Tíminn - 02.03.1993, Blaðsíða 3

Tíminn - 02.03.1993, Blaðsíða 3
Þriðjudagur 2. mars 1993 Tfminn 3 Verður japönsk önd að hreindýri á íslandi? HREINDYRINU VERDIÞEGAR KOM- IÐ TIL HJÁLPAR Samband dýravemdunarfélaga íslands hefur farið fram á að hreindýri sem flækt hefur homin í netadræsu verði þegar komið til bjargar. Páll Hersteins- son veiðistjóri gerir ráð fyrir því að á næstunni vetði gerð tilraun til að svæfa dýrið og fjariægja netadræsuna. í gær reyndi eftirlitsmaður á vegum veiðistjóra að komast að dýrinu en án árangurs. Ekki er laust við að þetta mál leiði hugann að svipuðu máli í Japan. Þar fylgdist öll jap- anska þjóðin með önd sem hafði ver- ið skotin með ör en Iifði samt með örina fasta í bakinu. í frétt ríkissjónvarpsins í fyrrakvöld var sagt frá hreindýrstarfi sem flækt hafði höfuð sitt og hom í netadræsu í Lóninu skammt frá Höfh í Homa- firði. Kom fram að tarfurinn myndi missa hornin í vor og þá vonandi losna við netadræsuna en vonlaust væri að koma honum til bjargar vegna styggðar. í fréttinni kom einn- ig fram að vitað væri um að hreindýr hefðu drepist af þessum sökum. Samband dýravemdunarfélaga ís- lands fer fram á að dýrinu verði komið tafarlaust til hjálpar með því að skjóta í það deyfilyfi og fjarlægja netadræsuna. Þetta virðist hafa borið tilætlaðan árangur þar sem eftirlitsmaður á vegum veiðistjóra gerði í gær til- raun til að nálgast dýrið til að finna út hvort kynið væri um að ræða en dýrið er í hópi með fleiri hreindýr- um. Tárfar missa homin á þessum árstíma en kýr ekki fyrr en með vor- inu. Páll Hersteinsson veiðistjóri segir að tilraunin hafi ekki heppnast sem skyldi þar sem dýrin vom mjög stygg. Hann álítur þó að líklega sé um hreindýrakú að ræða þar sem tveir kálfar haldi sig ekki langt frá dýrinu. Hann bætir við að næstu daga sé ætlunin að nálgast dýrin á bfl en það sé erfitt nú þar sem frost hefur farið úr jörðu undanfarna daga. Þá býst hann við að reynt verði að svæfa dýrið og það Iosað við neta- dræsuna hvort heldur sem um hreindýrskú eða tarf er að ræða. -HÞ Frá Búnaðarþingi Tfmamynd Ami Bjama. Halldór Blöndal landbúnaðarráðherra telur tímabært að ríkisvaldið dragi úr framleiðslu á trjáplöntum: Skógræktin rifi seglin SIBROTAMENNIRNIR SKULU TAKA SIG Á Frá og með 1. mars verða umferð- arlagabrot hvers ökumanns á höf- uðborgarsvæðinu og nágrenni skráð sérsaklega. Áminning, nýtt ökupróf og ökuleyfissvipting eru þau viðurlög sem beitt verður. Að sögn lögreglunnar í Reykjavík er tilgangur með skráningu umferð- arlagabrota að veita ökumönnum aukið aðhald í umferðinni. Þá em allt að 10 tiltekin umferðarlagabrot skráð, til dæmis akstur á rauðu ljósi og það að virða ekki stöðvunar- skyldu. Ekki em með í skránni brot eins og ölvun við akstur eða hraðakstur þar sem þau varða ökuleyfissviptingu á staðnum. Brjóti ökumaður fjómm sinnum af sér er hann áminntur skriflega og þarf að gæta þess að brjóta ekkert af sér næstu tvö árin. Eftir þann tíma falla eldri brot úr skránni. Virði hann ekki þetta og brýtur af sér í fimmta sinn er hon- um gert að taka ökupróf að nýju. Við sjötta brot yrði hann síðan sviptur ökuleyfi. Þess má geta að samkvæmt upplýs- ingum lögreglu byrja allir með hreint borð þ.e. að eldri brot en frá og með deginum í gær em ekki skráð. Halldór Blöndal landbúnaðarráð- herra telur tímabært að Skógrækt rfldsins dragi úr trjáplöntufram- Ieiðslu og gefi einstaklingum og fyrirtækjum þannig aukið svigrúm á plöntumarkaðinum. Barri hf. hef- ur í erindi sem Iiggur fyrir Búnað- arþingi óskað eftir að þingið lýsi yf- ir stuðningi við þá stefnu að rflds- valdið hætti að reka gróðurstöðvar. Lagt er til að rannsóknarstöðin á Mógilsá verði þó áfram rekin og að þar verði stundaðar rannsóknir í skógrækt. Skógrækt hér á landi hefur fram til þessa að mestu verið í höndum Skógræktar ríkisins og skógræktar- félaga. Landbúnaðarráðherra sagði í ræðu við upphaf Búnaðarþings að þakka