Tíminn - 31.07.1992, Blaðsíða 7
Föstudagur 31. júlí 1992
Tíminn 7
Ólympíuleikamir, körfuknattleikur:
Charles Barkley
í sviðsljósinu
Það kom fram í máli fulltrúa Alþjóða
ólympíunefndarinnar í gær að nefndin
myndi láta rannsaka það hvort þær
sögusagnir um að óþekki strákurinn í
körfuboltanum, Charles Barkley, sé
einnig að vinna sem blaðamaður á
leikununum, en hann mun hafa ritað
dálk í USA Today á meðan á leikunum
hefur staðið.
Hanfi er ekki sá eini sem er undir
smásjá nefndarinnar, því sexfaldur
gullverðlaunahafi í frjálsum íþróttum,
Carl Lewis, og Dano Halsall, sviss-
neskur sundmaður, hafa verið aðvar-
aðir, þar sem á opnunarhátíð leikanna
voru þeir með farsíma og lýstu tilfinn-
ingum sínum, sem voru síðan ritaðar
á síður dagblaða. Þetta brýtur í bága
við reglur, sem segja að keppendur á
Ólympíuleikunum megi ekki samtím-
is starfa sem blaðamenn á þeim.
Charles Barkley hefur verið í sviðs-
ljósinu í Barcelona, ekki bara fyrir það
sem á undan hefur verið rakið, heldur
miklu fremur fyrir framkomu sína
innan vallar og utan. Hann hefur gefið
miklar og feitar yfirlýsingar við frétta-
menn og eftir að hafe gefið leikmanni
Angóla olnbogaskot í fyrsta leik
„draumaliðsins" á Ólympíuleikunum,
heimtaði bandaríska pressan að hann
yrði sendur heim, ef hann gæti ekki
hagað sér eins og maður á vellinum og
utan hans.
Þórunn Ragnarsdóttir, útibús-
stjóri Landsbankans á Seltjarn-
amesi.
Landsbankinn
á Seltjamarnesi:
Nýr útibússtjóri
Þórunn Ragnarsdóttir hefur verið
ráðin nýr útibússtjóri útibús Lands-
bankans á Seltjarnamesi, en hún var
áður þjónustustjóri í Bankastrætis-
útibúi.
Þórunn hóf störf í Samvinnubanka
íslands hf., aðalbanka, í september
1963 og starfaði síðan í Háaleitisúti-
búi og var forstöðumaður lánadeild-
ar í Bankastræti. Þómnn er 47 ára.
Eiginmaður hennar er Snorri Egils-
son.
Ólympíuleikar, körfuknattleikur:
Magic með gegn Brasilíu?
Earwin „Magic" Johnson, aðalstjam-
an í „draumaliðinu" bandaríska, lék
ekki með liðinu í leik þess gegn Þjóð-
verjum í gær, vegna meiðsla þeirra
sem hann varð fyrir á hné í leik Banda-
ríkjanna gegn Króötum á sunnudag.
Hann tognaði illa í hnénu, en unnið er
að því að koma kappanum í gagnið.
Læknar bandaríska liðsins segja hins
vegar nú að ekkert alvarlegt hafi kom-
ið í ljós og að stjömunni sé ekkert að
vanbúnaði að leika á föstudag gegn
Brasilíu. Fagnaðarefni fyrir körfú-
knattleiksunnendur.
Stórsigur Svía á Suður-Kóreu
Heimsmeistarar Svía unnu í gær
stórsigur á silfurliðinu frá Ólympíu-
leikunum í Seúl, Suður-Kóreu, með
tíu marka mun, 28-18. Yfirburðir
Svía vom algjörir allan tímann; til
marks um það höfðu Kóreumenn
einungis gert sex mörk í hálfleik,
gegn fimmtán mörkum Svía.
Samveldisríkin unnu nauman sig-
ur á Frökkum í hörkuleik í gær, 23-
22, eftir að staðan hafði verið 14-12
Samveldinu í vil í hálfleik. Þetta
kemur töluvert á óvart, þar sem
Samveldinu var fyrir leikinn spáð
auðveldum sigri, en þess ber þó að
geta að Frakkar hafa verið í mikilli
sókn, eins og við íslendingar höfum
fengið að kenna á.
Auglýsing
um að álagningu opinberra gjalda á árinu
1992sélokið.
í samræmi við ákvæði 1. mgr. 98. gr. laga nr. 75/1981 um tekjuskatt
og eignarskatt og 12. gr. laga nr. 113/1990, um tryggingagjald, er hér
með auglýst að álagningu opinberra gjalda á árinu 1992 er lokið á alla
aðila sem skattskyldir eru skv. framangreindum lögum, sbr. I. kafla
laga nr. 75/1981 og II. kafla laga nr. 113/1990.
Álagningarskrár verða lagðar fram í öllum skattumdæmum föstu-
daginn 31. júlí 1992 og liggja frammi á skrifstofu hvers skattumdæmis
og hjá umboðsmönnum skattstjóra í hverju sveitarfélagi dagana 31.
júlí-13. ágúst að báðum dögum meðtöldum.
Álagningarseðlar skattaðila, er sýna álögð opinber gjöld 1992, hús-
næðisbætur, vaxtabætur og barnabótaauka, hafa verið póstlagðir.
Kærur vegna allra álagðra opinberra gjalda, húsnæðisbóta, vaxta-
bóta og barnabótaauka, sem skattaðilum hefur verið tilkynnt um með
álagningarseðli 1992, þurfa að hafa borist skattstjóra eða umboðs-
manni hans eigi síðar en 29. ágúst 1992.
31. júlí 1992.
Skattstjórinn í Reykjavík. Gestur Steinþórsson.
Skattstjórinn í Vesturlandsumdæmi. Stefán Skjaldarson.
Skattstjórinn í Vestfjarðaumdæmi. Kristján Gunnar Valdimarsson.
Skattstjórinn í Norðurlandsumdæmi vestra. Bogi Sigurbjörnsson.
Skattstjórinn í Norðurlandsumdæmi eystra. Friðgeir Sigurðsson.
Skattstjórinn í Austurlandsumdæmi. Karl Lauritzson.
Skattstjórinn í Suðurlandsumdæmi. Hreinn Sveinsson.
Skattstjórinn í Vestmannaeyjum. Ingi T. Björnsson.
Skattstjórinn í Reykjanesumdæmi. Sigmundur Stefánsson.
ÞREFALDUR
1. VINNINGUR