Tíminn - 31.07.1992, Side 4

Tíminn - 31.07.1992, Side 4
4 Tíminn Föstudagur 31. júlí 1992 Tíminn MÁLSVARI FRJÁLSLYNPIS, SAMVINNU OG FÉLAGSHYGGJU Útgefandi: Timinn hf. Framkvæmdastjóri: Hrólfur Ölvisson Ritstjóri: Jón Kristjánsson ábm. Aðstoðanitstjóri: Oddur Ólafsson Fréttastjórar: Birgir Guðmundsson Stefán Ásgrímsson Auglýsingastjóri: Steingrimur Gislason Skrifstofur: Lynghálsi 9, 110 Reykjavlk Sfml: 686300. Auglýslngasfml: 680001. Kvöldsímar: Áskrift og dreifing 686300, ritstjóm, fréttastjórar 686306, Iþróttir 686332, tæknideild 686387. Setning og umbrot: Tæknideild Tlmans. Prentun: Oddi hf. I Mánaðaráskrift kr. 1200,- , verð I lausasölu kr. 110,- Grunnverð auglýsinga kr. 725,- pr. dálksentimetri Póstfax: 68-76-91 r Oskaplega hlægilegt Þetta Hagræðingarsjóðsmál er óskaplega hlægilegt. Það sjá allir menn að þær 500 milljónir, sem þar eru, skipta ekki sköp- um til eða frá. Þessi orð hefur Morgunblaðið eftir Davíð Odds- syni forsætisráðherra; þau sýna að hann er eini maðurinn á landinu, sem hefur svo sérstæða kímnigáfu að telja það sprenghlægilegt, að nokkur byggðarlög og jafnvel landshlutar stefna í efnahagslega upplausn ef hans ráðum verður fylgt eft- ir. Flatur niðurskurður á veiðiheimildum er ávísun á mikinn tekjumissi og fjöldaatvinnuleysi þeirra mörgu útgerðarstaða, sem byggja hvað mest á þorskveiðum. Með skynsamlegri stefnumörkun gefur auga leið að Hagræðingarsjóður getur bætt þarna mjög um með því að auka einfaldlega aflakvóta þeirra byggðarlaga, sem verst verða úti. í stað þess að fara að ráðum velviljaðra manna, setur hlát- ursrokur að forsætisráðherra, sem af alkunnri kímnigáfu segir að það séu óábyrgir menn sem halda því fram að byggðir fyrir vestan, norðan og austan séu á vetur setjandi, og benda á leið- ir til að bæta þeirra hlut sem verst horfir hjá. Mikill ágreiningur er upp kominn meðal þingliðs Sjálf- stæðisflokks og Alþýðuflokks um kvótaskiptingu og bjargráð, en einu viðbrögðin, sem forsætisráðherra kann, er að hóta. Hótanir um afsögn og þingrof eru hans friðþæging. Vilji mikils meirihluta sjávarútvegsnefndar er að engu hafður, og þótt Sighvatur hóti úrsögn úr ríkisstjóminni, er ekkert á hann hlustað, hvað þá þótt Matthías Bjarnason, fyrr- verandi sjávarútvegsráðherra, vilji nýja stjóm og nýja stjómar- stefnu. Matthías, sem tekur hagsmuni Vestfirðinga fram yfir vald- beitingaráráttu Davíðs Oddssonar, hefur þegar sagt sig úr mið- stjórn Sjálfstæðisflokksins og frábiður sér að starfa í nefndum flokksins, sem fjalla um sjávarútvegsmál. Ekki er langt í að upp úr sjóði hjá mörgum öðmm flokksmönnum, sem ofbýður það fullkomna skeytingarleysi sem flokksformaðurinn sýnir undir- stöðuatvinnuvegi þjóðarinnar og þeim byggðum, sem við hann starfa. En húmoristinn í stjórnarráðinu stígur á stokk og strengir þess heit, að fái hann ekki einn að ráða öllu, verði þing rofið og efnt til kosninga. Það væri reyndar ekki það vitlausasta, sem hann gæti gert, og ófáir em þeir, sem heils hugar geta tekið undir með Matthíasi Bjarnasyni, að þessi stjórn er ekki ómiss- andi. Ef stjórnarliðar verða meðflutningsmenn að frumvarpi um eðlilega nýtingu Hagræðingarsjóðs, ætlar Davíð að segja af sér. Ef einhver þeirra greiðir atkvæði með slíku frumvarpi, ætlar hann að segja af sér. Ef einhver ætlar að koma í veg fyrir að bjargræðisvegir fólksins í útgerðarbæjunum verði rústaðir, ætlar hann að segja af sér. Það liggur því í augum uppi að hlát- urmildi forsætisáðherrann ætlar að segja af sér, en sennilega ekki fyrr en honum tekst líka að rústa sinn eigin flokk, og má vel fallast á þá skoðun að farið hefur fé betra. En það em fleiri óveðursský, sem hrannast upp yfir Stjórn- arráðinu en niðurbrot atvinnuvega og miður hlægilegar hót- anirum þingrof og kosningar. Öll hagræðing og spamaður eru mnnin út í sandinn, fjár- lög yfirstandandi árs em ekki marktæk og stjórnarherrarnir sjá enga leið út úr þeim vanda hvemig koma á saman fjárlög- um fyrir næsta ár. Þeir eru ekki aðeins í pólitískri kreppu, held- ur magna þeir upp efnahagskreppu með röngum aðgerðum eða aðgerðaleysi, og sjá enga leið út úr ógöngunum. Því má vera að forsætisráðherra sé ekki hlátur í hug, þeg- ar hann leitar að tylliástæðu til að gefast upp. Og hvað er