Tíminn - 30.06.1992, Blaðsíða 3
Þriöjudagur 30. júní 1992
Tíminn 3
Alþýðubandalagið hefur hafnað EES samningnum og Ólafur Ragnar
Grímsson segir EB-aðild bjóða upp á meiri möguleika en EES:
Sérsamningur við
EB er eina leiðin
Alþýðubandalagið hafnaði um helg-
ina EES samningnum eins og hann
liggur nú fyrir. Það gerði mið-
stjómarfundur flokksins en fyrir
þeim fundi lá tillaga frá flokks-
stjóm og þingflokki. Niðurstaða
flokksins var sú að skilgreina EES
sem forsal EB „hann væri í reynd
aukaaðild að EB, forspil að fullri
EB aðild“ og að mati formannsins
er aðildin að EES jafnvel enn verri
kostur en aðild að EB. Ólafur Ragn-
ar segist ekki lengur vera þeirrar
skoðunar að hægt sé að draga línu á
milli þessara tveggja fyrirbæra og
að til sé eitthvert hlið sem við þurf-
um ekki að ganga í gegnum.
Hann segist nú sannfærður um að
slíkt hlið sé ekki til. Því bendir hann
á að vilji menn hafa áhrif á evrópska
efnahagssvæðinu sé miklu betra að
sitja við sjálft EB háborðið og telur
hann þetta hafa ráðið miklu t.d. um
afstöðu Svía. Það sé einfaldlega
betra að fara á EB höfúðbólið og
hafa eitthvað að segja, en vera
áhrifslaus á EES hjáleigunni.
Alþýðubandalagið leggur þó ekki
til aðildarumsókn að EB, heldur
þvert á móti hafnar flokkurinn slíku.
Hann vill hins vegar að í stað EES
samningsins komi tvíhliða samn-
ingar íslands og EB um viðskipti og
samvinnu.
Það er jafnframt niðurstaða mið-
stjórnar Alþýðubandalagsins að ef
EES samningurinn kemur samt
sem áður til endanlegrar afgreiðslu
á Alþingi verði tvennt að gerast áður.
f fyrsta lagi verði að fara fram þjóð-
aratkvæðagreiðsla um efni samn-
ingsins og í öðru lagi verði að breyta
stjórnarskránni til að koma í veg fyr-
ir stjórnarskrárbrot.
Alþýðubandalagið vill að viðræður
um tvíhliða viðskiptasamning ís-
lands og EB hefjist strax í haust og
hefur formaður flokksins látið taka
saman sýnishorn af slíkum tvíhliða-
samningi þar sem getur að líta út-
færslur á ýmsu því sem í slíkum
samningi þarf að vera. Þar er þó gert
ráð fyrir því að samningsaðilar séu
jafnréttháir hvað varðar frumkvæði
og eftirlit með samningnum.
Á blaðamannafundi í gær benti
Ólafur Ragnar Grímsson, formaður
Alþýðubandalagsins, á að á ráð-
herrafundi EB í Portúgal um helg-
ina hafi EB einmitt samþykkt að
taka nú þegar upp viðræður um að-
ild við EFTA ríkin. Þetta bendi til
þess að EES muni ekki verða verða
sú framtíðarlausn sem upphaflega
hafi verið gert ráð fyrir og það sem
utanríkisráðherra kallaði vegabréf
inn í 21. öldina verði útrunnið fyrir
aldamótin, eins og Ólafur Ragnar
orðaði það.
Það vekur athygli að formaður Al-
þýðubandalagsins stillir málum
þannig upp að íslendingar eigi um
tvo kosti að velja. Annaðhvort fúlla
aðild að EB eða tvíhliða viðskipta-
samning.
Aðspurður hvort þetta þýddi að
Alþýðubandalagið liti á aðild sem
raunhæfan valkost ef ekki næðist
viðunandi tvíhliða samningur kvað
Ólafur svo ekki vera en benti á að
þetta væru þær tvær meginleiðir
sem færar væru til að útvíkka form-
leg samningsbundin samskipti aðil-
anna.
