Tíminn - 30.06.1992, Side 6
6 Tfminn
Þriðjudagur 30. júní 1992
Norðmenn segjast ætla að hefja veiðar á hrefnu í atvinnuskyni:
Norðmenn aftur
í hvalinn!
Apalifur
grædd í mann
Á sunnudagínn græddu læknar
vi6 Pittsburgh sjúkrahúsið í
Pennsylvaníu lifur ór bavíanapa í
mann.
Það tók 11 idukkustundir aö
græða lifrina í manninn sem er
35 ára gamail og þjáist af lifrar-
bólgu (hepatitis B).
Læknar við sjúkrahúsið sögðu
að líöan mannsins værí eftir at-
vikum. Hann væri ennþá í lífs-
hættu en haldið á lífi með lyfinu
FK/506 sem kemur í veg fyrír
sýldngu og að líkami hans hafni
lifrinnL
Læknamir sögðu einnig að
maðurínn, sem ekkl hefur verið
nafngreindur að eigin ósk, hefði
veríð haldinn banvænum sjúk-
dómi og óvíst um batahorfur.
Þeir bættu því við að ef manns-
lifur hefði veríö grædd í hann
hefðu líkur á lifrarbólgu B veríð
jafnmiklar og batahorfur hans
síst meirí.
Talsmaður sjúkrahússins við
háskólann í Pittsburgh sagði að
sérstök nefnd heföi fjallað um
aðgeröina fyrir helgi og gefið
samþykki sitt. í nefndinni sitja
fulltrúi almennings, fulltrúi
geistlegra yfirvalda og vísinda-
menn. Þessi nefnd samþykkti
einnig aö þrjár aðrar sambærí-
legar aðgerðir færu fram þar sem
lifrar úr bavíönum yrðu græddar
ímenn.
Þessar aðgerðir eru runnar
undan rífjum dr. Thomasar
Starzl sem fyrstur manna tók að
nota líffæri úr bavíönum í menn
árin 1963 og 1964 í Denver, Col-
orado.
Á þeim tíma græddi Dr. Starzl
sex lifrar úr bavíönum í menn en
enginn lifrarþeganna liföi lengur
en 98 daga.
— Reuter/Krás.
Stúlka með lystarstol vill
fremur deyja en þyngjast:
Neitar allri
læknishjálp
Bresk stúlka, 16 ára gömul og illa
haldin af lystarstoli, hefur krafist
úrskuröar dómstóla um að hún
megi hafna allri læknismeðferð og
halda áfram að svelta sig.
Lögmenn hennar fluttu málið fyrir
áfrýjunardómstóli og reyndu þar að
fá hnekkt eldri útskuröi þar sem
læknum var heimilaö að meðhöndla
stúlkuna gegn vilja hennar.
— Reuter/Krás.
Normenn tilkynntu það í gær á Al-
þjóðahvalveiðiráðstefnunni að þeir
muni hefja hvalveiðar í atvinnuskyni
áríð 1993 og þar meö binda enda á al-
þjóðlegt bann við hvalveiðum.
Þessi ákvörðun þeirra var tilkynnt á
fundi ráðsins í Glasgow í gær og enn-
fremur í Osló þar sem forsætisráð-
herra Noregs, Gro Harlem Brundt-
land, sagðist tilbúin til þess að verja
þessa ákvörðun hvar og hvenær sem
væri.
Umhverfissinnar líktu þessari
ákvörðun Norðmanna við sjórán og
sjávarútvegsráðherra Breta, John
Gummer, sagði að það væri beinlínis
rangt að koma með svona einhliða yf-
irlýsingar þegar um væri að ræða al-
þjóðasamkomulag. „Ég er sannfærður
um að Norðmenn láta aldrei verða af
þessu þegar til kastanna kemur," sagði
hann, „vegna þess að þeir eru svo sið-
aðir.“
Þegar þingið var sett sagði Gummer í
ræðu sinni að hann vildi vara hval-
veiðiþjóðir heims við því að snúa aftur
til fortíðar og fyrri hátta. Þjóðir heims
myndu ekki líða slíka villimennsku.
Alþjóðahvalveiðiráðið samþykkti
bann við hvalveiöum í atvinnuskyni
árið 1985 eins og kunnugt er. Þá
máttu Norðmenn, íslendingar og Jap-
anir þó veiöa hvali í takmörkuðum
mæli í vísindaskyni.
Á þessari fimm daga ráðstefnu Al-
þjóðahvalveiðiráðsins eiga sæti 37
þjóðir og var ætlunin að taka ákvörð-
un um hvort leyfa bæri takmarkaöar
veiðar í vísindaskyni.
