Tíminn - 06.08.1992, Blaðsíða 8
8 Tlminn
Fimmtudagur 6. ágúst 1992
■ MINNING
Páll Líndal
ráduneytisstjóri
Fæddur 9. desember 1924
Dáinn 25. júlí 1992
JMinn, horfinn — harmafregn.“
Þessi fleygu orð komu mér ósjálfr-
átt í hug við lát tengdaföður míns,
Páls Líndal.
Páll var fæddur síðla árs 1924 og
var því aðeins 67 ára að aldri þegar
hann varð bráðkvaddur og þannig
hrifinn allt of skjótt burt úr þessum
heimi. Eflaust munu margir aðrir
gera grein fyrir ætt hans og starfs-
ferli, en mig langar til þess að fara
nokkrum orðum um kynni mín af
honum og hvern mann hann hafði
að geyma.
Fundum okkar Páls bar fyrst sam-
an á því herrans ári 1968 og hefur
hann eflaust, þótt frjálslyndur væri,
litið hornauga þennan síðhærða
piltung sem farinn var að gera hos-
ur sínar grænar fyrir dóttur hans,
en mjög kært var jafnan með þeim
feðginum. Kynni okkar áttu eftir að
þróast og breytast í einlæga vináttu
og fannst mér að vináttuböndin
styrktust með ári hverju.
Páll er án efa fjölfróðasti maður
sem ég hef kynnst. Það var nánast
sama hvar borið var niður, hvergi
kom maður að tómum kofanum:
Saga, listir, stjórnmál í víðustu
merkingu þess orðs, náttúruvísindi
og þannig mætti áfram telja. Ef til
vill var þó mannlífið sjálft, sem ekki
verður dregið í dilk neinnar fræði-
greinar, tengdaföður mínum hvað
hugleiknast og ógleymanlegar eru
frásagnir hans af mönnum af öllum
stéttum og gerðum, ekki síst þeim
sem settu svip á bæinn á fyrri tíð, en
þar naut sín best óvenju rík frásagn-
argáfa hans og annáluð kímnigáfa.
Að sjálfsögðu barst tal okkar einatt
að lögfræðinni, einkum þeirri grein
hennar sem fjallar um stjórnvöld og
skipti þeirra við borgarana. Hér sem
oft endranær var tengdafaðir minn
snillingur í því að snúa hlutverkum
við, gera mig að læriföður meðan
hann, að hætti Sókratesar, brá sér í
hlutverk hins námfúsa nemanda
meðan hann í raun miðlaði mér af
sinni miklu þekkingu og reynslu á
þessu sviði.
Áhugi Páls á listum og menningu
leyndi sér ekki. Hann unni tónlist
og lék sjálfur á píanó. Myndlistar-
smekk hans var við brugðið enda
hef ég það fyrir satt að hann hafi á
sínum tíma annast kaup á listaverk-
um fyrir Reykjavíkurborg, þar á
meðal fest kaup á mörgum þeim
höggmyndum sem nú prýða borg-
ina. Ég hygg þó að bókmenntirnar
hafi skipað öndvegi í huga hans,
enda voru bækurnar aldrei langt
undan þegar maður sótti hann
heim og oft voru þær fleiri en ein
bækurnar sem lágu opnar við hlið
hans, stundum sín úr hverri áttinni.
Ritstörf voru Páli hugleikin. Þegar
litið er á þau rit og þær greinar, sem
eftir hann liggja, eru afköstin ótrú-
leg þegar það er haft í huga að
lengstum gegndi hann vandasöm-
um ábyrgðarstörfum, fyrst hjá
Reykjavíkurborg og síðar í Stjórn-
arráðinu. Það eru einkum bækur
hans um Reykjavík sem halda
munu minningu hans á lofti um
ókomin ár. Þegar þær bækur eru
Iesnar er með ólíkindum hve mikil
vinna hefur búið þar að baki þótt
tengdaföður mínum hafi líklega
veist sú vinna auðveldari en öðrum,
ekki síst vegna þess hve ótrúlega
minnugur hann var á menn og mál-
efni.
Ég gæti lengi haldið áfram að lýsa
mannkostum Páls en líklega væri
farin að síga á honum brúnin eftir
það sem á undan er komið. Ef ég
ætti að lýsa lífsviðhorfum hans í
sem stystu máli þá var eins og það
byggju í honum tveir menn sem ef-
laust áttu í nokkurri baráttu hvor
við annan: Öðrum þræði var hann
varkár og vandaður embættismað-
ur, en jafnframt einlægur umbóta-
sinni sem hikaði ekki við að feta ót-
roðnar slóðir þegar svo bar undir.
