Tíminn - 01.12.1992, Page 5
Þriðjudagur 1. desember 1992
Tíminn 5
Stjórnmálaályktun 22. flokksþings Framsóknarflokksins:
Núverandi ríkisstjórn hefur
skapað alvarlegan þjóðarvanda
22. flokksþing framsóknarmanna, haldið t Reykjavík 27.-29. nóv-
ember 1992, telur stöðu atvinnuveganna og atvinnuleysi nú alvar-
legasta þjóðfélagsvandamálið. Eftir eins og hálfs árs stjórn Sjálf-
stæðisflokks og Alþýðuflokks er atvinnuleysi á íslandi orðið það
mesta sem það hefur verið frá því fyrir síðustu heimsstyrjöld. í lok
október voru 4200 manns atvinnulausir. Aðilar vinnumarkaðarins
spá því að þetta atvinnuleysi geti allt að því tvöfaldast á næsta ári.
Tekið við góðu búi
Thlið var í september s.l. að sjávar-
útvegurinn yrði rekinn með um það
bil 8 af hundraði meðalhalla á árinu
1993, en eftir aðgerðir ríkisstjómar-
innar metur sjávarútvegurinn hall-
ann a.m.k. 6 af hundraði.
Iðnaðurinn á í vaxandi samkeppn-
iserfiðleikum. Á einu ári hafa 1000
atvinnutækifæri glatast í íslenskum
iðnaði. Hlutdeild hins íslenska
skipaiðnaðar í viðgerðum og ný-
smíðum skipa hefur fallið úr um 40
af hundraði niður fyrir 10 af hundr-
aði.
Þetta em aðeins örfá dæmi um
stórversnandi ástand í atvinnu- og
efnahagsmálum. Fjölmörg fleiri
mætti nefna. Daglegar fréttir em
fullar af slíkum frásögnum.
Höfðinu slegið við
steininn
Ríkisstjórnin hefur í hálft annað ár
neitað að horfast í augu við stað-
reyndirnar. Forsætisráðherra hefur
boðað af kappi óbreytta stefnu. At-
vinnurekendum ber að leysa vand-
ann, segir hann, og frjálshyggju-
mennirnir boða að kenna þurfi fs-
lendingum að vera atvinnulausir.
Þær aðgerðir, sem ríkisstjómin hef-
ur nú gripið til, koma of seint og
ganga of skammt. Flokksþingið get-
ur stutt einstök atriði, t.d. niðurfell-
ingu aðstöðugjalds, enda komi í
staðinn aðrar tekjur til sveitarfélaga.
Hins vegar gagnrýnir flokksþingið
aðgerðimar, ekki síst af eftirfarandi
ástæðum:
* Rekstrargrundvöllur atvinnuveg-
anna er ekki tryggður. Sjávarútveg-
ur verður t.d. áfram með allt að 6 af
hundraði halla.
* Skattar á almenning em stór-
auknir.
* Hátekjumönnum og stóreigna-
mönnum fjármagns er hlíft.
* Virðisaukaskattur á blaða- og
bókaútgáfu og ferðaiðnaðinn mun
valda þessum greinum miklum erf-
iðleikum.
* Mjög lítið er gert til lækkunar
vaxta.
* Sáralítið er gert til að stuðla að
nýsköpun í atvinnulífinu.
Ytri aðstæður
Rétt er að ytri aðstæður hafa stuðl-
að nokkuð að þeim erfiðleikum sem
við blasa. Samdráttur í efnahags-
málum í heiminum hlýtur að hafa
áhrif á okkur íslendinga og þorskafl-
inn hefur dregist saman. Þetta er þó
ekki nema lítill hluti af skýringunni.
Meginástæður erfiðleikanna em
verk ríkisstjórnarinnar, stórhækkun
vaxta og nýjar álögur á atvinnulífið.
