Tíminn - 18.12.1992, Blaðsíða 4

Tíminn - 18.12.1992, Blaðsíða 4
4 Tíminn Föstudagur 18. desember 1992 Tíminn MÁLSVARI FRJÁLSLYNPIS, SAMVINNU OG FÉLAGSHYGGJU Útgefandi: Tíminn hf. Framkvæmdastjóri: Hrólfur Ölvisson Ritstjóri: Jón Kristjánsson ábm. Aðstoðarritstjóri: Oddur Ólafsson Fréttastjórar Birgir Guðmundsson Stefán Ásgrlmsson Auglýsingastjóri: Steingrlmur Glslason Skrifstofur: Lynghálsi 9, 110 Reykjavfk Sími: 686300. Auglýsingasfmi: 680001. Kvöldsimar: Áskrifl og dreifing 686300, ritstjóm, fréttastjórar 686306, Iþróttir 686332, tæknideild 686387. Setning og umbrot: Tæknideild Tlmans. Prentun: Oddi hf. Mánaðaráskrift kr. 1200,-, verð i lausasölu kr. 110,- Grunnverð auglýsinga kr. 725,- pr. dálksentimetri Póstfax: 68-76-91 Viðvömn Þjóðarsáttin um stöðugleika í efnahagslífi og einhverja jöfnun lífsgæða er rokin út í veður og vind. Með efna- hagsaðgerðum sínum, auknum skattaálögum á almenn- ing, gengisfellingu og niðurbroti velferðarkerfisins hefur ríkisstjórnin snúið við blaði og sagt launafólki stríð á hendur. Hvergi er þess gætt að hafa samráð við nein al- þýðusamtök um allar þær umbreytingar á þjóðfélags- gerðinni, sem stjórnarherrarnir standa að. Þvert á móti er slegið á útrétta hönd stærstu fjöldasam- taka landsins, þegar boðið er upp á framhald þjóðarsátt- ar, og velferðinni engin grið gefin þegar skorið er niður í sparnaðarskyni. Þess er vel gætt að hvergi sé hróflað við eignum og hagsmunum hinna efnaðri, en skattlagning og niðurskurður lendir allur á þeim sem minna bera úr býtum og minna mega sín. Fjölmenni Dagsbrúnarfundurinn, sem haldinn var í fyrradag, er vísbending um það sem koma skal. Kjara- samningum er sagt upp og höfðu fundarmenn stór orð um að hart skuli mæta hörðu og létu engan bilbug á sér finna, þótt umtalsverður hluti félagsmanna gangi at- vinnulaus og enn fleiri verði búnir að missa vinnuna þeg- ar kemur fram á veturinn. Þá hefur Iðja einnig sagt upp samningum og önnur launþegafélög fylgja í kjölfarið. Það er athyglisvert við þá miklu rimmu á vinnumarkaði, sem nú er í uppsiglingu, að fulltrúar launafólksins beina ekki spjótum sínum að sínum hefðbundnu andstæðing- um, vinnuveitendum. Þeir gera allar sínar kröfur á hend- ur ríkisvaldinu og lýsa yfir hver af öðrum að láti ríkis- stjómin ekki af árásum sínum á kjör almennings verði hún að fara frá, og muni launþegasamtökin beita öllu afli sínu til að svo verði, ef ráðherrarnir sjá ekki að sér. Atvinnurekendur hljóta að hafa þungar áhyggjur af hvernig ríkisstjórnin muni leika fyrirtækin í landinu, ef til harðvítugra vinnudeilna kemur. Þeir geta lítið í mál- inu gert, því kröfurnar em ekki um hærri laun, heldur að atvinnuvegunum verði tryggður starfsgrundvöllur og að kjörin verði ekki skert. Atvinnuöryggi og velferð til handa þeim þurfandi er það, sem alþýðusamtökin berjast fyrir og vilja sættast á. Raunverulega eiga launþegar og atvinnurekendur svip- aðra hagsmuna að gæta í þeirri stöðu, sem nú er uppi í þjóðfélaginu. Það er ríkisstjórnin og vanhugsaðar að- gerðir hennar, sem stefna atvinnuvegunum og lífskjör- um almennings í hreinan voða. Þetta skilja forystumenn launþega vel og beina því spjótum sínum að raunveru- legum orsökum vandans, sem á rætur sínar í