Tíminn - 18.09.1992, Blaðsíða 1

Tíminn - 18.09.1992, Blaðsíða 1
Föstudagur 18. september 1992 174.tbl.76. árg. VERÐ í LAUSASÖLU KR. 110.- Stjóm Sambandsins ákvað að auka hlutafé í Miklagarði hf. um 439 milljónir króna: Sambandið selur Landsbanka eignir Á fundi stjómar Sambands íslenskra samvinnufélaga í gær var sam- þykkt að ganga til samninga við Landsbanka íslands um sölu á ýms- um eignum, sem miði að því að fyrirtækið geti á sem skemmstum tíma gert upp skuldir sínar við Landsbankann og aðra lánardrottna. Reiknað er með því að samningaviðræður hefjist strax. Á fundinum samþykkti Sambands- stjóm jafnframt að auka hlutafé í Miklagarði hf. um 439 milljónir króna. Er þetta liður í fyrirhugaðri hlutafjáraukningu, sem ætlað er að geti orðið allt að 600 milljónir. Um 60% af fyrirhugaðri hlutafjáraukn- ingu Sambandsins verða til með þeim hætti, að skuld Miklagarðs hf. við Sambandið verður breytt í hlutafé, en þau 40% sem þá eru eftir verða fjár- mögnuð með sölu eigna. Samkvæmt bráðabirgðauppgjöri, sem lagt var fram á fundinum, var rekstrarhalli Sambandsins fyrstu átta mánuði ársins 239 milljónir króna. Á sama tímabili fyrra árs var rekstrar- halli 334 milíjónir króna. Minni rekstrarhalli stafar að nokkru af lækk- un rekstrargjalda, en þó einkum af mun lægri fjármagnsgjöldum en í fyrra. Samkvæmt bráðabirgðaefnahagsyfir- liti eru bókfærðar eignir Sambandsins í ágústiok 6.249 milljónir króna, en heildarskuldir 4.880 milljónir. Eigið fé er því 1.369 milljónir eða sem svar- ar 21,9% af niðurstöðu efnahags- reiknings. Veltufjármunir nema 1.281 milljónir og því er nettóskuld fyrir- tækisins (heildarskuldir að frádregn- um veltufjármunum) um 3.600 millj- ónir. Fram kom á fundinum að nú hefúr endanlega verið gengið frá sölu á hús- eigninni Hamragörðum (Hávallagötu 24), en þar stóð lengi heimili Jónasar Jónssonar og síðar félagsheimili sam- vinnustarfsmanna og landssamtaka þeirra. Einnig hafði Nemendasam- band Samvinnuskólans aðstöðu í hús- inu. Kaupendur hússins eru Húsnæð- issamvinnufélagið Búseti í Reykjavík og Landssamband Búsetafélaganna. Söluverð hússins er 18 milljónir króna. -EÓ Sauðfjárframleiðsla á næsta ári mun verða 8.150 tonn: Framleiðslan mun minnka um 450 tonn Creiðslumark í sauðfjárfram- leiðslu á næsta verðlagsári, þ.e. 1993-1994, verður 8.150 tonn. Þetta er 31% samdráttur frá þeim fullvirðisrétti sem áður giiti, en sem kunnugt er hefur fullvirðisréttur nú verið lagður niður. Raunverulegur samdrátt- ur í framleiðslu er hins vegar 450 tonn, en virkur fram- leiðsluréttur á yfirstandandi verðlagsári er 8.600 tonn. Áður en ákvörðun var tekin um greiðslumark voru bændum gerð tvö tilboð í þeim tilgangi að auðvelda þeim að minnka eða hætta búskap. Mun færri bænd- ur tóku þessum tilboðum en vænst var. Ástæðan er slæmt at- vinnuástand í sveitum landsins. Bændur á Reykjanesi og í sunn- anverðum Borgarfirði sýndu til- boði ríkisins mestan áhuga. -EÓ Heildaraflinn yfir millj. t Heildaraflinn á nýliðnu fiskveiðiári, samkvæmt bráðabirgðatölum Fiskifélags íslands, nam rúmum 1.3 milljónum tonnum, sem er nokkru meiri afli en á fiskveiðiárinu þar á undan. Hins vegar var heildaraflinn um 1.4 milljón tonn á fiskveiðiárinu 1989- 1990. Sé litið á skiptingu aflans á þess- um tímabilum, kemur í ljós að þorskaflinn hefur farið hríðlækk- andi eða úr tæplega 320 þúsund tonnum 1989-1990 í aðeins tæp 259 þúsund tonn á nýliðnu fiskveiðiári. Sömu sögu er að segja um ýsuafl- ann, en aftur á