Staðreyndin er jafnframt að staða
efnahagsmála var að ýmsu leyti
betri, þegar núverandi ríkisstjórn
tók við en áður hefur verið, til þess
að takast á við slík vandamál.
Þrátt fyrir gífurlega erfiðleika í at-
vinnulífinu haustið 1988, tókst rík-
isstjóm Steingríms Hermannssonar
með samræmdum aðgerðum á ýms-
um sviðum að skapa atvinnuvegun-
um rekstrargmndvöll. Það var for-
senda þeirrar þjóðarsáttar sem náð-
ist í febrúar 1990, sem leiddi til
stöðugleika og mjög lækkandi verð-
bólgu. Verðbólgan er ekki lengur sá
Þrándur í Götu nýsköpunar og
framfara í atvinnulífinu sem áður
var.
Fyrir stjómarskiptin var eiginfjár-
staða atvinnuveganna betri en verið
hafði um árabil og skuldir vom
teknar að lækka. í stað þess að mæta
samdrætti í afla með því að stuðla að
öflugu hagræðingarátaki og lækkun
fjármagnskostnaðar, hóf ríkisstjórn
Sjálfstæðisflokks og Alþýðuflokks
hins vegar feril sinn með fjórðungs-
hækkun vaxta og mörg hundmð
milljóna álögum á sjávarútveginn.
Jafhframt var það fjármagn, sem
verja átti til bráðnauðsynlegrar hag-
ræðingar í sjávarútvegi, tekið í ríkis-
sjóð. Islíkumverkumríkisstjómar-
innar er að finna meginástæðuna
fyrir erfiðleikum atvinnuveganna.
Flokksþing framsóknarmanna var-
ar við þeirri hættu sem íslensku at-
vinnulífi og efnahagslegu sjálfstæði
er stefnt í með þeirri yfirlýstu stefnu
ríkisstjórnarinnar að hafa ekki af-
skipti af erfiðleikum atvinnuveg-
anna. Veikburða íslenskt atvinnulíf
mun ekki standast samkeppni við
auðhringi Evrópu eða framleiðend-
ur sem njóta margs konar bakstuðn-
ings sinna stjómvalda.
Atvinna fyrir alla
Atvinnuleysi samrýmist ekki hug-
myndum íslendinga um félagslegt
réttlæti. Frjálshyggjan telur það
hins vegar eðlilegt og jafnvel nauð-
synlegt stjórntæki. Atvinnuleysinu
fylgir miklu meira en tekjumissir.
Ekkert brýtur fyrr niður kjark og
áræði eða siðferði. í kjölfar atvinnu-
leysisins aukast afbrot og fjölskyldu-
vandamál. Næg atvinna hefur verið
einhver mikilvægasta lyftistöngin í
efnahagsframförum íslendinga und-
anfama áratugi.
Flokksþingið leggur áherslu á að
atvinna fyrir alla er nú sem fyrr
meginmarkmiðið í atvinnumálum
íslendinga. Á meðan fylgt er
óbreyttri efnahagsstefnu geta fram-
sóknarmenn ekki átt samstarf við
núverandi stjómarflokka. Fram-
sóknarflokkurinn mun aldrei taka
þátt í að framkvæma frjálshyggjuna,
hann mun aldrei taka þátt í að rífa
niður það velferðarkerfi, sem með
hörðum höndum hefur verið byggt
upp á undanförnum áratugum, eða
þann atvinnurekstur, sem velferð
þjóðarinnar byggir á. Framsóknar-
flokkurinn leggur hins vegar
áherslu á að íslendingar horfist í
augu við þær miklu breytingar, sem
eru að verða í heiminum öllum, og
aðlagi sig að þeim eins og íslenskir
staðhættir leyifa.
