Tíminn - 21.01.1993, Qupperneq 3
Fimmtudagur 21. janúar 1993
Tíminn 3
Ráðstöfunartekjur rýrna um 2% vegna hækkunar beinna skatta
að mati Þjóðhagsstofnunar:
Kaupgeta rýrnar
8 sinnum meira
í ár en í fyrra
Beinir skattar heimilanna voru
hækkaðir um rðska 4 milljaröa um
síðustu áramót, að sðgn Þjóðhags-
stofnunar, sem rýrir kaupgetu
fólks um 2% á þessu ári. Gengis-
felling og óbeinar skattahækkanir
valdi 4% verðbólgu, í ár í stað 2%,
þó svo að niðurfelling aðstöðu-
gjaldsins skili sér að fullu í lægra
verðlagi (?). Að ðllu samanlögðu
telur Þjóðhagsstofnun að kaup-
máttur ráðstöfunartekna á mann
verði 5,5% minni í ár en 1991.
Þetta er meira en þrefold sú kjar-
ararýmun — 1,796 — sem þjóð-
hagsáætlun 1993 hafði gert ráð
fyrir, þ.e. áður en gengisfelling og
efnahagsráðstafanir dundu yfir.
Ogátta sinnum meiri en sú 0,7%
kjararýmun sem varð milli 1991 og
1992. Þá vekur athygli, að marg-
rómuð hagræðing í atvinnulífinu
er sögð fjölga atvinnuleysingjum.
Forsendur að framangreindum
spám Þjóðhagsstofnunar eru m.a.
fast gengi og engar launahækkanir
á þessu ári. Þá skiptir greinilega
miklu máli hvemig niðurfelling að-
stöðugjalds skilar sér. Skili hún sér
að fullu í lækkuðu verðlagi segir
Þjóðhagsstofnun hana vega að
mestu á móti hækkun bensíngjalds,
þungaskatts, gjaldtöku í heilbrigð-
iskerfinu og breytingu á virðisauka-
skatti.
100.000 kr. kjör
lækka í 94.500 kr.
Um áhrifin af öllu saman segir svo
orðrétt í endurskoðaðri þjóðhags-
spá:
„Aðgerðir ríkisstjómarinnar í
skattamálum sem lögfestar vom í
lok síðasta árs gera ráð fyrir aukn-
ingu beinna skatta heimilanna um
ríflega 4 milljarða króna. Mat Þjóð-
hagsstofnunar er að aukin byrði
beinna skatta heimilanna rýri ráð-
stöfunartekjur um fast að 2%.
,Að öllu samanlögðu fela forsend-
ur í sér að kaupmáttur ráðstöfunar-
tekna á mann verði um 5,5% minni
á þessu ári en í fyrra. Til saman-
burðar var gert ráð fyrir 1,7% rým-
un kaupmáttar í þjóðhagsáætlun
fyrir árið 1993.“ Fyrir mann með
100.000 kr. til ráðstöfunar á mán-
uði í fyrra, svarar kjararýmunin til
þess að hann hafi aðeins 94.500 kr.
til ráðstöfunar á mánuði nú í ár.
Yfirborganir aukist í
atvinnuleysi
í ljósi þessarar svörtu spár — um
5,5% rýmun ráðstöfunartekna á
mann — breytast tvö undanfarin
„kreppuár" nánast í „góðæri". Sam-
kvæmt tölum Þjóðhagsstofnunar
óx kaumáttur, þ.e. ráðstöfunartekj-
ur á mann, um 2,5% árið 1991 og
rýmaði aðeins um 0,7% árið 1992.
Þar var raunar um minni samdrátt
að ræða en gert hafði verði ráð fyrir
í spá Þjóðhagsstofnunar, sem þakk-
ar það lægri verðbólgu og minni
samdrætti atvinnutekna en hún
hafði spáð fyrir um. Þrátt fyrir 1/2
klukkutíma styttingu vinnuvik-
unnar hefur kaupmáttur ráðstöfún-
artekna á mann því aukist um 1,7%
á síðustu tveim ámm, en ekki
minnkað.
Sérstaka athygli vekur, að stofnun-
in segir vísbendingar um að dag-
vinnulaun hafi hækkað nokkuð
meira en svarar til taxtahækkana á
síðasta ári — þ.e. með öðrum orð-
um að yfirborganir hafi aukist í
jafnhliða atvinnuleysinu.
Sultarólin hert —
kerfið fitnar
í ljósi stórlega minnkandi kaup-
máttar á næsta ári, reiknar Þjóð-
hagsstofnun með að einkaneysla
verði 3,8% minni nú á þessu ári
heldur en árið 1992. En þá er talið
að hún hafi einnig dregist saman
um 3,5% frá árinu á undan. Gangi
þetta eftir mun þjóðin, í lok þessa
árs, hafa „hert sultarólina" um
samtals 796 á árunum 1992 og
1993. Þá blasir samt ekkert betra
við.
