Tíminn - 16.07.1992, Qupperneq 12
| AUGLVSINGASÍMAR; 680001 & 6S63QO
Áskriftarsími
Tímans er
686300
AUÐVITAÐ
Suðurlandsbraut 12
Öðruvísi bíiasala
BÍLAR • HJÓL •
BÁTAR • VARA-
HLUTIR.
MYNDHJÁOKKUR
SÍMI 679225
-BfLLHJÁÞÉR
ýtt HOGG-
DEYFAR
^erslió hjá fagmönnum
m. Hamarsbófda 1 - s. 67-67-44
H
m
Tímiiin
FIMMTUDAGUR 16. JÚLÍ 1992
Aðstandendur ritsins um hálshnykki. Taldir frá vinstri: Ólafur Ólafsson landlæknir, Júlíus Valsson frá Tryggingaráði íslands, Þórir Gunnarsson frá Slysavarnaráði íslands,
Magnús Sigurösson heilsugæslulæknir, Örn Þorvarðarson fulltrúi Umferðarráðs, Sigmar Ármannsson framkvæmdastjóri Sambands íslenskra tryggingafélaga, og Brynj-
ólfur Mogensen yfirlæknir slysadeildar Borgarspítalans. Timamynd: sigumteinn
w Slysavarnaráð íslands gefur út bækling um hálshnykki:
HALSHNYKKJUM FJOLGAR
MEÐAN SLYSUM FÆKKAR
Hálshnykkjum vegna umferðarslysa hefur fjölgað mikiö á síðustu 6 árum,
á sama tíma og dregið hefur úr umferðarslysum.
Þetta kemur fram í bæklingi, sem Slysavamaráö íslands hefur sent frá sér
og heitir „Hálshnykksáverkar — Tíðni, orsakir og aðgerðir gegn þeim“.
Hálshnykkur eða hálstognun verð-
ur við skyndilegan hnykk á hálsinn,
oftast þannig að höfuðið kastast til,
fyrst aftur og svo fram. Af hnykkn-
um hljótast staðbundnir verkir í
hálsi og stundum út í axlir. Svimi og
höfuðverkur geta fylgt. Sumir finna
ekki fyrir sársauka fyrr en nokkrum
klukkustundum eftir slysið og
stundum ekki fyrr en næsta dag.
Komið hefur í Ijós að konur eru í
meirihluta þeirra, sem verða fyrir
þessum meiðslum. Brynjólfur Mog-
ensen, yfirlæknir slysadeildar Borg-
arspítalans, telur ástæðuna vera þá
að karlar aki oftar og konur eru þá
framsætisfarþegar. I’ær eru oft að
fást við citthvað annað en að fylgjast
Verð á ávöxtum og grænmeti hækkaði um 8%
milli júní og júlí:
Grillkjötið
hækkaði, en
gos lækkaði
Eftir að matvöruverð hefur svo
að segja staðið í stað mánuðum
saman, hækkaði það allt í einu
um 1% á milli júm' og júlí. Og
þaö er sú hækkun, sem á megin-
þáttinn f þeirri 0,2% hækkun
framfærsluvísitölunnar miili
þessara sömu mánaða. Langmest
munar þar um nærri því 8%
meðalhækkun, sem varð á ávöxt-
um og grænmeti frá júní til júlí
og olli 0,13% hækkun vísitöl-
unnar. Þá munar einnig nokkuð
um 1,3% hækkun meðalverðs á
kjöti og kjötvörum.
Það má þó hugga sig við það að
kostnaöurinn við „griilveislurn-
ar“ hefur ekki hækkað sem þessu
nemur, því 2,7% veröiækkun á
drykkjarvörum lækkaði vísitöl-
una nákvæmlega jafn mikið og
hún hækkaði vegna verðhækkun-
ar á kjötvörum.
Undanfama 6 mánuði (frá janú-
ar tU júlO hefur framfærsluvísi-
talan aðeins hækkað um 0,6%.
Umreiknaö til heils árs samsvar-
ar það aðeins um 1,5% verð-
bólgu á heilu ári. Síðustu 12
mánuði hefur vísitalan aftur á
móti hækkað um 3,5%.
- HEI
með akstrinum og eru því óviðbún-
ar árekstri. Einnig gæti háls þeirra
verið veikbyggðari.
En ásamt fleirum er Brynjólfur
ekki sáttur við að endanlegt vottorð
um heilsufarsástand þess, sem í
slysinu lendir, sé gefið út aðeins ári
eftir slys. Hann telur það vera allt of
snemmt til að segja til um nokkuð.
Er vonast til að þessu verði breytt.
