Tíminn - 02.09.1992, Blaðsíða 1
Miðvikudagur
2. september 1992
162. tbl. 76. árg.
VERÐ í LAUSASÖLU
KR. 110.-
ALLUR KVÓTINN
ER FULLNÝTTUR
Stórkaupmenn óánægðir með lyfjareglugerð heilbrigðisráðherra:
Reglugerðin kærð til
umboðsmanns Alþingis
Félag fslenskra stórkaupmanna hefur óskað eftir áliti umboös-
manns Alþingis á reglugerð sem heilbrigðisráðherra gaf út í sumar
um greiðslur vegna lyfjakostnaðar. Stórkaupmenn telja að reglu-
gerðin bijóti í bága við lög um vörumerki og almenna jafnréttis-
reglu í stjómsýslu. Heilbrigðisráðherra hefur hafnað því að taka til-
lit til gagnrýni stórkaupmanna.
Flest lyf sem framleidd eru hér á
landi eru svokölluð samheitalyf, þ.e.
lyfin eru eftirgerð af innfluttum lyfj-
um. Þessi lyf eru ódýrari m.a. vegna
þess að við framleiðslu þeirra hefur
framleiðandinn ekki þurft að leggja
á sig rannsóknarstarf í sama mæli
og sá sem fann upp lyfið. f ná-
grannalöndum okkar eru frumlyfin
yfirleitt vemduð gagnvart eftirlík-
ingalyfjunum. Þannig er þessu hins
vegar ekki varið hér á landi.
í reglugerð heilbrigðisráðherra,
sem hann gaf út í sumar, er gert ráð
fyrir að eftirlíkingalyfin séu að jafn-
aði ein látin njóta greiðslu frá
Tryggingastofnun ríkisins. Reglu-
gerðin gerir jafnframt ráð fyrir að
lyfjafræðingur afhendi sjúklingi
ódýrasta eftirlíkingalyfið sem hafi
sömu virkni og sérlyfið (frumlyfið)
sem ávísað er á. Þetta telja stórkaup-
menn brjóta lög um vörumerki þar
sem verið sé að reyna koma lyfi í
sölu með því að nota vörumerki
annars lyfs.
Lögfræðingur stórkaupmanna
skrifaði heilbrigðisráðherra bréf
vegna þessa máls. Ráðherra vildi
ekki taka tillit til efnis bréfsins og
ákváðu stórkaupmenn þá að leita til
umboðsmanns Alþingis. -EÓ
„Frímann flugkappi" fær að
æfa sig enn um sinn á
Reykjavíkurflugvelli:
Ólína fær
frávísun
Á fúndi borgarráðs í gær var sam-
þykkt frávísunartillaga frá fulltrú-
um Sjálfstæöisflokks á tillögu frá
Ólínu Þorvarðardóttur, fulítrúa
Nýs vettvangs, um að hafist verði
handa í samvinnu við flugmálayfir-
völd aö finna nýtt flugvallarstæði
undir einka- og kennsluflug. Var
tilgangur tíDögu Ólínu að beina
þessari flugumferð fiá Reykjavík-
urflugvelli.
í frávísunartillögunni sem sam-
þykkt var í gær segir hins vegar að í
aðalskipulagi Reykjavíkur fyrir
1990-2010 sé gert ráð fyrir því að at-
hugað verði með flutning einka- og
kennsluflug og því sé tillaga Ólíu
óþörf.
Ólína bókaði þá að meirihlutinn
vildi ekki samþykkja tillögu sem
væri í samræmi við stefnu skipu-
lagsyfirvalda. Þeim sem gerst þekki
til beri saman um að fera beri
einka-, æfinga-, og kennsluflugið
frá Reykjavíkurflugvelli sem fyrst,
enda í samræmi við stefnu borgar-
yfirvalda sjálfra. Telur Ólína þessa
málsmeöferð vekja upp grun um að
meiru skipti hver flytji tillöguna en
hvemig hún hljóði.
