Tíminn - 06.08.1992, Blaðsíða 12
AUGLYSINGASIMAR: 680001 & 686300
Askriftarsími
ÁUÐVITAÐ
Tímans er
686300
Suðurlandsbraut 12
Óðruvísi bílasala
BÍLAR • HJÓL •
BÁTAR • VARA-
HLUTIR.
MYND HJÁ OKKUR - BÍLL HJÁ ÞÉR
SÍMI 679225
;|
ýp HÖGG-
> . DEYFAR
Verslió hjá fagmönnum
varahluti
Haœarsböföa 1 - s. 67-67-44
B
44,
Fundur útvegsmannafélaga á Austurlandi með þingmönnum
kjördæmisins í gær:
Ný lög verði sett
um Hagræðingarsjóð
Útvegsmannaféiag Austfjaröa og Útvegsmannafélag Hornafjarðar
héldu í gær fund með þingmönnum Austurlands á Hótel Valaskjálf
á Egilsstöðum. Á fundinum kom fram ótti útvegsmanna við fyrir-
sjáanlegar afleiðingar minni botnfiskkvóta fyrir atvinnulíf á Austur-
landi.
í ályktunum fundarins kemur fram
að útvegsmenn á Austurlandi telja
að beita eigi Hagræðingarsjóði til að
bæta þeim skipum sem verst fara út
úr skerðingu botnfiskveiðiheimilda
á yfirstandandi fiskveiðiári og því
næsta skaða þeirra. Veiðiheimildum
Hagræðingarsjóðs verði úthlutað í
þessum tilgangi endurgjaldslaust.
Til þess að svo megi verða er skorað
á Alþingi íslendinga að það breyti
núgildandi lögum um Hagræðing-
arsjóð.
Þá beinir fundurinn því til stjórn-
valda að þau beiti sér fyrir aðgerðum
sem auðvelda myndu fyrirtækjum í
sjávarútvegi að takast á við þann
vanda sem fyrirsjáanlegur er, til
dæmis með því að létta opinberum
álögum af greininni og með því að
lengja gjaldfrest lána og fresta af-
borgunum af þeim.
„Manni finnst skilningsleysi stjórn-
valda í þessu máli svo yfirgengilegt
að engu tali tekur. Við vonum hins
vegar að þingmenn kjördæmisins
skilji sinn vitjunartíma í þessu, eins
og þeir hafa gert oft áður,“ sagði Ei-
ríkur Ólafsson, formaður útvegs-
mannafélags Austfjarða.
Eiríkur sagði að undirtektir þing-
manna stjórnarandstöðu á fundin-
um hefðu verið afdráttarlausar, þeir
hefðu allir lýst sig fylgjandi því sem
fram kemur í ályktunum fundarins.
Stjórnarþingmenn hefðu hins vegar
verið varfærnari en þó sýnt málefn-
inu ákveðinn skilning.
—sá
Landsliðsþjálfari velur leikmenn fyrir landsleik:
ísland — ísrael
á sunnudag kl. 18
Tveir landsleikir í knattspyrnu veröa á sunnudaginn. Unglinga-
landsliö okkar undir 21 árs keppir við unglingalandslið ísrael á Akr-
anesvelli kl.14 og A-landsliðið keppir við A-landslið ísraela á Laug-
ardalsvelli kl. 18. Leikirnir eru þýðingarmiklir æfingalandsleikir og
forysta KSÍ hvetur landsmenn til
menn.
Ásgeir Elíasson landsliðsþjálfari
kynnti í gær val sitt á leikmönnum í
A-landsliðið. Markverðir eru Birkir
Kristinsson Fram og Friðrik Frið-
riksson ÍBV.
Varnarmenn eru Guðni Bergsson
Tottenham, Valur Valsson UBK,
Kristján Jónsson, Fram og Arnór
Guðjohnsen, Bordeaux. Miðjumenn
eru Andri Marteinsson FH, Baldur
Bjarnason Fylki, Baldur Bragason
Val, Arnar Grétarsson UBK, Rúnar
Kristinsson KR, Sigurður Jónsson
að mæta á völlinn og styðja sína
ÍA, Ólafur Þórðarson Lyn og Þor-
valdur Örlygsson Nottingham Forr-
est. Sóknarmenn eru Sigurður
Grétarsson Grasshoppers, sem jafn-
framt er fýrirliði, Hörður Magnús-
son FH og Valdimar Kristófersson
Fram.
