Tíminn - 24.07.1992, Blaðsíða 7

Tíminn - 24.07.1992, Blaðsíða 7
Föstudagur 24. júlí 1992 Tíminn 7 Þær eru orönar utan viö sig gömlu konurnar, en sambýli með öörum öldruöum og gamalkunnugt um- hverfi halda þeim lengur gangandi. I Svíþjóð eru uppi nýjar hugmyndir um umönn- un Alzheimersjúklinga Einfaldar veggmyndir i kaffihorninu á elliheimilinu minna á lífiö og til- veruna. Síðasta hœlið áður en heilinn deyr: í öllum velferðarríkjum fjölgar Alzheimersjúkling- um. Er einhverja læknis- hjálp að hafa og umönnun þar sem mannlegri reisn sjúklinganna er sýnd full virðing? Tilraun í Svíþjóð þar sem leitað er að fyrir- mynd ætti að leiða tii svara um orsakir hins dularfulla ellisjúkdóms og þróunar nýrra, mannúðlegra sam- býlishátta sjúklinga. Borgarhlutinn Kungsholm í Stokk- hólmi er það borgarhverfi í heimi þar sem íbúamir em elstir. Þriðji hver þeirra 15.000 manns, sem þar búa, er yfir 65 ára aldri, allt að 230 Kungs- holmarar eru eldri en 90 ára og þrír þeirra hafa þegar náð 100 ára aldri. í Kungsholm er líka óvenjulegt á þessum tímum hreyfanleikans hversu íbúamir hafa lengi átt þar bú- setu. Að meðaltali hafa þeir búið á þessari eyju með gömlum bygging- um í 40 ár. Þessar einstæðu forsend- ur hafa vísindamenn við Karolinsku stofnunina í Stokkhólmi notfært sér. í langvarandi rannsóknarverkefni, sem allir íbúar Kungsholm yfir 74 ára aldri taka þátt í, ætla faraldsfræðing- ar, öldrunarfræðingar og sálfræðing- ar að komast á slóð ráðgátunnar um Alzheimer- sjúkdóminn. Alzheimer fann fyrsta tilfellið 1907 — nú er þetta fjöldasjúk- dómur Eftir að þýski taugasjúkdómafræð- ingurinn Alois Alzheimer lýsti elli- hrömun heilaefnisins í fyrsta sinn í tilfelli dularfullt truflaðrar og sjúkrar konu 1907, hefur sjúkdómurinn magnast frá því að vera læknislegt fá- gæti í fjöldasjúkdóm. í öllum velferð- arlöndum fjölgar Alzheimer-tilfellum samfara hækkandi lífaldri. Um 800.000 Þjóðverjar þjást þegar af sjúkdómnum og árlega bætast 50.000 nýir sjúklingar í hópinn. Þekkingin á þessum hægfara heila- dauða, sem gerir fórnarlömb sín að hjálparvana flökum, er þó „enn meira en gloppótt," segir verkefnisstjórinn í Stokkhólmi, Bengt Winblad, og bætir við að þar sem Alzheimer-sjúkdóm- urinn breiði líka út frá sér félagslegar hörmungar, verði að berjast gegn honum, „í heild sinni". Vísindamenn- imir rannsaka nýja meðferðarmögu- leika, en líka orsakir sjúkdómsins og ýmis form umönnunar Alzheimer- sjúklinga. Að liðnum hálfum tíu ára rannsókn- artímanum hafa vísindamennirnir nú getað lagt fram niðurstöður, sem kippa fótunum undan gildandi tilgát- um til þessa: • Öfugt við það, sem hingað til hefur verið álitið, em konur ekki í meiri hættu gagnvart Alzheimersjúkdómi en karlar. •1 Sú viðtekna hugmynd til þessa að meiri menntun sé vöm gegn Alz- heimer-sjúkdómnum er ekki á rök- um reist. • Áhættuþáttur, sem hefur verið vanmetinn, er erfðaþátturinn. „Sjötti hver til sjöundi hver Alzheimersjúk- lingur á nána ættingja sem hafa átt við sama sjúkdóm að stríða," segir prófessor Winblad Ásamt taugalífeðlisfræðingnum Lars Olson hefur Winblad tekist á hendur meðferðartilraun sem lofar góðu, þar sem 69 ára Alzheimersjúk- lingur hefur í fyrsta sinn fengið flutt til heilans efni sem kallast NGF („Nerve Growth Factor"). Lítil dæla, sem komið var fyrir í kviðarholi kon- unnar, sá henni stöðugt fyrir efninu sem hafði verið unnið úr kirtlaves- sum 1000 karlmúsa. Táugalíffræðilegar rannsóknir stað- festa að NGF-dælingin hafi