Tíminn - 21.01.1993, Qupperneq 2

Tíminn - 21.01.1993, Qupperneq 2
2 Tíminn Fimmtudagur 21. janúar 1993 Nýja skipafélagið Royal Arctic Line: Samskip út, Eim- skip inn Nýja dansk-grænlenska skipafélag- i5 Royal Arctic Line sem hyggst halda uppi siglingum milli Dan- merkur, Grænlands og íslands, hefur rift samningum um sam- vinnu við Samskip hf. og ætlar þess í stað að hafa samvinnu við Eim- skip. Eimskipafélagið tók á sínum tíma þátt í undirbúningi að stofnun skipafélagsins en var kastað á dyr að því loknu og Samskip tekið inn í staðinn. Stjórnendur Samskips fengu tilkynningu um þetta ráðslag síðla dags í gær. Rúmlega 92% landsmanna í Þjóðkirkjunni en 1,4% láta skrá sig utan trúfélaga: — / J / |ii f II ■ Truteiogum i veginum fjölgaði um 34% milli ára Félögum í trúfélaginu Veginum kirkjan, Hvítasunnusöfnuðurinn Fjöldi þeirra sem skráðir eru í KJesú Krísts hsdh 160 160 hefúr fjölgað mjög hratt. Vegur- og Aðventistar Hagstofan sendir önnur trúfélög hefur tvöfaldast á Ásatrúarfélag 100 120 inn var fyrst skráður sem trúfélag árlega frá sér skrár um skiptingu s.L tíu árum. Árin 1990 og 1992 Sjónarhæðarsöfn. 50 50 1990 með 297 félaga. Ári síðar mannftöldans eftir trúféiögum. skiptust þeir þannig (tölur slétt- Orð lífsins 30 hafði þeim ftölgað í 489 og aftur í Um 92,2% alira landsmanna voru aðar í heila tugi): Ö.trúfélög 1.500 2.220 654 á síðasta ári, sem er rúmlega í þjóðkirkjunni á síðasta ári og 1990 1992 -----------— þriðjungs fjölgun milli síðustu hafði það hlutfall þá iækkað um Kaþólsb kirkjan 2.400 2.420 Samtals: 7.310 8.730 tveggja ára. í engu Öðru trúfélagi 2,4% á tfu árum. Rúmlega 3% Hvítasunnusöfnuður 900 1.060 ------------------------- varðþáyfir 10% fjölgun. Aftrúfé- landsmanna (um 8.250 manns) Aðventistar 770 780 Þá eru enn ónefndir þeir sem hafa lögum öðrum en þjóðkirkju og fri- voru í fríkirkjusöfnuðum á sfðasta Vegurinn 300 650 látið skrá sig utan trúfélaga, sem Irirkjum eru nú aöeins orðin þijú ári, sem er áhka fjöldi og nokkur Vottar Jehóva 520 540 voru um 3.560 á siðasta ári og sem hafa fleiri skráða félaga held- undanfarin ár, en nokkur fækkun Baháfasamfélag 380 380 hafði þá fjölgað kringum íjórðung ur en Vegurinn, þ.e. Kaþólska frá því fyrir tíu árum. Krossinn 240 320 ááratug. - HEI Skoðanakönnun DV: Sjálfstæðisflokkur er þriðji stærstur Framsóknarflokkurinn nýtur mests kjörfylgis allra stjómmálaflokka og Al- þýðubandalagið er orðið stærra en Sjálfstæðisflokkur, samkvæmt skoðana- könnun sem DV birti í gær. Alþýðuflokkurinn er minnsti stjómmálaflokk- urinn með rúmlega prósents minna fyfgi en Kvennalistinn. Fulltrúar Nýs vettvangs. Kristín Á. Ólafsdóttir og Ólína Þorvaröan dóttir, borgarfulltrúar og Guörún Jónsdóttir varaborgarfulltrúi. Borgarfulltrúar Nýs vettvangs: Auknar arð- greiðslur borgarfyrir- tækjanna í skoðanakönnuninni er byggt á 600 manna úrtaki sem er jafnt skipt milli kynja og jafnt milli lands- byggöar og höfuðborgarsvæðisins. Könnunin var gerð á mánudags- og þriðjudagskvöld. Fylgistölur flokk- anna em eftirfarandi samkvæmt kosningaspá DV (útkoman í síðustu kosningum í sviga fyrir aftan): Alþýðuflokkur........13.0% (15,5) Framsóknarflokkur ....27,9% (18,9) Sjálfstæðisflokkur ...20.5% (38,6) Alþýðubandalag........24,3% (14,4) Kvennalisti...........14,4% ( 8,3) Ef þingsætum væri skipt niður samkvæmt kosningaspá DV, yrði út- koman þessi (núverandi fjöldi þing- sæta í sviga): Alþýðuflokkur.............8 (10) Framsóknarfiokkur.........18 (13) Sjálfstæðisflokur............13 (26) Alþýðubandalag............15 ( 9) Kvennalisti...............9 ( 5) Það sem einkennir þessa skoðana- könnun DV er mikill fjöldi óákveð- inna sem er 43,5%. Samkvæmt út- reikningum DV em skekkjumörkin í könnninni plús/mínus 1,3% fyrir AI- þýðuflokk; 1,8% fyrir Framsókn; 2,1% hjá Sjálfstæðisflokki; 2,8% hjá Alþýðubandalagi; og 1,5% hjá