Tíminn - 02.09.1992, Side 12
AUGLYSINGASIMAR: 680001 & 686300
Askriftarsími
Tímans er
686300
AUÐVITAÐ
Suöurlandsbraut 12
Öéruvisi bílasala
BlLAR • HJÓL •
BÁTAR • VARA-
HLUTIR.
MYNO HJÁ OKKUR ■ BÍLL HJÁ ÞÉR
SÍMI 679225
0. G: J i ^Sfej'briel SÆ HÖGG- . DEYFAR Verslió hjá fagmönnum
i varahlutir
Haraarsböfóa 1 - s. 67-6744
Tíminn
MIÐVIKUDAGUR 2. SEPT. 1992
Heilbrigðisráðherra segir að enginn fjárhagsvandi sé til staðar á Kópavogshæli:
KÓPAVOGSHÆU GERT AÐ
SPARA MEIRA EN ÖDRUM
Sighvatur Björgvinsson heilbrigðisráðherra sagði á Alþingi í
gær í umræðum um málefni Kópavogshælis að fjárhagsvandi
hælisins hafi veríð ieystur. Hann sagði jafnframt að forsvars-
menn Kópavogshælis hefðu ekki sent ráðuneytinu eríndi vegna
fjárhagsvanda stofnunarínnar líkt og ýmsar aðrar stofnanir
hefðu gert. í umræðunum var harðlega gagnrýnt að heilbrígð-
isráðherra skyldi ekki hafa skipað nefnd tii að gera tillögur um
framtíðarskipulag Kópavogshælis, eins og félagsmálanefnd Al-
þingis gerði tillögu um á síðasta árí.
Það var Margrét Frímannsdóttir,
alþingismaður (Alb.) sem hóf um-
ræðuna. Hún sagði að launa-
greiðslur á Kópavogshæli frá
janúar til júlí á þessu ári væru 9,5
milljónum króna lægri en á sama
tíma í fyrra. Þetta er 6% lækkun.
Launagreiðslur hafa ekki verið
lægri að raungildi síðustu þrjú ár.
Önnur rekstrargjöld eru tveim
milljónum krónum lægri en á
sama tíma í fyrra. Þrátt fyrir
þennan mikla samdrátt hefur
Kópavogshæli farið 6,5 milljónir
umfram fjárheimildir. Margrét
spurði hvort stofnuninni hafi ver-
ið gert að spara meira en öðrum
sjúkrastofnunum og hvort heil-
brigðisráðherra sé tilbúinn til að
beita sér fyrir að auknum fjárveit-
ingum verði beint til Kópavogs-
hælis.
Sighvatur Björgvinsson heil-
brigðisráðherra svaraði ekki þess-
Forystumenn í sjávarútvegi víðs vegar úr
heiminum heimsækja ísland:
Fundur um
útvegsmál
Þessa dagana stendur yfir hér
á landi fundur Alþjóðlegra
samtaka aðila í sjávarútvegi
(ICFA). Fundinn sækja um 20
manns alls staðar að úr heim-
Sóknardeilur í Keflavík:
Fundur
með
biskupi
Á morgun mun biskup haida
fund með sóknarnefnd og sókn-
arpresti Keflavíkurkirkju. Þar er
æt unin aft reyna tíl þrautar aft
koi iast aft samkomulagf. JÞetta
er dlt f blftstöftu þangaft tíl,"
segir Birgir Guftnason sem sætí
á í sóknarnefnd.
Birgir segir aft allir séu sam-
mála um aft reyna að komast aft
samkomulagi og taka á þeim
málum sem um hefúr verift
deilt. Jtíenn hafa veríft í sumar-
leyfum en prestur hefúr mess-
aft,“ segir Birgir, Aft sögn Birgis
kvaddi séra Helga Soffía Kon-
ráftsdóttír söfnuðinn um síft-
ustu helgi en hún var ráöin í aft
leysa séra Odd af. -HÞ
inum. íslenskir og erlendir
sérfræðingar flytja erindi á
fundinum, en auk þess heim-
sækja fundarmenn fisk-
vinnslustöðvar og fiskmarkaði
í Reykjavík, Hafnarfirði og
Akranesi. Þá verður hvalstöðin
í Hvalfírði heimsótt.
Meðal umræðuefna á fundinum er
nýting fiskistofna, nýting sjávar-
spendýra, viðskipti með sjávaraf-
urðir, umhverfismál og fleira.
Þorsteinn Pálsson sjávarútvegs-
ráðherra flutti ræðu við upphaf
fundarins. Hann lagði áherslu á
mikilvægi frjálsra viðskipta með
sjávarafurðir og ræddi um þau
skref sem fyrirhugað er að stíga í
átt til frjálsari viðskipta meö samn-
ingum um Evrópskt efnahagssvæði
og GATT. Hann sagði óviðunandi
fyrir íslendinga ef viðskipti með
sjávarafurðir verða undanskilin í
GATT.