Auk þeirrar almennu athuga-
semdar að forsendur tveggja stoða
kerfis á stóru evrópsku efnahags-
svæði hafi brostið með aðildarum-
sóknum EFTA ríkjanna í EB, er það
fyrst og fremst á tveimur sviðum
sem ALþýðubandalagið gerir at-
hugasemdir við EES saminginn.
Annars vegar er það hið mikla
stofnana- og eftirlitskerfi sem yfir-
tekur ýmsa þá starfsemi og það
frumkvæði sem áður var í höndum
íslendinga og skerði þannig sjálf-
stæði þjóðarinnar. Þetta kerfi sé of-
vaxið fyrir þau verk sem það á að
vinna við breyttar aðstæður og henti
hreinlega ekki. Hins vegar eru Al-
þýðubandalagsmenn óánægðir með
þá niðurstöðu sem sjávarútvegsmál-
in hafa fengið í samningaferlinu.
Flokkurinn segir að EB hafi neitað
að samþykkja grundvallarkröfur
okkar íslendinga varðandi það að
reglur frjálsra viðskipta nái til sjáv-
arafurða og að viðskipti með sjávar-
afurðir yrðu tollfrjáls. Hvorugt hafí
náðst, EB beitti enn stórfelldum rík-
isstyrkjum í sjávarútvegi og skipa-
smíðum og legði enn tolla á aðalút-
flutningsvörur íslendinga á sama
tíma og þeirra helstu útflutning-
svörur væru tollfrjálsar hér. Þó
tollalækkanir hafí náðst á ákveðnum
vöruflokkum telur Alþb. það ekki
nægjanlegt og bendir á að ríkis-
stjórnin hafí í raun brotið þá grund-
vallarreglu íslenskra stjórnvalda að
láta ekki veiðiheimildir í íslenskri
landhelgi fyrir tollalækkanir. Þetta
segja Alþýðubandalagsmenn koma
fram í þeim misskilningi að verið sé
að semja um gagnkvæmar veiði-
heimildir við EB. Hið rétta sé hins
vegar að sú loðna sem sagt er að EB
láti af hendi í staðinn fyrir að fá að
veiða 3000 tonn af karfa í íslenskri
landhelgi sé einungis pappírsvið-
skipti enda hafi hingað til enginn
Tveir miklir brunar um helgina:
MIKIÐ TJÓN Á
BÁÐUM STÖÐUM
Tveir brunar urðu um helgina, ann-
ar í Höfnum en hinn á Þorlákshöfn.
Slys við
Álfheima
Ekið var á gangandi vegfaranda um
miðjan dag við Álfheima í gær.
Var hann fluttur á slysadeild en
meiðsli hans eru ekki talin alvarleg.
—GKG.
veitt þessa loðnu nema íslendingar,
Norðmenn og Færeyingar. -bg
Ráðherra bregst við Menningarsjóðsdeilu:
Skipar tilsjónarmann
Ólafur G. Einarsson menntamálaráð-
herra hefur sett A. Snævar Guð-
mundsson tilsjónarmann Menningar-
sjóðs frá og með 1. júli til næstu ára-
móta. Þessi ákvörðun er tekin með
vísan til 36. greinar laga nr. 1/1992
um ráðstafanir í ríkisfjármálum.
Ákvörðunin er tekin í samráði við
meirihluta menntamálaráðs.
Menntamálaráðherra grípur til
þessara ráðstafana eftir að mennta-
málaráð varð óstarfhæft eftir fúnd
þess á föstudag. Ráðherra segir að for-
maður ráðsins hafi neitað að boða til
fundar þess fyrr en í ágúst og því
bregðist hann við fjárhagslegum
vanda Menningarsjóðs með þessum
hætti. Hann segir sýnt að kostnaður
við rekstur Menningarsjóðs fari fram
úr þeim fjárveitingum sem fjárlög árs-
ins 1992 ákveða.
-BS
I Höfnum brann fiskvinnsluhúsið
Eitill hf. við Seljavog aðfaranótt
laugardagsins og var bruninn til-
kynntur um kl. 2:00. Slökkvistarf
gekk vel og lauk því um kl.7:00.
