Tíminn - 24.07.1992, Qupperneq 4
4 Tfminn
Föstudagur 24. júlí 1992
Tíininn
MÁLSVARI FRJÁLSLYNDIS, SAMVINNU OG FÉLAGSHYGGJU
Útgefandi: Tíminn hf.
Framkvæmdastjóri: Hrólfur Ölvisson
Ritstjóri: Jón Kristjánsson ábm.
Aöstoðarritstjóri: Oddur Ólafsson
Fréttastjórar: Birgir Guömundsson
Stefán Ásgrímsson
Auglýsingastjóri: Steingrlmur Glslason
Skrifstofur: Lynghálsi 9, 110 Reykjavik Slmi: 686300.
Auglýslngasfml: 680001. Kvöldsímar: Áskrift og dreifing 686300,
ritstjóm, fréttastjórar 686306, iþróttir 686332, tæknideild 686387.
Setning og umbrot: Tæknideild Timans. Prentun: Oddi hf.
Mánaöaráskrift kr. 1200,-, verö i lausasölu kr. 110,-
Grunnverð auglýsinga kr. 725,- pr. dálksentimetri
Póstfax: 68-76-91
Varðar þá um
þjóðarhag?
Þegar ríkisstjórn Davíðs Oddssonar stendur frammi
fyrir úrlausnarefni, sem verður að leysa og öðrum
verður ekki með nokkru móti kennt um að hafa skap-
að, leikur öll stjórnin á reiðiskjálfi og allt stefnir í upp-
lausn og úrræðaleysi.
„Kraumar og sýður í Sjálfstæðisflokknum" er aðal-
fyrirsögn Alþýðublaðsins í gær, en þar er ítrekað dag
eftir dag að ríkisstjórnin sé í rauninni óstarfhæf vegna
ágreinings í forystuliði íhaldsins.
Það, sem ríkisstjórnin stendur frammi fyrir, er
hríðversnandi efnahagsástand og bág afkoma ríkis-
sjóðs. Allur fyrirgangurinn, sem ráðherrar hafa efnt til
í nafni sparnaðar og hagræðingar, skilar sér hvergi
nema í auknum útgjöldum og rekstrarhalla.
Spár vísindamanna um ástand þorskstofnsins og
tillögur þeirra um takmörkun veiða hafa slegið stjórn-
arherrana algjörlega út af laginu og hnakkrífast þeir
sín á milli um hvernig skuli við bregðast.
Það eru keppinautarnir Davíð Oddsson og Þor-
steinn Pálsson, sem eru að gera upp væringar sín á
milli með þeim hætti að efnahagslífi þjóðarinnar er
stefnt í hreinan voða til að þeir geti skeytt skapi sínu
hvor á öðrum.
Sjávarútvegsráðherra vill fara að tillögum vísinda-
manna um að byggja upp þorskstofninn til að auðlind-
in nýtist til frambúðar, en forsætisráðherra sér ekkert
annað en eigin stundarhagsmuni og notar málið til að
klekkja á Þorsteini Pálssyni og sýna hver valdið hefur.
Morgunblaðið tiplar ófimlega í þessum darraðar-
dansi og segir ýmist berum orðum að sjávarútvegsráð-
herra eigi að taka pokann sinn, ef hann sættir sig ekki
við að hlýða yfirboðara sínum, og að mark eigi að taka
á aðvörunum og tillögum fiskifræðinga.
Á sama tíma og Þorsteinn sjávarútvegsráðherra fer
um Vestfirði að tryggja sér velvilja flokksbrodda þar og
lofa þeim Hagræðingarsjóði með meiru, ef þeir sættast
á hans sjónarmið, fara formaður og varaformaður
Sjálfstæðisflokksins, sem einnig gegna störfum for-
sætisráðherra og fjármálaráðherra, til Eyja að tala
gegn tillögum 1. þingmanns Suðurlandskjördæmis í
málaflokki, sem heyrir beint undir hann sem sjávarút-
vegsráðherra.
Það er erfið og örlagarík ákvörðun, sem ríkisstjórn-
in stendur frammi fyrir, og á miklu getur oltið um
framtíð þjóðarinnar að skynsamlega sé að málum stað-
ið. En í stað þess að fjalla um málin af viti og raunsæi,
nota valdamestu menn Sjálfstæðisflokksins tækifærið
til að troða skóinn hver niður af öðrum í trylltri valda-
baráttu sín á milli.
„Hvað varðar mig um þjóðarhag?" eru fleyg orð
áhrifamikils stjórnmálamanns íyrr á öldinni og þóttu
ekki bera hollustu við land og þjóð vitni. Nú getur for-
ystulið Sjálfstæðisflokksins tekið sér sömu orð í munn
með vondri samvisku.
Ef Sjálfstæðisflokkurinn er ófær um að stjórna þeg-
ar á reynir, ætti hann að víkja fyrir þeim sem þora og
geta, og ætti forystulið hans að finna sér annan sand-
kassa að ausa sjálft sig auri í en stjórnarráðið.
