Tíminn - 19.08.1992, Side 4

Tíminn - 19.08.1992, Side 4
4 Tfminn Miðvikudagur 19. ágúst 1992 Tíminn MÁLSVARI FRJÁLSLYHPIS, SAMVINNU OG FÉLAGSHYGGJU Útgefandi: Timinn hf. Framkvæmdastjóri: Hrólfur Ölvisson Ritstjóri: Jón Kristjánsson ábm. Aðstoðarritstjóri: Oddur Ólafsson Fréttastjórar: Birgir Guðmundsson Stefán Ásgrímsson Auglýsingastjóri: Steingrímur Gislason Skrifstofur: Lynghálsi 9, 110 Reykjavik Sfml: 686300. Auglýsingasími: 680001. Kvöldsimar: Áskrift og dreifing 686300, ritstjórn, fréttastjórar 686306, íþróttir 686332, tæknideild 686387. Setning og umbrot: Tæknideild Tímans. Prentun: Oddi hf. Mánaöaráskrift kr. 1200,- , verð i lausasölu kr. 110,- Grunnverð auglýsinga kr. 725,- pr. dálksentimetri Póstfax: 68-76-91 Búvörusamningurirm Samningur hefur tekist milli Stéttasambands bænda og ríkisvaldsins um stjórnun mjólkurfram- leiðslu í landinu næstu fimm árin. f>að er mikilsverður áfangi að nú hefur séð fyrir endann á þeim samningaviðræðum, sem staðið hafa undanfarið, vegna framleiðslu og sölu mjólkur. Hitt er vissulega áhyggjuefni að samningurinn gerir ráð fyrir samdrætti í mjólkurframleiðsu og samdrætti í þeirri framleiðslustarfsemi sem tengist henni. Þetta bætist við ennþá alvarlegra ástand í sauðfjár- búskapnum. Mjólkurframleiðsla hefur verið veigamikil undir- staða þyggðar í sveitum á liðnum áratugum og einnig hafa fjölmargir í þéttbýli haft atvinnu af henni. Sú hag- ræðingarkrafa sem samningurinn gerir ráð fyrir bæði til bænda og vinnslustöðva hlýtur að leiða til þess að færri vinna við þessa framleiðslu á öllum stigum. Þó að samdrátturinn í sölu hafi hvergi nærri verið eins mikill í mjólkinni og í kindakjötsframleiðslunni, hlýt- ur þó samdráttur og aukin tækni að verða til þess að færri geta framleitt það magn sem þarf fyrir innan- landsmarkaðinn og unnið úr því. Með þessum samningi er þeirri samhjálp sem verðmiðlun hafði í för með sér útrýmt. Það hlýtur að leiða til mikilla breytinga í rekstri mjólkurstöðva. Von- andi verða þær breytingar neytendum og bændum til hagsbóta, en benda má á að enn er margt óljóst um framkvæmd þessara mála þar sem samningur er enn- þá ógerður við afurðastöðvarnar. Það er afar brýnt að niðurstaða komist einnig í þau mál, því málefni vinnslustöðvanna eru nú í lausu lofti. Vandinn í tengslum við allt þetta mál er sá að fá því fólki verkefni sem hlýtur að hætta störfum við búskap þegar þessi búvörusamningur kemur til framkvæmda. Til raunhæfra aðgerða í þeim efnum þarf náið samstarf samtaka bænda og ríkisvaldsins. Nefna má bað að eins og nú háttar til er það afar mikilvægt að efla leiðbein- ingaþjónustu í landbúnaði og beina henni enn frekar en orðið er að nýsköpun í greininni. Leiðbeininga- þjónusta landbúnaðarins á undir högg aö sækja hjá ríkisvaldinu, þótt hún sé önnum kafin við fram- kvæmdaatriði við stjórnun búvöruframleiðslunnar. Brýnt er að breyta um áherslur og beina þeim starfs- kröftum sem við hana fást að því að leiða í ljós þá möguleika til nýrrar atvinnustarfsemi í sveitum og efla þær nýju atvinnugreinar sem þróast hafa á síðustu ár- um í dreifbýlinu. Jafnframt þessu er nauðsynlegt að skapa fjárhags- legan grundvöll fyrir nýrri atvinnustarfsemi. Sú ákvörðun stjórnvalda að skera niður framlög til Fram- leiðnisjóðs landbúnaðarins um síðustu áramót við þær aðstæður, sem nú eru, er óskiljanleg og Alþingi þarf að taka þau mál til sérstakrar meðferðar á þessu hausti. Atvinnumálaþátturinn má ekki liggja eftir við fram- kvæmd þess búvörusamnings sem nú liggur fyrir. f Utúrlegt uppátæki Undarlega síðborið og útúr- legt var það uppátæki Alþýðu- bandalagsmanna nú fyrir skemmstu að auglýsa fundar- gerðarbækur flokks síns og flokksdeilda opnar til aflestrar þeim er í þetta vildu gá til þess að leita eftir ummerkjum um samskipti flokksins við Sovét- ríkin eftir að Alþýðubandalag- inu var hleypt af stokkunum. Vandi er að segja hver hefur átt hugmyndina að þessari vit- leysu. Allt skynsamt fólk í þess- um flokki hlýtur af hafa hrist höfuðið yfir svo skrýtinni hug- dettu og þótt undirrituðum sé ekki um það kunnugt þá þykist hann þess fullviss að enginn hefur komið að nýta sér hið góða boð — nema þá ef væru ein- hverjir gríngosar. Hefði verið um einhverjar bókanir af þessu tagi að ræða — sem varla neinum hefur í alvöru dottið í hug að væri — þá hefðu bæk- urnar vitnalega ekki verið boðnar til sýnis. Skárri