Svo er nú aö sjá sem Norömenn hafi
sett allt á annan endann með yfirlýs-
ingum sínum en haft er eftir fiilltrú-
um á ráðstefnunni að svipaðra yfirlýs-
inga og aðgerða megi vænta frá ís-
lendingum og Japönum. Reyndar hafa
íslendingar þegar tiikynnt úrsögn sína
úr ráðinu og tekur úrsögnin gildi frá
og með degínum í dag að telja.
Þá hafa Rússar gefið í skyn að þeir
hyggist hefja hvalveiðar og búist er við
að þeir sæki um kvóta til veiða í vís-
indaskyni. líf af þessu verður er það
túlkaö sem vísbending um að Rússar
sækist aftur eftir fyrri stöðu sem hval-
veiðiþjóð. Rússar eiga ekki fulltrúa nú
á þessari fimm daga ráöstefnu hval-
veiðiráðsins í Glasgow.
Gro llarlem Brundtland sagöi á
fréttamannafundi í gær að ákvörðun
stjómar hennar fæli í sér að hefja veið-
ar á hrefnu. Hrefnan er smæst hinna
stærri hvalategunda og hefur minnst
verið veidd. Fyrir vikið er talið mikið
af hrefnu í sjónum.
Gro Harlem Brundtland sagði að
norska stjómin tæki þessa ákvörðun
nú um hrefnuveiðar í atvinnuskyni á
grundvelli vísindalegra gagna um
stórð stofnsins. Hún bætti við að ekki
væri búið að ákveða hversu umfangs-
miklar veiðamar 1993 yrðu.
Samtök umhverfisvemdarsinna, sem
eiga áheymarfulltrúa á ráðstefnunni,
vömðu Norðmenn við og aðrar þjóðir
einnig sem hafa svipað í hyggju. Táls-
menn þessara samtaka sögðu að neyt-
endur hvarvetna í heiminum myndu
sniðganga vömr hvalveiðiþjóða.
„Ef Norömenn hefja hvalveiðar em
þeir engu betri en sjóræningjar og
seldir undir sömu sök og lögbrjótar
samkvæmt hafréttarlögum," sagði
Cassandra Phillips frá „Worldwide
Fund for Nature".
Umhverfisverndarsinnar vilja skilyrð-
islaust bann við öllum hvalveiðum og
vitna til „ómanneskjulegra" veiða.
Á dagskrá fundarins í Glasgow liggur
fyrir tillaga frá Frökkum um verndun
hvala sunnan 40. breiddargráðu á suð-
urhveli jarðar en Frakkar vilja að þar
verði griðastaður hvala. Talið er að
þessi tillaga eigi vísan stuðning
margra fulltrúa á ráðstefnunni.
Gro I larlem Bmndtland sagði að fyr-
irhugaðar hvalveiðar Norðmanna
myndu stuðla að jafhvægi í lífríki sjáv-
ar. Hún sagöi að hrefnu í Norður-Atl-
antshafi hefði fjölgað mjög eftir að
bann við hvalveiðum var samþykkt ár-
ið 1985. „Það verður að hefta tak-
markalausa fjölgun hvala og sela á
kostnað fiskitegunda sem sjávarútveg-
ur okkar byggir á,“ sagði hún í gær á
fréttamannafundinum í Osló. ,AHt of
margir hvalir éta nú hinn dýrmæta
fisk okkar,“ sagði hún um leið og hún
lét þess getið að hún óttaðist ekki yfir-
vofandi gagnrýni. Bmndtland sagöi
að eftir væri að ákveða hversu mikið
Norðmenn myndu veiða af hrefnu.
Samkvæmt áreiöanlegum heimildum
er talið að það verði innan við 1000
hrefnur.
Norðmenn hafa líkt og íslendingar
og Japanir veitt hval í vísindaskyni.
Þeir höfðu leyfi til að veiða 382 hrefn-
ur á ámnum 1992 til 1994 samkvæmt
því samkomulagi.
Umhverfisvemdarsinnar halda því
fram að veiðar hvala með spren-
giskutli séu ómannúðlegar og leifar
hugsunarháttar 19. aldar. Slíkar veið-
ar á spendýmm ætti að banna með
öllu.
Bmndtland svaraði því hins vegar til
að slíkar skoðanir væm kerlingabæk-
ur byggðar á tilfinningasemi og ættu
ekkert skylt viö náttúmvemd.
,Ábyrg náttúmvemd felst í því að
nýta stofna innan eðlilegra marka
þannig að þeir viöhaldi sér og nýtist
framtíðinni," sagði Bmndtland.
Bmndtland sagðist jafnframt vonast
til þess að Alþjóðahvalveiðiráðið
myndi leggja blessun sína yfir þessa
einhliða ákvörðun Norðmanna.
