Tíminn - 30.07.1992, Síða 4

Tíminn - 30.07.1992, Síða 4
4 Tíminn Fimmtudagur 30. júlí 1992 Tíminn MÁLSVARI FRJÁLSLYNDIS, SAMVINNU OG FÉLAGSHYGGJU Útgefandi: Tfminn hf. Framkvæmdastjóri: Hrólfur Ölvisson Ritstjóri: Jón Kristjánsson ábm. Aöstoöarritstjóri: Oddur Ólafsson Fréttastjóran Birgir Guömundsson Stefán Asgrfmsson Auglýsingastjóri: Steingrlmur Glslason Skrifstofur: Lynghálsi 9, 110 Reykjavik Sfml: 686300. Auglýslngasfmi: 680001. Kvöldsfmar: Áskrift og dreifing 686300, ritstjóm, fréttastjórar 686306, Iþróttir 686332, tæknideild 686387. Setning og umbrot: Tæknideild Tlmans. Prentun: Oddi hf. Mánaöaráskrift kr. 1200,-, verö I lausasölu kr. 110,- Grunnverö auglýsinga kr. 725,- pr. dálksentimetri Póstfax: 68-76-91 Glíman við frj álshyggjudrauginn Ákvörðun sjávarútvegsráðherra um heildar- afla næsta ár er málamiðlun milli andstæðra sjónarmiða í ríkisstjórninni. Niðurstaðan er ótrúlega ranglát. Með henni er í raun ákveðið að láta niðurskurðinn lenda með fullum þunga á fámennum byggðarlögum þar sem atvinnulífið byggir eingöngu á vinnslu og veiðum á þorski. Önnur byggðarlög, eins og til dæmis Reykjavík, fara miklu betur út úr niðurskurðinum, vegna þess hve afli þar byggir í ríkum mæli á tegund- um sem veiðiheimildir eru auknar á, eins og karfa svo dæmi séu nefnd. Ljóst er að ríkisstjórnin hefur ákveðið að kasta þessari ákvörðun fram með alla enda lausa. Hugmyndinni um að úthluta aflaheimild- um Hagræðingarsjóðs var hafnað, m.a. vegna kenninga um svokallaða „kostun“ atvinnuveg- anna á rannsóknum í þeirra þágu, og vegna þeirrar þráhyggju ríkisstjórnarinnar að leggja aukin útgjöld á sjávarútveginn án tillits til af- komu hans. Það er alveg Ijóst að Alþýðuflokkurinn og frjálshyggjuliðið í Sjálfstæðisflokknum hefur haft sitt fram hvað Hagræðingarsjóðinn varðar. Eftir þessa ákvörðun — sem engar aðgerðir fylgja nema sýndarákvörðun um að Byggða- stofnun geri tillögur um að milda áfallið fyrir þau byggðarlög sem verst eru sett — eru mál- efni sjávarútvegsins í uppnámi. Það er í raun búið að ákveða svo herfilega mismunun að við svo búið má ekki standa. Byggðastofnun hefur alls engin úrræði í þessum efnum. Það hefur verið dregið stórlega úr fjárframlögum til hennar, og getan til átaka í atvinnumálum því stórlega skert. Beiðni um til- lögur þaðan er ekkert nema aumkunarverður kattarþvottur af hálfu forsætisráðherra til þess að breiða yfir ráðaleysi rfkisstjórnarinnar. -Það væri auðvitað eðlilegt í þessari stöðu að úthluta heimildum Hagræðingarsjóðs og nota hann í samræmi við upphaflegan tilgang sinn. Alþingi verður að grípa í taumana og koma því í kring, og að sjálfsögðu verður að reyna á það strax og það kemur saman hvort þingmenn eru svo geðlausir að láta aðgerðaleysið og sinnu- leysið um afkomu sjávarútvegsins og lífsgrund- völl fólksins í hinum dreifðu byggðum yfir sig ganga. Eru frjálshyggjudraugurinn og kratarnir svo magnaðir, að þeim verði liðið að rústa at- vinnulífið í heilum landshlutum? Nú mun reyna á það. Flutningur ríkisstofnana út á land hefur lengi verið á dagskrá en þegar til á að taka æxlast málin ávallt þannig að ekkert verður úr flutningi og eflast og dafna ríkisstofnanirnar í Reykjavík og þeim sem við bæt- ast er undantekningarlítið hol- að þar niður. Af sjálfu leiðir að stjórnsýslan, sem sveitarstjórn- armenn tala svo fjálglega um, og þjónustan, sem allir vilja hafa sem mesta og besta og heima hjá sér, hrannast upp í Reykjavíkinni þar sem hafa verður flugvöll í miðbænum til þess að utanbæjarmenn komist beint í þjónustuna og stjórn- sýsluna án þess að lenda í taf- sömum innanbæjarferðalög- um. Þar sem þéttbýlið í dreifðu byggðunum sárvantar þjón- ustu og sérstaklega launuð störf, sem þýtt yfir á stofnana- mál eru atvinnutækifæri, þykir nauðsynlegt að dreifa ríkis- stofnunum um landið og efla þar með þéttbýlisstaðina. Byggðastofnun er t.d. stundum nefnd í þessu samhengi, en hún er búin að koma sér svo vel fyr- ir við Rauðarárstíginn að þaðan verður starfsfólkinu eða stjórnarmönnum ekki haggað og verður sú þjónusta og stjórnsýslu- miðstöð í miðri Reykja- vík um aldur og ævi, eins og aliar aðrar ríkisstofnanir. Þeir sem ætla að flytja ríkis- stofnanir út á land lenda nefni- lega ávallt í sporum postulans Páls sem mælti hin fleygu orð í öllum sínum veikleika: „Það sem ég vil, gjöri ég ekki og það sem ég vil ekki, það gjöri ég.