Tíminn - 13.01.1993, Síða 3
Miövikudagur 13. janúar 1993
Tíminn 3
EES samþykkt á Alþingi
með 33 atkvæðum gegn 23
Alþingi íslendinga samþykkti samninginn um Evrópskt efnahagssvæði með
33 atkvæðum gegn 23. Sjö sátu hjá. Áður hafði Alþingi fellt tillögu um að
vísa málinu til ríkisstjómarinnar með 33 atkvæðum gegn 30. Þrátt fyrir að
Alþingi hafi nú samþykkt þennan umdeilda samning getur enn ýmislegt
komið í veg fyrir að hann komist í framkvæmd. Forseti íslands á eftir að
undirrita hann, Evrópubandalagið á eftir að samþykkja hann og gera þarf á
honum breytingar sem allir samningsaðilar þurfa að samþykkja.
Frá atkvæðagreiðslunni á alþingi um EES. Guðni Ágústsson alþingismaður gerir grein fyrir atkvæöi
Sinu. Tímamynd Áml Bjama
Fátt kom á óvart við atkvæðagreiðsl-
una í gær. í samræmi við fyrri yfirlýs-
ingar greiddu þrír sjálfstæðismenn
atkvæði gegn samningnum, þeir Ingi
Bjöm Albertsson, Eggert Haukdal og
Eyjólfur Konráð Jónsson. Sex þing-
menn Framsóknarflokksins sátu hjá
við afgreiðslu málsins, þau Halldór
Ásgrímsson, Jóhannes Geir Sigur-
geirsson, Jón Kristjánsson, Finnur
Ingólfsson, Valgerður Sverrisdóttir
og Ingibjörg Pálmadóttir. Það sama
gerði Ingibjörg Sólrún Gísladóttir,
Kvennalista. Allir þingmenn Alþýðu-
bandalagsins, sjö þingmenn Fram-
sóknarflokks og fjórir þingmenn
Kvennalista greiddu atkvæði gegn
samningnum. Allir þingmenn Al-
þýðuflokks og þingmenn Sjálfstæðis-
flokks, utan þeir þrír sem áður eru
nefndir, greiddu atkvæði með samn-
ingnum.
Áður en atkvæðagreiðslan um
samninginn fór fram voru greidd at-
kvæði um tillögu stjómarandstöð-
unnar um að vísa samningnum til
ríkisstjómarinnar. Tillagan var felld
með atkvæðum Sjálfstæðisflokks og
Alþýðuflokks. Eyjólfur Konráð, Egg-
ert og Ingi Bjöm greiddu atkvæði
með tillögunni ásamt stjómarand-
stöðunni.
Áður en atkvæði vom greidd um
EES-samninginn sté Eyjólfur Konráð
í pontu og óskaði eftir því að gert yrði
þinghlé og þess freistað að ná sam-
stöðu um málið meðal þingmanna.
Forsætisráðherra svaraði og sagðist
telja ljóst að ekki tækist að ná meiri
samstöðu um málið en orðið væri og
þvf væri tilgangslaust að fresta end-
anlegri afgreiðslu málsins. Forseti Al-
þingis tók undir sjónarmið forsætis-
ráðherra og lét atkvæðagreiðsluna
fara fram.
37 þingmenn gerðu grein fyrir at-
kvæði sínu við atkvæðagreiðsluna,
meirihluti þeirra, stjómarliðar. Hér
fara á eftir sjónarmið þriggja þing-
manna.
„Öflugt atvinnulíf er forsenda raun-
verulegs sjálfstæðis og sjálfstæði er
undirstaða alls sem þjóð okkar stend-
ur fyrir. Það er skoðun allra þeirra
sem styðja þennan samning, þar á
meðal forystumanna í okkar atvinnu-
lífi, að hann sé mjög mikilvægur fyrir
okkar atvinnu- og efnahagslíf. Þess
vegna treystir aðildin að Evrópska
efnahagssvæðinu stöðu okkar og
sjálfstæði. Við höldum að sjálfsögðu
fullu forræði í okkar málum og engar
nýjar reglur né breytingar á EES-
reglum sem varða íslensk lög, geta
tekið samþykki án samþykkis Alþing-
is.
Þessi samningur er mikilvægur fyr-
ir konur því fjölbreytt atvinnulíf
styrkir stöðu þeirra og jafnrétti. Ég
vísa í mikilvægar reglur samningsins
um að hægt sé að lýsa dauð og ómerk
ákvæði í kjarasamningum sem brjóta
í bága við grundvallarregluna um
jöfn laun og vemd við því að vera sagt
upp starfi þegar höfðað er mál vegna
brots á jafnréttislögum.