Fráfall hans nú kom okkur öllum í
opna skjöldu. Aðeins hálfum mán-
uði áður höfðum við í nánustu fjöl-
skyldur.ni brugðið okkur út í Viðey
og snætt þar kvöldverð í tilefni af
fertugsafmæli Jóns Úlfars, mágs
míns. Er mér það í fersku minni hve
tengdafaðir minn var innilega glað-
ur í þetta skipti og stendur hann
mér ljóslifandi fyrir hugskotssjón-
um er við sigldum til Iands og
horfðum á kvöldsólina baða sig í
sjónum meðan við hlýddum á hann
rifja upp hverja söguna af annarri
úr Viðey.
Upphafsorðin hér að framan eru
tekin úr eftirmælum Jónasar Hall-
grímssonar um langalangafa
tengdaföður míns, séra Tómas Sæ-
mundsson. Upphaf þessa erfiljóðs á
ekki síður við nú, einni og hálfri öld
síðar:
„Dáinn, horfinn — harmafregn!
hvílíkt orð mig dynur yfir!
En ég veit að látinn lifír;
það er huggun harmi gegn. “
Eiríkur Tómasson
Nú er elsku afi minn og nafni, Páll
Líndal, látinn. Mig langar til að
minnast hans í nokkrum oröum um
leið og ég þakka honum fyrir allar
ánægjustundirnar sem hann veitti
mér í lifanda lífi.
Trúarbrögðin og vísindin hafa lengi
deilt um það hvort maðurinn sé
skapaður til þess lífs sem hann hefur
eða hvort margra milljón ára þróun
standi að baki
hans hér á jörðu.
Fáir hafa ratað
hinn gullna
meðalveg að
telja að hann sé
hvoru tveggja,
skapaður og þró-
aður, þannig að
hann sé skapaður til þess að þróast
og síðan að sjálfsögðu þróaður til
sköpunar.
Búsmali og veiðimennska manns-
ins benda ótvírætt til yfirburða hans
í lífríki jarðar og er því leitt til þess
Það fyrsta sem mér dettur í hug að
nefna um hann afa er það hvað
hann var mikill bókaunnandi. Ég er
næstum viss um að hann var með
víðlesnustu mönnum á íslandi og
þó víðar væri leitað! Mér fannst sem
hann hefði lesið allt milli himins og
jarðar, það var sama um hvað var
rætt, alltaf gat hann vitnað í ein-
hverja bók máli sínu til stuðnings
og stundum þulið upp heilu blað-
síðurnar. Þar að auki hafði hann
skemmtilega frásagnargáfu, eins og
reyndar þær ófáu bækur og greinar
sem hann skrifaði bera vitni um. í
hvert skipti sem hann sagði mér
sögu var hún yfirleitt blönduð
leiftrandi kímni sem var afa svo eig-
inleg.
Auk hans mikla áhuga á bókum var
hann mikill „göngugarpur" og fór
allar sínar ferðir fótgangandi ef
hann mögulega gat, enda þekkti
hann borgina sína, Reykjavík, hús-
in, göturnar, söguna alla, eins vel
og lófann á sér. Það væri svo ótal
margt annað sem ég gæti sagt um
hann afa minn en læt hér staðar
numið. Ég sakna þess að fá ekki að
njóta hans lengur og það er stórt
skarð höggvið í fjölskylduna við frá-
fall hans. Þess verður langt að bíða
að við getum sætt okkur við að
hann skuli vera farinn frá okkur og
það svona fljótt. Hvíli hann í friði
um eilífð alla.
Palli
Páll Líndal, ráðuneytisstjóri í um-
hverfisráðuneytinu, andaðist 26.
júlí. Hann fæddist í Reykjavík 9.
desember 1924, sonur Þórhildar
Pálsdóttur Briem amtmanns og
að vita að hann skuli nú í aldanna
rás, með siðmenningu að markmiði,
berast á banaspjótum, þar sem bróð-
ir vegur bróður.
Þessi heift og
drápshvöt verð-
ur því að víkja
fyrir betri
heimi, þar sem
menn lúta kær-
leikanum og
umfram allt
kristindómnum
og sem við, sem búum á ísalandi
elds og hvera, þekkjum vel á okkur
sjálfum. Maðurinn er þannig, svo
engum vafa sé undirorpið, þróaður
til sköpunar og annað ekki.
