Tíminn - 16.07.1992, Qupperneq 1

Tíminn - 16.07.1992, Qupperneq 1
Fimmtudagur 16. júlí 1992 129. tbl. 76. árg. VERÐ í LAUSASÖLU KR. 110.- Grundvallaratriði að EES-aðili skuli njóta jafnréttis hér á landi við öflun og nýtingu fasteigna: Gera ráð fyrir stóraukinni eftirspurn eftir fasteignum „Ef sambærilegar reglur munu gilda hér á landi og gilda fyrir EB, er hugs- anlegt aö eftirspum eftir fasteignum eða fasteignaréttindum hér á landi muni aukast," segir m.a. um fasteignamarkað og EES í álitsgerð um samn- inginn um EES og fasteignir á íslandi, sem þrír lögmenn hafa samið að beiðni dómsmála- og landbúnaðarráðherra. í niðurstöðum þeirra kemur fram að með aðild að EES verður það grundvallaratriði að EES-aðilum (ein- staklingum og lögaðilum) verði ekki mismunað, heldur njóti þeir jafns rétt- ar hér á landi og íslendingar til öflunar fasteigna. Séu í íslenskum lögum, eða verði, skorður settar við öflun fasteignaréttinda, muni þær gilda jafnt um íslendinga og aðra þegna EES. Höfúndar álitsgerðarinnar eru þeir Ólafur W. Stefánsson skrifstofu- stjóri dóms- og kirkjumálaráðu- neytisins, Stefán Már Stefánsson lagaprófessor við HÍ, og TVyggvi Gunnarsson hrl. Þar kemur víða fram að þeir telja allt eins mega bú- ast við verulega aukinni ásókn EES- aðila í fasteignir (hús, lönd og hlunnindi) hér á landi, jafnvel svo að verð þeirra gæti hækkað stórlega, jafnvel svo að fslendingum yrði of- viða að kaupa. Hina auknu eftirspurn segja þeir fyrst og fremst mega rekja til þess frjálsræðis, sem felst í stofnsetning- arrétti, launþegarétti og rétti til frjálsrar þjónustustarfsemi. Aukin eftirspurn yrði þó ekki takmörkuð við þetta, því reglurnar um frjálsa fjármagnsflutninga séu í framþróun og þess því e.t.v. ekki langt að bíða að af þeim Ieiði enn aukið frelsi. Hin aukna eftirspurn er greind með þessum hætti: í fyrsta lagi muni eftirspurn aukast eftir íbúðarhúsnæði, fyrst og fremst á rótum þess frelsis sem stofnsetn- ingarréttur og launþegaréttur veiti. í öðru lagi að eftirspurn aukist eft- ir ýmiss konar spildum til útivistar. M.a. megi gera ráð fyrir aukinni eft- irspurn eftir ýmiss konar landi til útivistar og/eða ferðaþjónustu sem lið í beinum atvinnuumsvifum eða þjónustustarfsemi. Þar við bættist svo áhugi einstaklinga, félaga og fyr- irtækja til að eignast land til útivist- ar og nýtingar náttúrugæða. í þriðja lagi megi gera ráð fyrir að eftirspurn eftir iandi, sem nú er nýtt til landbúnaðar, aukist til annarra nota. Höfundar taka fram að hér séu þeir aðeins að setja fram hugmyndir um hugsanlega þróun, án þess að hafa handbær gögn sem styðja það að hún verði í raun með þessum hætti, eða hvað slík þróun mundi þá taka langan tíma. Fyrstu loðnunni landaö á Raufarhöfn í gær: Mikið um rauð- átu í loðnunni Fyrstu loðnunni á vertíðinni var landað á Raufarhöfn í gærmcrg- un. Það var loðnuskipið Svanur RE, sem veiddi loðnuna um 150 sjómilum norður af Sléttu. Afl- inn var um 550 tonn. Mikið er af rauðátu í loðnunni, að sögn Árna Sörens, verksmíðjustjóra Sfldar- verksmiðja ríkisins á Raufarhöfn. Verksmiðjan á Raufarhöfn er sú eina á landinu sem tilbúin er að taka við loðnu, hinar eru flestar lokaðar vegna sumarleyfa. Ámi Sörens segir að það hafl komið á óvart að fá loðnu þetta snemma, mörg undanfarin ár hafl loðnu- veiði eldri haflst fyrr en á haustin og í fyrra ekki fyrr en f nóvember. Norðmenn eru nú á leiðinni á miðin og lfldegt að þeir landi einnig á Raufarhöfn. Loðnan fer öll í bræðslu. Vegna rauðátunnar er hún fljót að leys- ast upp og Áml segir erfitt að bræða hana, hún verði fljótt að rauðum graut. Loðnan eltir rauð- áhina á sumrin fyrir norðan land- ið og fltar sig á henni. Þess vegna er fltan mjög iaus í henni. Milrið er af hnúfubak á loðnum- iðunum, hann eltir loðnuna og rauðátuna. Svanur RE kom til hafnar með nótina alla uppsnúna eftir hval. Þórður Jónsson, rekstrarstjóri Sfldarverksmiðja rfldsins, segir að verð á loðnumjöli sé nú um 20% lægra en á sama tíma í fyrra. Hann segist þó vona að það sé tímabundið miðsumarvanda- mál, eins og oft hafl komið upp áður. Rauðátan