Þessir leikir voru ákveðnir í vetur
áður en íslendingar léku við ísrael í
Telavív 8. apríl. Þá gerði A-landsliöið
2-2 jafntefli. Eggert Magnússon for-
maður KSÍ telur þessa leiki mjög
þýðingarmikla fyrir undirbúning
Frá hægri: Eggert Magnússon formaöur KSÍ, Ásgeir Elíasson
landsliðsþjálfari, Gústaf Bjarnason aöstoöarþjálfari og Snorri Frið-
laugsson framkvæmdastjóri KSÍ.
HM-leikjanna í haust, en mjög
nauðsynlegt sé nú að fá fólk á völl-
inn, það verður að takast að skapa
hér alvöru heimavöll. Með alvöru
heimavelli sé átt við að fullt af fólki
komi á völlinn og hafi áhrif bæði á
gestaliðið og svo dómaratríóið. Að-
altakmark íslenska landsliðsins nú
sé að komast á HM ‘94 og það takist
aðeins með sterkum heimaleikjum.
Ásgeir Elíasson landsliðsþjálfari
sagði eftir val leikmanna að ef þetta
lið spilaði vel saman treysti hann því
til að geta unnið hvaða lið sem er,
hérna heima.
-BS
Gengisfelling nú hjálpar ekki hætishót vegna þess að hún eykur ekki tekjur okkar mælt í ECU segir Sigurður B. Stefánsson:
Ohagræðiö af íslensku krónunni
æ Ijósara með hverjum deginum
„Óhagræðið af íslensku krónunni, gjaldmiðli sem aðeins 260
þúsund manns nota í viðskiptum sín á milli, verður æ ljósara með
hverjum deginum. Gengisfelling nú hjálpar t.d. ekki hætishót ef
kemur til harkalegrar skerðingar þorskveiðiheimilda — vegna þess
að hún eykur ekki tekjur okkar neitt mælt í ECU. Það eina sem
gagnar við slíkan tekjumissi er aðhald og minni útgjöld — rétt
eins og ECU væri gjaldmiðill okkar en ekki krónan," segir Sigurð-
ur B. Stefánsson framkvæmdastjóri í sérriti VÍB um fjármál ein-
staklinga.
Afnám allra hafta í fjármálavið-
skiptum við útlönd um næstu ára-
mót telur Sigurður marka mestu
tímamót í íslenskri fjármálasögu frá
því að verðtrygging var heimiluð
með lögum 1979. Með fullu frelsi í
fjármálaviðskiptum frá ársbyrjun
1993 sé hins vegar líklegt að verð-
trygging líði undir lok — ekki með
neinum hvelli eða lagasetningu
heldur vegna þess að með frjálsum
viðskiptum verði hún ónauðsynleg
fyrir sparifjáreigendur og óæskileg
fyrir lántakendur. í staðinn komi
viðmiðun við ECU í vaxandi mæli á
næstu árum.
„Slík viðmiðun við Evrópumynt
sem gæti orðið sameiginlegur gjald-
miðill Evrópulanda árið 2000 er ís-
lendingum á allan hátt eðlileg og
skynsamleg (ECU vegur nú þegar
76% í gengiskörfu íslensku krón-
unnar), enda óhagræðið af íslensku
krónunni ljósara með degi hverj-
um.“
Sigurður segir frelsi í fjármálavið-
skiptum hafa áhrif á fleiri vegu sem
einnig færi okkur nær ECU. íslend-
ingum sé nauðsynlegt að ávaxta
hluta eigna sinna í útlöndum til að
dreifa áhættu. Á móti íslensku fé
sem þannig renni til útlanda sé
nauðsynlegt að iaða nýtt erlent fé til
landsins svo jöfnuður haldist.
„Útboð íslenskra skuldabréfa sem
ætluð eru útlendingum ekki síður
en íslendingum, skráð á Verðbréfa-
þingi íslands, þurfa að vera í ECU og
ekki í íslenskum krónum. Ástæðan
er sú að erlendir fjárfestar eru ófúsir
til að taka þá gengisáhættu sem fýlg-
ir íslensku krónunni þegar úrval
annarra skuldabréfa er í boði
(spurningin er aðeins; hvers vegna
gildir ekki það sama um íslenska
fjárfesta?)," spyr Sigurður.
