Tíminn - 29.01.1993, Síða 16
AUGLYSINGASIMAR: 680001 & 686300
Áskriftarsími NÝTT OG
Tímans er ferskt
686300
reiðholtsbakarí VÖLVUFELU13 - SÍMI73655
i
HÖGG-
DEYFAR
Yersiið hjá fagmönnum
varahlut
Haoursböfða l - s. 67-6"
7-44J
Tímiim
FÖSTUDAGUR 29. JANÚAR 1993
Fundaherferð forustu ASÍ með stjórnum verkalýðsfélaga um landið lauk á ísafirði í fyrrakvöld: Formaður Alþýðusambands Vestfjarða:
Krafist verður 7%-
10% launahækkunar
Pétur Sigurðsson formaður Alþýðusambands Vestfjarða og vara-
þingmaður Sighvats Björgvinssonar heilbrigðisráðherra, segir að
verkalýðshreyfíngin eigi ekki annarra kosta völ en að krefjast 7%-
10% launahækkana yfír alla línuna í komandi samningaviðræðum
við atvinnurekendur. Hann segir að þessi launahækkun sé nauðsyn-
leg til að leiðrétta það sem búið sé að taka af launafólki.
Ef ekki verður fallist á þessa kröfu
verður verkalýðshreyfingin að sækja
þessar launahækkanir með fullum
krafti og sameiginlegum styrk.
„Við höfum stysta mánuð ársins,
febrúar, til að láta reyna á hvaða
möguleikar eru til samkomulags við
atvinnurekendur um þessa launa-
hækkun. Síðan höfum við marsmán-
uð til að knýja á um lausn. Ef þetta
gengur ekki svona upp þá hefur
verkalýðshreyfingin tapað stríðinu."
Hann segir að kröfur verkalýðshreyf-
ingarinnar fyrir komandi samninga-
gerð hafi aldrei verið einfaldari eða
skýrari en einmitt um þessar mundir.
„Það er búið að hafna þeim sam-
komulagsleiðum sem voru opnar sl.
nóvember. Ríkisstjómin valdi þann
kost að hafna þeim. Þess vegna er ég
ekkert sammála mönnum innan ASI
sem halda því fram að það sé enn
möguleiki að snúa ofan af þessum
efnahagsaðgerðum ríkisstjómarinn-
ar. Ef eitthvað er, þá ætti ríldsstjómin
að hafa frumkvæði að því að taka upp
þann þráð sem hún sleit en ekld
verkalýðshreyfingin."
Formaður Alþýðusambands Vest-
fjarða segir að ef kjaraskerðingin
verði ekki sótt til baka af krafti þá
verða laun hins almenna launa-
manns, eftir eitt til tvö ár, aðeins
helmingurinn af því sem þau eru í
dag. Þá segist hann vera alveg á móti
öllum beiðnum verkalýðshreyfingar-
innar til ríkisvalds og atvinnurekenda
um að leysa málin með einhverjum
félagsmálapakka.
„Við erum búin að bjóða allt sem við
getum boðið í þeim efnum og því var
hafnað.“
í fyrrakvöld lauk fundaherferð for-
ustu Alþýðusambands íslands með
stjómun verkalýðsfélaga um land allt
með fundi á ísafirði. Tilgangurinn
með þessum fundum var að hlusta á
sjónarmið heimamanna á hverjum
stað til komandi kjaraviðræðna og at-
vinnuástandsins. Á þessum fundum
hefúr fólki verið tíðrætt um þá kjara-
skerðingu sem launafólk hefúr orðið
fyrir vegna efnahagsaðgerða stjóm-
valda og lýst yfir vilja sínum og sækja
þá skerðingu til baka. Hins vegar
horfa menn ekkert framhjá þeirri
staðreynd að það er ákaflega erfið
staða í þjóðfélagi sem byggir afkomu
sína aðallega á fiskveiðum í Ijósi þess
Pétur Sigurðsson formaður
Alþýðusambands Vestfjarða.
að þorskkvótinn hefur verið skorinn
niður um allt að 100 þúsund tonn.
„Þrátt fyrir það á hvorki atvinnurek-
endum eða ríkisvaldi að leyfast að
nota þetta ástand til að hræða fólk frá
því að leita réttar síns.“
Á fundi á Húsavík í vikunni, mátti
skilja af orðum forsætisráðherra að
hann væri jafnvel tilbúinn til að liðka
fyrir gerð kjarasamninga með að-
gerðum í vaxtamálum. Pétur Sig-
urðsson segir að vextimir geti ekki
orðið einhver skiptimynt í komandi
kjaraviðræðum.
, J>að er búið að lýsa því yfir að vextir
séu frjálsir og ráðist af verðlagi og
verðlagshorfúm í landinu. Forsætis-
ráðherra getur því ekki risið upp á
fundi á Húsavík og lýst því yfir að
hann hafi allt í einu eitthvað vald yfir
vöxtunum. Þetta eru bara einræður
hans við Húsavíkur-Jón.“ -grh
Guðmundur Árni hvorki játar né neitar því að hann og Jón Sig. hafi
samið um að hann setjist á þing í vor:
Var samið um banka-
stjórann vorið 1991 ?
Guðmundur Árni Stefánsson, ist flest benda til að hart yrði tekist
bæjarstjóri í Hafnarfírði, seg-
ist engu vilja svara getgátum
um að gert hafí verið sam-
komulag um það fyrir síðustu
kosningar, að hann tæki sæti á
Alþingi á miðju kjörtímabilinu
og Jón Sigurðsson, iðnaðar-
ráðherra, tæki við embætti
seðlabankastjóra. Guðmundur
Árni hvorid játar því né neitar
að slíkt samkomulag hafí verið
gert.