móti hefur karfaafl- inn vaxið á umræddu tímabili og sömuleiðis rækjan. Þá hefur stein- bítsaflinn verið nokkuð stöðugur eða um 12-14 þúsund tonn, en grá- lúðan hefur dottið úr því að vera rúm 32 þúsund tonn 1989-1990 í tæp 29 þúsund tonn á nýliðnu fisk- veiðiári. Á umræddu tímabili var ufsaaflinn mestur 1990- 1991 eða tæp 95 þúsund tonn, en aðeins rúm 81 þúsund tonn á því sem nú er ný- lokið. í sl. ágústmánuði, eða í lok þess fiskveiðiárs, var þorskafli togara svipaður því sem hann var í sama mánuði í fyrra eða rúm 14 þúsund tonn. Smávegis aukning var í þorsk- afla báta í mánuðinum frá sama tíma í fyrra og einnig hjá smábátum. Aftur á móti var heildaraflinn í sl. mánuði um 72.500 tonn, á móti tæpum 50 þúsund tonnum í sama mánuði í fyrra. Munurinn liggur að- allega í því að rúm 23 þúsund tonn af loðnu voru veidd í ágústmánuði í ár, en á sama tíma í fyrra var engin loðnuveiði. -grh Tvær 14 ára stúlkur í Hagaskóla kretjast jafnréttis til náms: Þær vilja frekar smíöa en sauma ■ Tvær 14 ára stúlkur í 9. bekk Hagaskóla, þær Sigurlaug Knudsen og Sigríður Vilhjálmsdóttir, hafa óskað eftir því við skólastjóra Hagaskóla að fá að velja um það hvort þær sækja smíða- eða saumatíma. Þar sem ekki hefur veríð orðið við ósk þeirra, leituðu þær til Jafnréttisráðs og hefur framkvæmdastjórí þess ritað skólastjóranum bréf þar sem óskað er skýrínga á málinu. „Þetta er óréttlátt og ömurlegt, því við erum einungis að krefjast jafnréttis til náms. f skólanum vísar hver á annan. Skólastjórinn á smíðakennarann og hann aftur á skólastjórann. Við viljum bara fá að velja, eins og við eigum rétt á, enda viljum við frek- ar smíða en að sauma,“ sögðu þær Sigurlaug og Sigríður. Björn Jónsson, skólastjóri Haga- skóla, segir að val sé öllu betri kostur en að skikka nemendur í nám sem þeir hafa ekki áhuga á, eins og í þessu tilfelli. Til að svo geti orðið var ætlunin að endur- skipuleggja og rýmka smíðastofu skólans fyrir nýhafið skólaár, en þar sem viðgerðakostnaður á 18 ára gömlu íþróttahúsi skólans varð meiri en búist var við, varð að fresta fyrirhuguðum framkvæmd- um á smíðastofunni til næsta árs. Bjöm segir það vera erfiðleikum bundið að taka tvær stúlkur í smíðanám, því þar sé allt yfirfullt, svo ekki sé talað um það ef fleiri koma á eftir. Bjöm sagðist ætla að svara bréfi Jafnréttisráðs og skýra málavöxtu fyrir ráðinu. Bima Hreiðarsdóttir, fram- kvæmdastjóri Jafnréttisráðs, segir að í aðalnámskrá grunnskóla á bls. 88 sé skýrt kveðið á um það, í sam- ræmi við lög um jafna stöðu og rétt karla og kvenna, að ekki eigi að skipa nemendum eftir kynjum í hannyrða- og smíðanám. Þá segir í 10. gr. sömu laga, að í skólum og öðrum mennta- og uppeldisstofn- unum skuli kynjum ekki mismun- að. Framkvæmdastjóri Jafnréttisráðs segist líta þetta mál alvarlegum augum, því ef unglingar á þessum aldri verða fyrir því að þeim er mis- munað eftir kynjum í skóla, án þess að nokkuð sé að gert, sé hætta á að þeim finnist það vera sjálf- sagður hlutur, sem það er ekki. „Ef mér þykja útskýringar skóla- stjórans ekki ftillnægjandi, mun ég væntanlega leggja málið fyrir Jafn- réttisráð til formlegrar meðferðar," segir Bima Hreiðarsdóttir, fram- kvæmdastjóri Jafnréttisráðs. -grh Það ætlar að ganga erfiðlega fyrir þær stöllur, Sigríöi Vilhjálms- dótturt.v. og Sigurlaugu Knudsen, að fá ósk sína uppfyllta að læra að smíða frekar en að læra að sauma. Timamynd: Ami Bjam>

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.