Tíminn - 24.07.1992, Page 12
AUGLYSINGASIMAR: 680001 & 686300
Áskriftarsími
Tímans er
686300
AUÐVITAÐ
Suðurlandsbraut 12
Oðfuvísl bflasala
BÍLAR • HJÓL •
BÁTAR • VARA-
HLUTIR.
MYND HJÁ OKKUR - BÍLL HJÁ ÞÉR
SÍMI 6T9225
m 1 JÍÍ^Sábriel HOGG- DEYFAR Versiið hjá fagmönnum
í varahlutir
'/ . Hamarsböfda I - s. 67-Ö744
-1
Tíminn
FÖSTUDAGUR 24. JÚLl 1992
Mun sjávarútvegsráðherra gefa út þorskveiðiheimildir þvert ofan í vilja Davíðs og flestra hinna ráðherranna? Þorsteinn Pálsson:
Hlýt að nálgast málið út
frá þjóðarhagsmunum
„Ég hef ekki Iagt neina tillögu fram ennþá og enn síður tekið
ákvörðun um að gefa hana út í reglugerð. Ég hef lagt mig fram
um að leita sátta í málinu og reynt, með framlagningu gagna
og dæma um hugsanlega ákvörðun, að taka tillit til óska með-
ráðherra og þingflokks og mun halda áfram að leita sátta í mál-
inu,“ sagði Þorsteinn Pálsson sjávarútvegsráðherra í gær-
kvöldi.
Ríkisútvarpið greindi frá því í
kvöldfréttum í gær að ráðherra
hygðist standa og falla með því að
ekki yrði veiddur meiri þorskur
næsta fiskveiðiár en 190 þúsund
tonn og gefa út reglugerð þar að
lútandi, hvort sem samkomulag
næðist um það í ríkisstjórn eða
ekki.
Sjávarútvegsráðherra sagði við
Tímann að enginn þyrfti að fara í
grafgötur með þá grundvallar-
skoðun hans að við núverandi að-
stæður væri mjög mikilvægt að
verja þorskstofninn. Hann vildi
ekki ræða um þær viðtökur sem
hugmyndir hans hafa hlotið hjá
forsætisráðherra og flestum sam-
ráðherra sinna og greint er frá á
blaðsíðu 2, en sagði: „Ég hlýt að
standa vörð um þá grundvallar-
hagsmuni sem þarna eru í húfi.
Um leið mun ég áfram leita sátta
meðal ríkisstjórnar og þingliðs,
enda er það skylda mín. Ég vinn
að þessu út frá hreinu málefna-
legu sjónarmiði og læt ekkert
annað hafa áhrif á mína afstöðu
eða vinnu í málinu. —sá
Fannst frá Hvammstanga að Grenivík:
Jarðskjálfti nyrðra
Jarðskjálfti varð kl. 22:40 í fyrra-
kvöld og voru upptök hans 30 km
norðvestur af Siglufírði. Skjálftinn
mældist 4,5 á Richters-kvarða.
„Hann fannst svo vitað sé vestur frá
Hvammstanga alveg austur að
Grenivík," segir Ragnar Stefánsson
jarðskjálftafræðingur. Hann segir
einnig dálítið hafa verið um hrær-
ingar frá Kötlu út að Heklu en ekki
það mikið að búist sé við gosi.
Páll Einarsson jarðskjálftafræðing-
Knattspyrnumót 6. fiokks á Austurlandi á
morgun og sunnudag:
Pollamót haldið í
Hallormsstaóaskógi
A morgun, laugardag og sunnudag
verður haldið í Hallormsstaðaskógi
knattspymumót 6. flokks, svo-
nefnt Pollamót Kaupfélags Hér-
aðsbúa. Mótið er opið öllum
íþróttafélögum og er búist við lið-
um víðs vegar af Íandinu. Náttúru-
fegurð í skóginum er mikÖ og er
það vafalítið mikið aevintýri ungu
fólki að keppa í slíku umhverfí.
PoUamót Kaupfélags Héraðsbúa
hefst ld. 11 á morgun en að kvöld-
inu veröur kvöldvaka við Lagarfljót
sem hefst kl. 20. Þar veröur m.a.
grillað og farið í alls konar leiki.
Kaupfélag Héraðsbúa sem hefur
styrkt íþrótta- og félagsstarf á Eg-
Usstöðum á Uðnum árum er stuðn-
ingsaðtti mótsins sem skipulagt er
af knattspyrnudeildar fþróttafé-
lagsins Hattar. Vonast er til að
Pollamótið verði árviss viðburöur.