Fyrir síðustu kosningar stóð til að
efna til prófkjörs meðal alþýðu-
flokksmanna á Reykjanesi og virt-
á um fyrsta sætið á listanum, milli
GuðmundarÁrna og Jóns Sigurðs-
sonar. Þegar til kom var hætt við
prófkjör og Guðmundur Ámi féllst
á að taka fjórða sætið á listanum.
Alþýðuflokkurinn fékk þrjá menn
kjöma á þing í síðustu kosningum.
Allt frá því að ákveðið var að
hætta við að halda prófkjörið, hef-
ur verið sterkur orðrómur um að
Jón og Guðmundur Ámi hafi sam-
ið um að Guðmundur Árni fengi
þingsæti þegar Jón yrði banka-
stjóri í Seðlabanka á miðju ári
1993. Enginn fæst þó til að stað-
festa að slíkt samkomulag hafi ver-
ið gert. -EÓ
Guðmundur Ámi Stefánsson
...ERLENDAR FRÉTTIR...
JERÚSALEM
Hæstiréttur dæmdi
brottrekstur löglegan
Hæstiréttur fsraels úrskuröaöi f gær
einróma réttmæti brottrekstrarins á
415 Palestfnumönnum til Lfbanon og
hafnaöi kröfum um aö þeir yröu taf-
arfaust fluttir heim. I MARJ AZ- ZO-
HOUR, I einskismannslandinu f suö-
urhluta Lfbanon, sem sami sjö
manna dómstóll heimilaöi hernum
aö ffytja mennina til fyrir sex vikum,
sagöi leiötogi útlaganna aö Israels-
menn ættu eftir aö iörast þessara
geröa.
ZAGREB
Áfram barist í Króatíu
Króatfska útvarpiö sagöi f gær aö
bardagar heföu haldiö áfram f fyrri-
nótt milli Serba og Króata f fyrmm
júgóslavneska lýöveldinu Króatlu en
aö vopnahlé I grimmilegum átökum
milli Króata og fyrmm múslimskra
vopnabræöra þeirra heföi tekiö gildi I
grannrlkinu Bosnlu.
Hjá SAMEINUÐU ÞJÓÐUNUM var-
aöi öryggisráöiö Króata viö ótil-
greindum aögeröum nema yfirvöld I
Zagreb stöövuöu án tafar sóknina
gegn Serbum á vamarsvæöum S.þ.
umhverfis Krajina-héraö. Boutros
Boutros- Ghali, aðalritari S.þ., sak-
aöi Króata um aö færa út árásirnar
og sagöi aö Serbar heföu I haldi 21
borgaralegan lögreglumann S.þ. I
bænum Benkovac til að tryggja ör-
yggi sitt gegn áframhaldandi árásum
Króata.
NÝJA DELHI
Deila um skuld til
Rússa leyst
Bóris Jeltsin, Rússlandsforseti,
sagöi I gær aö leiðindadeila um
skuld Indlands viö Rússland, sem
álitin er nema um 16 milljöröum doll-
ara, heföi verið leyst og lagöi til aö
sala á vopnum til yfirvalda I Nýju
Delhi yröi stóraukin. .Vandamáliö er
ekki lengur fyrir hendi," sagöi
Jeltsln I hádegisveröarboöi meö
indverskum kaupsýslumönnum eftir
aö geröir höfðu veriö samningar I
smáatriöum viö forystumenn I Ind-
landi aö hans sögn.
LONDON
Major kærir 2 blöð
fyrir meiðyrði
Breski forsætisráöherrann John
Major sagöi I gær aö hann ætlaði aö
kæra tvö tlmarit fyrir meiöyröi vegna
frásagna af þrálátum orðrómi um aö
hann héldi fram hjá konu sinni meö
annarri konu. Tilkynning forsætisráö-
herra, sem sumir segja aö eigi sér
engin fordæmi meöal sitjandi forsæt-
isráöherra, var sett fram I ákafri um-
ræðu um tillögur um aö setja hömlur
á frelsi breskra blaöa til aö hnýsast I
einkallf fólks I opinberum stööum.
SAN FRANCISCO
Hommar marséra til
stuðnings Clinton
Mörg hundruð kynhverfra karla og
kvenna, nokkrir I einkennisbúningum
hersins, þrömmuðu um San Franc-
isco I gær I skrautsýningu til stuön-
ings umdeildri áætlun Bills Clinton
Bandaríkjaforseta um aö aflétta
banni á herþjónustu homosexúala. I
WASHINGTON sögöu starfsmenn I
Hvlta húsinu að Clinton ætlaöi ekki
aö aflétta banninu afdráttarlaust,
heldur myndi hann gefa út tilskipun I
nánustu framtlö um aö nýliöar veröi
ekki lengur spuröir hvort þeir væru
kynhverfir.
SAMEINUÐU ÞJÓÐIRNAR
Bandaríkjamenn frá
Sómalíu — S.þ. taka við
Boutros Boutros-Ghali, fram-
kvæmdastjórí S.þ., sagöi I gær aö
skiptin I Sómallu milli stjórnar
Bandarlkjanna til stjórnar Samein-
uöu þjóöanna gætu tekiö allt aö hálft
ár. Heimildir hjá S.þ. sögöu aö Warr-
en Christopher, utanrlkisráöherra
Bandarlkjanna, ætlaöi aö heimsækja
S.þ. nk. mánudag til aö ræöa um
brottflutning bandariska liösins frá
Sómallu en þangaö var þaö sent til
að verja neyöaraöstoö viö sveltandi
fólk.
DENNI DÆMALAUSI