Mikið tjón varð og er húsið ónýtt
að mestu.
Á Þorlákshöfn brann einbýlishús
að Setbergi 13 og er talið að kviknað
hafi í út frá eldavél.
Enginnn var heima þegar eldur-
inn kom upp en hann var aðeins í
eldhúsinu. AJftur á móti bárust reyk-
ur og sót út um allt húsið og
skemmdu það talsvert. —GKG.
INNLAUSNARVERÐ
VAXTAMIÐA VERÐTRYGGÐRA
SPARISKfRTEINA RÍKISSJÓÐS
11. FL. B.1985
Hinn 10. júlí 1992 erfimmtándi fasti gjalddagi vaxtamiða verðtryggðra
spariskírteina ríkissjóðs með vaxtamiðum í 1. fl.B.1985.
Gegn framvísun vaxtamiða nr.15 verður frá og með 10. júlí n.k. greitt sem hér segir:
Vaxtamiði með
5.000,- kr. skírteini
10.000,-kr. "
100.000,- kr. "
= kr. 529,80
= kr. 1.059,60
= kr.10.596,00
Ofangreind fjárhæð er vextir af höfuðstól spariskírteinanna fyrir tímabilið
10. janúar 1992 til 10. júlí 1992 að viðbættum verðbótum sem fylgja hækkun
sem orðið hefur á lánskjaravísitölu frá grunnvísitölu 1006
hinn 1. janúar 1985 til 3230 hinn 1. júlí 1992.
Athygli skal vakin á því að innlausnarfjárhæð vaxtamiða breytist aldrei eftir gjalddaga.
Innlausn vaxtamiða nr.15 ferfram gegn framvísun þeirra í afgreiðslu Seðlabanka íslands,
Kalkofnsvegi 1, Reykjavík, og hefst hinn 10. júlí 1992.
Reykjavík, 30. júní 1992.
SEÐLABANKI ISLANDS
AUGLYSING
UMINNLAUSNARVERÐ
VERÐTRYGGÐRA
SPARISKÍRTEINA RÍKISSJÓÐS
FLOKKUR INNLAUSNARTÍMABIL INNLAUSNARVERÐ *) Á KR. 10.000,00
1977- 2.fl. 1978- 2.fl. 1979- 2.fl. 10.09.92-10.09.93 10.09.92-10.09.93 15.09.92-15.09.93 kr. 937.526,82 kr. 598.913,00 kr. 390.445,45
FLOKKUR INNLAUSNARTÍMABIL INNLAUSNARVERÐ *) Á KR. 10.000,00
1985-1 .fl.A 1985- 1.fl.B 1986- 1.fl.A3 ár 1986-1 .fl.A 4 ár 1986-1 .fl.A 6 ár 1986-1 .fl.B 1986-2.fl.A4 ár 1986- 2.ÍI.A 6 ár 1987- 1.fl.A2 ár 1987-1 .fl.A 4 ár 10.07.92-10.01.93 10.07.92-10.01.93 10.07.92-10.01.93 10.07.92-10.01.93 10.07.92-10.01.93 10.07.92-10.01.93 01.07.92-01.01.93 01.07.92-01.01.93 10.07.92-10.01.93 10.07.92-10.01.93 kr. 53.331,38 kr. 32.107,36**) kr. 36.760,62 kr. 40.242,18 kr. 41.462,97 kr. 23.680,35**) kr. 34.072,90 kr. 35.034,79 kr. 29.181,74 kr. 29.181,74
*)lnnlausnarverð er höfuðstóll, vextir, vaxtavextir og verðbót.
**)Við innlausn fylgi ógjaldfallnir vaxtamiðar spariskírteinis.
Innlausn spariskírteina ríkissjóðs fer fram í afgreiðslu
Seðlabanka íslands, Kalkofnsvegi 1 og liggja þar jafnframt frammi
nánari upplýsingar um skírteinin.
Reykjavík, júní 1992.
SEÐLABANKI ÍSLANDS