„Ég var búinn að spá því fyrir
nokkrum mánuðum að menn
myndu flytja með sér um 25.000 til
30.000 tonn af þorski milli fisk-
veiðiára og ég held að það fari eft-
ir,“ segir Bjöm Jónsson, upplýs-
ingaráðgjafi í kvótamálum hjá LIÚ.
í gær hófst nýtt fiskveiðiár og þá
byrjar einnig nýtt „kvótaár."
Björn segir að allur kvóti síðasta
fiskveiðiárs hafi verið fúllnýttur.
Hann segir að að undanförnu hafi
ekkert framboð verið á þorski til
sölu. Þá segir Björn að undanfarna
daga hafi verið skortur á ýsu þrátt
fyrir að margir hafi viljað kaupa.
Sömu sögu segir hann að sé hægt að
segja með ufsa og karfa.
Utvegsmenn mega geyma 20% af
óveiddum kvóta milli fiskveiðiára.
Bjöm segist því merkja að meðan
ekkert framboð sé á kvóta til sölu þá
hafi menn þegar lagt hann í
geymslu. -HÞ
Er Gullfoss á Kjalvegi?
Vegmerki við Gullfoss hefur vakiö Gullfossi. Fossinn er hins vegar ferðamenn hafa hlns vegar ekki
athygli sumra ferðamanna sem beint framundan. Vegurinn til allir áttað sig á þessum merking-
lagt hafa leið sína að Gullfossi. í vinstrí er aftur á móti leiðin norð- um. Dæmi eru um að feröamenn
brekkunni, skömmu áður en kom- ur Kjöl. Salemi og önnur aðstaða hafi verið komnir langleiðina að
ið er að fossinum, er stdltl þar við GuIIfoss er á bakkanum íyrir Hveravöllum í leit að Gullfossi. -
sem vegfarendum er bent á að ofan fossinn og væntaniega vísar Tímamynd AHrsð Jónsson
beygja til vinstri til að komast að vegmerkingin þangað. Eriendir
Heyra mjaðmaaðgerðir sögunni til?
Um næstu mánaðamót er fyrirhugað
að draga mjög úr starfsemi bældun-
ardeildar. Öllum sérfræðingum
hennar hefur verið sagt upp. Það
virðist ljóst að mjaðmaliðsaðgerðh' á
Landspftalanum heyri sögunni til en
þar bíða nú um 90 sjúldingar eftir að-
gerð sem gæti í mörgum tihikum
komið þeim til fullrar heilsu. Þetta
kemur nu. fram í viðtali við Halldór
Baldursson, settan yfiriækni bæklun-
ardeildar Landspítalans.
,T>að virðist liggja Ijóst fyrir að það
verði ekki mjaðmaliðsaðgerðir á
næstunni á Landspítalanum," segir
Halldór.
„Um næstu mánaðamót er fyrirhug-
aður enn frekari niðurskurður á rými
bæklunardeildar," segir Halldór.
Hann segir að enginn viti hvemig
þetta verði í framkvæmd. ,T>að er auk
þess mjög óvíst hvað verður um
mönnun bæklunardeildar þar sem
öllum sérfræðingum deildarinnar var
sagt upp fimm að tölu í þremur stöð-
um,“ bætir Halldór við.
Heyrst hefur að bæklunardeild eigi
að verða svokölluð fimm daga deild.
Það þýðir að einungis verði hægt að
taka inn sjúklinga til aðgerða á mánu-
dögum og þriðjudögum og þeir út-
skrifaðir fyrir næstu helgi. Um þetta
segir Halldón ,Ég hef ekki verið upp-
lýstur um þetta. Hvað ég heyri af orð-
rómi er ekki til að fara með í blöðin."
Halldór segir að gerviliðaaðgerðir
skipti miklu máli fyrir sjúklinga og
þjóðfélagið., fetta er algengt og alvar-
legt vandamál og hér á Landspítalan-
um eru um 90 manns sem bíða eftir
svona aðgerð. Biðtíminn er þeim
mun lengri sem minna er gert og nú
er verið að ræða um að hætta aðgerð-
um í einhveija mánuði," segir Hall-
dór.
