Tíminn - 31.07.1992, Síða 5

Tíminn - 31.07.1992, Síða 5
Föstudagur 31. júlí 1992 Tíminn 5 Breytinga- skeið karla? Taktu þá pillu! Fyrir nokkrum árum fór Robert Bane að líða af því sem hann gat bara lýst sem kariabreytingaskeiði. Robert er 51 árs giftur kaupsýslumaður og býr og vinnur í Hertfordshire í Englandi. Hann fór að verða sinnulaus, útkeyrður af streitu og ófær um að takast á við pressuna í atvinnulífinu. Kynhvötin hrapaði nið- ur úr öllu valdi, en það sem olli honum mestum áhyggjum var að honum var lífsins ómögulegt að láta sér rísa hold. Robert neyddist til að lifa án kynlífs í mörg ár. Nú er á boðstólum róttæk meðferð fyrir karla, sem þjást af þeim vandamálum sem fylgja því að verða miðaldra. Vitaskuld voru þessi vandræði, sem gjama fylgja miðjum aldri, honum mikið áfall vegna þess að hann ha/ði litið á sjálfan sig sem ímynd karl- mennsku og hafði verið atvinnuher- maður meiri part fullorðinsáranna. Hann fór að finna enn meira fyrir streitunni vegna þess að hann hafði glatað karlmennskunni, sem — eins og margir miðaldra menn skilja en fara dult með — lagði líf hans í rúst. Hann minnist þess að sér hafi að sumu leyti þótt sem lífi hans hafi verið lokið. Hann hugsaði ekki lengur til framtíð- arinnar, heldur lét hann hugann reika til fortíðarinnar og var farinn að undir- búa sig fyrir það sem hann ímyndaði sér að yrðu fremur leiðinleg og þreytu- leg efri ár. Munklífmu lokið Núna fer Robert á heilsuræktarstöð- ina þrisvar í viku, rekur eigið fyrirtæki og lifir eðlilegu og ákaflega ánægju- legu kynlífi. „Líf mitt hefur gjörbreysL Mér líður vel, ég get hlaupið hraðar en ég gat á fimmtugsaldrinum og kyn- hvötin hefur eflst um ailan helming. Og það sem meira og betra er, nú get ég iðkað kynlífið af mikilli ánægju. Ég þarf ekki að taka fram að ég lifi ekki lengur munklífi. Fólk trúir því ekki að ég sé kominn á sextugsaldur og ég lifi ekki lengur í fortíðinni. Ég nýt þess að vinna, mér þykir gott að fara á fætur á morgnana og ég hlakka til þess að lifa lífinu Iifandi og njóta þess næstu ára- tugina." Robert er í hópi íyrstu manna í Bret- landi sem gengst undir það sem sam- svarar hormónameðferð á konum við tíðahvörf (HRT), en það er róttæk og að mestu leyti óþekkt meðferð á tapi karlmennsku og öðrum vandamálum sem fylgja því að komast á miðjan ald- ur. Eftir að hafa gengist undir fjöldann allan af læknisrannsóknum fór hann að fá hormónameðferð, þar sem hon- um var gefinn viðbótarskammtur af testósterón. Áður en sex vikur voru liðnar hafði hann endurheimt karl- mennskuna og nú lifir Robert lífi sem flesta miðaldra menn dreymir um. Sá, sem ryður „karla HRT“ meðferð- inni braut í Bretlandi, er dr. Malcolm Carruthers, sem fyrir tveim árum tók höndum saman við dr. John Moran, einn fremsta lækninn í „HRT" meðferð á konum, í þeim tilgangi að setja á fót hormónaheilsugæslustöð við Harley Street. Jafnframt því að bjóða upp á testósterón meðferð fyrir karla er heilsugæslustöð þeirra félaga sú fyrsta sem býður upp á fullkomna fyrirbyggj- andi heilsugæslu fyrir karla, þ.á m. leit að krabbameini í blöðruhálskirtli, ráð- gjöf og kynsálfræðilega meðferð. Dr. Neil O’Donoghue, sérfræðingur í krabbameini í blöðruhálskirtli, hefur gengið til liðs við þá Carruthers og Moran sem ráðgjafi við heilsugæslu- stöðina og eykur það þjónustuna, en þeir álíta að lænastofan þeirra eigi eft- ir að verða fyrirmynd að öllum karla- heilsugæslustöðvum í framtíðinni. Og þær eiga áreiðanlega eftir að verða fleiri, vegna þess að, eins og Carrut- hers trúir, „nú getum við hægt á öldr- unarferlinu og lengt virkt og ánægju- legt líf‘. Bestu tíðindi fyrir karla í langan tíma Carruthers heldur því fram að „mið- aldra maðurinn" kunni fljótlega að finna lækningu á því sem er mjög al- geng kreppa karla á miðjum aldri en farið dult með — töpuð karlmennska. Hann heldur því fram að ekki sé hægt að lýsa árangrinum fram að þessu bet- ur en sem bestu tíðindi