Þorsteinn sagði sjálfsagt og eðli-
legt að hvalir og önnur sjávarspen-
dýr verði nýtt eins og aðrar auð-
lindir sjávar. Hann greindi frá
ástæðum fyrir ákvörðun íslendinga
að segja sig úr Alþjóðlega hval-
veiðiráðinu. Þorsteinn sagði að
umhverfissamtök gegndu mikil-
vægu hlutverki við að tryggja
nauðsynlega verndun sjávar og
sjávarauðlinda, en ýmis umhverfis-
samtök hefðu því miður kosið að
hunsa vísindaleg rök um nýtingu
sjávarspendýra.
Ráðstefnunni lýkur 3. september.
- EÓ
um spurningum beint, en sagði
að rekstur Kópavogshælis hefði
verið samkvæmt áætiun fyrstu
fimm mánuði ársins. Sparnaður-
inn þessa mánuði hefði verið 8%.
Síðan hafi eitthvað farið úrskeiðis
í rekstri hælisins. Sighvatur sagð-
ist mundi eiga fund með stjórn-
endum Kópavogshælis í dag.
Fjárhagsvandi hælisins hafi hins
vegar verið leystur á fundi for-
stjóra Ríkisspítalanna og fram-
kvæmdastjóra Kópavogshælis
síðastliðinn föstudag. Akveðið
hefði verið að ráða í 19 stöður af
þeim 30 sem lausar hefðu verið.
Það kom fram í máli Finns Ing-
ólfssonar (Ffl), sem gagnrýndi
harðlega málatilbúnað og fjár-
veitingar ríkisstjórnarinnar til
hælisins, að í tíð síðustu ríkis-
stjórnar sendi heilbrigðisráð-
herra sérstakt bréf til stjórnar
Ríkisspítala þar sem óskað var eft-
ir að sparnaðaraðgerðir snertu
ekki rekstur Kópavogshælisins.
Þetta sagði Finnur hafa verið gert
vegna eðlis hælisins en það er
heimili þess fólks sem þar er og
óhægt er um vik í öllum sparnaði.
í umræðum um málið var vakin
athygli á því að þetta mái væri
rætt á Alþingi sama dag og ný lög
um málefni fatlaðra tækju gildi.
Kópavogshæli félli hins vegar
ekki undir ákvæði laganna. Hælið
væri skilgreint sem sjúkrastofn-
un. Við afgreiðslu laganna um
málefni fatlaðra á síðasta þingi
var samþykkt í félagsmálanefnd
Alþingis að beina því ti! heilbrigð-
isráðherra að skipuð verði nefnd
til að gera tillögur um framtíð
Kópavogshælis. Ráðherra hefur
ekki skipað nefndina þrátt fyrir að
öll nefndin, utan einn nefndar-
manna, stæði að nefndarálitinu.
Sighvatur sagði að nýju lögin um
málefni fatlaðra kölluðu á að
framtíð ýmissa fleiri stofnana yrði
skoðuð. Það yrði gert. Þingnefnd-
ir gætu hins vegar ekki fyrirskip-
að ráðherra að skipa nefndir.
Á Kópavogshæli búa nú 135 ein-
staklingar. Fyrir fáum árum voru
þeir tæplega 200. Sú skoðun kom
fram í umræðunum að mikill
meirihluti vistmanna ætti heima
á sambýlum fyrir fatlaða og stefna
bæri að því að koma þeim þangað.
Sighvatur sagði hins vegar að það
væri mat sérfræðinga að áfram
yrði þörf fyrir um 100 sjúkrarúm
fyrir alvarlega sjúka fatiaða ein-
staklinga. Hann tók hins vegar
undir að meirihluti vistmanna á
Kópavogshæli ætti heima á sam-
býlum fyrir fatlaða. -EÓ
Jóhann Ingvason tekur vió námsstyrk úr minningarsjóði Karls Sighvatssonar úr hendi Hauks
Guðlaugssonar stjórnarformanns sjóösins. Sitjandi eru Örn Falkner sem hlaut styrk til fram-
haldsnáms í organleik í Róm, Sigrún Karlsdóttir og Ellen Kristjánsdóttir sem báöar sitja í stjórn
sjóðsins. Tímamynd Árni Bjama
Minningarsjóður Karls Sighvatssonar:
STYRKJUM ÚTHLUTAÐ
í FYRSTA SKIPTIÐ
Styrkjum úr Minningarsjóði Karls
Sighvatssonar hefur verið úthlut-
að í fyrsta sinn en sjóðurinn var
stofnaður á síðastliðnu ári og var
stofnframlagið arður af minning-
arhljómleikum um Karl heitinn
sem haldnir voru í Þjóðleikhúsinu.
Þremur styrkjum var úthlutað;
eínum vegna kaupa á orgeli í Reyk-
holtskirkju í Borgarfirði, náms-
styrk vegna náms í alhliða hljóm-
borðsleik og námsstyrk vegna
framhaldsnáms í organleik.
Jóhann Ingvason á Akureyri hlaut
styrk til náms í alhliða hljóm-
borðsleik, en hann stundar slíkt
nám við Berkeley tónlistarháskól-
an í Boston. Þá hiaut Örn Falkner
styrk til framhaldsnáms í organ-
leik. Hann hyggst stunda það á
næsta ári í Róm. Örn starfar nú
sem organisti í sömu sóknarkirkj-
um og Karl Sighvatsson gerði þeg-
ar hann lést. —sá