„Við fordæmum ákvöröun Norð-
manna. Það er heimskulegt að snúa
svona baki við hvalveiðiráðinusagði
Kalle Hesstvedt, talsmaður Green-
peace-samtakanna.
Algeirsborg
Mohamed Boudiaf ríkisstjóri í Alsír
var skotinn til bana í gær þegar
hann var við opnun menningarmið-
stöðvar í borginni Annaba sem er í
austurhluta Alsír. Boudiaf var settur
í embætti fyrir aöeins sex mánuð-
um og kom þá í veg fyrir valdatöku
strangtrúaðra múslima í kjölfar
kosningasigurs þeirra.
Sarajevo
Vopnahlé það sem nú hangir á blá-
þræði í Sarajevo hefur vakið vonir
um að loks megi koma vistum til
sveltandi borgarbúa um flugvöllinn
þar. Slobodan Milosevic forseti
Serbíu samþykkti eftir nokkum eft-
irrekstur að koma til friðarviðræðna
við stjórnmálaandstæðinga sina.
Þetta var haft eftir mönnum í Belgr-
ad í gær.
Boipatong, Suöur Afríku
Afríska þjóðarráðið krafðist í gær
afsagnar F.W. de Klerk forseta
Suður-Afriku. Talsmenn ráðsins
sögðu að de Klerk hefði ekki lengur
neina stjóm á lögreglu landsins og
honum hefði ekki tekist að koma í
veg fyrir fjöldamorð á svörtum. Yfir
20.000 syrgjendur voru við útför 37
fórnariamba sem myrt voru þann
17. júní á hroöalegan hátt í Boipat-
ong.
Jeríkó, Vesturbakka ísrael
Israelsmenn létu 17 menn lausa
eftir yfirheyrslur um meint sam-
skipti þeirra við Yasser Arafat í
Jórdaníu. Mennirnir 17 eru allirfull-
trúar Palestínumanna í friðarvið-
ræðunum í Miðausturlöndum.
Nabatiyeh, Líbanon
Herþyrlur frá ísrael sprengdu í loft
upp hús Hizbolla skæruliða í suð-
urhluta Líbanon. Þetta erfyrsta
loftárás ísraela eftir kosningarnar
sem fram fóru þar í landi í síðustu
viku.
Róm
Fréttir hafa borist um að hersveitir
Azera hafi ráðist að Armenum um
helgina í Nagomo-Karabakh og
þykja þessar fréttir ekki góðar þeg-
ar friðarviðræður standa nú fyrir
dyrum í Róm á milli þessara þjóö-
arbrota.
Los Angeles
Jarðskjálftahrinumar tvær sem riðu
yfir Kalifomíu á sunnudag eru
sagðar hafa valdið skemmdum
sem kosta a.m.k. 16 milljónir dala.
Bangkok
Forsætisráðherrann Anand Pany-
arachun rauf þing í gær og sagði
efnt yrði til kosninga í Tælandi
þann 13. september næstkomandi.
Að aflokinni Evrópukeppni
Frá fréttarítara Tímans í Sviþjóð, Inga V.
Jónassyni
Ef við getum ekki samið við þá, þá
er ekki um annað að velja en sigra
þá. Þessi orð lét utanríkisráðherra
dana, Uffe Elleman Jensen, falla
fyrir úrslitaleik Dana og Þjóðverja á
Evrópumeistaramótinu í knatt-
spyrnu síðastliöinn föstudag. Og
það voru svo sannarlega Danir sem
komu, sáu og sigruðu á þessu Evr-
ópumeistaramóti, án þess þó að
hafa tryggt sér sæti vegna slaks ár-
angurs í undanriðlakeppninni.
Viku fyrir upphaf keppninnar var
danska landsliðinu boðin þátttaka
eftir að landslið Júgóslavíu var sent
heim vegna viðskiptabanns Sam-
einuðu þjóðanna á hendur landinu.
Það var því í miklu hasti sem
danski landsliðsþjálfarinn, Richard
Möller Nielsen, hóaði saman sínum
mönnum og hélt til Svíþjóðar til að
hefja æfingar. Sem vonlegt er var
Dönum ekki spáð nokkrum frama í
keppninni, en heldur litið á þá sem
nokkurs konar uppfyllingu til að
jafna tölu liðanna eftir fráfall Júgó-
slavíu. Nú vita menn betur. Danir
eru Evrópumeistarar í knattspyrnu
og það sem meira er um vert, þeir
hafa með leikgleði sinni og baráttu
sannað og sýnt að þeir eru vel að
meistaratitlinum komnir. - En livað
er það sem Danir hafa til aö bera
sem gerir þeim kleift að leggja að
velli, án verulegs undirbúnings,
fyrrum Evrópumeistara llollend-
inga sem og heimsmeistara Þjóð-
verja í einni og sömu viku? í allri
fjölmiðlaumræðu hér ytra er lc-ttu
lundarfari Dananna þakkað þessi
einstæði árangur. Meðan þýski
landsliðsþjálfarinn Berti Vogts
meinaði sínum mönnum allt líferni
sem skaðað gæti einbeitingu þeirra
á knattspyrnuvellinum, gaf Richard
Möller Nielsen dönsku meisturun-
um frí eftir æfingar á degi hverjum.
