Tíminn - 18.09.1992, Qupperneq 7
Föstudagur 18. september 1992
Tíminn 7
SARAJEVO
Hersveitir Serba, múslima
og Króata börðust af mikill
grimmd í Sarajevo, með
það að markmiði að ná
sem bestri vígstöðu áður
en friðarviðræður í Genf
hefjast, en þær hefjast í
dag. Vonir um árangur í
viðræðunum minnka enn,
ekki síst vegna hrokafullra
yfirlýsinga leiðtoga Serba
og músiima.
GENF
Sáttasemjarar á friðarráð-
stefnunni ákváðu í gær að
leggja til hliðar hugmyndir
um skiptingu Bosníu í
fylki, en vonast hafði veriö
eftir að hugmyndirnar
gætu orðið lykill að lausn
á stríðinu í Bosníu.
LONDON
Dick Cheney, varnarmála-
ráðherra Bandaríkjanna,
kom til London til að hitta
breska embættismenn.
Bandaríkin, Bretland og
Frakkiand vinna að sam-
komulagi um að koma á
loftferðabanni yfir Bosníu.
GENF
Ráðamenn í OPEC til-
kynntu að þeir væru að
ná samkomulagi um að-
gerðir, sem miða að því
að hækka verð á olíu. Að-
geröirnar felast í því að
halda olíuframleiðslunni
óbreyttri til ársloka.
WASHINGTON
Sýrland og (srael eru
reiðubúin til að ræða um
framtíð Gólanhæða, sem
(sraelsmenn ráða, eftir að
jákvæðar viðræður fóru
fram milli þjóðanna í
Washington.
BONN
Þjóðverjar tilkynntu að
þeir muni á næstunni reka
úr landi þúsundir Rúm-
ena. Gífuriegar kynþátta-
óeirðir hafa veriö í Þýska-
landi á síöustu dögum og
vikum.
MOSKVA
Borís Jeltsín, forseti
Rússlands, mun undirrita
á næstu dögum tilskipun
um helmingshækkun á ol-
íuverði í Rússlandi.
JÓHANNESARBORG
De Klerk, forseti S.-Afríku,
sagðist ætla að leggja
fram frumvarp sem heim-
ilar blökkumönnum að
sitja í ríkisstjóm. Frum-
varpið mætir andstöðu á
þingi hvítra manna í land-
inu.
NAIROBI
Talsmaður Sameinuðu
þjóðanna sagði að tekist
hefði að ná samkomulagi
við stjórnvöld í Súdan um
að heimila aukið flug með
mat og hjálpargögn til
sveltandi íbúa Súdans.
Ekki náðist samkomulag
um flutninga á landi.
Deilt á framkomu
borgarstjórans
Harðar umræður spunnust á borgarráðsfundi í vikunni út af leynilegum
samningaviðræðum borgarstjóra við hollenskt fyrirtæki og íslenska verk-
fræðistofu um sölu á rafmagni um sæstreng til Hollands.
„Það, sem brennur á okkur, er framkoma borgarstjóra gagnvart borgarráði
í þessu máli og mörgum öðrum,“ segir Sigrún Magnúsdóttir, borgarstjórn-
arfulltrúi Framsóknarflokksins.
„Fjórir af embættismönnum borg-
arinnar hafa tekið þátt í þessum við-
ræðum ásamt borgarstjóra. Fimm
borgarráðsfulltrúum er ekki treyst-
andi til að vita um þetta mál,“ bætir
Sigrún við.
Hún segir að það sé borgarráðs að
taka ákvarðanir, sem embættismenn
síðan framkvæmi. Sigrún vill taka
fram að þetta sé jákvætt mál, þar
sem gert er ráð fyrir að um 400 störf
fylgi verkeíninu.
Af þessu tilefni lagði Sigrún fram
fyrirspurn um hvað liði tillögu
hennar um endurskoðun á stjórn-
kerfi og stjómsýslu borgarinnar og
finnst tímabært í ljósi umræðunnar
að sú endurskoðun sé óhjákvæmileg
og tímabær. Hún segir að hefði hag-
kvæmnisathugunin náð til bygging-
ar sæstrengsverksmiðju eingöngu,
hefði sér ekki þótt þetta ámælisvert.
