Tíminn - 06.08.1992, Blaðsíða 9
Tíminn 9
Fimmtudagur 6 ágúst 1992
Sumarferð Framsóknar
félaganna í Reykjavík
laugardaginn 8. ágúst 1992
Farið verður um:
Gullfoss — Geysi — Hveravelli — Blönduvirkjun
Kl. 08:00 Lagt af stað frá BSl og ekið að Geysi i Haukadal, þar sem fólki gefst
kostur á að skreppa I sjoppu.
Kl. 10:30 Lagt af stað frá Geysi. Ekið norður Kjöl að Hveravöllum.
Þar munu ferðalangar borða nesti sitt.
Kl. 15:00 Lagt af stað frá Hveravöllum og ekið norður að Blönduvirkjun, þar
sem virkjunin verður skoðuð I fytgd leiösögumanns. - Áður en komið er
að Blönduvirkjun verður stansað og Páll Pétursson, formaður þingfiokks
Framsóknarflokksins, flytur stutt ávarp.
Kl. 18:00 Lagt af stað frá Blönduvirkjun og erekið að Staöarskála.
Kl. 21:00 Lagt af stað frá Staðarskála og ekið til Reykjavikur.
Áætlað er að koma til Reykjavikur kl. 23:45.
Fargjald kr. 2.800,-.
Tekið verðurá móti sætapöntunum I slma 624480 eða á skrifstofu Framsóknar-
flokksins, Hafnarstræti 20, 3. hæð, 4.-7. ágúst.
Sumartími skrifstofu
Framsóknarflokksins
Frá 18. mai er skrifstofa okkar I Hafnarstræti 20, III. hæð, opin frá kl. 8.00 til 16.00
mánudaga-föstudaga.
Verið velkomin. Framsóknarflokkurinn.
Sumarhappdrætti
Framsóknarflokksins 1992
Dregið var I Sumarhappdrætti Framsóknarflokksins 10. júlí 1992. Vinningsnúmer eru
sem hér segir:
1. vinningurnr. 29595
2. vinningur nr. 26487
3. vinningur nr. 1668
4. vinningur nr. 36086
5. vlnningur nr. 9702
6. vinningur nr. 23897
7. vinningur nr. 24772
8. vinningur nr. 39900
9. vinningur nr. 715
10. vinningur nr. 17477
11. vinningur nr. 4527
12. vinningur nr. 36239
13. vinningur nr. 3146
14. vinningur nr. 30173
15. vinningur nr. 1992
Ógreiddir miöar eru ógildir. Vinnings skal vitja innan árs frá útdrætti. Frekari upplýs-
ingar eru veittar I síma 91-624480.
Með kveðju og þakklæti fyrir veittan stuðning.
Framsóknarflokkurinn.
r
BLAÐBERA VANTAR
Víðsvegar í Reykjavík,
Kópavogi og Seltjarnarnesi
«••11*1 l!l II JJJJ! ' U2.'
“ ‘ “ ■ ■_!:1«»»«i
Iíminn
Lynghálsi 9. Sími 686300
Þessi mynd af Junot og fjölskyldu hans var tekin á fimmtugsafmæli hans þann 19. apríl sl.
Hjónabandi Karólínu af Mónakó og Philippes Junot lauk fyrir 12 árum:
Phmppe Junot og Karóllna á brúökaupsdaginn áriö 1978.
henni í þeim erfiðleikum sem
hún hefur átt í frá því að hún
missti mann sinn í sjóslysi.
Hann segist eiga margar góðar
minningar frá hjónabandi
þeirra. Skilnaðurinn hafi að
vísu verið honum erfiður til-
finningalega en það hafi hann
nú lagt að baki.
Ogilding
hjónabandsins
loks fengin
Eftir níu ára baráttu hefur
Vatikanið í Róm loks ákveðið að
veita Karólínu af Mónakó lang-
þráða ógildingu á hjónabandi
hennar og franska kaupsýslu-
mannsins og glaumgosans
Philippes Junot.
Junot stendur nú á fimmtugu
og er löngu giftur aftur og á
þrjú börn eins og Karólína.
Hann býr á Marbella á Spáni.
f viðtali við hann nýlega lét
hann í ljós óánægju sína með
starfsaðferðir kaþólsku kirkj-
unnar í málinu. Ogildingin var
byggð á þeim grunni að Junot
var talinn óhæfur eiginmaður
og hefði ekki haft þroska eða
gáfur til að standa sig í stykk-
inu.
Þetta álit var fengið frá sál-
fræðingi sem Junot hitti ekki í
eitt einasta skipti. Og er hann
að vonum óhress að vera
dæmdur á slíkum forsendum.
Annað óánægjuefni segir hann
vera það að hann var ekki látinn
vita að ógildingin væri kominn
í gegn, Vatikanið hélt frétta-
mannafund um málið og þann-
ig frétti Junot af stöðu mála.
í viðtalinu segir Junot að allar
sögur um að hann hafí haldið
framhjá Karólínu séu uppspuni
einn. En hann segir líka að fjöl-
skylda hennar hafi gert allt sem
hún hafi getað til að stía þeim
sundur og þau hafi aldrei haft
tækifæri til að vera ein eitt
augnablik.
Hann talar mjög vel um Karól-
ínu og segist finna mjög til með