Tíminn - 31.07.1992, Page 12
AUGLÝSINGASÍMAR: 680001 & 686300
Áskriftarsími
Tímans er
686300
AUÐVITAÐ
Suðurlandsbraut 12
Oðruvisi bílasala
BÍLAR • HJÓL •
BÁTAR • VARA-
HLUTIR.
MYND HJÁ OKKUR - BlLL HJÁ ÞÉR
SÍMI 679225
SSB 1 l C^abriel HÖGG- DEYFAR Versiíð hjá fagmönnum
i varahlutir
LM^HamarsbÖfóa 1 - s. 67-67-44 |
ÞREFALDUR 1. vinningur
Tíminn
FÖSTUDAGUR 31. JULl 1992
Kristín Ólafsdóttir, borgarfulltrúi Nýs vettvangs, leggur til mánaðarfrestun á uppboðsbeiðnum vegna
ógreiddra fasteignagjalda og kannski jafngott:
Uppboðsbeiðni hækkar yfir
1000% upp í 9.000 krónur
„Tillagan gekk út á það að Gjaldheimtan frestaði þessu skrefi
sínu í innheimtuaðgerðum um einn mánuð, til þess að fólk
hefði fremur ráðrúm til þess að átta sig á því að kostnaður
vegna uppboðsbeiðna hefur nýlega hækkað upp í 9.000 krónur,
sem er í kringum 18 föld hækkun frá því sem innheimt var að
meðaltali hjá þeim sem beðið var um uppboð hjá vegna skulda
fasteignagjalda á síðasta ári,“ sagði Kristín Ólafsdóttir aðspurð
um tillögu sem hún hefur lagt fram í Borgarráði Reykjavíkur.
Gjaldheimtan í Reykjavík til-
kynnti nýlega að það skref yrði stig-
ið í innheimtuaðgerðum vegna
vangoldinna fasteignagjalda, að
sýslumanni yrði send uppboðs-
beiðni þann 5. ágúst. Þótt þarna sé
um árvissan atburð að ræða er það
hins vegar glænýtt í þessu máli, að
ríkið tekur nú orðið 9.000 krónu
gjald á hverja beiðni um nauðung-
aruppboð. Þetta háa gjald bætist við
skuldina um leið og beiðnin um
nauðungaruppboð er send sýslu-
manni, þó svo að skuldin sé þá
greidd og án þess að nokkuð þurfi
frekar að gera í málinu.
Að sögn Kristínar hefur samsvar-
andi gjald til þessa verið ákveðið
hlutfall af skuldinni, að hún taldi í
kringum 500 krónur að meðaltali,
enda oft um aðeins fárra þúsunda
króna skuld að ræða í þessum til-
fellum.
Tillögu um frestun segir Kristín
fyrst og fremst hugsaða til þess að
fólki gefist fremur ráðrúm til þess
að átta sig á þessari gífurlegu hækk-
un sem orðið hefur á þessu gjaldi,
og í öðru lagi aukið ráðrúm til þess
að reyna að standa í skilum og
sleppa þannig við þennann nýja
skatt.
Um afgreiðslu Borgarráðs sagði
Kristín að embættismönnum borg-
arinnar, m.a. borgarhagfræðingi,
hafi verið falið að kanna þetta mál
og hvað hægt væri að gera til úr-
bóta. „Ég held að segja megi að það
hafi komið fram almennur vilji í
Borgarráði að bregðast við þessu.
Vegna þess að 5. ágúst nk. verður að
taka einhverja ákvörðun fyrir þann
tíma. Ég lít því svo á að það hafi
komið fram almennur vilji til að
bregðast við þessu. Embættis-
mönnunum var falið að tala við
gjaldheimtumenn. Afgreiðslan var
þó ekki það afdráttarlaus að hægt sé
að fullyrða að þessi frestur verði
veittur," sagði Kristín. - HEI
Strand skipsins Erik Boye fyrir
utan Breiðdalsvík:
10 olfu-
tonn enn
eftir í
skiplnu
Danska skipið Erik Boye er enn úti
fyrir Breiðdalsvík þar sem það steytti
á skeri á þriðjudagskvöldið var.
Komið hefur í ljós að ennþá eru 10
tonn af olíu eftir í skipinu sem og
900 tonna saltfarmur. Engin hætta
hefur verið á að olían læki í sjóinn
vegna staðsetningar hennar í skip-
inu.
Siglingamálastofnun hefur óskað
eftir því við Landhelgisgæsluna að
olíutankar skipsins verði tæmdir og
verður strax hafist handa þegar skrif-
leg beiðni berst.