kallað deyjandi heilafrumur til nýs lífs. Win- blad segir að þær hafi „farið að blómstra" og þróuðu á ný samband við aðrar frumur. Af því hafi leitt að blóðflæði um heilann hafi „aukist í undraverðum rnæli", að sögn pró- fessorsins. Hann bætir því þó við að ekki sé um lækningu á sjúkdómnum að ræða, en „netið fyrir boðflutning- inn þéttist aftur". í ýmsum prófunum sýndi sjúkling- urinn, sem áður var lögmaður, betri frammistöðu hvað minnið varðar en fyrir meðhöndlunina. Samt sem áður varð minnishæfileiki hennar smám saman aftur slakari eftir að lyfjagjöf- inni var hætt, en hún stóð í þrjá mán- uði. Sænsku vísindamennirnir ætla samt að reyna NGF-meðferðina á öðrum Alzheimersjúklingi í haust. Þeir vona að áhrifin vari lengur ef meðferðin er hafin meðan sjúkdóm- urinn er á lægra stigi. Rannsóknir sálfræðingsins Lars Backman beindust að því markmiði að endurheimta dvínandi minnis- hæfileika. Með aðstoð myndbands- upptökuvélar voru reyndar nýjar að- ferðir, sem gætu gert sjúklingnum lífið léttara í hversdagslífinu. Gamalþekkt minnisþjálf- un kemur Alzheimersjúk- lingum ekki að gagni Samanburðarrannsóknir sýndu að gamalþekkt minnisþjálfún með kerf- isbundnum hugaræfingum skerpir bara athyglisgáfuna hjá heilbrigðu gömlu fólki, ekki hjá Alzheimersjúk- lingum. Grandskoðun á myndbands- upptökunum núna leiddu í ljós að ákveðnar „þekktar stoðir" minna hugsanaskerta Alzheimersjúklinga á eitthvað. Þar sem hreyfigeta sjúklinganna „heldur oft áfram að vera tiltölulega góð" (Backman), þó að greindin sé skert, æfðu sálfræðingarnir þá alltaf í síendurteknum hreyfingum, sem notaðar eru við hversdagsverk eins og að leggja á borð eða bursta tenn- umar. Líka var bætt við einföldum glöggvunarhjálpartækjum, s.s. litum, plöttum eða máluðum táknum á vegginn. Mikilvægu hlutverki gegndi líka alltaf skilningsrík þátttaka ann- arra, hraustari gamalmenna eða að- standenda, sem tóku þátt í þjálfunar- tilraununum. „Það var auðvelt verk að hvetja þá til að vera með,“ segir Eva von Strauss hjúkrunarkona um þá um 2400 öldnu meðborgara, sem tóku þátt í verkefninu. í nákvæmum samtölum og rannsóknum könnuðu hjúkrunar- konur og læknar kringumstæður gamla fólksins og fjölskyldna þeirra. Samtímis gáðu þau að merkjum um heilaskaða, sem oft er erfitt að henda reiður á. Alls sýndu 385 karlar og konur merki „hrömunarsjúkdóma"; helmingur þeirra var haldinn Alz- heimer. Til þess að fmna þessa sjúk- linga „var nauðsynlegt að grípa til geysilegrar sjúkdómsgreiningar", segir Laura Fratiglioni, ítalska for- stöðukonan við farsóttarrannsóknir í Stokkhólmi. En enn sem komið er hefur hvorki sjúkdómsgreining né meðhöndlun getað haldist í hendur við hina far- sóttarkenndu útbreiðslu Alzheimers. Lyljaiðnaðurinn leggur alla áherslu á að finna efni sem gætu dregið úr of- framleiðslu efnahvatans azetylcho- linesterase í heila Alzheimersjúkra. Það á að hindra uppbyggingu efnis- ins. Þannig ætti að hægja á framsókn sjúkdómsins, þó að ekki yrði komið í veg fyrir hann. Lyf, sem stöðva frumudauðann til frambúðar, eru ekki enn í augsýn. Erfítt að greina Alzheimer Stuðst er við hið breiða litróf ein- kenna — frá upphaflega daufu minn- isleysi, yfir alvarlegar taltruflanir og ringlun til algers andlegs og líkam- legs hjálparleysis - til að greina Alz- heimer frá öðrum heilatruflunum sem tengjast öldrun. Það er þó ekki hægt að greina sjúk- dóminn án hjálpar útvortis rann- sóknaraðferða eins og t.d. tölvu- eða segul-enduróms (tomographie), sem