stjórnar- ráðinu. Aðilar vinnumarkaðarins hafa áður gert með sér fræga sátt með fulltingi stjórnvalda. En nú standa þeir saman frammi fyrir ríkisvaldi sem kýs að magna ófrið í stað þess að efla sátt og samlyndi um þjóðþrifamál. Það er orðið bágt að sjá hverra hagsmuna þessi ríkisstjórn gætir og hver hefur hag af öllum þeim flumbrugangi og óstjórn sem einkennir allan hennar starfsferil. Fátækt og jafnvel örbirgð er að skjóta rótum í þjóðfélag- inu í þeim mæli að óþekkt er á lýðveldistímanum. Skuld- ug öreigastétt er að verða til og er það hrollvekjandi hugsun, ef slíkt á eftir að verða viðvarandi ástand. Stjórnarherramir og aðrir ættu að leggja eyrun við hvað Dagsbrúnarmenn eru að segja þessa dagana. Þeir meina það sem þeir segja og hafa engu að tapa, þótt í harðbakka slái. Fréttamennska hér á Íandi hefur tekift niiklum breytingum undan- farínn áratug og þar á sú sam- keppni sem Stoð 2 hefur veitt rík- issjónvarpi og útvarpi án efa mik- inn hlut að máli. Sem betur fer hafa þessar breytingar í mörgum tilfellum verið jákvæðar og miðað að örari og markvissari frétta- flutningi, jafnframt því sem núer tekið á málum, sem áður þóttu þess eðHs að ekki væri fært að kafa niður í þau. Hvar á að draga mörkin? Það vill stundum gleymast að fréttamennskan er vandmeðfarið starf. Fréttamaður á öflugum miðli fer með mikið vald og jafn- framt hvdir á honum mikii ábyrgð. Öilum geta orðið á mistök í starfi, en það er grundvallaratriöi að fréttamaður sé heiðariegur, bæði gagnvart viðmælendum sín- um og ekki síður gagnvart því fólki, sem hann er að segja fréttir. Einn stærsti ókostur breyttrar flöímiðlunar hér á landí undanfar- In ár er hversu möririn á mílli dag- skrárefnis og augiýsinga eru óskýr. Þannig sjáum við þætti í sjónvarpi í boði einhvers fyrirtæk- is úti í bæ, útvarpsstöðvarnar bjóða okkur að hringja inn og vinna til verðianna sem þeim eru gefín tH þess að gefis hlustendum, og blöð og tímarit fialia um ákveð- ið efni og fá augiýsingar í staðlnn. Afít byggist þetta á sameiginleg- um hagsmunum. Fjölmióiamir þurfa peninga til þess að standa undir rekstri sínum, fyrirtækin þurfa að kynna sig og sína vörn og neytendur þurfa að vita hvað þeim stendur tii boða. Fari þetta þrennt saman er það vei, en því miður vilja hagsmunir neytenda stund- um sitja á hakanum. Dulbúin auglýsing? Ef til vill verður alltaf erfltt að greina á mllli þess hvað eðlilegt geturtalistfkostun dagskrárefnis og hvað eklri, Það liggur hins veg- ar Íjóst fyrir að fréttastofa, sem vili láta taka sig aivarlega, blandar eidri saman augiýsingum og frétt um. Því miður virðist sem frétta- stofa Stöðvar 2 virði eklri alltaf þessa regiu. S.i. þriðjudagskvöid birtist fréti í 19:19 um hækkun á áfengi og tóbaki. í formála fréttar- innar var umrædd hækkun kynnt, en fréttin sjálf fíaUaöi um hveraig hægt væri að gera hagstæð inn- kaup í ríkinu þrátt fyrir hækkun- ina. Viðkomandi fréttamaður, Ól- afur E. Jóhannsson, lét mynda- tökumann fylgja sér eftir á meðan hann týndi upp valdar víntegundir í innkaupakerru og kynnti þær fyrir áhorfendum S meðan, eins og ebkerf væri sjáifsagðara. Ót á þetta gekk fréttin og áhorfandinn var lítlu nær um hækkun áfengis, þaðan af síður tóbaks, en eftir sátu nðfn á nokkrum