Tíminn - 16.07.1992, Síða 5

Tíminn - 16.07.1992, Síða 5
Fimmtudagur 16. júlí 1992 Tfminn 5 Páll Pétursson: Eignaupptaka í kj ölfar EE S - samnings Árið 1940 voru sett lög um það að jarðhiti fylgdi jarðareign. Var það í samræmi við Vatnlögin frá 1923 um að landeigendur einir pettu rétt til að hagnýta vatnsorku þeirra vatna er um lönd þeirra runnu. 67. grein stjórnarskrár hefur varið þennan rétt og eignar- námi verið beitt og eignarnámsbætur greiddar þegar afla hefur þurft réttinda frá einstaklingum í þarfír virkjana. Ekki hafa allir verið sáttir við þessa skipun mála. Á mörgum þingum undanfarið hafa komið fram frum- vörp um að þjóðnýta vatnsorku og jarðhita. Frumkvöðlar hafa yfirleitt verið úr röðum Aiþýðubandalags og Alþýðuflokks. Ekki hafa þessi frum- vörp náð fram að ganga til þessa. Hafa menn talið að friðhelgi eignar- réttarins, sem fjallað er um í 67. gr. stjómarskrár, væri því til fyrirstöðu að eignir þessar mætti gera upptæk- ar bótalaust Nýjar aðstæður í auglýsingabæklingi, er iðnaðar- ráðherra gaf út í maí síðastiiðnum til að vekja athygli á afrekum sínum og hugsjónum, undir heitinu „Orku- Iindir og jarðefni", stendur þessi setning: „Nýjar aðstæður kalla á nýja skil- greiningu á eignarrétti lands.“ Þess- ar nýju aðstæður, er ráðherrann tal- ar um, er EES-samningurinn, en mjög mikilvægt er að Islendingar glati ekki landi eða orkulindum í hendur útlendinga. Samkvæmt EES-samningnum er hvers konar mismunun eftir þjóð- emi óheimil, þannig að íslendingar hafa engan forgang að landi sínu eða auðlindum þess umfram aðra íbúa EES- svæðis eftir að samningur hef- ur verið lögtekinn. Undantekning er þó gerð hvað varðar eignarhald á út- gerð og frumfiskvinnslu, en horfið er frá því grundvallaratriði undan- farinna ára að láta ekki fiskveiðirétt- indi við ísland í skiptum fyrir tolla- ívilnanir. Líklega er þó ekki varan- legt hald í banninu við eignarhaldi útlendinga í útgerð og fiskvinnslu og hefur m.a. fjármálaráðherra, Friðrik Sophusson, krafist þess að lögum þar um verði breytt. Jafn réttur fyrir út- lendinga Út er komin álitsgerð nefndar sem dómsmálaráðherra og landbúnaðar- ráðherra settu á stofn og fjallaði um EES-samninginn og fasteignir á ís- landi. Nefndina skipuðu Ólafur Walter Stefánsson, Stefán Már Stef- ánsson og Tryggvi Gunnarsson. Þeir fjalla um gildandi lög á íslandi, hverju þurfi að breyta vegna samn- ingsins og hvort tiltækilegt sé með lagasetningu að setja frekari skorður við eignarhaldi útlendinga. Það virð- ist mjög torvelt svo nokkurt hald sé í. Þeir telja að vísu að unnt sé að binda eignarhald á iöndum og land- spildum við tiltekna nýtingu og bú- setu á staðnum, en það yrði að ganga jafnt yfír alla íslendinga og aðra íbúa EES-svæðis. Ef það yrði gert, yrðu þeir íslendingar, sem nú eiga jarðir eða landspildur, væntanlega að búa á þeim og nýta þær eða láta þær af hendi ella. Hverjir koma til með að eiga ísland? í álitsgerðinni segir í gr. 8.4.3: „EES-samningurinn og þeir við- aukar sem honum fylgja heimila ekki að gerður sé munur á rétti ís- lenskra aðila og þeirra sem nýta sér EES- réttindi til að eignast virkjun- arrétt vatnsfalla og jarðhita hér á landi. Ljóst er því að framangreind- um ákvæðum fjárfestingarlaganna um virkjunarrétt verður að breyta vegna tiíkomu samningsins, en ís- land hefur þó frest til þess hvað varð- ar beina fjárfestingu til 1. janúar 1996.“ Fjárfestingarlögin eru nr. 34 frá 1991 og kveða á um fjárfestingu er- lendra aðila í atvinnurekstri. Þar er bundin heimild til að útlendingar geti öðlast eignarrétt á fasteign „til beinnar notkunar í atvinnustarfsemi sinni". Ennfremur segir í álitsgerðinni gr. 8.4.3: „Kaupi erlendur aðili sem nýtur EES-réttar land hér fær hann eins og aðrir landeigendur eignarráð yfir þeim námum sem finnast þar í jörðu. Þannig gæti aðili sem nýtur EES-réttar aimennt fest kaup á landi hér til að stofnsetja þar námu- vinnslu á grundvelli stofrisetningar- réttar.