Bakreikningar
hagvaxtar
Margt bendir til þess að stöðnun í
efnahagslífi heimsins verði meiri og
lengri en áður var talið. Eftir mikinn
hagvöxt undanfarinna áratuga liggja
stórir, ógreiddir reikningar. Það
mikla tjón, sem þegar hefur verið
unnið á umhverfinu, er gleggsta
dæmið um það. Framleiðslufyrir-
tæki mega ekki lengur spúa eitur-
efnum út í andrúmsloftið eða varpa
þeim í sjóinn. Þvert á móti er fyrir
framtíð mannkyns óhjákvæmilegt
að verja gífurlegu fiármagni til að
bæta það sem úrskeiðis hefur farið.
Heimurinn mun að öllum líkindum
þurfa að venja sig við minni hag-
vöxt. í þessari heimsmynd standa ís-
lendingar að ýmsu leyti betur að vígi
en margar aðrar þjóðir. Með skyn-
samlegri nýtingu landsins og fiski-
miðanna eiga þau að geta verið var-
anleg auðlind. Orkulindirnar eru
aðeins að litlum hluta nýttar og eft-
irspurnin eftir ómengandi orku
mun fara vaxandi.
íslendingar eru sjálfum sér nógir
um mikilvægustu matvæli. Strjál-
býlt land, fagurt og tiltölulega
hreint, mun í vaxandi mæli verða
eftirsótt af ferðamönnum, og ekki
síst heilsulindir þess. Landið er
einnig vel staðsett á milli stærstu
markaða heimsins. Loks er ómæld-
ur auður í góðri þekkingu unga
fólksins. Með samstilltu átaki at-
vinnulífsins, launþega og stjóm-
valda ber að nýta slík auðæfi til nýrr-
ar framfarasóknar og bættra lífs-
kjara.
Flokksþingið leggur á það ríka
áherslu að horfið verði frá aðgerða-
leysisstefnu eða stefnuleysi núver-
andi ríkisstjórnar og teknir upp
starfshættir sem beri eftirgreind
megineinkenni:
* Náið samstarf atvinnurekenda,
bænda, launþega og ríkisvalds um
lausn erfiðleikanna í atvinnumál-
um.
* Opinberar aðgerðir sem skapa at-
vinnuvegunum rekstrargrundvöll
og treysta stöðugleika í efnahags-
málum og gengi íslensku krónunn-
ar.
* Atvinnumálastefna mörkuð í öll-
um megingreinum atvinnulífsins til
að tryggja næga atvinnu.
* Virk þátttaka ríkisvaldsins í fram-
kvæmd slíkrar stefnu með því að
skapa þann grundvöll sem nauðsyn-
legur er.
I ítarlegri ályktun flokksþingsins
um atvinnumál eru raktar þær að-
gerðir, sem flokksþingið leggur
áherslu á að framkvæmdar verði til
þess að skapa atvinnuvegunum
rekstrargrundvöll, og nefndir fiöl-
margir kostir í nýsköpun í atvinnu-
lífinu. Hér skulu aðeins eftirgreind
meginatriði ítrekuð:
* Vextir verði lækkaðir.
* Skattar á atvinnulífinu verði
Iækkaðir.
* Álögur núverandi ríkisstjómar á
sjávarútveginn verði afnumdar.
* Jöfnunargjald verði lagt á þá er-
lendu samkeppnisframleiðslu sem
nýtur óeðlilegrar ríkisaðstoðar.
Tekjur af slíku gjaldi verði nýttar til
að bæta stöðu atvinnulífsins innan-
lands.
* Stuðlað verði að nýsköpun í ís-
lensku atvinnulífi með áhættufiár-
magni og þátttöku í nýjum fyrir-
tækjum eða nýrri framleiðslu.
* Gert verði öflugt markaðsátak.
Afkoma ríkissjóðs
Flokksþingið styður skynsamlega
viðleitni til þess áð draga úr halla
ríkissjóðs. Jafnvel það verkefni kann
þó að verða að víkja í bráð fyrir
nauðsynlegu átaki til þess að reisa
við hið íslenska atvinnulíf. Sparnað
og niðurskurð í velferðarmálum
verður jafnframt að vanda vel, þann-
ig að ekki bitni á þeim, sem síst
mega sín, eða skaði framtíðarþróun.