1 yk'. m 1 1 I i
fí ? -t ” in Ig_
Sumarútsölur,
trikk og pólitík
Ég heyrði einu sinni sögu um
það að íslendingur nokkur
hefði tekið sér far með flugvél,
þar sem meðal farþeganna var
fjölmennt lið verslunarfólks frá
Islandi og Danmörku. Munur-
inn á þessu liði var sá að íslend-
ingarnir voru allir á höttunum
eftir vörum til þess að flytja inn
til íslands, en Danirnir voru að
selja framleiðsluvörur frá Dan-
mörku úr landi.
Hvað sem sannleiksgildi
þessarar sögu líður, er eitt víst
að ekki skortir áhugamenn um
innflutning hvers konar
varnings til íslands. Versl-
anir þjóta upp á hverju
götuhorni, sérstaklega í
höfuðborginni, og versl-
unarmiðstöðvar rísa hér, sem
mundu sóma sér í hvaða stór-
borg sem væri.
Mcstu byrðamar -
stærstu plastpokarair
Meðan þessu fer fram flykkist
þjóðin til Edinborgar, Glasgow,
Amsterdam, Dublin, London og
jafnvel fleiri borga í Evrópu til
þess að versla. íslendingar eru
þekktir í verslunum í þessum
borgum fyrir mestu byrðarnar,
stærstu plastpokana og hæstu
Visa-nóturnar, enda er svo
komið að þjóðin á heimsmet í
notkun á Visakortum. Visa
munar ekkert um að gera
Bubba út og láta dálitla upphæð
af hendi rakna til Ólympiuleik-
anna. í ljósi þessa er stundum
ráðgáta hvernig er hægt að reka
allar þær fatabúðir, sem hér er
að finna. Það varð hins vegar
lítið atvik í byrjun þessarar viku
til þess að það rann upp fyrir
mér ljós að það finnast snilling-
ar í þessum bransa hérlendis.
Að kaupa gallabuxur
Konan mín er áhugamaður
um það að fjölskyldan sé sæmi-
lega til fara. Fyrir viku fór hún í
búð á Laugaveginum og keypti
gallabuxur á son okkar á 4200
krónur. Hún semur við kaup-
manninn um að mega skila
buxunum, ef þær ekki passa,
vegna þess að sonurinn var fjar-
staddur. Verslunarmaðurinn
var ekkert nema liðlegheitin og
kvað þetta sjálfsagt.
Ekki pössuðu buxurnar og
konan skilaði þeim á mánu-
dagsmorgun og leitaði að ann-
arri stærð. En viti menn.
Buxnalagerinn, sem rétt fyrir
lokun á föstudag kostaði 4200
krónur, var nú kominn uppí
6500 krónur. Hins vegar gerði
þetta ekkert til. Það var byrjuð
útsala í búðinni og komin
blindös og allt rann út. Kaup-
maðurinn stóð við kassann og
sló af, og allir voru í góðu skapi
og gengu brosandi út í sólskin-
ið eftir að hafa gert góð kaup.
Konan mín fékk aðrar buxur á
sléttu og allt var í fína lagi.
Er ekki allt sem
sýnist?
Ég fór að hugsa um hvort
þetta væri galdurinn á bak við
hinar mörgu búðir og hinar
feiknagóðu sumarútsölur, sem
eru út um allan bæ um þessar
mundir. Er verðið á fatnaði í
búðunum eitthvert platverð
sem hægt er að hækka um
helgar, ef halda á góða útsölu á
mánudegi? Er verðið á útsölun-
um, þegar búið er að slá af, eitt-
hvað nálægt gangverði?
Kannske er verðskyn landans
ekki alveg í lagi ennþá, þrátt
fyrir litla verðbólgu um þessar
mundir. Ef til vill er betra að
hugsa sinn gang og hafa í huga
að það sé nú ef til vill ekki allt
sem sýnist á útsölunum góðu.
Pólitíkin
Ég hef ekki lagt það í vana
minn að skrifa um stjórnmál í
þessum pistlum mínum.
Það er gott að hvíla sig á
þeim stundum. Yfirleitt
hefur það verið svo að það
er dálítil ládeyða í pólitík-
inni í júlímánuði. Nú bregður
hins vegar svo við að allt er á
fullu. Davíð og Þorsteinn
komnir í hár saman, að sögn
Alþýðublaðsins. Blaðið fullyrðir
einnig að Davíð hafi líkt Þor-
steini við hinn fræga loddara
Múnchhausen, sem sagðist
hafa kippt sjálfum sér og hest-
inum upp úr keldunni með því
að taka sig upp á hárinu. Ég
segi nú fyrir mig að ég held að
Davíð sjálfur sé eini maðurinn í
ríkisstjórninni sem hefur hár-
lubba í þetta.
Hanaslagur
í stórmáli
Hins vegar er hér ekki um
nein gamanmál að ræða. Al-
menningur fylgist auðvitað
undrandi með hanaslagnum í
ríkisstjórninni í kringum eitt
erfiðasta viðfangsefni, sem er til
úrlausnar um þessar mundir,
að ákvarða heildarafla fyrir
næsta ár. Nóg um það að sinni.
J.K.