Isabella Rossellini, voru viðstaddar „endurfrum- sýninguna" á Casablanca.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.