Með útgáfu skuldabréfa með ECU-
viðmiðun fáist líka nákvæmur sam-
anburður við vexti á erlendum
markaði. Þannig ætti mismunurinn
á íslenskum og erlendum vöxtum
smám saman að hverfa. „Upphaf er-
lendra viðskipta markar því ekki síð-
ur tímamót en heimild til verðtrygg-
ingar gerði fyrir þrettán árum,“ seg-
ir Sigurður B. Stefánsson.
- HEI
Tíminn
FIMMTUDAGUR 6. ÁGÚST 1992
Gæsaveiðitímabilið hefst
20. ágúst:
Ekki mikið
af gæs í ár
Skotvciðimenn bíða nú spenntir
cftir að gæsaveiðitímabilið hefjist,
en 20. ágúst má heQa velðarnar.
Sverrir Scheving Thorsteinsson,
formaður Skotveiðifélags íslands,
segir að margt bendi tii að ástand
íslensku gæsastofnanna verði ekki
eins gott í ár og áður. Kemur þar
tvennt til, slæmt veðurfar og
aúkning á tófum í byggð.
Sverrir hefur undanfarið verið á
ferð um Vesturland, á stöðum sem
þekktlr eru fyrir gæs. Hann segist
hafa séð minna af gæs en oft áður,
færri gæshr og minni ungahjarðir.
Ástæðuna teiur hann slæmt veð-
urfar fram efthr sumri. Gæsimar
verpa fremur snemma og því hafa
ungarnlr farið illa út úr langvar-
andi hretum.
En þegar gæsaungar komast á flot
eru þeir ekki í eins mikiili hættu
vegna veðurs, en þá tekur annað
við. Mikið er af tófu, stórum búr-
tófum sem eru afkvæmi eldisrefa.
Þær halda sig ekld á fjöllum held-
ur gera sér grenl ofan í fjöru. Þeg-
ar gæsin kemur síðan í land aö
nóttu til með unga sína eru ung-
amir í sérstakri hættu, því tófan er
vel á verði. Hún grynnkar mikið á
gæsastofninum, það sem hún ekki
tók í eggjum og smáungum heidur
hún áfram að taka f stálpuðum
ungum.
Sverrir segir að íslensku gæsa-
stofhamir séu þó ekíri í hættu.
Mikið hafi verið af gæs og ungam-
ir aðeins hiutí af stofnunum. Ann-
ars vegar er um að ræða íslensku
grágæsina og hins vegar heiðar-
gæs.
þaö má vera að heiöargæsin sé í
hvað mestri hættu, því hún kemst
ekkert á sjó og má þola öil veður í
landi. í vor var kafsnjór og slydda
og krapi á hálendinu þar sem hún
heldur sig.
Því er hætta á að ungar hennar
hafi farið illa.
En þaö em ekki aðeins íslenskir
veiöimenn sem hafa áhuga á gæs-
inni. Á vetrum heidur hún sig á
Bretlandseyjum og heimamenn
þar skjóta mikið af henni. Því þurfl
veiöimenn hér á landi ekkert að
hh'fa gæsinni. Hins vegar segir
Sverrir að breskir fuglafræðingar
hafl nokkrar áhyggjur af biesgæsa-
stofninum, en hann hefur hér við-
komu vor og haust á leið tíl Græn-
lands. Fuglafræðingamir hafa átt
vinsamleg samskiptí við Skot-
veiöifélagið og beðlö um að ekki sé
skotíö vísvitandi á þann stofh, þar
sem stærö hans fari minnkandi.
Helsinginn er annar stofn sem
kemur hér við vor og haust, en
hann er ekki í neinnl úbýmingar-
hættu.
Sverrir segir í iokin að þeir hjá
Skotveiðifélaginu leggi mesta
áherslu á að menn fylgi siöfræð-
inni, skjóti ekki gæsir í sámm og
ekki gæsir í varphugleiðlngum á
vorin, það sé villimannlegt.
-BS