Tíminn - 05.02.1993, Page 7
Föstudagur 5. febrúar 1993
Tíminn 7
Almennur fundur um atvinnumál haldinn á Selfossi:
Tilvistarkreppa hjá
sunnlenskum stjórum?
Suðurland hefur í atvinnumálum dregist aftur úr, samanborið við
aðra landshluta. Ástæðan er meðal annars sú að stjómendur fyrir-
tækja í landshlutanum eru haldnir tilvistarkreppu og að þeim fyrir-
tækjum, sem sprottið hafa upp ný í héraðinu, hafa stjórnendur ver-
ið sóttir til Reykjavíkur og þeir eru búsettir þar. Þetta kom fram í
framsöguræðu sem Þorsteinn S. Ásmundsson, formaður Atorku —
félags atvinnurekenda á Suðuriandi, flutti á fjölsóttum fundi um at-
vinnumál, sem atvinnurekendur og Alþýðusamband Suðuriands
(ASS) héldu á Selfossi á þriðjudagskvöld sl.
Þorsteinn S. Ásmundsson lýsti í
ræðu sinni eftir því fólki, sem geng-
ið hefði í gegnum sunnlenskt
menntakerfi og haldið að því búnu
til háskólanáms. Sér virtist ekki
þetta fólk starfa á heimaslóð að
námi loknu. Þá kvaðst hann telja að
hlutfall þeirra sunnlensku ung-
menna, sem færu í langskólanám,
væri langt undir landsmeðaltali.
Ennfremur vitnaði Þorsteinn til
þess að fyrir um það bil áratug síðan
hefði Heimir Pálsson, þáverandi
skólameistari Fjölbrautaskóla Suð-
urlands, viðrað þá skoðun sfna að
nemendur úr sunnlenskum fram-
haldsskólum væru illa búnir undir
framhaldsnám.
Þessi orð Heimis vöktu hörð við-
brögð á sínum tíma, en Þorsteinn
telur þau raunsönn og segir að
grunnskólakennsla verði að vera
eins og hún gerist best. Þá vék hann
að atvinnuleysinu, sem hann sagði í
reynd vera hafís vorra tíma, landsins
foma fjanda. Ástæður þess kvað
hann vera margvíslegar, en tiltók
sérstaklega fyrirhyggjuleysi og sof-
andahátt
Hansína Á. Stefánsdóttir, formaður
ASS, upplýsti það að um þessar
mundir væru 600 manns atvinnu-
lausir á Suðurlandi. Hún sagði að
atvinnulíf í héraðinu væri þannig í
eðli sínu að atvinnuleysi væri lengi
að koma fram og máski yrði að sama
skapi lengi að fjara út Sunnlending-
ar byggðu afkomu sína að stóru leyti
á landbúnaði og þjónustu tengdri
honum. Hansína ásakaði ríkis-
stjómina í ræðu sinni og kvað hana
ekki hafa staðið í stykkinu. Hansína
sagði að höfnun hugmynda ríkis-
stjómarinnar á tillögum ASÍ í at-
vinnumálum frá í nóvember hefði
haft afdrifaríkar afleiðingar og kaup-
máttur meðal annars dregist stór-
lega saman.
Þórður Ólafsson, formaður verka-
lýðsfélagsins Boðans í ölfusi, sagði
að atvinnuleysi væri dýrt. Hvert pró-
sentustig þess kostaði ríkissjóð
minnst 600 milljónir kr. í beinum
útgjöldum.
Pétur Reimarsson, framkvæmda-
stjóri Ámess, var fjórði framsögu-
maður á fundinum. Hann sagði að
lausnirnar í atvinnumálum Suður-
lands fælust ekki í því að fólk bæði
þingmenn kjördæmisins að stofna
fyrirtæki. Fyrst og síðast yrði fólk að
trúa á sjálft sig, mátt sinn og megin.
„Fyrir 10 árum síðan hefði enginn
séð fyrir sumt af þeim atvinnu-
rekstri, sem kominn er á fót hér á
Suðurlandi nú. Og eftir önnur 10 ár
verður komið eitthvað annað nýtt,
sem enginn sér fyrir í dag. Ég las í
síðustu viku í einu héraðsblaðanna
um tvennt, sem er dæmigert fyrir
nýsköpunina í atvinnulífinu: lakkr-
ísverksmiðju á Hvolsvelli og ferða-
mannaþjónustu á Eyrarbakka,“
sagði Pétur Reimarsson.
