Tíminn - 18.09.1992, Qupperneq 12
AUGLÝSINGASÍMAR 133 0001 n : 686300
Áskriftarsími
Tímans er
686300
AUÐVITAÐ
Suðurlandsbraut 12
Óðruvísi bílasala
BlLAR • HJÓL •
BÁTAR • VARA-
HLUTIR.
MYND HJÁ OKKUR • BÍLL HJÁ ÞÉR
SÍMI 6T9225
m ^CsVBabriel ^//tT HÖGG- DEYFAR Verslið hjá fagmönnum
► varahlutir
> Hamarshöföa l - s. 67-67-44
TVÖFALDUR1. vinningur
Tíiniiin
FÖSTUDAGUR 18. SEPT. 1992
Davíð 1989 og Davíð nú sinn hvor maðurinn? Sigrún Magnúsdóttir, borgarfulltrúi Framsóknarflokks:
Ekki sama hver hefur
byggðirnar að féþúfu
Sigrún Magnúsdóttir, borgarfulltrúi Framsóknarflokksins, ræddi á
fundi borgarstjómar Reykjavíkur í gærkvöidi væntanlegar efna-
hagsráðstafanir ríkisstjómarinnar sem tengjast álögum á sveitarfé-
lög og á hitaveitur.
Sigrún sagði að nú væri annar tónn
í Davíð Oddssyni forsætisráðherra
en árið 1989, þegar hann var borg-
arstjóri og ólmaðist gegn þáverandi
ríkisstjórn fyrir það að láta sér detta
í hug að leggja orkuskatt á sveitar-
félög. í viðtali við Morgunblaðið
sagði Davíð þá m.a. um tillögu, sem
fram kom á Alþingi um þetta mál:
„Það er óþekkt allsstaðar þar sem ég
þekki til að ríkið reyni beinlínis að
gera sér sveitarfélög að féþúfu."
Sigrún benti á að nú hygðist ríkis-
stjórnin fella niður lögguskattinn
svonefnda. í stað hans ætti að leggja
á þríþættan skatt á sveitarfélögin í
landinu: af sorphirðu, snjómokstri
og sérfræðiþjónustu. Þetta ætti að
gefa ríkinu 600 milljónir eða svip-
aða upphæð og lögguskatturinn
gefur af sér nú. Af þessari upphæð
væri líklegt að Reykjavíkurborg
þyrfti að bera um 250 milljónir.
„Það er sérkennilegur munur á
skoðunum Davíðs í árslok 1989 og
nú, þegar hann hyggst gera sér
sveitarfélögin að féþúfu. Þá krafðist
hann fundar með þingmönnum
Reykjavíkur til að knýja á með að
hætt yrði við orkuskattinn. Nú,
þremur árum síðar, finnst hins veg-
ar íhaldsmeirihlutanum engin
ástæða til að funda með þingmönn-
um Reykjavíkur," sagði Sigrún
Magnúsdóttir borgarfulltrúi.
—sá
Lítil einkaþota í
vandræðum:
Lenti á síð-
Fhigmaður b'tiQar tyrkneíkrar rinka-
þotu tílkyuntí um kiukkan 17.30 f gær
að hann ættí í vandirae&um, þar sem
hann ættí vart nóg eldsneytí tít aö
fenda í Keflavík. Þegar tilkynningm
ir um hálfrar kiukkustundar flug ttl
Keflavíkur og taldi sig ciga eldsneyti til
hálfrar khikkustundar flugs. Tvær
þyrlur frá bandaríska henram fóru til
móts við vélina, sem var að koma frá
Gæsaflóa í Kanada, og fyigdu henni til
f Keflavík. Lenti flugvélin
þar setn LoftferðaeftWitiö yffcrheyrðl
með honum var einníg Týrid í fórinni
sem emmitt var heitiö til TVrkiands.
-PS
Fríverslunarsamningur við Tyrkland:
Tollar afnumdir á
tyrkneskum vörum
Um síðustu mánaðamót gekk í gildi fríverslunarsamningur milli
EFTA-ríkjanna og Tyrklands, svo og tvíhliða samningur á milli ís-
lands og Týrklands um afnám tolla á ýmsum landbúnaðarvörum.
Samkvæmt samningnum eru af-
numdir tollar af iðnaðarvörum,
fiski, sjávarafurðum, ýmsum land-
búnaðarvörum og vörum sem fram-
leiddar eru úr landbúnaðarhráefn-
um í TVrklandi. Að sama skapi
munu íslenskar framleiðsluvörur
njóta tollfrelsis við innflutning til
Týrklands. Þrátt fyrir tollfrelsið á
innfluttum tyrkneskum vörum
verða þó áfram lögð á þær vöru-
gjöld, fjáröflunartollar og verðjöfn-
unargjöld að því marki sem slíkir
tollar eru einnig lagðir á vörur frá
EFTA-ríkjunum.
Á síðasta ári voru fluttar inn vörur
frá Tyrklandi að upphæð 120 millj-
ónir króna. Stærstur hluti innflutn-
ingsins, eða 70%, var fatnaður sem
bar 15% toll og fellur hann alveg
niður. Ennfremur fellur niður 30%
tollur sem til þessa hefur verið á
innflutningi á tyrkneskum landbún-
aðarvörum, en að því tilskildu að
þær séu framleiddar þar í landi.
