Tíminn - 29.01.1993, Blaðsíða 4
4 Tíminn
Laugardagur 29. janúar 1993
„Það er eng-
inn Lewis
Barger hjá
Carolco“
Tíminn hafði aftur samband við Le-
wis Barger, sem hafði í samtölum við
Tímann á fimmtudag og föstudag
síðastliðinn, kynnt sig sem blaðafull-
trúa kvikmyndafyrirtækisins Carolco
Pictures og starfaði hann fyrir útibú
fyrirtækisins í North Carolina fylki. í
samtali við Tímann í gær hélt hann
sig enn við sögu sína, en neitaði að
öðru leyti að tjá sig og virtist óörugg-
ur með sig. Robert Goldsmith, yfir-
maður lögfræðideildar Carolco Pict-
ures í Hollywood, hefur aldrei heyrt á
hann minnst og kemur ekki fyrir á
launaskrám fyrirtækisins.
í samtölum sínum við undirritaðan
fyrr, hafði Lewis Barger lagt áherslu
á að ekki yrði fjallað um málið ann-
ars yrði ekkert af umræddum kvik-
myndatökum hér á landi. í samtöl-
um við Lewis Barger í gær, var það
sama upp á teningnum. Hann sagði
að hann ynni á skrifstofu Carolco
Pictures í North Carolina, en sagðist
ekkert vita um bamsrán á íslandi, en
sagðist hins vegar þekkja Jaqueline
Davies vel og hafa oft unnið með
henni.
f samtölum sínum við blaðamann
fyrir helgi sagði Barger að einn fram-
leiðanda myndarinnar væri ekki
ánægður með þá þróun mála, að sagt
yrði frá tökunum og hann hefði hót-
að því í samtölum við Barger að verk-
ið yrði flutt frá íslandi, til Noregs. í
gær neitaði Barger að segja frá nafni
þess framleiðanda og sagði jafnframt
að líklega hefði verið hætt við gerð
myndarinnar hér á landi og hún yrði
kvikmynduð annars staðar.
Robert Goldsmith, yfirmaður lög-
fræðideildar Carolco Pictures í
Hollywood, sagði í samtali við Tím-
ann að það væri enginn Lewis Barger
starfandi fyrir fyrirtækið í North Car-
oltna og í raun hefðu þeir engan
blaðafulltrúa þar, en hins vegar
hefðu þeir kvikmyndaver þar. Hann
sagði að það hefði verið haft sam-
band við hann fyrr í gær, og í hvert
sinn sem sagan hefði verið sögð hon-
um, þess ótrúlegri yrði hún. Robert
sagðist í samtalinu vera reiður yfir
því að þetta fólk hefði notað nafn fyr-
irtækisins í þessa þágu og sagðist
mundu hafa samband við þennan Le-
wis Barger og krefja hann skýringa.
-PS
Bamaræningjarnir sem handteknir voru í Leifsstöð í gærmorgun:
Dómari frestaði ákvörðun
um gæsluvarðshaldsúrskurð
Ótrúlegur blekkingaleikur. Mannræningjar afhjúpa sig í skelfingaræði vegna óvæntrar og
óþægilegrar athygli:
Fréttin sem hrelldi
atvinnubarnaræningia
Fjölskylda barnanna telur að frétt Tímans sl. fóstudag undir grá-
glettinni fyrirsögn um hugsanlegan nýjan íslandsvin í Sylvester
Stallone, hafi eyðilagt fyrirætlanir hóps bandarískra lukkuriddara
sem í samvinnu við feður tveggja íslenskra stúlkubarna höfðu
gert þaulskipulagða áætlun um að ræna bömunum. Flest bendir
til að þessi ályktun eigi við rök að styðjast, eins og fram kemur á
öðmm stað í blaðinu.