tegundum áfengis, sem skynsamiegt væri að Skyggir á það sem vel er gert Þetta er því miður ekki eina dæmið um fréttir á Stöð 2, sem eru líkari augiýsingum en frétt- um. Fyrir nokkru flallaði sami fréttamaður um töivuútsölu hjá fyrirtæki út í bæ, rétt eins og hún væri einhver meririsviðburður. Fleira mætti nefna f þessum drúnum, en umrædd tvö dæmi eru öfgafuB. Fréttamennska sem þessl ér ekki bara tif skammar fyr- ir fréttastofu Stöðvar 2, hún er Itka vanvirðing við áhorfendur. Það er sjálfsagt að geta þess líka sem vel er gert, en udanfarið ár hefur fréttastofan tekið miklum hreytingum til batnaðar undir stjóra Ingva Hrafns Jónssonar og ber af í samanburði við keppinaut- ana á Ríkissjónvarpinu. Keðjan er hins vegar aldrei sterkari en veik- asti hlekkurinn og klúður á borð við þau tvö dæmi sem að ofan eru rakin varpa skugga á hitt sem vei er gert. Fréttir eru fréttir og aug- iýsingar eru augiýsingar. Allar tii- raunir til þess að blanda þessu tvennu saman eru til þess eins fallnar að rýra trúverðugieika við- komandi fréttastofu. Garri. Vettlingatök á fortíðarvanda Eitt sinn hélt maður að núverandi forsætisráðherra íslands væri húmoristi og gleðimaður. Undir- ritaður er orðinn svo gamall að hann man þegar forsætisráðherr- ann talaði stundum í Útvarp Matt- hildi um mann sem var kallaður Ólafur böivar og ragnar Grímsson. Davíö Oddsson lék líka Bubba kóng í Herranótt. Allt þetta og og margt fieira var sagt vera fyndið og höfðu menn það almennt fyrir satt. Og jafnaldrar Matthildinga kölluðu sjálfa sig meira að segja fyndnu kynslóðina og voru og eru margir enn vissir um að Davíð sé húmoristi og gleðimaður ekki síð- ur en þeir sjálfir. En getur maður verið viss? Kannski er forsætisráöherrann bara gleðimaður en ekki húmoristi og þar sé kominn hluti skýringar á harla gleðisnauðum ræðum sem hann hefur haldið upp á síðkastið á Alþingi og víðar og viðtölum þar sem hann vandar ekki samferða- mönnum sínum kveðjumar. Hvort það er sökum kímnigáfu forsætisráðherrans og fylgisveina hans að pólitískt atferli þeirra er svo skolli breytilegt eða ástæður þess eru einhverjar aðrar, þá er það nokkurt undrunarefni þegar - svo dæmi sé nefnt - Davíð man ekkert eftir því að hann hafi Iofað því fyrir kosningar að lækka skatta ef hann yrði forsætisráðherra. Það breytir engu þótt spiluð sé fyrir hann myndbandsupptaka þar sem hann lofar þessu skýrum orðum. Ekkert rifjast upp. Hann segist bara ekk- ert hafa sagt það sem hann sagði. Þetta sé allt misskilningur frétta- manna og bull úr Steingrími og Ólafí fyrrnefndum Ragnari og slík- um. Forsætisráðherrann forðast að taka á vitrænan hátt og efnislega þátt í umræðum á Alþingi. Hann ræðir helst ekki skattahækkanir og niðurskurð ríkisstjórnar sinnar, störf eða fyrirætlanir og líklegar afleiðingar og áhrif, heldur stað- hæfir án afláts um meint stjórnar- mistök þeirra Steingríms og Ólafs Ragnars og fleiri og gefur skatta- hækkunum, niðurskurði og lífs- kjaraskerðingum ný nöfn án afláts. Hver kannast ekki orðið við orð eins og þjónustugjöld, aukin þátt- taka í kostnaði, tilfærslur o.s.frv? Forsætisráðherrann með ríkis- stjórn sína í taumi öslar áfram í einhverjum furðulegum tví- hyggju- draumaheimi þar sem hlutirnir hafi farið