fyrir karla síð- an Ferrari- sportbfilinn var fundinn upp og fjarstýrt sjónvarp. Nýlega hringdi í hann áttræður sjúklingur til að þakka honum fyrir að hafa breytt lífi sínu. Núna á hann sextuga „kærustu", en gortaði af því að hann „gæti áreið- anlega ráðið við tvær konur“. Og það er ekki bara kynhvötin sem hann hefur endurheimt. Núna leikur hann tvo hringi af golfi á hverjum degi og fer um á mótorhjóli. Hann hafði líka stað- ið í þeirri meiningu að lífi hans væri lokið áður en hann fór í meðferðina. Hann álítur líka að það hafi verið aðal- ástæðan til þess að hjónabandi hans lauk að honum tókst ekki að láta sér rísa hold. Þrátt fyrir slíkar uppörvandi sögur er það samt sem áður ekki fyrr en nú, þegar Carruthers er að undirbúa út- gáfú á rannsóknum sínum í lækna- tímaritum, að „karla HRT' er að verða að hitamáli. Carruthers álítur að karlar geti orðið illa úti vegna „karlmennskutaps", vegna þess að þeir testósterón-horm- ónar, sem náttúran leggur til, nægja ekki til að ná til þeirra líkamshluta sem þeir gerðu áður, og samsvari það tíðahvörfum kvenna. Hann heldur því fram að þeir menn, sem líða vegna karlmennskutaps, geti fundið til sömu einkenna og konur við tíðahvörf: þunglyndis, hitakasta, skorts á orku og kynhvöt, svitakasta á nætumar og blóðrásartruflana. Hann heldur því fram að gefa beri gaum öðrum einkennum, s.s. stirð- leika og vöðvaverkjum, þar sem karl- mennskutapið geti jafnvel flýtt fyrir öldmn hjartans. Fleiri atriði, sem eiga sinn þátt, tengjast lifnaðarháttum. Þar má nefna hreyfingarleysi, streitu, áfengisneyslu, reykingar og offftu, sem allt getur dregið úr áhrifum testóste- rónsins. í bjór er reyndar að finna ös- trogenskyldan hormón, sem eykur á bjórvömbina og slappa bringu. „Bjór- bullumar í dag em slappir elskhugar framtíðarinnar," segir Carmthers brosandi. En hann fullyrðir að viðbótar- skammtur af testósterón geti bætt blóðrásina og átt sinn þátt í að hægja öldrunarferlið, gert mönnum kleift að halda áfram að viðhalda ungdómi, kyngetu og þrótti lengur. Testósterón, sem er framleiddur úr gerviefnum á rannsóknarstofum, er ýmist tekinn inn í daglegum skömmtum eða er komið fyrir í þjóhnappnum. Hormóna- meðferðin stendur um óákveðinn tíma. Læknar deila hart um horm- ónameðferðina „Ég hef gert athuganir á 400 sjúk- lingum," segir Carmthers, „og þegar niðurstöður mínar verða gefnar út innan skamms, mun ég sanna óve- fengjanlega að breytingarskeið karla er til og þá staðreynd að oft er hægt að lækna það.“ Og þar er að finna upphaf hinna glóð- heitu deilna. Margir læknar álíta að breytingarskeið karla sé bara þjóðsaga og það geti haft hættulegar hliðarverk- anir að gefa testósterón. Gordon Williams er ráðgefandi þvag- færasérfræðingur við Hammersmith- sjúkrahúsið í London, sem sérhæfir sig f að meðhöndla getuleysi karla. Hann álítur breytingarskeið karla hættulega skáldsögu. „Að gefa manni með eðlilegt magn af testósterón hormóninn er mjög grimmdarlegt. Það eykur kynhvötina en ekki kynget- una, svo að þörfin kemur aftur og það er ekkert hægt að gera til að uppfýlla hana. Það em engar sannanir fýrir hendi um að testósterón geti unnið bug á getuleysi. Aðalvandinn við að gefa testósterón til langframa er að það kann að örva vöxt æxlis í blöðmháls- kirtli." Meðan læknastéttin heldur áfram að deila um meintan ávinning af „karla HRT', standa miðaldra menn, sem em illa haldnir af miðaldrakreppu, í biðröð eftir að fá pilluna. Jonathan er 55 ára og býr ásamt konu sinni og tveim bömum í fjögurra svefnherbergja húsi rétt utan við London. Þar til fýrir þrem ámm hafði hann starfað við að spá í framtíðina í meira en 30 ár og lýsir sjálfum sér sem dæmigerðum BMW- akandi miðstétt- armanni, sem nálgaðist efri árin í upp- gjöf og kvíða. Þegar hann var orðinn fimmtugur var hann farinn að taka eftir verkjum og sársauka, sem fýlgir miðjum aldri, og hann varð sífellt þreyttari í vinnunni. En þegar honum var sagt upp störfum tveim ámm síðar, fór aldurinn virki- lega að segja til sín og allt í lífinu hægði ferðina. „Ég þjáðist greinilega af streitu og bæði ég og kona mín vomm óánægð með kyngetuna hjá mér. Ég naut lffsins ekki lengur. Ég átti það til að sofna í stofunni klukkan 7 á kvöld- in, hafði enga orku til eins eða neins og vandamálin hrönnuðust upp bæði í vinnunni og rúminu. Glansinn var horfinn af lífinu og ég vissi ekki mitt rjúkandi ráð.