“ Af þessu má ljóst vera að hér eru bæði lönd og auðlindir galopnar fyr- ir íbúum EES-svæðisins. Einkavæðingarpostul- ar þjóðnýta Ríkisstjórnin hefur boðað breyting- ar á 80 íslenskum lögum vegna EES- samningsins. Eitt frumvarpanna hefur verið sent nefndarmönnum í iðnaðarnefnd Alþingis. Það heitir: Frv. til 1. um eignarhald á auðlind- um í jörðu. Efni þess frumvarps er að þjóðnýta, þ.e. lýsa eign ríkisins, allar auðlindir í jörðu i íslensku landi og setlögum. „Með auðlindum í lögum þessum er átt við hvers kon- ar frumefni og efnasambönd, hvort heldur í fljótandi, föstu eða loft- kenndu formi og án tillits til hita- stigs er þau kunna að finnast við, þar með talin jarðefni, málmar, olía, vatn og jarðhiti." Sú tilhíiðrun er gerð að „landareign sem háð er einstaklingseignarrétti fylgir réttur til nýtingar allt niður á 10 m dýpi á grjóti, möl, mó, surtar- brandi, leir og öðrum slíkum jarð- efnum, svo og á vatni og jarðhita". Leyfi iðnaðarráðherra þarf þó til, vilji menn fara lengra niður en 10 metra, og er þá betra að hafa ekki malamámur of djúpar. „Sveitarfélag, sem á land á jarðhitasvæði við gildis- töku laga þessara, skal hafa for- gangsrétt til rannsóknar og nýting- arleyfis samkv. 5. og 6. gr. og vera undanþegið leyfisgjöldum samkv. 9. gr.“ Aðgangseyrir landeig- enda að EES Einkavæðing hefur verið kjörorð þessarar ríkisstjórnar. Með einka- væðingu er átt við að afhenda skuli það, sem fémætt er af eignum hins opinbera, til einstaklinga gegn óverulegu gjaldi, oftast Kolkrabb- ans. Því skýtur það skökku við er einka- væðingarpostularnir mæla hér fyrir um svo stórkostlega eignaupptöku og þjóðnýtingu. Fyrir því liggja þó þau rök að ef ríkið sjálft hefur eign- arhald á auðlindunum er e.t.v. minni hætta á að þær lendi í höndum er- lendra aðila í kjölfar EES-samnings- ins. Þetta er aðgangseyrir landeig- enda á íslandi að Evrópsku efna- hagssvæði. Þá er eftir að koma þessu heim og saman við 67. gr. stjórnar- skrár, en hún hljóðar svo: „Eignar- rétturinn er friðhelgur. Engan má skylda til að láta af hendi eign sína, nema almenningsþörf krefji; þarf til þess lagafyrirmæli, og komi fullt verð fyrir." Orsök og afleiðing Það er mörgum Ijóst að ef við ætl- um að staðfesta EES-samninginn verðum við að breyta stjórnar- skránni vegna fullveldisafsalsins. Þá kemur til álita hvort ekki þarf að breyta 67. gr. líka, enda hefur ríkis- stjórnin ekki hugsað sér að láta „fullt verð koma fyrir“ þær eignir sem hér á vegna almannahagsmuna að gera upptækar. Þrátt fyrír það að mér þyki sú hugs- un, er að baki frumvarpsins liggur, mjög ógeðfelld og andstæð þeirri réttlætiskennd er okkur flestum hef- ur verið innrætt, m.a. með boðorð- inu „Þú skalt ekki stela“, er líklega ekki lengur grundvöllur til að berj- ast gegn þessari lagasetningu. Ætla verður að ríkisvaldið hafi fremur afl til að varðveita eignir gegn ásókn er- lendra kaupenda en einstakir ein- staklingar. Lagasetningin er fylgi- fiskur EES-samningsins — ef gerð- ur verður. Höfundur er formaöur þingflokks framsóknarmanna. r r I mafiunni á Italíu eru flóknar siðareglur og ströng viðurlög við að brjóta þær, enda: Sitthvað að vera venjuleg- ur eða „virðulegur“ glæpon Eftir áralanga þögn almennra borgara gagnvart glæpastarfsemi mafíunnar eru mótmæli gegn starfsemi hennar nú aö færast f aukana. Undir þögulum og starandi augum glæpafélaga sinna stingur maður sig í vísifingurinn. Hann lætur blóðið drjúpa á helgimynd og kveikir síðan í henni. Myndin gengur logandi á milli félaganna, meðan nýliðinn sver mafíunni hollustueiða. Á þennan hátt fer vígsla nýliða fram í mafíu-fjölskyldum, ef marka má upplýsingar frá uppljóstrurum og þeim sem rannsakað hafa starfsemi mafíunnar á Sikiley. Eftir athöfnina er mafíósinn „heiðursmaður" í