Hins vegar er reiknað með að hlut-
fall samneyslu haldi áfram að vaxa
og aukist um 2% á þessu ári. Sam-
neysla mun þá aukast um 2,5% á
sömu árum og einkaneyslan
minnkar um 7%. Þrátt fyrir marg-
umræddan niðurskurð í „kerfinu"
segir spá Þjóðhagsstofnunar sam-
neysluna stefna í 21% af landsfram-
leiðslu á þessu ári, borið saman við
19,5% árið 1991 og 18,8% árið
1990.
Fjórðungs samdráttur
í fjárfestingu
Þjóðhagsstofnun sér fram á mik-
inn áframhaldandi samdrátt í fjár-
festingum. Langmestur verður
samdrátturinn, 22%, hjá atvinnu-
vegunum og um 9% í íbúðarhús-
næði, en opinberar fjárfestingar
aukist hins vegar nokkuð. Að með-
altali er þama um 10,5% samdrátt
að ræða, í kjölfar 14% samdráttar á
síðasta ári. Standist þessi spá drag-
ast fjárfestingar saman um 23%
samtals á árunum 1992 og 1993,
þegar fjárfestingar verða komnar
niður í 15,5% landsframleiðslu.
Hagræðing, aukið at-
vinnuleysi
Sú rómaða „hagræðing" sem
stöðugt er vitnað í til lausnar á
vanda fyrirtækjanna og eflingar at-
vinnulífsins hefur greinilega tvær
hliðar — þar sem hún leiðir einnig
til aukins atvinnuleysis.
Að sögn Þjóðhagsstofnunar hefur
atvinnuleysi nefnilega aukist meira
undanfarin ár heldur en vænta
mátti miðað við þróun helstu hag-
stærða og reynsluna á fyrri sam-
dráttarskeiðum. Til skýringar á
þessu er m.a. bent á hagræðingu í
margvíslegum atvinnurekstri og
breytingar á grunngerð hagkerfis-
ins, á tímum lítillar nýsköpunar.
„Áhrif skipulagsbreytinga af þessu
tagi eru vandmetin og því erfitt að
spá fyrir um atvinnuleysi."
70% fiölgun atvinnu-
lausra áríð 1993
Þjóðhagsstofnun gerir þó ráð fyrir
því að atvinnuleysi eigi ennþá eftir
að vaxa stórlega, eða úr 3% skráðu
atvinnuleysi á síðasta ári, upp í 5%
á þessu ári. Það svarar til þess að
skráðum atvinnuleysingjum fjölgi
úr 3.750 manns upp í 6.400 manns
að meðaltali allt þetta ár.
Jafnframt er ólíklegt talið að at-
vinnuleysi minnki að marki fyrr en
hagvöxtur glæðist á ný — sem
stofnunin telur ekki að vænta fyrr
en í fyrsta lagi 1996. „í þessu sam-
bandi er rétt að vekja athygli á því
að öðrum þjóðum hefur reynst
mjög örðugt að draga að marki úr
atvinnuleysi eftir að það hefur auk-
ist umtalsvert og varað þannig um
tíma,“ segir Þjóðhagsstofnun.
- HEI
LANGAR ÞIG
AÐ LÆRA?
Fullorðinsfræðslan býður upp á allt
helsta námsefni grunn- og framhalds-
skólanna. Um er að ræða bæði nám-
skeið og námsaðstoð, hóp- og einstakl-
ingskennslu.
Enska * Sænska * Danska
íslensk stafsetning
Máluppbygging og málfræði
Hagnýtur reikningur
Hsegt er að Ijúka námi í þessum fögum mcð prófum samsvarandi grunnskólaprófi.
íslenska fyrir útlendinga • Franska • Spænska •
ítalska • Þýska • Stærðfræði • Eðlis- og efnafræði •
Bókhald og skrifstofutækni • Ritaranám • Viðskipta-
enska • Rekstrarhagfræði • Tölvufræðsla
Hsegt er að taka helstu framhaldsskólaafanga með prófum samsiarandi prófáíongum fram-
haldsskólanna
Við bjóðum einnig upp á stutt hraðnámskeið með kcnnslu 3-5 sinnum
í viku.
®°TWOun
25%
AFMÆLIS-
AFSLÁTTUR
S. 1 11 70 /
fullordinsfrædslan
Laugavegl 163.3. hsð -105 Reykjavik
^•FBadeltia
Opið alla daga
allatt ársitts hrittg
Hvellur
Smiöjuvegi 4, Kópavogi
Sími 689 699 og 688 658
SNJÓKEÐJU- OG
HJÓLAMARKAÐUR
fyrir allar vinnuvélar, dráttarvélar,
vörubíla, sendibíla, jeppa og
fólksbíla
• Hefðbundnar gaddakeðjur með þverböndum.
Einnig krosskeðjur.
• Allar algengar sfœrðir á lager. Sérsmíðum
jafnframfmeð stuftum fyrirvara.
Aðeins unnið úr hágœðakeðjuefni frá viður-
kenndum fyrirfœkjum á borð við WEED og ELKEM.
Þverbönd * Krókar * Lásar * Langbönd * Keðjutangir
Allir rata í Snjókeðjumarkaðinn Smiðjuvegi.
Sauðfjárbændur
Óska eftir að fá keypt greiðslumark til sauðfjárframleiðslu.
Upplýsingar í síma 97-11053 eða 97-11054.