“ Karlar ekki eins meðvitaðir um miðaldrakreppuna og konur um tíðahvörf Að því er Carmthers segir, hefði ver- ið hægt að binda enda á eymd Jonat- hans þar og þá, hefði ekki verið fýrir hendi það sem hann lítur á sem ójafn- ræði í meðvitundinni um heilsufar og meðferð. „Konur em í nánu sambandi við kvensjúkdómalækninn sinn og vegna þess að þær verða sér æ meðvitaðri um brjóstakrabbamein, tíðahvörf og leg- krabba hafa þær með réttu neytt læknastéttina til að veita þeim at- hygli." Jonathan ákvað ekki fýrr en f fýrra að gangast undir hormónameð- ferð, eftir að kona hans hafði notið hennar. Núna segir hann að sér líði al- veg prýðilega, hann hafi lést um 15 kfló og öðlast algerlega nýja lífssýn. Enginn hefur rannsakað hugtakið karlabreytingarskeið áður, vegna þess að testósterónmagnið heldur áfram að vera nokkurn veginn stöðugt í körlum langt fram á áttræðisaldur, öfugt við hormónamagn kvenna eftir tfðahvörf. „En það, sem læknar hafa litið fram hjá," segir Carmthers, „er sú stað- reynd að testósterón hormóninn er ekki lengur eins áhrifamikill. Magnið er áfram eðlilegt, þannig að vélamar ganga enn, en bremsurnar em komnar á.“ Gordon Williams heldur því fram að hugsanagangurinn, sem leiði til slfkr- ar niðurstöðu, „sé sú tegund villu sem gæti leitt til þess að læknanemi félli á prófinu". En það, sem enn meiri ágreiningi veldur, er að Carmthers álítur að ófrjósemisaðgerð á körlum eigi líka sinn þátt í karlmennskutap- inu. „Meðaltal þeirra bresku karla, sem þjást af karlmennskuleysi, er 5- 10%, en samt sem áður hafa 22% sjúklinga minna gengist undir ófrjósemisað- gerð. Slík aðgerð er enn skilgreind sem ekki bráðaðkallandi og ráðgjöfin er ófullnægjandi. Rannsóknir mínar sýna að hættur em fýrir hendi." Anthony Hirsh, skurðlæknir við Harl- ey Street sem sérhæfir sig í ófrjósemi karla og hefur gert mörg hundmð ófrjósemisaðgerðir, er annars álits. Hann segir að alþjóðaheilbrigðisstofn- unin hafi gert úttekt á ófrjósemisað- gerðum á körlum fýrir ári og metið þær hættulausar. Má ekki líkja saman við misnotkun á sterum Það er augljóst á deilum læknanna um þessi atriði að þær eru rétt að byrja. Nú er sviðið tilbúið fýrir umræð- ur í sama stfl og um kvenna HRT, þar sem þekkt fólk skipar sér í fylkingar. Það er t.d. alkunna að Teresa Gorman er eindregið fýlgjandi HRT, en Germa- ine Greer aftur á móti hávær andstæð- ingur. En sama hversu hörð gagnrýnin er, lætur Carmthers ekki af sinni skoðun og hann ögrar nú gamalgrónum rétt- trúnaði. Hann trúir því að komið sé óorði á aðferðir sínar vegna misnotk- unar t.d. vaxtarræktarfólks á stemm (gerviefnahormón), en bendir á að hormónamagnið, sem hann notar, sé einungis smáræði í þeim samanburði. Hvort niðurstöður rannsókna hans, sem em í þann veginn að koma út, verða þess megnugar að sefa ótta margra lækna á eftir að koma í ljós, en Carmthers hefur þá trú að ávinningur- inn af hormónagjöf sé margfalt meira virði en áhættan, og mörg þúsund miðaldra manna em trúlega sama sinnis og hann. „Lífinu má líkja við að svífa um á svif- flugu. Okkur er þeytt á hátind hug- lægra og líkamlegra hæfileika á tán- ingsaldrinum af sterkri hormóna- blöndu. Upp frá því svífúm við niður þar til við lendum einhvem tíma. Við getum brotlent beint á nefið um fimm- tugt, eða svifið örugglega áfram allt fram undir áttrætt eða jafhvel lengur með hjálp hormóna. Nú getur síðari hluti ævinnar verið eins gefandi og sá fýrri," segir hann.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.