Aðild að Evrópska efnahagssvæðinu
er leið okkar inn á Evrópumarkað án
skuldbindinganna sem fylgja Evrópu-
bandalaginu. Við höfum aldrei fylgt
einangrunarstefhu, miklu fremur
verið fámenn þjóð með mikil áhrif.
Þannig munum við áfram stefna til
framtíðar á jafnréttisgrundvelli f
samfélagi þjóðanna. Ég segi já,“ sagði
Rannveig Guðmundsdóttir.
„Hér eru að verða mikil tímamót. í
umræðum um þetta mál hafa verið
flutt mörg vamaðarorð. En mestu
vamaðarorðin vom landvættimar
e.t.v. að flytja okkur í gær þegar him-
inn og jörð skulfu í þann mund er Al-
þingi ætlaði að samþykkja EES.
Nú er komið fram að allir flokkar, að
krötum undanskildum, styðja svo að
segja óskiptir tvíhliða viðræður við
EB. Fyrri stefna Sjálfstæðisflokksins
nýtur þess vegna fylgis meginþorra
íslenskra alþingismanna þegar við er-
um að ganga í EES. Sjálfstæðisflokk-
urinn skuldar sínum kjósendum
skýringu á því hvers vegna hann
hvarf frá tvíhliða viðræðum.
Það liggur nú fyrir að við höfum lát-
ið undan þrýstingi EB sem krefst
auðlinda okkar í stað tollfríðinda. Það
blasir við að EB fái aðgang að land-
helginni. Spyrja má, til hvers var þá
barist fyrir 200 mílna fiskveíðílög-
sögu ef EB á að móta fiskveiðistefnu
íslendinga hér eftir? Til hvers var bar-
ist fyrir sjálfstæði og lýðræði um
aldaraðir?
Nú fer danskur maður með æðstu
völd í EB svo við emm óbeint komnir
undir þeirra yfirráð á ný. Ég segi nei,“
sagði Eggert Haukdal.
„Mikilvægasti ávinningur þessa
samnings er að íslenskt atvinnulíf
mun búa við sambærilega tolla og
viðskiptareglur og keppinautar okkar
í Evrópu, sem er stærsti og mikilvæg-
asti útflutningsmarkaður íslendinga.
Þrátt fyrir þessa staðreynd get ég ekki
greitt þessum samningi atkvæði mitt
af eftirtöldum ástæðum. Utanríkis-
ráðherra hefúr ofboðið þingi og þjóð
með ofmati á gæðum samningsins. Á
þeim fagurgala ber ég ekki ábyrgð. Þá
miklu umræðu sem verið hefur um
málið hér á Alþingi, hefði mátt spara
ef ríkisstjómin og fylginautar hennar
hefðu haft kjark og þor til að bera
þennan mikilvæga samning undir
þjóðaratkvæði. Þá hefðu landsmenn
fengið nánari útskýringar á kostum
samningsins og göllum. Að fá að vega
og meta eru sjálfsögð mannréttindi í
lýðræðisþjóðfélagi. Þjóðin hefði ekki
aðeins fengið að heyra um þá svörtu
og hvítu mynd sem stjómmálamenn
draga gjarnan upp í hita leiksins,
heldur hefðu aðilar atvinnulífsins,
sem ýta mjög á um að þessi samning-
ur sé staðfestur, sýnt enn betur þá
möguleika sem samningurinn kann
að opna. Þessi kynning hefði farið
fram ef þjóðin hefði fengið að greiða
atkvæð um samninginn.
Hér áðan var því hafnað að bíða með
staðfestingu frumvarpsins þar til
endanlegur texti liggur fyrir, en það
hlýtur að teljast óeðlilegt að staðfesta
samning sem ekki er í sinni endan-
legu mynd. Sjávarútvegssamningur-
inn, sem lengi var beðið eftir, er ekki
ásættanlegur. Síðast en ekki síst var
því hafnað að taka af allan vafa varð-
andi stjórnarskrána. Af þessum
ástæðum greiði ég ekki atkvæði,"
sagði Ingibjörg Pálmadóttir. -EÓ
Ingi Björn Albertsson, alþingismaður, lýsti yfir andstöðu við EES-samninginn við lok umræðu um hann:
INGI BJÖRN ER ENN í AND-
STÖÐU VIÐ RÍKISSTJÓRNINA
Ingi Björa Albertsson, alþingis-
maður Sjálfstæðisflokksins, lýsti
yfir harðri andstöðu við EES-
samninginn undir lok umræðu um
samninginn á Alþingi. Ingi Björa
Næsta verkefni íslensku óperunnar
verður óperettan Sardasfurstynjan
eftir Emmerich Kálmán við texta
Leo Stera og Bela Jenbach í þýð-
ingu Flosa Ólafssonar og Þorsteins
Gylfasonar. Leikstjóri verður Kjart-
an Ragnarsson og hljómsveitar-
stjóri Páll P. Pálsson. Siguijón Jó-
hannsson gerir leikmynd, Hulda
Kristín Magnúsdóttir búninga og
Auður Bjaraadóttir hefur samið
dansa í sýninguna.