Helstu ástæðurnar fyrir fjölgun
skráðra hálshnykksáverka eru aukin
og hraðari umferð og meiri sókn í
bætur vegna slíkra áverka. Bóta-
kröfur hafa aukist stórlega og hefur
matsaðgerðum vegna varanlegrar
örorku af hálshnykkjaáverkum hjá
Tryggingastofnun ríkisins fjölgað
um tæp 250% á árunum 1987 og
1990. Árlegur tjónskostnaður trygg-
ingafélaganna nálgast milljarð
króna vegna þessa.
Breytingar á reglum um vátrygg-
ingar og skaðabætur koma þar til.
Þær hafa leitt til rýmri bótaréttar
slasaðra, en einnig urðu breytingar
á lögum um almannatryggingar.
Þær hafa í för með sér að þeir, sem
nú eru metnir með 10% örorku,
eiga rétt á eingreiðslubótum, en
fram til 1987 var miðað við 15% ör-
orku.
Sigmar Ármannsson, fram-
kvæmdastjóri Sambands íslenskra
tryggingafélaga, segir fólk líka vera
betur upplýst en áður um hugsan-
legan rétt sinn til skaðabóta.
Nú tíðkast að gefa endanlegt vott-
orð um heilsufarsástand þess, sem í
slysinu lendir, ári eftir slys og eru
ekki allir sáttir með það.
„Það er of snemmt," segir Brynjólf-
ur. „Það er eitthvað að í okkar kerfi.“
Til að koma í veg fyrir hálshnykki,
er mikilvægt að ökumenn gæti al-
mennt að sér við akstur, hafi hæfi-
legt bil milli bílanna, gæti að hemla-
ljósum í afturglugga og síðast en
ekki síst stilli höfuðpúðanna á sæt-
unum rétt.
—GKG.
Bráðabirgðatölur Fiskifélagsins:
Botnfiskafli dregst saman
Heildarfiskafli fyrstu 10 mánuði
yfirstandandi fiskveiðiárs er rúm
1.2 milljónir tonna, en var á sömu
mánuðum síðastliðið fiskveiðiár
tæp 930 þúsund tonn. Fiskveiðiár-
ið hefst 1. september og stendur til
31. ágúst.
Samkvæmt bráðabirgðatölum
Fiskifélagsins munar mest um
loðnuaflann á yfirstandandi fisk-
veiðiári. Hann er nú rúm 620 þús-
und tonn, en var á sama tíma í fyrra
aðeins rúm 280 þúsund tonn.
Þorskafli hefur dregist saman, var í
fyrra rúm 250 þúsund tonn, en er
nú um 210 þúsund tonn. Ef litið er á
heildarbotnfiskaflann eingöngu, er
hann nú minni en í fyrra: þá höfðu
veiðst rúm 525 þúsund tonn, en nú
um 470 þúsund tonn. Rækjuafli hef-
ur aukist frá því í fyrra, er hann var
rúm 20 þúsund tonn, en er nú rúm
26 þúsund tonn.
Verðmæti heildarfiskaflans fyrstu
sex mánuði þessa árs, samkvæmt
meðalverði afla í janúar og áætluð-
um tölum, er nokkru meiri í ár en á
síðasta ári. Hann er nú rúmar 29
milljónir kr., en var fyrir sambæri-
legan tíma í fyrra rúmar 27.6 millj-
Enn er ekki vitað hvað olli því að
skemmtiferðabáturinn Bravó sökk í
Vestmannaeyjahöfn í fyrrakvöld.
Málið er í rannsókn.
Bravó, sem er í eigu Ferðamið-
stöðvar Vestmannaeyja, var bundinn
við flotbrú í höfninni í Vestmanna-
eyjum. Brúnni var haldið á floti með
tanki, og var hún hækkuð og lækk-
uð eftir þörfum með því að hleypa
sjó i tankinn. Einhverra hluta vegna
ónir króna. Verðmæti botnfiskaflans
á sama tíma er heldur minna í ár en
í fyrra og munar þar mestu um
minna aflaverðmæti þorsks.
-BS
hefur Ioki, sem er á tanknum, staðið
opinn og sjór flætt þar inn. Við það
fór brúin niður og báturinn með.
Þegar að var komið maraði báturinn
í hálfu kafi á hliðinni. Rannsóknar-
lögreglan í Vestmannaeyjum segir
að enn sé ekki ljóst hvort lokinn hafi
verið skilinn eftir opinn, eða hvort
hann hafi verið opnaður og þá af
hverjum.
-BS
Bátur sekkur í Vestmannaeyjahöfn:
Skemmdarverk?