“ Ekkert að óttast Þeir sem nú ætla að fara að flytja ríkisfangelsið frá Eyrar- bakka til Reykjavíkur geta tekið undir í einum kór með postul- anum. Það sem ég vil ekki... Annars er óþarfi að fara starx að bera kvíðboga fyrir að leti- garður ríkisins rísi í höfuð- borginni. Fyrir fjörutíu árum var skipuð nefnd til að gera til- lögur um nýtt ríkisfangelsi sem koma átti í stað Litla-Hrauns á Eyrarbakka. Hún hefur starfað látlaust síðan og og hjá húsa- meistara ríkisins, sem mætti að ósekju sitja á Hornströndum, er sérstök deild sem er að teikna eða hanna ríkisfangelsi. Nefndin og arkitektarnir í tugt- húsdeildinni fara annað veifið í önnur lönd og álfur að kynna sér nýjungar í fangelsahönnun og halda svo áfram að velta vöngum og teikna. Búið er að stika nokkrar lóð- ir í Reykjavíkurlandi undir fangelsi en að örðu leyti sér emSætti húsameistara um framkvæmdaleysið. Tugthúsgrunnur og hámenning Fyrir 20 árum var hafin bygg- ing kvennafangelsis við Tungu- háls og grunnur steyptur. Það mannvirki seldi Ólafur Ragnar SS og fékk fyrir ógurlegan slát- urhússkrokk utan um mar- gefldan listaháskóla Svavars Gestssonar og eru nú eignirnar, grunnur uppi á heiði og hús- gímald í Laugarnesi, álíka notadrjúgar. Þegar fréttist að hreyfing er að komast á ríkisfangelsi fyrir karla sáu Dalvíkingar af hag- sýni sinni púðrið í stórbygg- ingu og rekstri tugthúss. Þarna er auðlind sem aldrei þverr og skapar atvinnu og umsetningu í bráð og lengd. Þeir buðust til að selja lóð undir fyrirtækið og lofuðu að sjá um að hvorki vantaði starfsfólk né þjónustu til að reka ríkisstofnunina í bænum sínum. Þá rumskuðu Eyrbekkingar við sér og fengu nýja skilninga á hinu fornkveðna, að enginn veit hvað átt hefur fyrr en misst hefur. Nóg pláss í Flóanum, sögðu þeir, og að ekkert vit væri í að flytja letigarðinn frá Litla- Hrauni. Best að byggja þar upp aftur og kváðust vel færir um að hýsa tugthúslimi framtíðar- innar. Reyndar hafa Eyrbekkingar ágæta reynslu af sambýlinu við Litla- Hraun og hafa samskipt- in við íbúana þar oft verið með ágætum. Minna má á að oft hafa þeir á Litla-Hrauni bjargað verðmætum frá skemmdum þegar landburður var af fiski. Þá þræluðu þeir oft í fiskvinnsl- unni á meðan stætt var og unnu sjálfum $ér, Eyrbekking- um og þjóðinni allri hið ágæt- asta gagn. Vel getur verið að Dalvíking- ar sjái líka hvílíkur akkur er að slíku vinnuafli þegar á reynir. Auölind og nýting hennar En af því að Reykjavík þarf að gleypa allar þjónustustarfsemi, stjórnsýslu og ríkisfyrirtæki er ákveðið að ríkisfangelsið verði sett niður þar hvenær sem það verður. Framkvæmdanefnd tugthúsa á eftir að fara nokkrar ferðir enn til að kynna sér nýj- ustu tískuhönnun fangelsa og fangadeild húsameistarame- bættisins á mikið starf fyrir höndum að teikna fangelsi sem ekki gefur grámyglu ráðhúss eftir. Túgthússtjóri ríkisins heldur því fram að helsta röksemd fyr- ir því að reisa nýja letigarðinn í Reykjavík sé að flestir tugthús- limir komi af suðvesturhorni landsins og á þar væntanlega við Innnes. Þar eru dómarar líka flestir, en að vísu misjafn- lega afkastamiklir. Svona röksemdafærsla er fullgild. Af því að í Reykjavík eru flestir delinkventarnir og drjúgur hluti dæmdra manna er sjálfsagt að heimabyggð njóti ávaxtanna af afbrotum þeirra og fái að timbra upp hús fyrir þá og þjónusta fyrir ríkisfé þegar þar að kem- ur. Ef Eyrbekkingar ætla að halda í fangelsið verða þeir að drífa í að fremja glæpi og láta dæma sig á leti- garðinn til að skapa atvinnu- tækifæri og þjónustu á heima- slóðum. Sömuleiðis mega Dal- víkingar taka sig á og gerast af- brotamenn í stórum stfl ef þeir eiga að hljóta hnossið, eins og ríkisfjölmiðlarnir og DV kalla atvinnutækifæri. Sé það for- senda þess að fá ríkisfangelsi á hlaðið hjá sér, að útvega nógu marga afbrotamenn til að fylla það, þýðir ekkert fyrir minni byggðarlög að keppa við Reykjavík um þá auðlind sem ríkisfangelsi greinilega er. Ef einhver velkist í vafa um hvort glæpir borga sig eða ekki þá ætti togstreitan um ríkis- tugthús að færa manni heim sanninn um að glæpir marg- borga sig og skapa fram- kvæmdir og atvinnu. Og af því að Reykjavík leggur til sjálfa auðlindina sem rekst- ur fangelsa byggist á fær borgin að njóta þess að nýta hana hvað sem allri byggðastefnu líður, að því er tugthússtjóri ríkisins heldur fram. OÓ

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.