Þessar vörur eru m.a. ferskt græn-
meti, s.s. laukur, hvítlaukur, belg-
ávextir (baunir), spínat, ólífur og
kúrbítur, svo og nokkrar tegundir af
frystu grænmeti. -grh
VILJA FA KROKAFISK AÐ
HÁLFU ÚT FYRIR KVÓTA
Smábátaeigendur í smábátafélag-
Inu Kletti á Norðuriandl eystra
hafa samþykkt ályktun þar sem
því er beint tfl ríkigstjórnar Dav-
íðs Oddsonar að sá afli, sem
veiddur er á línu og handfærí yfir
háveturinn eða á tímabilinu frá 1.
okt. tfl 31 mars, verði að hálfu ut-
an kvóta. Telja þeir að þannig yrði
spyrnt kröftuglega gegn vaxandi
atvinnuleysi meðal sjómanna og
flskverkafólks og minnkandi út-
flutningsverðmætum sjávaraf-
urða. Benda þeir á að fordæmi séu
fyrir því að b'nuútgerð sé efld sér-
staklega og benda f þvf sambandi á
aðgerðir sem Bjami Benediktsson
og stjórn hans stóð að áríð 1968.
í áiyktun félagsins kemur fram
að smábátaeigendur í Kletti vilja
að leitað verði áUts fiskifræöinga
og þeir beðnir að meta hversu
mikla áhættu sé verið að taka þeg-
ar leyfð er lítfð eitt meiri veiði í
þau umhverflsvænu veiðarfæri,
sem hér um ræðir, við uppbygg-
ingu á hrygningarstofni þorsks.
Ásgeir Guðmundsson, forstöðumaöur Námsgagnastofnunar, afhendir Guðrúnu Kristínu Magnúsdótt-
ur og Þórði Helgasyni verðlaun fyrir smásögur þeirra. Tfmamynd: Ami Bjama
Þrjár verðlaunasögur
og nýtt kennsluefni
Smásögurnar „Skóflan — In
memoriam" og „Sál bróðurins,
steinbítsbróðurins" eftir Guðrúnu
Kristínu Magnúsdóttur og sagan
„Og engin sagði neitt" eftir Þórð
Helgason fengu verðlaun í sam-
keppni sem Námsgagnastofnun
efndi til í aprfl sl. í samvinnu við
Samtök móðurmálskennara. Keppt
var um handrit að lestrarefni handa
nemendum í 8.-10. bekk grunnskóia
og voru úrslitin kunngerð í gær.
Ennfremur mælti dómnefndin
með útgáfu smásagna eftir Andrés
Þingflokkur Alþýðubandalagsins ályktar um efnahagsaðgerðimar:
Ríkisstjórnin á villigötum
í ályktun, sem þingflokkur Alþýðubandalagsins hefur gert í tilefni
af síðasta útspili ríkisstjórnarinnar í efnahagsmálum, er því lýst yf-
irað ríkisstjómin hafl í veigamiklum atriðum valið ranga leið.
í ályktun þingflokksins segir að
munurinn á stefnu Alþýðubanda-
lagsins og ríkisstjórnarinnar komi
skýrast fram þegar spurt er hver
eigi að bera kostnaðinn af efna-
hagsumbótunum.
Þingflokkurinn segir að tillaga Abl.
sé að koma á 10% hátekjuþrepi fyr-
ir einstaklinga, sem hafi 200-300
þús. kr. á mánuði, og hjón, sem hafi
400- 600 þús. Slíkt mun að dómi
Abl. skila ríkissjóði 1500-2000
milljónum kr. í öðru lagi vill Abl.
skattleggja fjármagnstekjur. Þing-
flokkurinn telur óeðlilegt að ísland
sé eina landið í V-Evrópu sem
sleppi fjármagnseigendum við að
greiða skatt, og telst flokknum til
að slík skattlagning fjármagns-
tekna umfram eðlilegan sparnað
gæti skilað ríkissjóði 1,7-2,5 millj-
örðum á ári.
Þingflokkur Alþýðubandalagsins
telur þessa stefnu mun vænlegri en
þá stefnu ríkisstjórnarinnar að
lækka álögur á gróðafyrirtæki og
ráðast að heimilunum, fjölmiðlum
og bókaútgáfu. Síðan segir í álykt-
un þingflokksins: „Það er því ljóst
að til viðbótar við þær margvíslegu
skattahækkanir, sem ríkisstjórnin
ákvað sl. vetur, á enn að halda
áfram á sömu braut: að íþyngja al-
menningi í landinu með auknum
sköttum í margvíslegu formi."
Indriðason og Herdísi Hiibner og er
undirbúningur þegar hafinn að út-
gáfu smásagnanna sem hlutu verð-
laun.
Alls bárust 67 handrit í samkeppn-
ina eftir 35 höfunda, en skilafrestur
var til 1. ágúst sl. Tilgangur keppn-
innar var að afla efnis til útgáfu lít-
illa hefta, sem reynst gætu heppileg
til lestrar og umfjöllunar í móður-
málstímum á unglingastigi.
Dómnefndina skipuðu þau Guðni
Kolbeinsson frá Rithöfundasam-
bandi íslands, Heimir Pálsson frá
Hagþenki og Þórdís Mósesdóttir frá
Samtökum móðurmálskennara.
Þá kynnti Námsgagnastofnun í gær
útgáfu á fjölbreyttu kennsluefni. Þar
má nefna nýjan söguatlas, mann-
kynssögu í máli og myndum sem
ætluð er framhaldsskólanemum og
nemendum í efstu bekkjum grunn-
skóia, kortabók handa grunnskól-
um, Vegfarandann sem er endur-
skoðað námsefni í umferðarfræðslu
fyrir 10-..12 ára börn, og Veganesti í
umferðinni sem er nýtt námsefni
fyrir umferðarfræðslu við lok
grunnskóla. -grh