Það er kannski ekki síst í muninum
á landsliðsþjálfurunum tveim sem
skýringuna er að finna. Á blaða-
mannafundum hefur Berti Vogts
margítrekað með sigurvissu og
nokkrum hroka, að hann er ekki
ánægður með annað en knatt-
spyrnu á heimsklassa af hálfu sinna
manna. Richard Möller Nielsen tal-
aði aftur á móti um bleik lífstykki á
blaðamannafundi fyrir úrslitaleik-
inn gegn þjóðverjum. Hann sagðist
hafa borðað lax þá um morguninn
og þá skyndilega orðið hugsað til
móður sinnar og allra bleiku líf-
stykkjanna hennar. Síðan greindi
hann skilmerkilega frá uppbygg-
ingu lífstykkja og þeim spöngum
sem halda lífstykkjunum saman. Sé
einhver þessara spanga fjarlægð
hrynur lífstykkið saman og er ónót-
hæft. Nielsen lauk síðan þessum at-
hyglisveröa fyrirlestri sínum um
lífstykki með því að líkja danska
landsliðinu við bleikt lífstykki, sem
hefði þrjár berandi spangir, sem
ekki mættu bresta undir nokkrum
kringumstæðum. Átti hann þar við
þá Flemming Povlsen, Peter
Schmeichel og Kim Christofte. All-
ir sýndu þessir leikmenn afburða
frammistöðu og sönnuðu þar með
góðan skilning Nielsens landsliðs-
þjálfara á eðli bleikra lífstykkja, en
þó kannski ekki síður á eðli góðrar
knattspyrnu. Að lokum var Nielsen
spurður hvort hann meinaði
mönnum sínum að ástunda kynlíf
meðan á Evrópumeistaramótinu
stæði. Kvað hann nei viö, en hann
setti þó það skilyrði að menn væru
ekki aö fást við slíkt í leikhléi. Með
þetta að veganesti og eitthvað af
boltaæfingum mættu Danir til
leiks og unnu eins og öllum er
kunnugt.
Af einstökum leikmönnum danska
liðsins munu menn lengi minnast
frábærrar markvörslu Peters
Schmeichel, hlaupavilja Flemming
Povlsens og ótrúlegri knattleikni
Brians Laudrup. Sá sem þó hefur
háð haröari baráttu en nokkur ann-
ar á Evrópumeistaramótinu er dan-
inn Kim Vilfort. Hann hefur flogið
heim til Kaupmannahafnar milli
leikjanna til að vera við sjúkrabeð
sjö ára gamallar dóttur sinnar sem
er þungt haldin af krabbameini.
Þrátt fyrir það hefur hann leikið
frábæra knattspyrnu, sem meðal
annars sýndi sig í stórglæsilegu
marki gegn Þjóðverjum. Sé litið til
baka á Evrópumeistaramótið í
knattspyrnu árið 1992, þá var þar
að jafnaði spiluð góð knattspyrna,
en þau óvæntu tíðindi gerðust að
bæði Englendingar og Frakkar
voru sendir heim í háttinn í bók-
staflegri merkingu þegar í undan-
riðlunum. Þau slagsmál sem ensk-
ar og þó aðallega þýskar fótbolta-
bullur stóðu fyrir köstuðu þó
skugga á keppnina. Nær eitt þús-
und manns voru handteknir vegna
líkamsárása og skemmdarverka og
um hundrað manns þurftu að leita
læknis vegna barsmíða og hnífs-
stungna enskra og þýskra ofbeldis-
manna. Þætti Dana verður þó von-
andi Iengst minnst og því viöeig-
andi að gefa dönskum knattspyrnu-
unnanda síðasta orðið. „1992 var
árið sem danska þjóðin í þjóðarat-
kvæðagreiðslu neitaði að láta inn-
lima landið í Stór-Þýskaland og
tæpum mánuði síðar rændi danska
knattspyrnulandsliðið sjálfgefnum
Evrópumeistaratitlinum frá þeim
þýsku."