Tíminn - 12.11.1992, Síða 9

Tíminn - 12.11.1992, Síða 9
Fimmtudagur 12. nóvember 1992 Tíminn 9 DAGBOK íþróttamyndir í Ráöhúsinu f salarkynnum ráðhúss Reykjavíkur stendur nú yfir sýning á gömlum og nýjum ljós- myndum sem tengjast sögu íþrótta hér á landi. Sýningin var sett upp f tengslum við 61. þing ÍSf, sem haldið var fyrir skemmstu, og 80 ára afmaeli íþróttasambandsins á þessu ári. Sýningin stendur til 15. nóvember. Ljósmyndimar eru um 60 talsins og þeim skipt niður eftir íþróttagreinum. Ljós- myndasafn Reykjavíkurborgar leggur til eldri myndimar, en nýrri myndimar eru tekn- ar af ljósmyndurum Morgunblaðsins og eru fengnar úr myndasafni blaðsins. Myndirn- ar eru stækkaðar í 40x50 sentimetra stærð, innrammaðar og settar upp á fleka með skýringartexta sem tengist hverri íþróttagrein. Cheeríos á fslandi í 50 ár. Nýir íslenskir pakkar komnir á markaöinn Um þessar mundir eru liðin 50 ár frá því Nathan & Olsen hf. hóf innflutning á Che- erios-hringjum frá General Mills, en þá hafði þetta vinsæla morgunkom aðeins verið eitt ár á borðum Bandaríkjamanna. Cheerios-hringjunum hefur frá upphafi verið afar vel tekið af ísienskum neytendum og í dag er Cheerios eitt söluhæsta morgunkomið á íslenskum markaði. Af þessu tilefni hafa Cheerios-pakkamir verið færðir í íslenskan búning og er lýsing á innihaldi og næringargildi á íslensku, sem og textar sem eru bæði til fróðleiks og ánægju. Einnig hafa pakkamir fyrir Cocoa Puffs og Honey Nut Cheerios verið íslenskaðir og er að finna á þeim myndskreytingar og leiki fyrir böm á öllum aldri. Myndlist, leiklist og tónlist í Gerðubergi Mánudaginn 9. nóvember opnaði Krist- inn E. Hrafnsson myndlistarsýningu í Effinu í menningarmiðstöðinni Gerðu- bergi. Á sýningunni eru skúlptúrar og veggmyndir. Þetta er þriðja einkasýning Kristins, en áður hefur hann sýnt á Kjar- valsstöðum og í Otso gallerí í Finnlandi. Sýningunni lýkur 8. desember. Nú stendur yfir sýningin „Orðlist Guð- bergs Bergssonar" í Gerðubergi. Á sýn- ingunni em Ljóðmyndir, sem em konkr- etljóð Guðbergs frá Súm-ámnum, teikn- ingar t.a.m. myndasögur og teiknuð verk með olíulitum, Ijósmyndasögur, blaða- greinar, kvikmyndir, munir og fleira. í útibúi Borgarbókasafnsins í Gerðubergi er m.a. bókasýning. Einnig gefst sýning- argestum kostur á að hlýða á hljóðverk Guðbergs, sem hann nefnir Ljóðhljóð. Sýningamar em opnar mánudaga til fimmtudaga kl. 10-22, föstudaga kl. 10- 16, laugardaga kl. 13-16 og sunnudaga kl. 14-17. í tengslum vjð sýninguna „Orðlist Guð- bergs Bergssonar" verður flutt leikdag- skrá miðvikudaginn 18. nóvember og fimmtudaginn 19. nóvember kl. 20.30, sem hlotið hefur nafnið SANNAR SÖG- UR — af sálarlífi systra í leikstjóm og samantekt Viðars Eggertssonar úr Tángabókunum svonefndu (Það sefur í djúpinu, Hermann og Dídí og Það rís úr djúpinu). Laugardaginn 14. nóvember kl. 17 verða aðrir Ljóðatónleikar Gerðubergs f vetur. Þá syngur Ingibjörg Guðjónsdóttir sópran, ljóðasöngva m.a. eftir Hjálmar H. Ragnarsson, J. Túrina, L. Bemstein, M. Ravel og V. Bellini. Meðleikari verður Jónas Ingimundarson píanóleikari. Tón- leikamir verða endurteknir mánudaginn 16. nóvember kl. 20:30. Basar á Hallveigarstöðum á sunnudaginn Austfirskar konur halda basar á Hall- veigarstöðum sunnudaginn 15. nóvem- ber kl. 14. TÍMAN<Q | ■:I I l(r;li PÖNTUM BÍLA ERLENDIS MEÐ ÚTIBÚ ALLT í KRINGUM LAN'DIÐ. MUNlbÓDÝRU HELGARPAKKANA OKKAR REYKJAVÍK 91-686915 AKUREYRI 96-21715 BILALEIGA AKUREYRAR interRent Europcar Nastassja Kinski og Quincy Jones. Nastassja Kinski og Quincy Jones fjölga mannkyninu Nastassja Kinski hefur sigrað í for- ræðismálinu gegn fyrri eiginmanni sín- um og ætlar nú að fara að eiga eitt barn enn Leikkonan Nastassja Kinsky er nýlega laus úr erfiðu og harka- legu skilnaðannáli frá fyrri eigin- manni sínum, kvikmyndafram- leiðandanum Ibrahim Moussa. Nastassja bar sigur af hólmi í málinu og hefur nú forræði yfír börnum sínum tveimur, þeim Aloysha, átta ára, og Sonyu sem er sex ára. Nastassja tók fljótlega upp sam- band við bandaríska lagasmiðinn Quincy Jones og var það samband reyndar eitt af vopnum þeim, sem eiginmaðurinn fyrrverandi reyndi að notfæra sér í forræðismálinu. Nastassja, sem er 31 árs, og Quincy, sem er 59 ára, hafa staðið saman í gegnum allar þessar þrengingar og eiga nú von á sínu fyrsta barni saman. En barnið, sem í vændum er, er þriðja barn Nastössju en sjöunda barn Quincys. Þau búa í Los Angeles ásamt börnum Nastössju og sem betur fer er samkomulagið við Ibrahim Moussa ekki verra en svo, að hann hefur fullan umgengnisrétt við börn sín. i spegli Tímans Eins og sjá má er barnsvon hjá Nastössju Kinski.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.