Tíminn - 18.12.1992, Blaðsíða 9

Tíminn - 18.12.1992, Blaðsíða 9
Föstudagur 18. desember 1992 Tíminn 9 DAGBOK Gjöf til Forsetaembættisins Hinn 8. desember sl. gengu fulltrúar ÍSÍ, Glímusambandsins og Ólympíu- nefndar íslands á fund Vigdísar Finn- bogadóttur, forseta íslands, og afhentu að gjöf málverk eftir Gunnar Karlsson listmálara. Málverkið er að Bændaglímunni á Bessastöðum 1828 og er gefið í minn- ingu upphafs skólaíþrótta á íslandi. Grímur Thomsen orti mörgum árum síðar magnað kvæði sem ber heitið ,3ændaglíman“, þar sem hann lýsir á snilldarlegan hátt sjálfri glímunni, frammistöðu einstakra glímumanna og stemmningunni í kring. Þorsteinn Einarsson, fyrrverandi íþróttafulltrúi, var í hópi þeirra sem heimsóttu forsetann og flutti hann fróð- lega og greinargóða frásögn af glímunni á fyrri tíð og þýðingu hennar og annarra íþrótta fyrir skólapiltana í Bessastaða- skóla. Forseti íslands þakkaði fallega og sögu- lega gjöf, sem mundi komið fyrir á við- eigandi stað á forsetasetrinu. Félag eldri borgara Göngu-Hrólfar fara ffá Risinu kl. 10 laugardagsmorgun 19. desember og Iaugardaginn 2. janúar. Laugardagsganga Hana nú Vikuleg Iaugardagsganga Hana nú í Kópavogi verður á morgun. Lagt af stað frá Fannborg 4 kl. 10. Ljósvíkingar í skammdeginu Nú hefja Ljósvíkingar innreið sína inn í skammdegið. Hér eru á ferðinni lista- menn sem hafa ritlist og tónlist að leið- arljósi. Desemberhátíð þeirra nær nú brátt há- marki, en í dag, föstudaginn 18. des., verða þeir í Listhúsinu í Laugardal, kl. 20.30 (fyrir framan Hótel Esju). Síðast var hópurinn á Sólon íslandus fyrir full- um sal og voru viðtökur mjög góðar. Þeir sem munu koma fram eru m.a.: Einar Kárason, Vigdís Grímsdóttir, Ólaf- ur Gunnarsson, Kristín Ómarsdóttir, Ari Gísli Bragason, Steinunn Ásmundsdótt- ir, Birgitta Jónsdóttir, Sveinn Óskar Sig- urðsson, Þórarinn Eldjám, Nína Björk Ámadóttir, Snorri Sigfús Birgisson pí- anóleikari og tónskáld, Bryndís Halla Gylfadóttir sellóleikari, Páll Eyjólfsson gítarleikari, Laufey Sigurðardóttir fiðlu- leikari, Rúnar Óskarsson klarinettuleik- ari o.fl. Nú um helgina mun hópurinn koma fram í Selfosskirkju á laugardag kl. 20.30, f Laufafelli á Hellu sunnudag kl. 20.30 og á mánudag í Hveragerðiskirkju kl. 20.30. Nú skal færa birtu og yl inn í skamm- degið. Látum hugarflugur okkar njóta sín í birtu ritlistar og tónlistar. Gerum ékki margt í einu viö stýrið.. Akstur krefst fullkominnar einbeitingar! yUMFERÐAR RÁÐ BILALEIGA AKUREYRAR MEÐ ÚTIBÚ ALLT í KRINGUM LANDIÐ. MUNIÚ ÓDÝRU HELGARPAKKANA OKKAR REYKJAVÍK 91-686915 AKUREYRI 96-21715 PÖNTUM BÍLA ERLENDIS Víkin og ViAey Margrét Hallgrimsdóttir borgarminja- vörður verður með leiðsögn um sýning- una Víkin og Viðey í Nýhöfn í Hafnar- stræti laugardaginn 19. desember kl. 14. Á þessari sýningu gefúr að líta fom- muni sem fundust við uppgrefti í Aðal- stræti og Suðurgötu á áttunda áratugn- um og í Viðey á seinustu fjómm ámm. Fommunir þessir hafa aldrei áður komið fyrir sjónir almennings. Sýningu þessari lýkur á Þorláksmessu, þannig að nú em síðustu forvöð að skoða þessa merku íomgripi, af hverjum vax- spjöldin frá 15. og 16. öld em einstakir, hvort sem litið er til íslands eða útlanda. Grýla og Greppitrýni í heim- sókn í Hlaðvarpanum Grýla gamla, móðir