á þó ekki að hafa áhrif á gæði mjölsins, ef tekst að vinna loðnuna strax. Nú er verið að kanna markaðsmálin, mjÖI er helst keypt f Bretiandi og á meg- inlandi Evrópu og er notað í land- búnaði og fiskeldL Mjöl hefur lfka verið flutt til Noregs og Skandin- avfu í töluverðu magni. Lýsisverð er aftur á móti svipað og verið hefúr undanfarin ár. Þórður segir að erfltt sé að áætla hvemig verð- ið verður á loðnuafurðum í haust: það fari eftir mörgum þáttum, m.a. uppskeru og veður- fari f markaðslöndunum. -BS En verði þessi raunin á, telja þeir líka líklegt að aukin eftirspurn geti valdið almennum verðhækkunum og orðið í ósamræmi við þá stefnu, sem ríkir um fasteignir hér á landi. Ljóst sé að hækki lönd og jarðir mikið í verði, geti það t.d. orðið erf- itt að beita forkaupsréttarákvæðum jarðalaga í þágu sveitarfélaga. Því kunni að vera ráðlegt að mynda sjóði, sem hafi bolmagn til að standa straum af þessu. Sama þróun hefði áhrif á fjárhæðir eignarnámsbóta. í íslenskum lögum verður unnt hér eftir sem hingað til að hafa ýmis ákvæði, sem setja skorður við öflun fasteignaréttinda eða gera öflun þeirra háða samþykki stjómvalda með eða án skilyrða, segir í álits- gerðinni. Það sama gildi líka um forkaupsréttarákvæði og önnur slík ákvæði. Lagaákvæði, sem feli í sér félagslega aðstoð til þess sem kaupir fasteign, geti líka staðist EES-regl- ur. „í öllum tilvikum er það þó skil- yrði að reglurnar séu með þeim hætti og að þeim sé beitt þannig að ekki feli í sér mismunun gagnvart þeim, sem getur byggt rétt á EES- reglum." Jarðalögum þarf heldur ekki að breyta vegna tilkomu EES-samn- ings, samkvæmt álitsgerðinni. Vatnsréttindi, jarðhitaréttindi og námuréttindi fylgi almennt viðkom- andi jörð og séu þá háð einkaeignar- rétti. Ætla verði að EES-aðili, sem festi kaup á fasteign, verði engu mis- rétti beittur í þessu efni. Svipað eigi við um veiðirétt og önnur hlunn- indi, sem fylgi jörðum. - HEI Umferðaróhapp varð á Miklubrautinni í gær þegar þessi jeppi valt, þegar hann ók í austurátt, og endaði uppi á umferðareyju á hjólunum. Ekki er vitað um að slys hafi Orðið á fólki. Timamynd: Sigursteinn Uppgjör Bandalags íslenskra leikfélaga: Stór verkefni, lítið fé Bandalag íslenskra Ieikfélaga hef- ur farið fram á aukafjárveitingu frá rflrinu. Fjárveiting ríkisins hefur ekki haldið verðgildi sínu og vegna slæmrar stöðu margra sveitarfélaga hefur þeim ekki tekist að hlaupa undir bagga með leikfélögunum. Þess er krafist að fjárlög ársins 1993 verði leiðrétt þannig að hún verði ekki lægri en framreiknuð fjárveiting ársins 1989. En fáist ekki meira fé, getur farið svo að loka þurfi þjónustumiðstöð B.Í.L. í Hafn- arstræti 9, en starf hennar er afar mikilvægt fyrir starfsemi leikfélag- anna. Miöstöðin sér m.a. leikfélögunum fyrir handritum, hefur milligöngu um þýðingu verka, sér um inn- heimtu og greiðslu höfundarlauna, dreifir nauðsynlegum upplýsingum varðandi leikstjóra sem gefa kost á sér til starfa með félögunum, gætir hagsmuna leikfélaganna og Banda- lagsins í Leiklistarráði, Leiklistar- sambandi íslands og Leiklistarskóla íslands, gætir hagsmuna gagnvart ríki og stjórnvöldum og gefur út Leiklistarblaðið. Á síðasta leikári störfuðu 60 áhuga- leikfélög og voru samtals 89 verk- efni sett upp, þrátt fyrir niðurskurð á fjárlögum ríkisins. Gróskan í fé- lögunum hefur aldrei verið meiri. Þau 80 leikfélög, sem aðild eiga að B.Í.L., hafa 4.500 félaga innan sinna vébanda og á ársskýrslum leikfélag- anna sést að þeir sýndu alls 620 sýn- ingar fyrir 66.500 áhorfendur. Það þýðir að 1,5% þjóðarinnar setja upp sýningar og 26.6% þjóðarinnar njóta sýninganna. Meðal j)ess, sem ákveðið var á aðalf- uni B.I.L. í lok leikársins, var að framkvæma „Stóru hugmyndina", sem felst í sameiginlegri leiksýn- ingu sem flestra áhugaleikfélaga á landinu. Einnig er ætlunin að vinna að skipulagningu og kostnaðaráætl- un hugmyndar um Leiklistarskóla B.Í.L.__________—GKG. Páll Pétursson: Einkavæðing- arsinnar í þjóðnýtingu vegna EES? • Sjá grein á bls. 5

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.