hefði það nú líka verið ráðleysan. Kalkipappírsafrit Einhverjir forystumenn Al- þýðubandalagsins hafa greini- lega látið það rugla sig alvar- lega í ríminu að farið var að fletta í einhverjum pappírum í Moskvu og draga þar upp kalkipappírásafrit frá þriðja og fjórða áratugnum af bréfum framliðinna karla sem haldnir voru fítonsanda einhverra fyrrastríðs- kommúnista eða Thálmann- batalljónarinnar úr Spánarstríðinu. Það er meira en ótrúlegt að nokkur telji þá Ólaf Ragnar eða Einar Karl Ilaraldsson í þann flokk — ekki í alvöru. I lins vegar verða þeir og flokkurinn að hafa það að þeim sé strítt með aðdrótt- unum af því tagi. En menn eiga að vera komnir á þann aldur að þeir þoli stríðni, án þess að láta hana spana sig til gönuhlaupa eins og þessa með fundarbækurnar. Meirí pappír Bréfin og skiliríin í Moskvu hafa vitanlega gildi fyrir þá sem stúdéra sagnfræðina og víst er gaman að þessu. Margt kemur á óvart — en ekkert stórkostlega á óvart. Mikið hef- ur verið látið með bónarbréf Kristins heitins E. Andrésson- ar vegna styrkja til Máls og menningar og einnig það að hann gerði sér víst vonir um að Rússar létu af hendi rakna elli- lífeyri til hans. Erindi Kristins eru nokkuð merkileg vegna þess hve nýleg þau eru saman- borið við flest hitt bréfadótið. En segjast verður að Kristinn heitinn var sérkennilegur maður og menn hljóta að ætla að þetta hafi verið einkafrum- kvæði hans. Hann var senni- lega brot af „séníi“ á ýmsum sviðum og þá ekki síst á fjár- málasviðinu. Kristinn E. Andr- ésson hefði efalaust getað orð- ið mikill maður í Wall Street, ef forlögin hefðu plantað hon- um þar niður. Það eru tfmar og umhverfi sem ákvarða örlög manna og sennilega síst minna en upplag eða skapgerð. Því fóru fjáraflahæfileikar hans í að efla Iítið, vinstri sinnað for- lag í Norðurhöfum í stað þess að stýra bönkum eða olíu- skipaflota. Sú leið sem for- stjórinn Kristinn E. velur þeg- ar hann þarf að bjarga fyrir- tækinu úr kröggum, er hvaða „athafnamanni" sem væri sæmandi: Hann tekur áhættu, lætur lögin ekki trufla sig um of þar sem hann býst við að komast fram hjá þeim — þorir að grípa það tækifæri sem gefst. Hvert barn veit að þetta kann hvaða kaupsýslumaður sem er að verða að gera, ef það er kengur í honum og hann ætlar ekki að láta kafsigla sig. Sá bissniss er ekki líklegur til langlffis sem á að ganga á for- sendum einhverra kirkju- baukasamskota og engil- hreinnar samvisku. Sá sem hér skrifar er þeirrar skoðunar að það eigi að virða þetta við Kristin. Hann þorði að gera það sem þurfti og var fram- kvæmanlegt. Hann hefði vel mátt fá lífeyrinn líka. Hann hafði unnið fyrir honum. Þeir gömlu og góðu menn Vitanlega eru enn upphang- andi innan raða Alþýðubanda- lagsins einhverjir einstakling- ar af kynslóð Kristins E., sem ungir tileinkuðu sér kommún- isma og munu ekki Iáta af sannfæringu sinni héðan af — og hvað skyldu þeir vera að því? Það er meinlaust og eng- inn væri neinu bættari þótt þeir tækju sinnaskiptum. Það eru hvort sem er menn með allra handa skoðanir í öllum flokkum. Því ættu Alþýðu- bandalagsmenn að láta egna sig til einhverrar fásinnu af þeim sökum? Ólaf Ragnar langar mjög til að verða bara góður og gegn „sósíal- demókrat" og helst að taka sæti Jóns Baldvins á þingum hins „II. Int- ernationale". Að því á hann auðvitað að einbeita sér og hætta að taka nærri sér þetta gems um að hann hafi alið með sér þann draum á laun að aka á bónaðri Volgu eftir sér- stakri forréttindaakrein á Miklubrautinni. Það hefur áreiðanlega aldrei hvaiflað að svo vænum manni sem Ólafur er. Áreiðanlega er meiri papp- íra von frá Moskvu, því þar sitja nú fræðimenn að og rýna í það sem Búkarín og fleiri sögupersónur úr undralandi gerska ævintýrisins lögðu til við unga eldhuga með sex- pensara á höfðinu að helst yrði öreigabyltingu til framdráttar í Skildinganesi og nágrenni. Af því efni öllu verða gerðar margar syrpur og sjónvarps- þættir og einhver verður áreið- anlega doktor út á þetta áður en lýkur... En í galopnar fundargerðir Alþýðubandalagsins, dálka- og höfuðbækur verður trúlega aldrei skyggnst með neinum viðlika spenningi og aldrei hefði Kristni E. Andréssyni dottið nein svona fásinna í hug. Mun þó svo langsýnn maður áreiðanlega hafa gætt þess að hafa sín plögg í ekki lakari „orden“ en Alþýðu- bandalagið. AM

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.