Sergi B.S.
Theodórs Lfndal prófessors Björns-
sonar alþingismanns.
Páll Líndal var gáfaður maður, svo
sem hann átti kyn til, og allra
manna fróðastur um sögu Iands og
þjóðar, ekki síst um allt sem varðaði
Reykjavík, bæði menn og málefni.
Hann stundaði nám í Menntaskól-
anum í Reykjavík og lauk þaðan
stúdentsprófi 1943 og sex árum síð-
ar lögfræðiprófi frá Háskóla íslands.
Á námsárum sínum vann Páll í ýms-
um deildum stjórnarráðsins: við-
skiptaráðuneyti, dómsmálaráðu-
neyti og fjármálaráðuneyti. Fund-
um okkar bar fyrst saman þegar
hann var í sumarvinnu í stjórnar-
ráðinu. Sfðar áttum við margháttuð
samskipti og öll ánægjuleg. Páll var
fágætlega skemmtilegur maður,
hvort sem maður hitti hann á
gönguferð í Heiðmörk, innan um
skjalahauga á skrifstofu, á safni að
leita í mygluðum skjölum eða í
veislufagnaði.
Árið 1965 tókum við Henrik
Björnsson ráðuneytisstjóri og Páll
Líndal saman Ríkishandbók íslands.
Páll sá þar um langan og ítarlegan
kafla um Reykjavíkurborg og stofn-
anir hennar og kannaði ýmsar
óprentaðar heimildir í því sam-
bandi. Komu þar fram margvíslegar
upplýsingar sem a.m.k. þá voru ekki
aðgengilegar almenningi. Páll var
afkastamikill við vinnu og ritfær í
besta lagi svo sem bækur hans og
greinar vitna um. Hann var einnig
snjall ræðumaður, hvort sem var að
ræða alvöru- eða gamanmál.
Annað samstarfsverkefni okkar
Páls var þegar við áttum báðir sæti í
nefnd, sem skipuð var til þess að
vinna að frumvarpi til laga um
grunnskóla og frumvarpi til laga
um skólakerfi, ásamt þeim Andra
ísakssyni, Ingólfi Þorkelssyni og
Kristjáni Ingólfssyni. Nefndarstörf
eru áreiðanlega ekki það skemmti-
efni sem menn vilja helst kjósa sér,
enda sagði ég mig úr einni nefnd
eingöngu vegna þess hve hún var
leiðinleg. Öðru máli gegndi um
grunnskólanefndina. Hún var ákaf-
lega skemmtileg, ekki eingöngu
vegna verkefnisins, heldur engu
síður vegna þeirra samstarfsfúsu og
lífsglöðu manna sem þar áttu sæti.
Og þar átti Páll Líndal mikinn og
góðan hlut að máli, bæði um vinnu-
framlag og ánægjulegan samstarfs-
anda.
Páll kom víða við á starfsferli sín-
um. Hann var um langt skeið í
störfum hjá Reykjavíkurborg, sem
fulltrúi á skrifstofu borgarstjóra,
skrifstofustjóri og síðar borgarlög-
maður, ritari borgarráðs og borgar-
stjórnar, formaður byggingar-
nefndar, skipulagsnefndar, al-
mannavarna Reykjavíkur, félags-
málaráðs borgarinnar og
framkvæmdastjórnar fyrstu Lista-
hátíðar í Reykjavfk, svo að nokkuð
sé nefnt af hinum fjölmörgu störf-
um sem á hann hlóðust í þágu
borgarinnar. Þá var Páll um skeið
varaformaður og síðar formaður
Sambands íslenskra sveitarfélaga
og fulltrúi íslands í fastanefnd
sveitarstjórnarþings Evrópu í
Strassbourg. Hann átti þátt í samn-
ingu fjölda lagafrumvarpa og reglu-
gerða og sat í ýmsum stjórnskipuð-
um nefndum. Stuttan tíma var
hann settur sendifulltrúi í sendi-
ráði íslands í Stokkhólmi árið
1953.
Þrátt fyrir embættisannir tókst
Páli að rita bækur og efnismiklar
greinar í blöð og tímarit og sinna
félagsmálum. Af bókum hans má
nefna hið mikla ritverk í þremur
bindum „Reykjavík, sögustaður við
Sund“ sem kom út á árunum 1986-
1988.
Starfsferli sínum lauk Páll með
undirbúningsvinnu að stofnun um-
hverfisráðuneytisins og sem fyrsti
ráðuneytisstjóri þess.