Kvennalistanum. DV spurði líka um fylgi við ríkis- stjómina og komu óvinsældir henn- ar þar berlega í ljós. Aðeins 26,2% þeirra sem tóku afstöðu lýstu sig fylgjandi ríkisstjóminni, en 73,8% em ríkisstjórninni andvígir. Svar- endur skiptust annars þannig ef öll svör em skoðuð að 22,3% vom ríkis- stjóminni fylgjandi, 63% em henni andvígir, 2% svara ekki og 12,7% vom óákveðnir. Niðurstöður könnunarinnar benda iyrst og fremst til mikillar óánægju meðal stuðningsmanna Sjálfstæðis- flokksins og gildir þá einu hvort nið- urstöðumar séu túlkaðar ríkis- stjóminni og stjómarflokkunum í hag. Það er algert einsdæmi að Sjálf- stæðisflokkurinn mælist minni en Alþýðubandalagið. Fulltrúar Nýs vettvangs vilja hækka arðgreiðslur 9 fyrirtækja borgarinnar úr 2% í 6%. Þá á að myndast tekjuauki upp á 1.442 m. kr. sem á að nota til að auka framkvæmdir og efla þjón- ustu í borginni. Þetta kom m.a. fram á fundi sem fulltrúar hreyfingarinnar boðuðu til í gær. Þar kom fram að líklega þurfi fyrirtækin að taka um 1.000 millj. kr. að láni til að standa undir þessu. Þá kom fram að með þessu vill hreyfingin ieggja áherslu á upp- byggingu nýs hjúkmnarheimilis fyrir aldraða, byggingu leikskóla, smíði og kaup á félgslegu húsnæði, nýbyggingu skóla auk annarra at- vinnuskapandi verkefna. Þá er gerð tillaga um að hluti af fjármagninu eða 631 millj. kr. eigi að notast tii þess að bæta peningastöðu borgar- sjóðs einkum yfirdráttarskuld í Landsbanka íslands sem er um 1.4 milljarðar króna. Jafnframt er gert ráð fyrir því að Reykjavíkurhöfn verji sem nemur 6% af skuldlausri endurmetinni eign eða tæplega 390 miilj. kr. til at- vinnusköpunar umfram það sem lagt er til í frumvarpi. Fulltrúar Nýs vettvangs telja eðlilegt að í þvf erfiða árferði sem nú ríki sé eðlilegt að Reykjavíkurborg horfi til þess að auka tekjur sínar, svo unnt verði að ná þvf markmiði að bæta atvinnust- igið í borginni. Þá segja þeir að með því að auka arðgreiðslur sem fyrir- tækjum í eigu borgarinnar sé gert að taka á sig séu þau að taka á sig hluta þeirra efiðleika sem borgar- sjóður stendur frammi fyrir. Á fundinum var lagt fram yfirlit um stöðu þeirra borgarfyrirtækja sem eiga að standa undir þessum tillög- um. Þau fyrirtæki sem eiga að skila mestum arði eru Rafmagnsveita Reykjavíkur sem á að skila tæpum 880 millj. kr. og Hitaveita Reykjavík- ur sem á að skila hátt í 1100 millj. kr. Fram kemur að í árslok 1991 á Rafmagnsveita Reykjavíkur 548 millj. kr. inneign hjá borgarsjóði og hreint eigið fé sé hátt í 18 milljarðar króna. Staða Hitaveitunnar er erfið- ari þar sem hún skuldaði borgar- sjóði 44 milljónir á þessum tíma og skuldar mest allra fyrirtækjanna eða rúmar 1300 millj. kr. -HÞ Skuldir Reykvíkinga hafa tvöfaldast Tíf marks um erfiða stöðu borgar- sjóðs hefur skuld á hvem íbúa tvö- faldast frá árinu 1989 og á sama tlma er hallinn á borgarsjóði helm- ingi meiri að sögn Sigrúnar Magn- úsdóttur, borgarfulltrúa Fram- sóknarflokksins. Hún segir að árið 1989 hafi hver Reykvíkingur skuldað 36.000 kr. en áætlun fyrir þetta ár gerir ráð fyrir 74.000 kr. á hvem borgarbúa. Skuld- ir vísitölufjölskyldunnar hafa einnig tvöfaldast á þessum tíma. Árið 1989 skuldaði hver fjögurra manna fjöl- skylda í borginni 144.000 kr. en skuldar í dag 296.000 kr. -HÞ FRXRMJÖL H.F. FISKIMJÖL - SÍLDARMJÖL - KARFAMJÖL Faxamjöl hí. býður bœndum eftirfarandi mjöltegundir á hagstœðu verði: Fiskimjöl 62% prótein: Verð kr. 37.350 tonnið m. vsk. Karfamjöl 60% prótein: Verð kr. 36.105 tonnið m. vsk. Síldarmjöl 72% prótein: Verð kr. 42.330 tonnið m. vsk. Verðið miðast við afgreiðslu frá verksmiðjudyrum. Mjöiið er unnið úr fersku hráefni sem er forsenda góðrar fóðurnýtingar. Pakkningar: 50 kg sekkir. Frekari upplýsingar í síma 91-24450. FAXAMJÖLHF., Norðurgarði, 101 Reykjavík.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.