Tíminn - 01.12.1992, Síða 3
Þriðjudagur 1. desember 1992
Tíminn 3
Ríkisstjórnin hefur lýst yfir miklum vilja til að efla framlög til rannsókna- og vísindastarfa.
Rannsóknaráð:
Sér ekki enn stað í
fjárlagafrumvarpi
Þrátt fyrir að ríkisstjómin hafi lýst yfir miklum vilja til að efla rann-
sókna- og vísindastörf og veita rannsóknum og nýsköpun nauðsyn-
legan forgang, í kjölfar skýrslu Efnahags- og framfarastofnunar
Evrópu, OECD, sjást þess ekki nein merki, enn sem komið er í því
fjárlagafrumvarpi sem liggur íyrir Alþingi.
59 af 80 starfsmönnum Jötuns
hefur verið sagt upp störfum frá
og meö 1. desember aö telja. Á
næstunni mun koma í Íjós hve
marga er hægt að endurráða.
Þetta kemur fram í frétt frá fyr-
irtækinu. Þar segir að vegna
verulegs samdráttar í sölu hafi
reynst óhjákvæmilegt að segja
upp meirihluta starfsmanna fyr-
irtækisins. Um er að ræða
starfsmenn véla-, bfla- og vara-
hlutadefldar ásamt bflastæði auk
allra starfsmanna á skrifstofu.
Uppsagnimar ná ekki nema að
takmörkuðu leyti til starfs-
manna raftæknideildar og fóður-
vörudeildar. -HÞ
Þetta kom m.a. fram í ræðu dr. Vil-
hjálms Lúðvíkssonar, fram-
kvæmdastjóra Rannsóknaráðs rík-
isins, á ársfundi þess og Vísindaráðs
sem haldinn var í Háskólabíói sl.
föstudag. Engu að síður sagðist Vil-
hjálmur treysta því að ríkisstjórnin
muni standa við þær yfirlýsingar
sem gefnar hafa verið, meðal ann-
ars um tvöföldun Rannsóknasjóðs
og einnig um ráðstöfun á hluta af
tekjum af sölu ríkisiyrirtækja.
En eins og kunnugt er þá sam-
þykkti ríkisstjórnin í ágúst sl. að
hækka árlegt framlag til Rann-
sóknasjóðs um 200 miljónir á
næstu tveimur árum og sú hækk-
un verði í tveimur jöfnum áföng-
um. í ræðu Ólafs G. Einarssonar
menntamálaráðherra á ársfundin-
um kom fram að samkvæmt þess-
ari ríkisstjórnarsamþykkt ætti ráð-
stöfunarfé Rannsóknasjóðs að vera
a.m.k. 165 miljónir á næsta ári en
það mun vera 110 miljónir á þessu
ári. Að sama skapi er gert ráð fyrir
því að hluti af söluandvirði ríkis-
eigna sem seldar verða á næsta ári,
eða um 300 miljónir króna verði til
ráðstöfunar til rannsókna- og þró-
unarstarfsemi. Af þeassum 300 mi-
ljónum er ætlunin að 100 miljón-
um verði úthlutað til nýrra verk-
efna á sviði rannsókna og þróunar
en 200 miljónir lagðar til hliðar til
myndunar sjóðs fyrir framtíðina
sem vistaður verði hjá Vísinda-
sjóði.
í ræðu ráðherrans kom fram að
hann hefur vissar efasemdir um að
sala ríkisfyrirtækja skili umræddri
upphæð á næsta ári. Ef sá efi geng-
ur eftir, sagði ráðherrann að leita
þyrfti annarra úrræða um íjár-
mögnunina en tilgreindi það ekki
nánar.-grh
Hannes Hafsteinsson, matvælaverkfræðing-
ur hjá Iðntæknistofnun:
Þarf að sameina
rannsóknir í
matvælaiðnaði
Hannes Hafsteinsson, matvælaverkfræðingur hjá Iðntæknistofn-
un, telur að rannsóknir á matvælum, hvort sem um er að ræða
flsk- eða landbúnaðarafurðir, séu of dreifðar. Nauðsynlegt sé að
stofnanir sem sinni rannsóknum á þessu sviði sameinist. Með því
náist fram markvissari vinna og meiri árangur.