—SBS, Selfossi
í gær klukkan 14.00 lauk útboði
á 3ja mánaða ríkisvíxlum með
opnun tilboða, en með þessu út-
boði skuldbatt ríkissjóður sig til
að taka tílboðom á bilinu 500 tíl
um það bil 3000 milfjónír
króna.
53 gild tílboð bárust í ríkisvíxla
að 0árhæð 3805 miiljónir
króna, en hcildarfjárhæð tek-
inna tilboða er 2518 milljónir
króna frá 28 aðilum. Lægsta
ávðxtun er 10,66%, en sú hæsta
11,34%; meðalávöxtun sam-
þykktra tilboða er 11,17%, sem
svarar til 10,45% forvaxta.
Helstu niðurstöður síðustu
þriggja útboða eru því sem hér
greinin
Þann 06.01.93 var heildartíl-
boð 2730 milfj. kr., fjöldi 43,
tekin tilboð 2118 millj. kr.,
fjöldi 20, meðalávöxtun
11,99%, lægsta ávöxtun
11,85% og hæsta ávöxtun
12,20%. Þann 20.01.93 voru
heildartílboð 2641 millj. kr.,
^Öldi 32, tekin tilboð 2491,
fjöldi 30, meðalávöxhm
11,49%, lægsta ávöxhm
11,17% og hæsta ávöxtun
12,10%. Þann 03.02.93 voru
svo sem seglr að ofan. ÞIS
Iðnaðarráðherra ræðir við stjórnendur
Washington Mills um byggingu slípi-
efnaverksmiðju:
Slípiefnaverk-
smiðja reist á
Grundartanga?
Jón Sigurðsson iðnaðarráðherra
átti ívikunni fund með forstjóra og
eiganda bandaríska slípiefnafyrir-
tækisins Washington Mills. Á
fundinum var rætt um þann mögu-
leika að Washington Mills reisi
slípiefnaverksmiðju á Grundar-
tanga. Iðnaðarráðherra telur að
góður árangur hafí náðst á fundin-
um og miklar líkur séu á að
ákvörðun verði tekin á næstu mán-
uðum um hvort af byggingu veris-
smiðjunnar verður.
Washington Mills er stærsti fram-
leiðandi slfpiefna í Ameríku. Fyrir-
tækið starfar á mjög þröngu sviði.
Framleiðsla fyrirtækisins er m.a.
notuð í sandpappír. Fyrirtækið rek-
ur m.a. verksmiðju í Kanada sem
iðnaðarráðherra skoðaði í vikunni,
en verksmiðjan er svipuð þeirri sem
rætt er um að reisa hér á landi. Um
50 manns starfa í verksmiðjunni.
Það er að sjálfsögðu hagstætt raf-
orkuverð, sem stjórnendur Wash-
ington Mills eru að leita eftir hér á
landi. Auk þess er talið að verk-
smiðjan geti haft hagræði af nábýli
við Járnblendiverksmiðjuna á
Grundartanga. -EÓ
Foreldrasamtökin:
Foreldrum boðin
lögfræðileg ráðgjöf
Foreldrasamtökin hafa ákveðið að
bjóða foreldrum upp á lögfræði-
lega ráðgjöf. Samtökin hafa orðið
vör við aukna þörf fólks á lög-
fræðilegrí ráðgjöf í málefnum
sem tengjast Qölskyldunni.
Fyrst í stað verður félagsmönnum
samtakanna boðin slík aðstoð
tvisvar í mánuði gegn lágmarks-
gjaldi. Helstu málaflokkar, sem
gætu tengst ráðgjöfinni, eru skiln-
aður og forræðismál, fjármála-
vandi fjölskyldunnar, almenn rétt-
arstaða foreldra og barna, t.d.
gagnvart skólakerfmu og öðrum
opinberum stofnunum.
Guðrún Agnes Þorsteinsdóttir,
lögfræðingur Foreldrasamtak-
anna, mun veita þessa ráðgjöf og
verður hún með viðtalstíma annan
hvern þriðjudag á milli 17 og 19, í
fyrsta sinn þann 9. febrúar. For-
eldrasamtökin munu auka þessa
þjónustu, ef mikil eftirspurn verð-
ur eftir henni.