Þeir sem kynntust Páli Líndal
sakna hans sem góðs drengs og
mikils hæfileikamanns. Sárastur er
þó auðvitað harmur nánustu vanda-
manna og sendum við hjónin þeim
innilegar samúðarkveðjur.
Birgir Thorlacius
Umboðsmenn Tímans:
Kaupstaður Nafn umboðsmanns Heimili Sími
Keflavík Guðríöur Waage Austurbraut 1 92-12883
Njarðvik Katrín Sigurðardóttir Hólagata 7 92-12169
Akranes Aöalheiður Malmqvist Dalbraut 55 93-11261
Borgarnes Inga Björk Halldórsdóttir Kveldúlfsgötu 26 93-71740
Stykkishólmur Erla Lámsdóttir Silfurgötu 25 93-81410
Grundarfjöröur Anna Aðalsteinsdóttir Grundargötu 15 93-86604
Hellissandur Lilja Guömundsdóttir Gufuskálum 93-66864
Búöardalur Siguriaug Jónsdóttir Gunnarsbraut 5 93-41222
Isafjörður Jens Markússon Hnifsdalsvegi 10 94-3541
Hólmavík Elisabet Pálsdóttir Borgarbraut 5 95-13132
Hvammstangl Hólmfriöur Guðmundsd. Fifusundi 12 95-12485
Blönduós Snomi Bjarnason Uröarbraut 20 95-24581
Skagaströnd Ólafur Bernódusson Bogabraut 27 95-22772
Sauðárkrókur Guðrún Kristófersdóttir Barmahlíð 13 95-35311
Siglufjöröur Sveinn Þorsteinsson Hliðarvegi 46 96-71688
Akureyri Halldór Ingi Ásgeirsson Sólvöllum 7 96-24275
Svalbaröseyri Þröstur Kolbeinsson Svalbarðseyri 96-25016
Húsavík Sævar Salómonsson Vallholtsvegi 11 96-41559
Ólafsfjörður Helga Jónsdóttir Hrannarbyggð 8 96-62308
Raufarhöfn Erla Guðmundsdóttir Aöalbraut 60 96-51258
Vopnafjöröur Svanborg Víglundsdóttir Kolbeinsgötu 44 97-31289
Egilsstaöir Páll Pétursson Árskógum 13 97-11350
Seyöisflörður Margrét Vera Knútsdóttir Múlavegi 7 97-21136
Neskaupstaöur Heimir Ásgeirsson Melagötu 14 97-71461
Reyöarfjöröur Ólöf Pálsdóttir Mánagötu 31 97-41167
Eskifjöröur Björg Sigurðardóttir Strandgötu 3B
FáskrúösfjöröurGuðbjörg Rós Guðjónsd. Skólavegi 26 97-51499
Djúplvogur Ingibjörg Ólafsdóttir Borgarlandi 21 97-88962
Höfn Sigurbjörg Einarsdóttir Víkurbraut 11 97-81274
Selfoss Margrét Þorvaldsdóttir Enqiaveai 5 98-22317
Hverageröi Þórður Snæbjarnarson Heiömörk 61 98-34191
Þorlákshöfn Halldóra S. Sveinsdóttir Egilsbraut 22 98-33627
Eyrarbakki Bjami Þór Eriingsson Túngötu 28 98-31198
Stokkseyri Friðrik Einarsson Iragerði 6 98-31211
Laugarvatn Halldór Benjaminsson Flókalundi 98-61179
Hvolsvöllur Jónina og Ámý Jóna Króktúni 17 98-78335
Vfk Ragnar Freyr Karisson Asbraut 3 98-71215
Vestmannaeyjar Marta Jónsdóttir Helgafellsbraut 29 98-12192
LEKUR : ER HEDDIÐ
BLOKKIN? SPRUNCIÐ?
Viögerðir á öllum heddum og blokkum.
Plönum hedd og blokkir — rennum ventla.
Eigum oft skiptihedd í ýmsar gerðir bifreiða
Viðhald og víögerðir á iönaðarvélum — járnsmíði.
Vélsmiðja Hauks B. Guðjónssonar
Súðarvogi 34, Kœnuvogsmegin - Sími 814110
Lokað vegna jarðarfarar
Vegna jarðarfarar
Páls Líndals ráðuneytisstjóra
verður umhverfisráðuneytið
lokað frá hádegi í dag.
Umhverfisráðuneytið
Sköpun og þróun
Lesendur
skrifa