Margar stofnanir vinna að rann-
sóknum og þróun í matvælaiðnaði.
Rannsóknarstofnun fiskiðnaðarins
vinnur að rannsóknum á matvæl-
um unnum úr fiski, Rannsóknar-
stofnun landbúnaðarins vinnur að
rannsóknum á búvörum og Iðn-
tæknistofnun vinnur að rannsókn-
um á ýmsum unnum matvælum.
Auk þess er unnið að rannsóknum á
matvælum í Háskóla íslands, hjá
Hollustuvernd ríkisins og víðar.
„Þessar stofnanir eru ekki endilega
að vinna að sömu verkefnum, en
eru að vinna í hver í sínu horni. Við
höfum takmarkað fjármagn í svona
vinnu. Menn eru að slást um sömu
krónurnar. Við gætum náð mun
meiru út úr þessum rannsóknum
með því að vinna saman. Ég er ekki
að segja að það sparist eitthvað á
þessu, en það kæmi miklu mark-
vissari vinna út úr þessu sem gæti
þjónað iðnaðinum og atvinnuveg-
unum miklu betur,“ sagði Hannes.
Hannes telur ekki endilega rétt að
sameina þessar stofnanir, en sjálf-
sagt sé að sameina hluta af starf-
semi þeirra. „Með því að vinna betur
í rannsóknar- og þróunarmálum
náum við betur að keppa við er-
Ienda aðila sem eru í þessum unnu
matvælum og eru kannski með
miklar rannsóknar- og þróunar-
deildir á bak við sig,“ sagði Hannes.
-EÓ
Veigamikill þáttur í vörnum gegn mengun
sjávar er hverskonar umhverfisvöktun:
Eftirlit úr lofti
í síðustu viku var undirritað samkomulag á milli Siglingamála-
stofnunar og Landhelgisgæslunnar um frekara samstarf þessara
stofnana um varnir gegn mengun sjávar og eftirlit á hafsvæðum úr
lofti.
Páll Hjartarsson siglingamálastjóri
segir að þetta samkomulag muni
auka skilvirkni og stuðla að betri
nýtingu á mannafla og fjármunum
jafnframt sem auðveldara verði að
ná þeim markmiðum sem stefnt er
að.
Hafsvæðið sem hér um ræðir er öll
efnahagslögsaga íslands eða 750
þúsund ferkílómetra svæði. Þá er
óvíst hvaða áhrif fyrirhugaður nið-
urskurður ríkisins á rekstrarfé til
Gæslunnar muni hafa áhrif á þenn-
an þátt starfseminnar á næsta ári.
Von bráðar verður ísland aðili að
tveimur fjölþjóðasamþykktum um
viðbrögð gegn mengun sjávar. Þar
er um að ræða svonefnt Kaup-
mannahafnar- samkomulag sem
fjallar um gagnkvæma aðstoð Norð-
urlanda við mengunaróhöpp og
OPRC-samþykktin sem er alþjóð-
legur samningur um samstarf og
viðbrögð gegn olíumengun.
Einn af veigameiri þáttum í vörn-
um gegn mengun sjávar er hvers-
konar umhverfisvöktun og í Kaup-
mannahafnar-samkomulaginu
stefna þjóðirnar, sem aðild eiga að
samkomulaginu, að því að vakta
hafið úr lofti til að draga úr hugsan-
legri mengun sjávar eins og kostur
er. En víða erlendis er umfangsmik-
ið eftirlit með hafsvæðum úr lofti til
að kanna hvort verið sé að varpa
efnum sem hættuleg eru umhverf-
inu eða losa þau á annan hátt í sjó.