gera sýnilegar líffræðilegar breyting- ar á heilaberkinum. Lokavissuna er ekki að fá fyrr en við krufningu meinafræðingsins. í heila Alzheimer- sjúklinga hrannast upp dreggjar af eggjahvítu, sem klumpast saman og hindra merkjasendingar milli heila- frumanna. Til að halda í lágmarki mistökum við að bera kennsl á sjúkdóminn sjúk- dómsgreina læknamir í Kungsholm- verkefninu, óháðir hverjir öðrum, hvert tilfelli tvisvar. Matið á gögnun- um sýnir að greinilegasti áhættuþátt- urinn er hár aldur. Og Svíar ná sífellt hærri aldri, lífslíkur sænskra kvenna em að meðaltali rúm 80 ár og sænskra karla yfir 74 ár. Því hrað- fjölgar Alzheimertilfellum. Farsóttar- fræðingamir segja að eftir 75 ára ald- ur tvöfaldist fjöldinn u.þ.b. á hverjum fjómm ámm. Allt að þriðji hver, sem náð hefúr níræðisaldri, þjáist af sjúk- dómnum. Til ársins 2000 eykst hlutfall þeirra, sem komnir em yfir áttrætt, um 30% í Svíþjóð, er mat Lennarths Johans- son við áætlunarstofnun heilbrigðis- og félagsmálaráðuneytisins. Til að sjá til þess að fyrirsjáanleg aukning, líka ellihrörnunar- og Alzheimersjúk- linga, geti „elst með virðingu", eins og Johansson orðar það, hafa í mörg- um sænskum borgum verið sett á fót lítil sambýli. Sambýiistilraunin lofar góðu „Ruglað, gamalt fólk var alltof oft lagt inn á sjúkrahús og róað niður með lyfjum," segir Lisa Rönnberg, læknir og sérfræðingur í öldrunar- málum við Solberga- sjúkrahúsið við Stokkhólm. Líkamleg og andleg sljóvgun flýtir bara fyrir hrömun- inni. Sambýlið, sem rekið er sem eins konar fjölskyldusamband, álítur hún „heilbrigðara" fyrir þá ellihrömuðu. Á sambýlum er ekki bara lengur haldið gangandi tilfinningalífi hinna öldmðu, heldur segir Rönnberg þá hafa betri tímaskynjun en á sjúkra- húsi, sé minna utan við sig og sofi líka án svefnlyfja. Að þessari reynslu fenginni em sprottnar endurbætur, sem sænsk sveitarfélög hafa tekið upp síðan í byrjun þessa árs í umönnun aldraðra. Á þrem stigum em sambýlin löguð að þörfum hrömunar- og Alzheimer- sjúklinganna. Eftir nákvæmar rannsóknir, sem taka margar vikur, stendur val þeirra öldmðu, eftir því hversu langt þróun sjúkdómsins er framgengin, um mis- munandi umönnun. í dagdvöl með sameiginlegri borðstofu og rými til félagsskapar una öldungar, sem enn eru bærilega á sig komnir, til síðdeg- is í góðri umsjá og við eitthvert dund. Þeir em fluttir fram og til baka með bfl. Þeir, sem eiga erfiðara með að bera sig um, búa í sambýli, en eiga mögu- leika á að snúa aftur til síns heima. Þessi varaheimili em allan sólar- hringinn í umsjá sérstaklega þjálfaðs starfsfólks. Samt er kostnaðurinn, sem íbúamir taka þátt í að greiða, lægri en á hefðbundnum hjúkrunar- stöðvum. „Vemdað heimili" bak við luktar dyr er ætlað fyrir sjúklinga á þriðja stig- inu, þegar mglað gamalt fólk er búið að glata algerlega sjálfsímyndinni, er fúllkomlega hjálparvana eða lagst í rúmið. En þessi síðasti dvalarstaður á líka fremur að líkjast heimili en sjúkrastofnun. í úthverfinu Álvsjö í Stokkhólmi, þar sem lokaöldmnardeild er á sjöttu hæð í fjölbýlishúsi, búa íbúamir í vinalegu umhverfi, innan um vegg- myndir, myndir sem íbúamir hafa sjálfir gert og minjagripi sem vekja aftur til lífsins horfna og gleymda veröld. „Takmark okkar er það að gefa gamla fólkinu tækifæri til að halda í leifamar af eðlilegu lífi og vera ekki alltaf að meðhöndla það. Það er ekki hægt að meðhöndla öldrun," segir Lisa Rönnberg.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.