—sa
Bjöm Ágústsson, fulltrúi kaupfé-
lagsstjóra Kaupfélags Héraðs-
búa, tv. og Hermann Nfelsson,
formaður knattspyrnudoíldar
Hattar, handsala styrktarsamn-
ing Kaupfélagsins vlö knatt-
spymudelldina.
ur segir hafa borið á skjálftum á
Mýrdalsjökulssvæðinu í fýrrinótt og
gærmorgun.
„Þeir voru litlir en komu þó fram á
mælum,“ segir Páll.
Ekki er enn vitað hvað skjálftarnir
mældust, en það telst óvenjulegt að
skjálftar verði á umræddu svæði á
þessum árstíma. Undir Mýrdalsjökli
er þó eitt af virkustu jarðskjálfta-
svæðum landsins og því ekki gott að
segja til um hvort skjálftarnir eru
undanfari eldgoss eður ei.
/ —GKG.
Þorsteinn Pálsson sjávarútvegsráöherra.
Tímamynd PJetur
Aðeins hálfvinnan unnin með EES samningnum, heimavinnan er eftir, segja
samtökin íslensk verslun:
Minnkar vöruval
með EES samningi?
Eigum við sem EES-þjóð eftir að standa frammi fyrir því að vöruúrval í ís-
lenskum verslunum minnki verulega? Fátt verði þar um aðrar vörur en evr-
ópskar? „Samningurinn um EES mun beina viðskiptum enn frekar inn á
Evrópumarkað en verið hefur.
íslendingar hafa í gegnum tíðina
átt mikla viðskiptahagsmuni við
lönd utan EES, svo sem Bandarík-
in, Kanada, Japan og fleiri lönd.
Þessi viðskipti hafa verið mismikil
og þá oft ráðist af því hvar kaup og
kjör væru best hverju sinni. Háir
ytri tollar geta hins vegar komið í
Spáð þurru sunnanlands
Búist er við að norðlæga áttin og
kuldinn haldist um helgina, sér í
lagi fyrir norðan.
„Þokkalega bjart og milt verður að
deginum hér suð-vestan til,“ segir
Magnús Jónsson veðurfræðingur.
„Ekki ósvipað veður og verið hefur
en kannski ekki eins sterkt sólskin
og hér hefúr verið á suðvesturland-
inu, en áfram svalt fyrir norðan og
suddi."
Möguleiki er á að rigni á Suðaust-
ur- og Norðurlandi þessa helgi en
hann á að haldast þurr á höfuðborg-
arsvæðinu og vestanlands.
Ekki er enn hægt að segja til um
hvernig veðrið verður um verslun-
armannahelgina. —GKG.
veg fyrir þessi viðskipti," segja sam-
tökin íslenskverslun m.a. í umsögn
sinni um EES samninginn.
Jafnframt er bent á að auk þessa
njóti lönd Evrópu fjarlægðarvernd-
ar. Með samningnum sé þó gengið
enn lengra gagnvart matvælainn-
flutningi frá öðrum löndum en
EES-löndum, því samkvæmt regl-
um Evrópubandalagsins muni regl-
ur um notkun aukefna og merk-
ingu umbúða verða samræmdar.
Samtökin sjá þó marga góða kosti
við EES aðild. Útflytjendur innan
FÍS (Félags stórkaupmanna) fagna
t.d. samningnum þar sem hann gefi
greiðari leið að mörkuðum og
væntanlega um 2.500 milljóna kr.
hærra skilaverð til innlendra fram-
leiðenda.
Samtökin telja sömuleiðis að auk-
ið samstarf við réttarríki þau er
mynda EES muni færa einstakling-
um jafnt sem lögaðilum aukna rétt-
arvernd, ekki síst þar sem samning-
urinn öðlist lagagildi hér á landi.
Fyrir verslunina sé þó mikilvægast
að starfsskilyrði verði sambærileg
og hjá erlendum samkeppnisaðil-
um. Hérlendis séu enn ýmsir skatt-
ar sem leggist á verslunina eina.
Þótt EES samningurinn taki ekki
til skatta megi ljóst vera að ekki
verði hjá því komist að taka skatt-
lagningu verslunargreinarinnar til
endurskoðunar. Samtökin íslensk
verslun telja þó að með EES-samn-
ingnum sé aðeins hálf vinnan unn-
in, eftir sé að vinna heimavinnuna,
sem hljóti að miða að því að aðlaga
íslenskt fjármálakerfi því sem gerist
á samstarfssvæðinu, enda muni allt
annað stríða gegn markmiðum og
meginreglum EES sbr. 1. grein
samningsins.
- HEI