úrskeiðis vegna þess að illu öflin hafi fengið ráð- rúm til að leika lausum hala og spilla flestu. En góðu öflin eru komin til skjalanna og eru að þrælast í því að kippa málum í rétt- an lið og til þess duga ekki vett- lingatök. En vegna þess hve (for- tíðarjvandinn er stór þýðir ekkert að vera að vasast í aukaatriðum eins og þeim hvað rúmast innan ramma laga stjórnarskrár. Þannig aftekur forsætisráðherra með öllu að ræða efnislega bréf sem forseta Alþingis berst frá Iaga- prófessor við Háskóla íslands vegna þess að prófessorinn sé voðamenni sem skrifaði ljótt í Fréttabréf Háskóla íslands. Hann aftekur að hlusta á rök þeirra sem telja að EES-málið sé þess eðlis að breyta verði stjórnarskrá þess vegna og að þjóðin hljóti að þurfa að segja sitt álit. Alþingismenn sem skyldu sinni samkvæmt eiga að starfa samkvæmt sannfæringu sinni innan ramma laga og stjórn- arskrár segir forsætisráðherrann vera lfkasta flónum í tossabekk í gaggó og vandinn við að stjórna landinu sé fortíðarvandi sem er öðrum að kenna. Fortíðarvandi Reylgavíkur í gær fór fram fyrri umræða um fjárhagsáætlun Reykjavíkur fyrir næsta ár. Búast má við að áætlun- inni - fjárlögum Reykjavíkurborg- ar - verði að loka með 1,3 milijarða gati sem er hlutfallslega verulega verra en margumtöluð slæm staða ríkissjóðs. Reykjavík naut lengi þess að þensla var í þjóðarbúskapnum ekki hvað síst á Reykjavíkursvæðinu og umtalsverð byggðaröskun f gangi þannig að mikill fjöldi gjaldenda fluttist til borgarinnar á hverju ári og tekjur borgarsjóðs urðu æ ofan í æ meiri en ráð var fyrir gert. Og borgarstjórinn datt í fjárfest- ingafyllirí og ákvað að byggja ráð- hús og Perlu. Það væri ekkert mál og í góðu lagi þar sem borgin væri stöndug vegna þess að henni væri vel stjómað. Og ráðhúsið var byggt og Perlan var byggð. En nú er öldin önnur og engin þensla. Bæði Perlan og ráðhúsið urðu miklu dýrari en ráð var fyrir gert og eru nú þungir baggar á Hitaveitu Reykjavíkur annars veg- ar og á borgarsjóði hins vegar. Þess sér stað á fjárhag borgarinnar, til dæmis á yfirdrætti hennar í Lands- bankanum sem var til skamms tíma 2,4 milljarðar króna. En ný- lega tók borgin erlent lán og helm- ingur þess fór til að greiða niður yfirdráttarskuldina um heiming eða svo. Lánið nemur svipaðri upphæð og ráðhúsið stendur nú í. Hér er ekki verið að taka afstöðu til þess hvort byggja hefði átt um- rædd hús eða ekki. En fyrst ákveð- ið var að byggja þá hefði verið skynsamlegt og eðlilegt að gera ráð fyrir því að ýmislegt gæti breyst í þjóðfélaginu en það breytt- ist ýmislegt eins og þjóðin finnur glöggt nú: Borgarstjórinn sem byggði ráð- hús og Perlu í fjárfestingaræði þenslutímanna varð formaður Sjálfstæðisflokksins og flokkurinn vann mikinn og góðan kosninga- sigur í næstu kosningum á eftir og borgarstjórinn varð forsætisráð- herra í ríkisstjóm sem fylgir gjald- þrotastefnu kenndri við frjáls- hyggju. Og allt breyttist í Reykjavík: Nú er þar atvinnuleysi og tekjur borgar- sjóðs miklu minni en áður og óvissari og við bætist þungur kostnaður af óarðbærum fjárfest- ingum borgarstjórans sem nú er forsætisráðherra - og enn er ekki búið að samþykkja fjárlög ríkis- ins.... —sá

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.