Tíminn - 30.07.1992, Síða 1

Tíminn - 30.07.1992, Síða 1
Fimmtudagur 30. júlí 1992 139. tbl. 76. árg. VERÐ í LAUSASÖLU KR. 110.- Landsmenn (of?)nýtt lánsréttindi sín í botn síðustu árin: Skuldimar jukust 7 millj- örðum meira en eignimar Einstaklingar, sem þurfa að greiða eignaskatt, eru nú um 1 þúsund færri en í fyrra. Ástæðan er sú að samkvæmt skattframtölum hækk- uðu skuldir fólks mörgum milijörðum króna meira en eignir á síð- asta ári — og raunar nokkur undanfarin ár. Þannig hækkuðu fram- taldar skuldir einstaklinga um 22 milljarða kr. að raungildi (um 340.000 kr. á hverja fjögurra manna fjölskyldu), eða 14%, milli ár- anna 1990 og 1991. Þar á móti jukust framtaldar eignir þeirra að- eins um 15 milljarða kr., hvar af 6 milljarðar voru í nýjum bílum. Fólk hefur þannig aukið skuldir sínar um 7.000 milljónir umfram eignir á árinu. „Raunar nær þessi þróun yfir lengra tímabil," segir í greinargerð fjármálaráðuneytisins um álagn- ingu opinberra gjalda 1992. í ljós kemur að skuldir heimilanna (fast- eignalán, námslán og önnur lán) hafa meira en tvöfaldast á aðeins 3 árum, þ.e. úr 95 milljörðum króna í ársbyrjun 1989 upp í 195 milljarða í byrjun þessa árs. Eignir einstaklinga umfram skuld- ir (eignaskattstofninn) voru 336 milljarðar í ársbyrjun 1989. Einung- is til að halda fullu raungildi sínu (m.v. um 44% vísitöluhækkun) þurftu þær að hækka í 485 milljarða í byrjun þessa árs. í raun töldu töldu einstaklingar hins vegar aðeins fram 455 milijarða eignir. Hreinar skatt- skyldar eignir þeirra hafa þannig dregist saman um 30 milljarða króna að raungildi á aðeins þrem ár- um. Þetta samsvarar rýrnun hreinna eigna um nær 160 þús.kr. að meðaltali á hvern framteljanda (alla 16 ára og eldri), eða hátt í hálfr- ar milljónar króna eignarýmun á hverja 4ra manna fjölskyldu að með- altali. Um 42% allra eigna í „panti“ Landsmenn hafa þannig verið að að veðsetja heimili sín í stórauknum mæli síðustu árin. Fyrir þrem ámm samsvöruðu heildarskuldir einstak- linga rúmlega 30% af verðmæti fast- eigna þeirra. Þetta hlutfall hefur síð- an hækkað í 42% um síðustu ára- mót. Meðal helstu ástæðna þessarar miklu skuldasöfnunar, að mati fjár- málaráðuneytisins, em hækkun lánahlutfalls í fasteignakaupum með tilkomu húsbréfakerfisins, aukning námslána og hugsanlega Iækkandi fasteignaverð að undan- fömu (sem kemur fram í lægra fast- eignamati). 10. hver „gjaldþrota“ Enda hefur öreigum og þeim sem eiga minna en ekki neitt, þ.e. skulda meira en þeir eiga eignir á móti, fjölgað geysilega síðustu árin. Frá 1989 hefur framteljendum í landinu fjölgað um 7.400 manns, í 191.300 í byrjun þessa árs. Þrátt fyr- ir það fækkaði þeim um 1.700 sem áttu einhverjar eignir umfram skuldir, niður í 88.800 manns í byrj- un þessa árs. Þeim sem töldu fram skuldir um- fram eignir fjölgaði hins vegar gríð- arlega á þessum þrem árum. Um 11.200 voru í þeirri aðstöðu íyrir þrem árum. Þeim hafði fjölgað í 18.300 manns í byrjun þessa árs, eða um 63%. Þetta svarar til þess að á móti hverjum 5 sem eiga eignir um- fram skuldir komi 1 sem skuldar umfram eignir — á þannig minna en ekki neitt. „Öreigum", sem hvorki telja fram skuldir eða eignir, hefur því fjölgað einnig töluvert, eða um 3 þúsund manns þessi þrjú ár. pjórðungur framtelj- enda með eignaskatt Af þeim áðumefndu 88.800 manns sem eiga eignir umfram skuldir eru 51.200 sem á er lagður eignaskattur á þessu ári, eða rúm- lega fjórðungur allra framteljenda. Samtals þarf þessi hópur að borga 1.580 m.kr. í eignaskatta (um 31 þús.kr. að meðaltali). Þrátt fyrir fjölgun framteljenda um 2.600 milli ára hefur þeim fækkað um þúsund manns sem þurfa að greiða eigna- skatt. Um 5.200 einstaklingar lenda í efra þrepi eignaskattsins, sem þýð- ir að þeir eiga skuldlausar eignir umfram 9,5 milljónir kr. (tvöföld sú upphæð hjá hjónum). Þetta eigna- fólk virðist þó flest vera lágtekjufólk, því vegna tekjutengingar þarf aðeins þriðjungur þessa hóps, eða 1.700 manns, að greiða óskertan eigna- skatt í hærra þrepi. Tékkar og íslendingar í handbolta á Ólympíuleikunum: JAFNTEFLI