Mannránsmálið er allt með þeim
endemum vaxið að fáum gat dottið
í hug að um jafn stórkostlega svik-
amyllu væri um að ræða, eins og
nú er komið á daginn. Eða hverj-
um dettur svo sem í hug að vera
gerður óafvitandi að þátttakanda í
einhverskonar leikriti þar sem
leiksviðið er ísland, Sviss og
Bandaríkin? Ekki einu sinni móð-
urinni sem „kvikmyndafólkið" réð
til starfa við upplogna kvikmynd
með stórstjömum í þeim tilgangi
einum að ræna hana bömum
hennar og flytja úr landi.
Fréttaskot um
stórmynd
Upphaf þessa máls hér á Tíman-
um er á þann veg að þriðjudags-
kvöldið 19. janúar fékk fréttastjóri
Tímans fréttaskot. í því var greint
frá að í uppsiglingu væri taka kvik-
myndar á íslandi með stórstjörn-
unum Sylvester Stallone og Kim
Basinger á vegum Carolco Pictur-
es. Ákvörðun um þetta lægi fyrir,
Stallone væri búinn að undirrita
samninga við félagið en ekki Bas-
inger en undirskrift hennar væri
svo gott sem tryggð.
Hér á Iandi væri þegar komið fólk
til að finna tökustaði og athuga að-
stæður. Heimsfrægur svissneskur
Ieikstjóri hefði verið ráðinn og
einn lífvarða Stallones væri hér
einnig til að athuga hvemig best
yrði komið við að verja líf hetjunn-
ar. Síðast en ekki síst: Búið væri að
ráða íslenskan umboðsmann eða
tengilið félagsins hér á landi.
Ljósfælnar stjörnur
Blaðamaður Tímans hafði strax á
fimmtudag í síðustu viku samband
við Jacquline Davies á Hótel Sögu
sem gaf sig út fyrir að vera starfs-
mann Carolco Pictures og væri að
leita að tökustöðum vegna vænt-
anlegrar stórmyndar. Málið væri
hins vegar á mjög viðkvæmu stigi
og hún myndi hafa samband síðar
um daginn.
Jacquline hringdi ekki aftur. Það
gerði hins vegar maður að nafni
Lewis Barger sem kvaðst vera upp-
lýsingafulltrúi útibús Carolco í
North-Carolina. Þessi maður stað-
festi við blaðamann Tímans að bú-
ið væri að ákveða að taka þessa
mynd og samningar væm klárir
við Stallone. En vegna þess að
samningar við Kim Basinger væru
ekki frágengnir, mætti alls ekki
birta frétt um málið. Hún væri af-
skaplega uppstökk og gæti orðið
vitlaus og hætt við allt saman. Þá
væri framleiðandi myndarinnar
brjálaður yfir því að málið væri
orðið að fréttamáli. Það hefði átt að
vera algert leyndarmál og allur
ótímabær fréttaflutningur gæti
orðið til þess að hætt yrði við að
taka myndina á íslandi og allt
klabbið flutt til Noregs. Barger
spurði blaðamann hvort hann eða
blað hans vildi bera ábyrgð á því að
hundruða milljóna dala kvikmynd
yrði ekki tekin á íslandi. Hann
sparaði hvorki bænir né hótanir í
þessu efni og gat þess jafnframt að
sjálfur myndi hann missa vinnuna;
„my neck is on the line,“ sagði
hann meðal annars. Eftir þetta
samtal fullvissaði Tíminn sig um
það hjá sérfræðingum hér heima
að það væri rétt að Stallone hafi
áður leikið í myndum sem Carolco
framleiddi og væri enn samnings-
bundinn og að þetta stóra kvik-
myndafyrirtæki væri með útibú
víða og m.a. í North-Carolina. Auk
þess var hringt í númer það sem
Lewis Barger gaf upp og svaraði
símastúlkan að um útibú Carolco
væri að ræða og hjá talsambandi
við útlönd var staðfest að númerið
væri í Carolina fylki. Númerið er
Laugardagur
23. janúar1993
15. tbl. 77. árg.
VERÐILAUSASÖLU
KR. 110,-
20 ár
á Vest-
ianna-
/jagosi
hrtfst á Heima-
ommu eftir mið-
ti aðfaranótt 23.