Hagkvæmnisúttektin tekur á þrem-
ur þáttum, þ.e. virkjunum, orkusölu
til Hollands og svo verksmiðjunni.
Sigrún krafði borgarstjóra því
svara, hvaða ástæða hafi verið fyrir
Reykjavíkurborg að leggja fé í út-
tektina og hvort þetta væri ekki
hlutverk Orkustofnunar og Lands-
virkjunar, þar sem borgin á 45% í
Landsvirkjun. Jafnframt krafði hún
borgarstjóra svara við því hvaðan
honum kæmi heimild til að lofa fjár-
framlögum frá Reykjavíkurborg til
verkefna, sem hvorki borgarráði eða
borgarstjórn hafi verið gerð grein
fyrir. Þá óskuðu fulltrúar minnihlut-
ans í borgarráði eftir bókun þar sem
þeir átelja harðlega að jafn viðamik-
ið mál og aðild Reykjavíkurborgar
að undirbúningi að hagkvæmnisat-
hugun á sölu á rafmagni um sæ-
streng ti Hollands skuli fyrst hafa
borist til eyrna borgarfulltrúa í
gegnum fjölmiðla nær tveimur
mánuðum eftir að borgarstjóri hafði
undirritað viljayfirlýsingu um þá
könnun.
í svari minnihlutans kom fram að
borgarstjóri hafi eingöngu undirrit-
að viljayfirlýsingu um að kannaður
verði grundvöllur fyrir samstarfi við
Hollendinga. -HÞ
Er óráðsíu sjálfstæðis-
manna um að kenna?
Perlan og
Ráðhúsið
soga til
sínfé
Rekstur og viðhald Perlunnar er í
ágúst orðinn 60 millj. kr., en áætl-
un hljóðaði upp á 24 milljónir fyrir
allt árið. Þá er kostnaður við Ráð-
hús Reykjavíkur orðinn 3.5 millj-
arðar og hefur lokafrágangur hækk-
að úr 300 milljónum á þessu ári í
500 miljónir. Þetta er athyglisvert,
þar sem opinber lokakostnaður við
bygginguna var áætlaður 3.2 millj-
arðar króna. Þetta kom fram á
Borgarráðsfundi í vikunni.
Sigrún Magnúsdóttir segir að þeg-
ar leitað sé eftir ástæðum fyrir þess-
um hækkunum, svari sjálfstæðis-
menn því til að reksturinn sé bara
þetta dýrari, eins og í sambandi við
Perluna.
Þá vekur Sigrún athygli á því að
bara síðan í lok júlí hafi lokafrágang-
ur Ráðhússins hækkað um 13 millj-
ónir kr. Jafnframt finnst henni það
einkennilegt og dæmigert að ísland-
slíkanið í Ráðhúsinu, sem var metið
á 35 milljónir kr. í júlí, sé komið upp
í 40 milljónir núna. Hún segist ekki
skilja að líkan, sem hafi verið sett
upp í maí, hafi bætt við sig kostnaði
frá þessum tíma. -HÞ
Kór Langholtskirkju undir stjóm Jóns Stefánssonar. Árlega koma um 20 þúsund manns til að hlýða á
tónlist í kirkjunni, sem er eitt fjölsóttasta tónlistarhús landsins.
Orgelátak í Langholtskirkju:
Safna 30-40 miljónum á 4 árum
Nú er að hefjast heilmikið söfnunarátak þar sem safna á fyrir veglegu 30
radda orgeli í Langholtskirkju. Orgelið mun kosta um 30-40 miljónir króna
og er stefnt að því að lokið verði að safna fyrir þeirri upphæð á fjórum ár-
um.