-grh
Forystumenn Framsóknarflokksins, Guðmundur Bjarnason, ritari, Haildór Ásgrímsson, varaformað-
ur, og Steingrímur Hermannsson, formaður. Tímamynd sigureteinn
Forysta Framsóknar-
flokksins endurkjörin
Forysta Framsóknarflokksins var endurkjörin á flokksþingi flokks-
ins sem lauk um helgina. Steingrímur Hermannsson var endurkjör-
inn formaður. Steingrímur fékk um 86% atkvæða, en Halldór Ás-
grímsson rúmlega 10%. Halldór var endurkjörinn varaformaður.
Hann fékk um 85% atkvæða, en næst á eftir kom Stefán Guð-
mundsson með um 5% atkvæða. Guðmundur Bjarnason var endur-
kjörinn ritari með um 91% atkvæða og Finnur Ingólfsson var end-
urkjörinn gjaldkeri með um 87% atkvæða.
Sigrún Magnúsdóttir var endur-
kjörin vararitari með um 84% at-
kvæða. Unnur Stefánsdóttir var
kjörin varagjaldkeri með um 46%
atkvæða. Siv Friðleifsdóttir fékk
um 25% atkvæða og Kristinn Hall-
dórsson 23%. Valgerður Sverris-
dóttir gegndi áður stöðu varagjald-
kera.
í miðstjórn Framsóknarflokksins
voru kjörnir eftirtaldir:
Jóhann Pétur Sveinsson Seltjarn-
arnesi (288), Siv Friðleifsdóttir
Seltjarnarnesi (250), Ásta R. Jó-
hannesdóttir Reykjavík (227),
Drífa Sigfúsdóttir Keflavík (221),
Þórólfur Gíslason Sauðárkróki
(219), Bjarni Einarsson Reykjavík
(218), Hrólfur Ölvisson Reykjavík
(209), Hallur Magnússon Borgar-
firði (206), Níels Arni Lund Hafn-
arfirði (205), Örn Gústafsson
Reykjavík (201), Gissur Pétursson
Reykjavík (195), Jón Sveinsson
Reykjavík (187), Þóra Hjaltadóttir
Akureyri (185), Bolli Héðinsson
Reykjavík (179), Haukur Halldórs-
son Reykjavík (178), Karen Erla
Erlingsdóttir Egilsstöðum (169),
Sigurður Geirdal Kópavogi (161),
Anna Kristinsdóttir Reykjavík
(158), Pétur Bjarnason ísafirði
(158), Hafsteinn Þorvaldsson Sel-
fossi (148), Anna Margrét Valgeirs-
dóttir Hólmavík (146), Inga Þyrí
Kjartansdóttir Kópavogi (140), G.
Valdimar Valdemarsson Kópavogi
(138), Jörundur Ragnarsson Egils-
stöðum (134), Þórarinn Sveinsson
Egilsstöðum (124).
Að auki eiga átta fulltrúar frá
hverju kjördæmi sæti í miðstjórn.
Þeir eru kjörnir á kjördæmisþing-
um. -EÓ
Aldraðir fræddir
um umferðarmál
Þessa dagana mun lögreglan í Reykjavík heimsækja félagsmið-
stöðvar aldraðra til að fræða þá um hættur í umferðinni.
Þetta kemur fram í fréttatil-
kynningu frá lögreglunni. Þar
segir að aldraðir séu hlutfalls-
lega flestir af þeim gangandi
vegfarendum sem hafa slasast í
umferðinni á þessu ári. Þess
vegna er sagt að brýnna sé en
áður að efna til umræðu á meðal
þessa hóps um umferðarmál.
Eftir að fundum lýkur segir að
boðið verði upp á ferð með
Strætisvögnum Reykjavíkur til
Bessastaða og að því loknu býð-
ur lögreglan öldruðum í kaffi í
mötuneyti lögreglunnar við
Hverfisgötu.