Nýlega var haft eftir heilbrigðisráð-
herra að biðlisti eftir hjartalækning-
um mætti helst ekki vera lengri en 20
til 30 manns. Hvað mætti biðlistinn
vera að hámarki í gerviliðaaðgerðum?
,Ég veit ekki til að neitt þjóðhagslegt
mat hafi verið lagt á það hvort hjarta-
skurðlækningar eða gerviliðaskurð-
lækningar séu nauðsynlegri hlutur,“
segir Halldór.
Ægilegt aö bíða
„Það er ægilegt að maður með fulla
starfsorku, að öðru leyti en því að
mjöðmin er biluð, komist ekki í að-
gerð," segir Kristinn Óskarsson, 74
ára gamall fyrrverandi lögreglumað-
ur.
„Ég þurfti að bíða eftir aðgerð svo
mánuðum skipti. Sársaukinn og
kvalimar ágerðust og á endanum
komst ég að á Sjúkrahúsi Akureyrar,"
segir Kristinn.
Kristinn vann í lögreglunni í 40 ár
en starfaði við að útrétta fyrir Háskóla
íslands er hann komst á aldur eins og
kallað er.
Það eru rúm fimm ár síðan Kristinn
var skorinn upp og skipt um
mjaðmalið og hann segist varla vita af
mjöðminni í dag. Um þá líðan sína að
bíða eftir aðgerð segir Kristinn: ,J>að
var erfitt að bíða eftir aðgerð og ótt-
inn við hversu slæmur ég yrði þá var
erfiður viðfangs. Þetta blandaðist allt
saman," segir Kristinn. Hann bætir
við að oft hafi kvalimar verið það
miklar að hann hafi átt erfitt með
svefri. „Ég og mitt fólk höfðum mikl-
ar áhyggjur af þessu og ekki síst
vegna óvissu um það hvort og hve-
nær ég kæmist að. Ég var líkamlega
hress að öðru Ieyti," bætir Kristinn
við.
.Aðgerðin hefur gjörbreytt allri líð-
an minni og ég hef unnið og vinn enn
þann dag í dag,“ segir Kristinn.
Það glaðnar yfir honum þegar hann
rifjar upp daginn sem hann kom
heim og gat gengið án verkja. ,Fljót-
lega var ég farinn að vinna fúlla
vinnu. Ég vildi ekki lenda í þessu
núna. Þetta er geigvænlegt ástand og
ég hef mikla samúð með því fólki sem
nú þarf að bíða og kemst jafnvel ekki
að. Mér finnst að aðhaldsaðgerðir
megi ekki bitna á þessu fólki,“ sagði
Kristinn að lokum.
Ölgerðin hefur
keypt Pepsí
Ölgerðin Egill Skallagrímsson hefur
keypt framleiðslurétt Gosan h/f á Pep-
sí og Seven Up og öðrum gosdrykkj-
um sem Gosan hefur framleitt Gosan
mun fyrst um sinn halda áfram að
framleiða vörumar og dreifa þeim, en
stefnt er að því að framleiðslan flytjist
til Ölgerðarinnar innan þriggja mán-
aða.
Með samningnum hefur Ölgerðin nú
framleiðslurétt á 24 tegundum gos-
drykkja. Ekki er búist við að allar teg-
undimar verði framleiddar áfram, Ld.
er talið víst að framleiðslu malt- og ap-
pelsíndrykkja sem Gosan hefur fram-
leittverði hætL
Dótturfyrirtæki Gosan, Viking brugg,
mun halda áfram framleiðslu á bjór í
verksmiðju fyrirtækisins á Akureyri.
Forráðamenn fyrirtækisins hafa einn-
ig áhuga á að snúa sér að útflutningi á
vatni.
Kaupverð á framleiðslurétti Gosan
hefúr ekki verið upp gefið, en DV full-
yrðir í gær að Ölgerðin hafi greitt á
milli 200 og 300 milljónir fyrir fram-
leiðsluréttinn. -EÓ