•úar 1973. Saga
r.s er rakin i iUr-
grein í Timanum
i dag.
ftsíftur Í0-I3
Bandarískt kvikmyndafyrirtæki hyggur á gerð milljóna dollara myndar meö stór-
stjörnum hér á landi á næstunni:
Eignumst við Stall-
one að íslandsvini?
Simkvsmt ireibanltjum htimilJum Timtns cru samninjtavið-
rxáur um töku bandxríiknir reilljóna ilallara itórmyndar i lokaslij(l
oí «í af vcróur vcróa hafnar tökur i myndinni cftir um ijö vikur «u
bandaríikt kvikmyndafyrírUcki itcndur aó £cró royndarínnar. Full-
tníi fyrírtxkisins i ilóifstofu þcss f UandaríVjunum varóist allra
fritta af railinu ( samtali vió Tímann í gxr.
reindýr í byggð
rlcg snjóilötf eru nú á ur f byggó. Þtssi hreindýr
róum og jaróbönn fyrir • voru að reyna að kra/sa sig
( hcimahögum nióur úr fönnunum skammt
ta þvf ( stórhópum niö-
Tímamynd KCÞ.
J.,kk:a Uikkonu .>c k>i.S....y.u ,cn
mun c.ga að lcika islcnslu stúlku
Mikil lcynd hrfur hv.li >-f.r nuil
h«ssu J hilfu In ikniyndafyrirtxkis
ins rn þcjtar hcíur vtnA laðinn is
lcnskur umhoAsmaöur l'ivisiifariv
og hins vcgar einn af lihvróum Syl-
hans tnfur ckki fen>ti
kvikinyndafyriruekim
kvikniymlafynrtxkisi
viófxóna við lciksijórann
llini. tn.kkafulla a.Vallcikki.iu mun
cija að lcika Islenskj stúlku s<m
lcndir I slagtogi viA .Sylvntcr Slall
Tlmans. riögrrt aó inn i myndina
TOLVUR — KULU-
PENNAR NÚTÍMANS?
Fjallnð er um margvíslega nntkim tölva og möguleika i Tímanum i dag. I lclgarvið-
talið á blaðsíðu 6-7 er viö Pétur Þorsteinsson. skrtlastjrtra á Krtpaskcri. Itöfttntl Is-
lcnska menntanctsins.
Þá er Qallað um tölvur og rætt við fólk um þau mál í blaðsiðum 14-15 og 16-17.
hins vegar ekki hjá stúdíóum Car-
olco í N- Carolina eins og fram
kemur annars staðar.
Munnlegt samkomulag var gert
við Barger um að fréttin yrði ekki
birt í föstudagsblaði en honum
jafnframt sagt að ekki yrði beðið
lengur en til laugardags. Vandséð
væri hvað þyrfti að vera leynilegt
við málið og auk þess ólíklegt að
þau Basinger og Stallone gætu
skilið það sem stæði í Tímanum og
stæði vafalaust líka á sama. Hvor-
ugt væri meðal áskrifenda blaðs-
ins.
Þræta við mann þennan hófst síð-
an á ný á föstudeginum sl. og á
endanum var honum sagt að frétt-
in yrði birt. Nafn hans, Jacquline
Davies og Kim Basinger yrði ekki
nefnt að sinni og að hann fengi af-
rit af fréttinni og endursögn henn-
ar á ensku. „Ef fréttin birtist verð-
ur engin mynd tekin á fslandi.
Verkefnið verður flutt til Noregs,"
sagði Barger þá og kvaðst myndu
missa vinnuna.
Enn reynt að blekkja
Enn var haft samband við Lewis
Barger í gærkvöldi og honum gerð
grein fyrir því að misheppnuð
mannránstilraun hefði verið gerð
af „starfsfólki" hans og fleirum á ís-
landi. Barger þóttist ekkert vita
um málið og skilja lítið í málinu.
Hann hélt þó enn fast við það að
enn ætti að taka mynd. Að vísu
ekki á íslandi vegna þess að Tíminn
væri nú búinn að eyðileggja það
fyrir kvikmyndafélaginu og ís-
lensku þjóðinni.