Lárus Sigurðsson, sveitarstjóri á
Breiðdalsvík, vonast til þess að Land-
gæslan landi einnig saltinu og hefur
sent henni sérstaka beiðni þess efnis.
Að sögn forráðamanna Landhelgis-
gæslunnar verður það tekið til at-
hugunar. —GKG.
Brotist inn í Humarvinnsluna í Þorlákshöfn:
60 kössum af
humri stolið
700 kg af humri var stolið í fyrrinótt
frá Humarvinnslunni hf. í Þorláks-
höfn.
Ránið mun hafa verið framið milli
24:00 og 3:30 og brutu þjófarnir upp
hurð á bakhlið hússins til að komast
inn.
Þýfið er 1 milljónar kr. virði og er
ljóst að sendiferðabíl hefur þurft til
að flytja humarinn á brott þar eð
hann var í 60 kössum.
Álíka magni af humri var rænt frá
Árnesi á Stokkseyri fyrir skömmu og
er grunað að tengsl séu þarna á milli.
Svo virðist sem auðvelt sé að koma
humri í verð núna og eru getur jafn-
vel leiddar að því að búið hafi verið að
selja humarinn fyrirfram. —GKG.
Sóknarnefnd Keflavíkursóknar endurkjörin:
Vantrpusti lýst
á sr. Olaf Odd?
Sóknamefnd Keflavíkursóknar var
endurkjörin á miðvikudagskvöldið
var á aukasafnaðarfundi, en nefndin
hafði sagt af sér í vor.
Að sögn Sævars Reynissonar, gjald-
kera sóknarinnar, var ástæða upp-
sagnarinnar samstarfserfiðleikar við
sóknarprestinn, séra Ólaf Odd Jóns-
son, sem þjónað hefur staðnum í 17
ár.
„Maður úr salnum stakk upp á
gömlu sóknarnefndinni og svo var
hún kosin með meirihluta atkvæða.
Þar með er það eindregin stuðnings-
yfirlýsing við gömlu sóknarnefndina
og væntanlega vantraustsyfirlýsing á
sóknarprestinn," segir Sævar.
Biskup og prófastur hafa boðað
sóknarnefndina til fundar í næstu
viku og er þess beðið með óþreyju
hvað þeir hafa að segja um málið.
„Við vonum bara að biskup skilji að
fólkið vill ekki þennan prest. Við get-
um ekki unnið með honum,“ segir
Sævar. „Þetta er margra ára vanda-
mál, það hefur bara enginn gert
neitt í þessu fyrr en núna.“
Séra Ólafur vildi ekki tjá sig um
málið.
—GKG.
Útvarp
Umferð-
arráð
Sigurður Helgason, upplýsingafull-
trúi Umferðarráðs, prófar hér still-
ingasleðana í hinni nýju útvarpsstöð
Umferðarráðs. Stöðin mun veita
fréttir af vegamálum og umferð um
verslunarmannahelgina og verður
hún í beinu sambandi við Aðalstöð-
ina, RÚV og Bylgjuna frá og með
deginum í dag og til mánudags-
kvölds. —GKG.
Tfmamynd PJetur
Arbæjarsafn opið um helgina
Árbæjarsafnið veröur opið um verslunarmannahelgina, segir í fréttatilkynningu frá safninu.
Þar veröur mikið um að vera eins og endranær. Prentarinn og skósmiðurinn verða þar að störfum
gestum og gangandi til yndisauka.
Að venju verður seldur margvíslegur varningur í krambúðinni en í Dillonshúsi geta menn rennt kaff-
inu niöur undir harmonikkuleik Karls Jónatanssonar.
Á sunnudag verður messa í kirkju safnsins og hefst hún klukkan 14.00. Prestur er séra Þór Hauks-
son. Þeim sem leggja leið sína í Árbæjarsafnið gefst kostur á leiðsögn alla daga nema mánudaga og
sunnudaga. Leiðsögnin tekur um 40 mínútur og er innifalin í aðgangseyri. —Krás.
Bruggtól tekin
Þrír menn í Hveragerði voru hand-
teknir í fyrrakvöld eftir að hafa orðið
uppvísir um brugg og sölu á landa.
21 lítri fannst við húsleit og var
áfengið gert upptækt. Mennirnir
hafá viðurkennt að hafa selt um 40
lítra til vina og kunningja. Landinn
var af 40% styrkleika.
Tveir mannanna munu hafa starfað
við bruggið en sá þriðji sá um söl-
una.
Við Strandgötu í Hafnarfirði fund-
ust einnig bruggtæki og fundust alls
400 lítrar af landa í brúsum.
Einn maður var handtekinn og hef-
ur hann neitað að hafa seit mjöðinn
heldur notið hans sjálfur.
—GKG.