Signý Sæmundsdóttir fer með
hlutverk Sylvu Varescu, sardasfurst-
segir að EES sé hugarfóstur Evr-
ópu- krata sem vilji leiða okkur inn
í eina kratíska Evrópu. í gegnum
EES liggi bein leið inn í Evrópu-
bandalagið.
ynjunnar, en Þorgeir Andrésson
með hlutverk Edwins. f öðrum aðal-
hlutverkum verða Bergþór Pálsson,
Jóhanna Linnet og Sigurður Bjöms-
son. Fjöldi annarra söngvara og
leikara kemur fram, þeirra á meðal
eru Kristinn Hallsson, Sieglinde Ka-
hlman, Bessi Bjamason og kór ís-
lensku ópemnnar.
24. og síðustu sýningu á ópemnni
Lucia di Lammermoor, lauk sl.
sunnudagskvöld og höfðu þá um 12
þúsund manns séð óperuna.
—sá
Þrír þingmenn Sjálfstæðisflokks
greiddu að lokum atkvæði gegn
EES, Eyjólfur Konráð Jónsson, Egg-
ert Haukdal og Ingi Bjöm Alberts-
son.
Það virðist hafa komið ýmsum á
óvart að Ingi Bjöm tæki svo ein-
harða afstöðu gegn EES- samningn-
um undir lok umræðunnar. Ingi
Bjöm sagðist hafa verið búinn að
mynda sér skoðun á málinu fyrir all-
löngu en hafi einsett sér að nota all-
an þann tíma sem hann hefði til að
kynna sér málið og vera tilbúinn til
að endurskoða afstöðu sína ef eitt-
hvað nýtt kæmi fram f málinu.
Ingi Bjöm sagðist vera mjög ósátt-
ur við framgöngu Jóns Baldvins
Hannibalssonar, utanríkisráðherra,
í umræðum um málið.
„Ég gagnrýni utanríkisráðherra
harðlega fyrir hvemig hann hefur
hagað orðum sínum að undanförnu.
Þó fannst mér alveg keyra um þver-
bak þegar hann veittist að Stein-
grími Hermannssyni og líkti honum
við Adolf Hitler. Þar var skotið svo
langt yfir markið að það er með ólík-
Ingi Bjöm Albertsson
indum. Menn eiga alls ekki að kom-
ast upp með slíkt."
Ingi Björn fór fram á að forseti vítti
utanríkisráðherra fyrir ummælin.
Forseti varð ekki við beiðninni og
bar fyrir sig að ekki væri í þingsköp-
um heimild til að víta ráðherra fyrir
ummæli sem fallið hefðu fyrr í um-
ræðunum.
Ingi Björn sagði að tíminn eigi eft-
ir að leiða í ljós hvort andstaða hans
við stefnu ríkisstjórnarinnar í þessu
máli og fleiri málum hafi áhrif á
stöðu hans innan flokksins. Sjálf-
stæðisflokkurinn sé stór flokkur og
hann ætti að rúma margvíslegar
skoðanir.
„Ég hef hins vegar orðið var við að
forysta flokksins er ekki mjög
ánægð með minn málflutning. Það
er svo sem ekki í fyrsta sinn sem
hún er óánægð með mig og verður
sjálfsagt ekki í síðasta sinn. Af því
hef ég ekki miklar áhyggjur.
Ég styð ríkisstjórnina til góðra
verka, en ef ég er ósáttur við verk
hennar læt ég þá skoðun mína koma
skýrt fram. Eg tel reyndar að það sé
skylda þingmanna að gera það hvort
sem þeir eru í stjórn eða stjórnar-
andstöðu. Þingmenn eiga að mynda
sér sjálfstæðar skoðanir og fylgja
þeim eftir,“ sagði Ingi Bjöm.
Sardasfurstynjan
f rumsýnd 19. febr.