—sá
Eirts og við sögðum frá á síðum
blaðsins í gær, þá var tveimur stúlk-
um, fimm og tíu ára, rænt frá móð-
ur sinni þar sem hún var sofandi á
hótelherbergi. Þeim tókst þó ekki
ætlunarverkið þar sem móðirin
vaknaði og lét vita. Það voru tveir
Bandaríkjamenn, feður stúlknanna,
sem stóðu að baki ránsins ásamt
þremur samstarfsmönnum, sem eru
starfsmenn fyrirtækisins, Corporat-
ed Training, sem sérhæfir sig m.a. í
barnaránum af þessu tagi. Dómari
frestaði í gær ákvarðanatöku um
gæsluvarðhaldsúrskurð yfír mönn-
unum tveimur sem handteknir voru
á Keflavíkurflugvelli í gærmorgun.
Þeir eru James Grayson, faðir yngri
stúlkunnar og síðari eiginmaður og
upphafsmaður ránsins og forstjóri
fyrrnefnds Corporated TVaining.
Hatrömm forræðisdeila hefur átt
sér stað milli móðurinnar og feðra
bama hennar, einkum fyrmefnds
síðari eiginmanns hennar. Hafði
honum verið dæmt forræði telp-
unnar og hún og stúlkumar báðar í
framhaldi af því kyrrsettar í Florida.
Hún hafði hins vegar flúið þaðan
með börn sín og komst eftir króka-
leiðum til íslands.
Áætlun bamaræningjanna náði há-
punkti aðfaranótt miðvikudags, þar
sem hrinda átti bamsráninu í fram-
kvæmd. Reyndar hefur Tíminn vissu
fyrir því að frétt blaðsins á laugar-
dag, þar sem sagt er frá áformum
um að taka mynd með Stallone í að-
alhlutverki, hafi gert mannræningj-
ana áhyggjufulla og taugaveiklaða
og því hafi þau breytt út af áætlun-
um sínum og framkvæmt mun fyrr
en ætlað var. Af þeim sökum hafi
verkið ekki gengið eins og skyldi.
Bamaræningjamir höfðu fengið
Emu Eyjólfsdóttur, móður bam-
anna, til að flytja ásamt börnunum á
Hótel Holt, sem að sögn barnaræn-
ingjanna var gert í öryggiskyni
þannig að fjölmiðlar næðu ekki í
hana. Á þriðjudagskvöld hafi þau
setið og spjallað og er talið að þau
hafi gefið Emu svefnlyf, sem hafi
haft tilætluð áhrif. Þegar Ema vakn-
ar hefur hún samband við lögreglu,
sem bregður skjótt við og hefur
samband við útlendingaeftirlitið
sem tókst að stöðva tvo mannanna
fimm, síðari eiginmann Emu og
fulltrúa fyrirtækisins Corporated
TVaining, sem tók að sér fram-
kvæmd ránsins, ásamt yngri stúlk-
unni og voru þeir handteknir.
Jacquline Davies ásamt tveimur
karlmönnum öðmm tókst hins veg-
ar að komast í flug til Luxemborgar
þar sem þau voru handtekin. í för
með þeim var eldri dóttir Ernu og
var hún send aftur til íslands með
lyrstu vél. Þremenningamir voru
hins vegar látnir lausir og er ekki
gert ráð fyrir að framsals verði kraf-
ist.
Faðir yngri stúlkunnar og starfs-
maður Corporated Training voru
færðir í Síðumúlafangelsi og var
krafist gæsluvarðhaldsúrskurðar yf-
ir þeim í gær. Héraðsdómari tók sér
sólarhringsfrest til að taka ákvörðun
um varðhaldið. Feðmm beggja
stúlknanna hefur verið úrskurðaður
fullur umráðaréttur yfir stúlkunum
tveimur, en eins og komið hefur
fram á hún stúlkurnar með sitthvor-
um fyrrverandi eiginmönnum.
Gegn úrskurði dómstóla þess efnis,
að hún mætti ekki hverfa á brott
með dætur sínar, þá gerði hún það
og kom hingað til lands þann 18.
april síðastliðinn. -PS