hand- hægara en að hóta þingrofi út af Hagræðingarsjóði, sem hann segir sjálfur að skipti bókstaflega engu máli og sé þar að auki sprenghlægilegur. Klámvísur í anda versl- unarmannahelgarinnar Nú er verslunarmannahelgin framundan. Fyrsti mánudagur- inn í ágúst hefúr löngum gengið undir nafninu „frídagur verslun- armanna". Mér hefur í gegnum tíðina fúndist þessi naftigift svo- lítið skondin. Sjálfur var ég verslunarmaður um tveggja ára- tuga skeið. Ég minnist þessarar helgar frá þeim árum sem þeirra daga sem mest var að gera hjá verslunarmönnum, og erfiðast var að láta hlutina ganga upp. Sannleikurinn er sá að versl- unarmenn eru sú stétt sem mest hefur að gera um þessa helgi, sem og aðrar helgar. Eðli máls- ins samkvæmt er mest að gera og erfiðast að láta hlutina ganga upp í verslunum í kringum frí- daga og stórhátíðir, og er frídag- ur verslunarmanna þar ekki undanskilinn. Langur opnunartími - aukinn kostnaður Neysluþjóðfélagið hefur uppi ákaflega stífar kröfur um það að verslanir séu opnar lengur og lengur. Þeirri kröfu hefur verið mætt þannig að nú eru verslanir opnar um helgar og sumar fram á kvöld. Þetta hlýtur að auka kostnaðinn við verslunina og þar með hækka vöruverð, en al- menningur virðist ekki velta þeirri hlið málsins mikið fyrir sér. Hvað sem því líður gerir þessi þróun það að verkum að verslunarmenn eiga fáa frídaga, hvorki um þessa helgi eða endranær. Þeir, sem sjá um verslun og þjónustu við þjóð- vegina hér, hafa aldrei meira að gera heldur en um þessa helgi. Útisamkomumar Það þykir enginn maður með mönnum um verslunarmanna- helgina nema vera góðglaður, eða rúmlega það, úti í náttúr- unni. Ýmis félagasamtök taka sér það fyrir hendur í fjáröflun- arskyni að hafa ofan af fýrir fólki, og það þykir illskárra að skipu- lagðar útisamkomur séu heldur en að fólk safnist saman án þess að nokkurt skipulag sé þar á, eða nokkuð sé við að vera. Mikill við- búnaður er hjá hljómsveitum að gera út á helgina, þetta er þeirra vertíð. Klámkjaftar í „Þjóð- arsálinni“ Stundum hlusta ég á „Þjóðar- sálina“, og það vildi svo til að ég gerði það í byrjun vikunnar. Þar hringdi kona og kvartaði undan klæmnum texta, sem Bubbi Morthens hefði látið frá sér fara og væri spilaður á útvarpsstöðv- unum. Hinn kurteisi umsjónar- maður Sigurður G. Tómasson tók undir mál konunnar og þótti textinn ekki merkilegur, og margt hefði Bubbi gert betur, enda hefði ríkisútvarpið ekki notað þessa tónlist. Slitu þau síðan talinu. Það merkilega í þessu máli fannst mér að nú tóku að hringja inn ýmsir gaurar, til vamar kláminu. Þótti þeim þessi texti passa mjög vel við anda verslunarmannahelgarinnar. Klámvísur eru ekki ný bóla Nú er klámfenginn kveðskap- ur ekki nýtt fyrirbrigði. Hér áð- ur var þessi kveðskapur kallaður klámvísur og var misjafnlega svæsinn og misjafnlega ógeðs- legur. Ég hef heyrt dálítið af slík- um kveðskap og kunni eitthvað af honum hér á árum áður. Hitt hefur mér aldrei flogið í hug að slíkur kveðskapur ætti sérstak- lega við á einhverri sumarhelgi, eða ætti sérstaklega við anda verslunarmannahelgarinnar. Því síður datt manni í hug að klámvísur væru þess eðlis að nauðsynlegt væri að gefa þær út á plötu. Þó var margt af þessu lipurlega kveðið á góðri íslensku, og hægt hefði verið að syngja margt af þessu. Það breytir því ekki að þetta var lágkúrulegt rugl, enda var ekki farið með það nema í hálfum hljóðum. Abyrgð popparanna Ég hrökk því dálítið við þegar ég heyrði þessar hringingar í „Þjóðarsálinni", og fór að hugsa um hvort engin takmörk væru orðin fyrir því sem væri látið flakka opinberlega. Ábyrgð vin- sælla popptónlistarmanna er vissulega mikil. Þeir höfða til fólks á viðkvæmu mótunar- skeiði og verða ósjálfrátt fyrir- mynd þess, og verk þeirra, góð eða slæm, hafa áhrif. Þetta ættu þeir að hafa sterklega í huga. Hins vegar er ég ákaflega lé- legur í umvöndunum, og hef heldur ekki trú á að fyrirlestrar fullorðinna og boð og bönn hafi mikið að segja til þess að bæta hegðun og háttalag þeirra ungu. Það eru þeir, sem eru í sviðsljós- inu, sem hafa áhrif. Sú ábyrgð er þung, og vonandi rís allt það ágæta fólk, sem treður upp um verslunarmannahelgina, undir henni. J.K.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.