Flokksþingið leggur á það ríka
áherslu að aldrei má víkja frá því að
allir geti átt kost á læknisaðstoð og
lyfium án tillits til efnahags. Sér-
staklega varar flokksþingið mjög við
niðurskurði í menntamálum. Vel
menntuð æska á að verða mesti auð-
ur íslendinga ekki síður en annarra
háþróaðra þjóða. Jafnframt er mikil
og stöðug endurmenntun nauðsyn-
leg til þess að íslendingar megi ætíð
vera í fremstu röð menntaðra þjóða.
Flokksþingið telur sjálfsagt að bæta
ríkissjóði tekjumissi með skatti á
fiármagnstekjur og hátekjuþrepi.
Þörf var á
þjóðaratkvæði
Flokksþingið átelur þá ákvörðun
meirihluta á Alþingi að hafna þjóð-
aratkvæðagreiðslu um EES- samn-
inginn. Flokksþingið ítrekar sam-
þykktir miðstjórnar Framsóknar-
flokksins um nauðsynlegar lagfær-
ingar á ýmsum efnisatriðum samn-
ings um hið Evrópska
efnahagssvæði. Sérstaklega leggur
flokksþingið áherslu á að komið
verði í veg fyrir kaup erlendra aðila á
íslensku landi umfram það, sem
nauðsynlegt er vegna atvinnurekst-
urs, og á öruggt eignarhald íslend-
inga á orkulindum og bönkum.
Þingið ítrekar þá afstöðu framsókn-
armanna að veita ekki fiskveiði-
heimildir í íslenskri fiskveiðilög-
sögu í stað viðskiptafríðinda.
Flokksþingið leggur jafnframt
áherslu á að þegar verði sú stefna
mörkuð með samþykkt á Alþingi að
leitað skuli eftir því að breyta samn-
ingi um Evrópskt efnahagssvæði í
tvíhliða samning íslands og Evrópu-
bandalagsins strax og önnur EFTA-
ríki hafa sótt um aðild að bandalag-
inu.
Framsal valds
Jafnvel þótt ofangreind atriði verði
tryggð og efnishlið samningsins tal-
in viðunandi, telur flokksþingið
vafasamt að það standist hina ís-
lensku stjómarskrá að framselja til
eftirlitsstofnunar og dómstóls EFTA
vald, eins og gert er ráð fyrir í samn-
ingnum um hið Evrópska efnahags-
svæði. Flokksþingið ber virðingu
fyrir íslensku stjórnarskránni og tel-
ur að túlka beri allan vafa henni í
hag. Flokksþingið telur því nauð-
synlegt að breyting fari fram á ís-
lensku stjórnarskránni áður en unnt
væri að samþykkja aðild íslands að
hinu Evrópska efnahagssvæði.
Flokksþingið leggur jafnframt
áherslu á að allar vonir um að hið
Evrópska efnahagssvæði eitt og sér
verði einhvers konar bjarghringur
fyrir íslenskt atvinnulíf eru tálvonir
einar. Ef íslenskt atvinnulíf er ekki
sjálft sterkt, mun það eiga erfitt með
að nýta sér kosti sem samningnum
kunna að fylgja. Staðreyndin er að
erlent samstarf, eins og gert er ráð
fyrir í umræddum samningi, getur
orðið hættulegt íslensku fullveldi og
sjálfstæði ef íslenskt atvinnulíf er
veikt. Endurreisn hins íslenska at-
vinnulífs er, einnig vegna áforma
um stóraukið alþjóðlegt samstarf,
mikilvægasta verkefnið í íslenskum
þjóðmálum í dag. Flokksþingið lýsir
fullri ábyrgð á hendur ríkisstjóm-
inni og hvetur til þess að án tafar
verði hafist handa um endurreisn og
nýsköpun í íslensku atvinnulífi.