Samhliða söfnunarátakinu verða
m.a. haldnir styrktartónleikar um
miðjan næsta mánuð fyrir þá, sem
Ieggja mánaðarlega í orgelsjóðinn. í
nóvember verður svo gefinn út geisla-
diskur og snælda, sem innhalda m.a.
lög frá tónleikunum. Þar verða flutt
vinsæl íslensk dægurtónlist í nýrri út-
setningu þeirra Jóns Sigurðssonar,
Ríkharðs Arnars Pálssonar og Ólafs
Gauks. Á styrktartónleikunum koma
fram fjölmargir listamenn og þar á
meðal má nefna Andreu Gylfadóttur,
Egil Ólafsson, Bergþór Pálsson, Pálma
Gunnarsson, Ólafu Kolbrúnu Harðar-
dóttur, Sigríði Beinteinsdóttur og Sig-
rúnu Hjálmtýsdóttur, að ógleymdum
80 manna kór Langholtskirkju undir
stjórn Jóns Stefánssonar kórstjóra og
stórri kammersveit.
Að áliti þeirra, sem til þekkja, er
hljómburður í Langholtskirkju betri
en í nokkru öðru tónleikahúsi hér á
landi og þótt víðar væri leitað. Meðal
annars hafa hljómburðarmælingar
sýnt að hljómburður í kirkjunni svip-
ar til þess besta sem gerist í tónleika-
höllum Evrópu, og skiptir þá ekki
máli þótt samanburður sé gerður við
þekktustu tónleikahallir Vínarborgar,
Amsterdam eða Núrnberg. -grh
Jón Helgason alþingismaður:
Davíð svínbeygir sjáv-
arútvegsráðherra
„Það er öllum, sem með umræðunum fylgjast, þaö ljóst að í landinu er ekki
starfhæf ríkisstjórn. Það er ekki lengur farið eftir þeirri verkaskiptingu,
sem kveðið er á um í stjómarskrá að hver ráðherra skuli bera ábyrgð á sín-
um eigin málum. Forsætisráðherra hefur svipt forsætisráðherra þeim völd-
um. En hvort sem ríkisstjómin situr lengur eða skemur, þá verður það
þjóðinni dýrt ef ríkisstjómin ætlar að halda áfram að sitja til þess eins að
halda áfram hjaðningavígum sínum.“
Þetta sagði Jón Helgason alþingis-
maður, á Alþingi í umræðum um
frumvarp til breytingar á lögum um
Hagræðingarsjóð.
Jón sagði að í heilt ár hafi Davíð
Oddsson forsætisráðherra hunsað
tillögur Þorsteins Pálssonar sjávar-
útvegsráðherra til að bæta starfsum-
hverfi sjávarútvegsins og raunar líkt
þeim við sjónhverfingar. Þrátt fyrir
þetta kjósi sjávarútvegsráðherra að
sitja áfram í ríkisstjórninni á meðan
atvinnuvegurinn, sem undir hans
stjórn heyrir, er að hrynja um allt
land.
.Afsökun sjávarútvegsráðherra er
sú að þeir, sem hann styður svo
dyggilega til forystu í ríkisstjórn-
inni, séu svo þjóðhættulegir menn
að ef hann situr þar ekki áfram,
hvernig sem hann er niðurlægður af
forsætisráðherra, þá er voðinn vís.
Erfitt er að sjá hvernig stjórnarfarið
getur orðið verra,“ sagði Jón.
Starfsmannafundur
á Kópavogshæli:
Frekari sparn-
aður alveg
ómögulegur
Hugmyndir um frekari sparnað
á Kópavogshælinu eru óraun-
hæfar og fjárveitingar frá heil-
brigðisyfirvöldum til Kópa-
vogshælis hafa alltaf verið í lág-
marki, segir í ályktun almenns
starfsmannafundar Kópavogs-
hælis, sem haldinn var nýlega.
Fundurinn mótmælir harð-
lega niðurskurði á fjárveiting-
um og þjónustu til þeirra sem
búa á Kópavogshæli. Einnig er
bent á að félagsmálaráðuneytið
fékk aukin fjárframlög til mál-
efna fatlaðra, en á sama tíma
beittu Ríkisspítalar niður-
skurði gegn því fatlaða fólki
sem býr á hælinu.
—sá