Leikur íslendinga og Tékka á Ólympíuleikunum endaði með jafntefli. Lokastaðan var 16:16. Guðmundur Malmquist, forstjóri Byggðastofnunar: Lánsheimildir Byggða- stofnunar 850 millj. „Út af fyrir sig er þetta eitt af verkefnum Byggðastofnunar og ekki nema eðlilegt að hún fái það,“ segir Cuðmundur Malmquist, forstjóri Byggða- stofnunar, um þá ákvörðun ríkisstjómarinnar að feia stofnuninni að koma með tillögur um hvemig koma mætti verst settu byggðum landsins til hjálpar í kjölfar afiasamdráttar. Aðspurður um lánsheimildir stofn- unarinnar segir Guðmundur að hún sé í ár 750 milljónir erlendis frá og 100 milljónir innanlands og ennþá hafi ekkert lán verið tekið. Guð- mundur gerir ráð fyrir að það verði gert í haust. „Það má kannski segja að það stefni í að stofnunin þurfi ekki að nýta allar þessar heimildir og það er kannski það sem sjávarút- vegsráðherra á við þegar hann talar um 300 milljóna lánsheimildir." Guðmundur er enn ekki fárinn að ræða við sjávarútvegsráðherra um þessi mál, en hann ræddi lauslega við forsætisráðherra um málið á þriðjudag. „ Við öfluðum vissra upp- lýsinga fyrir forsætisráðuneytið áð- ur en þessar ákvarðanir voru teknar og reyndum að áætla þau ársverk sem falla niður við skertan kvóta. Það verður síðan unnið áfram í framhaldi af því.“ Guðmundur segir þó enn ekki ljóst hvernig farið verður niður í þetta dæmi og á eftir að ráðfæra sig við sérfræðinga sína og einnig á stjórn stofnunarinnar eftir að fjalla um málið. Því sé lítið hægt að segja um þessi mál á þessari stundu. -BS Sjá einnig umfjöllun um ákvörðun rfldsstjómar og sjávarútvegsráðherra um fiskveiðimálin á blaðsíðu 2. Eignaaukningin mest í bílum Þrátt fyrir að framteljendur hafi aukið skuldir sínar um 42% að raungildi (umfram verðbógu) sl. þrjú ár hafa hefur raungildi fast- eigna þeirra sáralítið aukist (4%) á sama tíma. Segja má að eina eigna- aukningin sem eitthvað kveður að liggi í einkabílum landsmanna. Einkabflaflotinn var metinn á 53 milljarða kr. (815 þús. kr. að meðal- tali á hverja 4ra manna fiölskyldu) um síðustu áramót og hafði þá vaxið um 71%, eða um fimmtung að raungildi, á þrem árum. Greiðendum eignaskatts fækkar ekki aðeins í hópi einstaklinga held- ur hlutfallslega ennþá meira meðal fyrirtækja. Tæplega 5 þúsund fyrir- tæki þurftu að greiða eignaskatt árið 1991 en þeim hefur síðan fækkað í 4.560, eða um nær tíunda hluta. Alls er þeim gert að greiða um 1.130 milljónir f eignaskatta í ár, eða nán- ast sömu upphæð og í fyrra. - HEI Sé hemlað á 120 km hraða eyðileggjast hjólbarðarnir og hér gefur á aö líta þá Óia H. Þórðarson, formann Umferðarráðs, Þóri Ingason, verkfræðing hjá Rannsóknastofnun bygging- ariðnaðarins, Sumarliða Guðbjörnsson frá tryggingarfélög- unum og Brynjar Valdimarsson frá Bindindisfélagi öku- manna með dekk sem haft var undir bíl sem nauðhemlað var á 120 km hraða á þurru malbiki. Tlmamynd Slgurstelnn Athugun á hemlaförum: Aöstæður hafa áhrif þegar farið er yfir 80 km hraða Athugun, sem m.a. Umferðarráð og bifreiðatryggingafélögin létu gera, hefur leitt í ljós að sé hraði bfls aukinn úr 50 km í 60 km/klst eykst hemlunarvegalengd um 4-5 metra. Sé hraði aftur á móti aukinn úr 90 í 100 km/klst eykst hún um 10-15 metra. Athygli vakti að hemlunarvegalengd mælist sex sinnum meiri á 120 km hraða en 60 km hraða. Vegalengdin reyndist vera svip- uð á öllum tegundum bfla við allar aðstæður upp að 80 km hraða, en þá fara aðstæður að hafa áhrif. T.d. er hemlunarvega- lengd meiri á blautri klæðningu og malbiki en á þurru yfirborði og er mismunurinn á 120 km hraða 10 metrar á klæðningu en 15 metrar á malbiki. Ef viðnám er mikið verða negld- ir hjólbarðar til þess að hemlun- arvegalengdin verður meiri en ísing og Iítið viðnám hafa meiri áhrif til góðs en neikvæðu áhrif- in á auðu yfirborði. Athugunin var gerð til að geta skorið úr þegar framburði öku- manna ber ekki saman við heml- unarför bifreiða þeirra þegar umferðaróhapp verður og þeir þurfa að hemla snögglega. -GKG ■■■■■■§^^■■■1 ■■■■HBBnnmHH

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.