Básúnuleikarinn Frank Lacy.
Frank Lacy til Islands
Bandaríski básúnuleikarinn Frank
Lacy er væntanlegur hingað til lands
nú í byijun febrúar. Hann þykir einn
af efnilegustu básúnuleikurum í
djassinum í dag. Hann mun halda
tvenna tónleika í gallerísal Sólon ís-
landus við Bankastræti. Fyrri tón-
leikamir verða fímmtudaginn 11.
febrúar, en þeir seinni laugardaginn
13. febrúar og hefjast báðir kL 21.
Hann heldur einnig eina tónleika á
Höfri í Homafirði, auk þess sem
hann heldur fyrirlestur með tón-
dæmum.
Þeir, sem munu leika með Frank
Lacy að þessu sinni, eru píanóleikar-
inn Eyþór Gunnarsson, trymbillinn
Matthías Hemstock og bassaleikar-
inn Tómas R. Einarsson.
Frank Lacy fæddist árið 1958 í Hou-
ston í Bandaríkjunum. Hann hefur
ma. leikið með stórsveitum Illinois
Jacquet, Dizzy Gillespie, Cörlu Bley,
með saxófónleikaranum Bobby Wat-
son og með sextett saxófónleikarans
Henry Threadgill. Frank Lacy var
meðlimur í hljómsveit trompetleik-
arans Lester Bowie, Brass Fantasy,
og í hljómsveit Arts Blakey, The Jazz
Messengers. Hann er líka liðtækur á
fluegelhom og franskt hom og hefúr
einnig sungið á eigin plötum og ann-
arra. ÚEY
Dagaxia 1.-9. maí verður garöyrkju-
sýning í Periunni á vegum gæð-
yrkjufélaga, bókaforiaga og ýmissa
annarra aðila. Á sýningunni verða
sýndir allir hhitir, sem við koma
garðyrkju, allt frá sóleyjum til sól-
paila. Sýningin verður opnuð laug-
ardaginn 1. maí kl. 2 og stendur tíl
kL 8, sem og á sunnudaginn. Vbka
dagarerðuropíðfrá5-10.
Sýningunni lýkur svo sunnudaginn
9. maí kL 6. Sýningin verður jafnt
innan- sem utandyra og er aðgangur
ókeypls.
Undirbúningur að sýningunni hef-
ur staðið yfir síðan fyrir áramót, en
sanmingaviðraeður standa enn yfir
við ýmsa aðila. Meðal félagasamtaka,
sem að sýningunni standa, má
nefna Félag gróðurhúsabænda, Fé-
lag blómameistara, Félag skrúð-
garðameistara, Skógrækt rðdsins,
Skógræktarfélag Reykjavíkur, Garö-
yrkjuskóla rðásins og tímaritin Gró-
andinn og Gaiðar og gróður. Einnig
standa yfir viðiæður rið bókaforiög
og beildsala sem flytja inn garð-
áhöld. BYKO og Húsasmiðjan eru
lða inni í myndimú og þá er hug-
myndin að hafa timburverandir og
margt annað er íbígerð. Það veröur
því um auðugan garð að gresja í
PeriunniímaL
ÞIS/ÚEY
HASK0LAHATIÐ
ALAUGARDAG
Háskólahátíð verður haldin í Há-
skólabíói laugardaginn 6. febrúar
n.k. kl. 14 og mun þar fara fram
brautskráning kandídata. Þeir eru
85 að þessu sinni og skiptast þann-
ig:
Guðfræðideild 2, Læknadeild,
námsbraut í hjúkrunarfræði 5,
Námsbraut í lyfjafræði 2, Lagadeild
10, Heimspekideild 16, Viðskipta-
og hagfræðideild 9, Verkfræðideild
4, Félagsvísindadeild 19 og Raunvís-
indadeild 18.
Athöfnin hefst á því að Jóhanna V.
Þórhallsdóttir (alt) og Margrét J.
Pálmadóttir (sópran) syngja við
undirleik Svövu Víkingsdóttur pí-
anóleikara. Þar næst ávarpar há-
skólarektor, Sveinbjörn Björnsson,
kandídata og síðan afhenda deildar-
forsetar prófskírteini. Að lokum
syngur Háskólakórinn nokkur lög
undir stjórn Hákonar Leifssonar.
ÚEY.