jólasveinanna, er ákaflega hrifin af Hlaðvarpanum. Á laug- ardaginn kl. 15 mun hún heimsækja Hlaðvarpann í þriðja sinn fyrir jól. Þá gefst öllum foreldmm óþekkra krakka tækifæri til að koma með bömin sín og láta Grýlu flengja þi Kötturinn hennar Grýlu heitir Greppatrýni. Hann fótbrotn- aði fyrir 50 ámm og hefur síðan haldið sig undir handleggnum á Grýlu. Klæm- ar hans em hvassar og er öllum krökk- um fyrir bestu að vara sig á honum. Grýla og Greppitrýni verða í Hlaðvarp- anum, Vesturgötu 3, á morgun, laugar- dag, kl. 15. LYFTARAR Úrval nýrra og notaðra rafmagns- og dfsillyftara Viðgerðir og varahlutaþjónusta. Sérpöntum varahluti Leigjum og flytjum lyftara LYFTARAR HF. Sími 91-812655 og 91-812770 Fax 688028 Mest seldu snjóblásararnir. • Margar stærðir, með eða án snigils. • Henta vel í allan snjó. • Mjög lágt verð. interRent Europcar VÉLAR& ÞJÓNUSTA HF Sími 91 - 68 32 66 Zsa Zsa mátti ekki vera aö því aö vera meö allan tímann. En hún var hress, nýkomin úr Evrópureisu þar sem hún kom fram í sjónvarpsþáttum og stundaði heilsustaöi. Jolie Gabor held- ur uppá níutíu og eitthvað ára af- mæliðíviku! Það mætti halda að hin ódrepandi Jolie Gabor, hin sígiida móðir Ga- bor-systranna frægu, gerði ekki annað en að stunda heilsurækt mestan hluta ársins. Svo mikið er víst að hún þarf á mikilli orku að halda í árlegt afmælishald, sem stendur í a.m.k. eina viku. Nú er eitt slíkt nýafstaðið og varð hún þá níutíu og eitthvað ára gömul! Þær mæðgur hafa alltaf kappkost- að að halda aldri sínum leyndum, en ójákvæmilegt er að aldurinn læðist yfir þær eins og aðra, og þar sem þeim hefur tekist að látaa sér bera eins lengi og elstu menn muna, fara einhverjir nærri um árafjöldann sem þær eiga að baki. En afmælishátíðahöld líðandi árs eru sem sagt að baki. Þau hófust með hádegisverði á vinsælum veit- í spegli Támans ingastað og síðan tóku við fleiri hádegisverðir og partí sem vinir hennar héldu Jolie heima hjá sér. Lokapunkturinn var svo fjöl- skylduboð á glæsilegu heimili af- mælisbamsins í Palm Springs. Mæðgurnar fjórar hafa komið ár sinni vel fyrir borð fjárhagslega. Eva gat ekki verið nema nætur- langt á fjölskyldumótinu, vegna þess að hún var á leið með vini sín- um til langs tíma, Merv Griffin, til Bahama til að halda frí í lúxushúsi hans. Zsa Zsa stansaði jafnvel enn styttra, en gaf sér þó tíma til að mæta með áttunda eiginmannin- um, Frederik von Anhalt prinsi. Magda, elsta systirin, býr í næsta nágrenni við mömmuna og hún kom með óvenjulegustu afmælis- gjöfina, peningatré sem hún sagð- ist vonast til að bæri ávöxt! Afmælisgjafirnar vom svo sem ekkert slor. Dæturnar gáfu Jolie fatnað frá Chanel, veski frá Herm- es, súkkulaði frá Evrópu og eftir- lætis lifrarkæfuna hennar frá Ung- verjalandi. Francesca Hilton færði henni myndbönd með Marlene Di- etrich, sem Jolie heldur mikið upp á. Gömlu konunni ætti þess vegna ekki að leiðast meðan hún bíður eftir næsta afmælisdegi. Á hverju ári safnast hinar óviðjafnanlegu Gabor-systur, Magda, Zsa Zsa og Eva, saman til aö halda upp á af- mæii ættmóðurinnar Jolie. Og þaö er ekkert smáræöisafmælishald! Núna tók Francesca, dóttir Zsa Zsa og hótelkóngsins Conrads Hilton, fullan þátt f veislugleöinni.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.