aug- um félaga sinna. Þessi athöfn er talin hafa verið óbreytt í langan tíma og sameiginleg mörgum glæpafjöl- skyldum. í vígsluathöfninni fær hinn ungi glæpon smjörþefinn af flóknu táknkerfi mafíunnar og hug- myndum meðlima hennar um „rétt- læti“. Þegar glæpon hefur verið vígður, nýtur hann sjálfkrafa mikillar virð- ingar. Honum hefur þá verið lyft á stall og hann stendur langt ofar „venjulegum“ glæpamönnum. Það ber að sýna honum virðingu og lotn- ingu. I mafíunni á Ítalíu er talið að séu um það bil 5000 „innvígðir" félagar. Fjöldi annarra glæpamanna eru hins vegar áhangendur mafíunnar, en þeir njóta ekki sömu virðingar og hinir. Uppljóstrarinn Antonino Calderone segir í viðtalsbók að mjög mikilvægt sé að gera þennan greinarmun á „venjulegurrí' glæpamönnum og „virðulegum" glæpamönnum. „Við erum mafíósar, hinir eru venjulegir menn. Við erum heiðurs- menn og drengir góðir... úrval með- al glæpamanna," segir Calderone í bókinni „Gli uomini del disonore" (Menn án heiðurs) eftir Pono Arlacc- hi. Calderone og öðrum af sama sauða- húsi finnst sem þeir hafi unnið fyrir virðingu annarra glæpamanna og eigi hana margfaldlega skilda. Það er vegna þess að þeir hafi svarist undir mjög strangar siðareglur og manna- setningar. Þessar reglur ná út fyrir gröf og dauða. Að utan Eitt slíkra boðorða er tryggð við eiginkonu sína. Annað er að virða al- gjöra þögn reglunnar cg þriðja að nýta sér ekki vændi. „Mafían er eins og dómskerfið, nema munurinn er sá að hún getur ekki leyft sér þann munað að draga menn fyrir dómstól og setja þá í tugthús," er haft eftir Giuseppe Ay- ala, sem er fyrrum rannsóknardóm- ari í Palermo, höfuðborg Sikileyjar, og baráttumaður gegn mafíunni. „Mafían hefur aðeins eitt úrræði, ein viðurlög — dauða," sagði Ayala í nýlegu fréttaviðtali, en hann er nú þingmaður á ítalska þinginu. Mafían styðst við flókið táknkerfi til þess að framfylgja reglum sínum. Réttlætinu virðist fullnægt, þegar af- taka félaga felur í sér ákveðin skila- boð. Aftakan er ekki atburður einn og sér, heldur orðsending til félag- anna. Þegar lík finnst og steinn er í munni þess? Það merkir að viðkom- andi hefur rofið þagnareiðinn — omerta. Ef kynfæri hafa verið skorin af líkinu? Mafíósinn hefur gerst fjöl- þreifinn í stað þess að halda sig við eiginkonu sína. Kannski var ástkona hans eiginkona félaga hans. Það er sérkennilegt að mafían, sem fremur grimmdarverk og hikar ekki við að versla með eiturlyf, skuli krefjast slíkrar ráðvendni af félögum sínum, þegar konur þeirra eru annars vegar. Falcone dómari, sem myrtur var í maí síðastliðnum á grimmilegan hátt, skrifaði eftirfarandi í „Cose di Cosa Nostra“ (Málefni mafíunnar): „... maður, sem hefur ekki stjórn á tilfinningum sínum og kynlífi, er ekki líklegur til þess að ávinna sér traust í starfi. Einu konurnar í lífi mafíósa eru og hljóta alltaf aö vera mæður barna þeirra.“ Það eru dæmi um uppljóstrara eins og Buscetta, sem þurftu að gjalda þess dýru verði að hafa ljóstrað upp um mafíuna og rofið þagnareiðinn. Mafían refsaði honum með því að drepa 10 úr fjölskyldu hans. Annar uppljóstrari, Salvatore Contorno, mátti sjá á eftir 30 ættingjum ofan í gröfina. Ayala hefur sagt að þessir uppljóstr- arar hafi veitt kolkrabbanum, eins og mafían er stundum kölluð á ít- aiíu, sár sem hafi orðið til þess að að mafíunni sé nú þrengt. Hins vegar þjappi þeir sér nú saman og reyni að styrkja valdakerfi sitt. Félagi í glæpaflokki má aðeins hafa samband við næsta yfirmann sinn. Hann veit ekkert og má ekkert vita um það sem gerist þar fyrir ofan í valdaröðinni. Þá má hann heldur ekkert vita hvað gerist í öðrum hóp- um. Nýlegar uppljóstranir hafa hins vegar gert mafíuna sýnilegri og áþreifanlegri. Það má líka segja að hún sé ekki lengur sveipuð þeim dýrðarljóma sem áður var.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.