mætti starfi brautryðjend- anna og forgöngu Skógræktar ríkis- ins því að þekking á skógrækt nái nú út iýrir raðir opinberrar starfsemi. Vel menntaðir garðyrkjumenn hefðu haslað sér völl við framleiðslu á trjáplöntum og sjálfstæð fyrirtæki hefðu risið á sama sviði og sæktu á um aukin verkefni. „Ég hef það nú til sérstakrar athug- unar hvort ekki sé tímabært og skynsamlegt að Skógrækt ríkisins rifi seglin í plöntuframleiðslu sinni og skapi þannig aukið svigrúm fyrir framtak einstaklinga og fyrirtækja. Að þessu má þó ekki flana og óhjá- kvæmilegt er að taka tillit til starfa þeirra sem nú vinna við skógræktar- stöðvar. Ýmsir þeirra eru bændur og hafa byggt afkomu sína að hluta á þess- um störfum," sagði Halldór. Eitt stærsta einstaka fyrirtækið í trjáplöntuframleiðslu er Barri hf. á Fljótsdalshéraði. Það hefur lagt til við Búnaðarþing að mörkuð verði sú stefna að ríkisrekstur gróðrarstöðva verði aflagður. Gróðrarstöðin á Mógilsá verði þó áfram rekin. Þar verði stundaðar rannsóknir og þróunarstarf auk sér- fræðiþjónustu við aðra framleiðend- Upp hefur komist um kosningasvindl í kosningum í Háskólanum: Einn stúdent kaus tvisvar Stúdent í Háskóla íslands hefúr orð- ið uppvís að því að hafa kosið tvisvar í kosningunum í Háskóla íslands sem fram fóru í síðustu viku. Nafn námsmannsins var á tveimur stöð- um í kjörskránni og neytti hann fær- is og lcaus tvisvar. Að sögn formanns kjörstjómar verður málið sent Há- skólaráði sem mun taka ákvörðun um hvemig við því verður brugðisL Formaður kjörstjómar sagði ljóst að mistök hefðu verið gerð þegar kjör- skrá var útbúin. Það afsaki hins vegar ekki brot námsmannsins að kjósa tvisvar. Formaður kjörstjómar sagði að sér væri ekki kunnugt um að svona tilvik hefðu komið upp áður í kosn- ingum í Háskólanum. Ekki lægi fyrir hvemig við því yrði bmgðist en það væri Háskólaráðs að taka ákvörðun í málinu. Tíminn ræddi í gær við námsmann sem fullyrti að kosið hefði verið fyrir sig í kosningunum í síðustu viku. Hann nýtti sér ekki rétt sinn til að kjósa en frétti af því fyrir tilviljun að merkt hefði verið við hann í kjör- skránni á þann hátt að hann hefði kosið. Námsmaðurinn sagði í samtali við Tímann að hann hefði lýst því yfir í sínum kunningjahópi fyrir kjördag að hann ætlaði sér ekki að kjósa og sig gmnaði að einhver hefði í fram- Hanastéi í leku Þjóð- minjasafni Á þjóðminjaþingi sem lauk um helgina var rætt um bágan húsa- kost Þjóðminjasafnsins, en sem kunnugt hefur húslð lekið í mörg ár þannig að menningarverðmæti liggja undir skemmdum. Fjárveit- ingar til safnsins hafa auk þess verið skoraar við nögl og sagði Guðmundur Magnússon þjóð- minjavörður á þinginu að um nokkura tíma befði rikt stöðnun á Þjóðminjasafninu. Það vaikti því athygli að eftír að rætt hafðf verið um þessi vanda- mál Þjóöminjasafnsins, sem stafa af fjárskorti, þá var efnt til glæsi- legs hanastéls á þjóðminjaþingL í boöinu var gestum boðið upp á drykk eins og hver gat í sig látið. Einhverjum varð að orði í boðinu að greinilegt væri að einhvers staðar væru til peningar þó að menningararfurinn yrði að liggja undir skemmdum. Auðvelt að ná í bland í Þjóðminjasafninu Einhver hafði á orði að það væri lfldega auðvelt að ná sér í bland í Þjóðminjasafninu. Það væri ein- faldlega nóg að setja glasið undir bununat Fyrir þá sem ekki fatta er átt við bununa sem kemur úr ioftí Þjóðminjasafnsins. Sumir mættu seint á þingið Það vakti athygli sumra fulltrúa á þjóðminjaþingí hvað einstakir gestir mættu seint. Þingið hófst með ræðu menntamálaráðherra og þjóðminjavarðar kl. 10 á föstu- dagsmorgninum. Eftír hádegi voru flutt ýmis athyglisverð er- indi. Hlé var sfðan gert kl. 16 en þá hófst hanastéiið. Dæmi voru um að menn væru að mæta á þing- ið skömmu fyrir 16. Og svo var þingveisl- an um kvöldið Sumir fyrirmenn þjóðarinnar áttu góðan dag síðastliðinn fóstudag. Þeir þáðu veitingar á þjóöminja- þingi um miðjan dag og sfðan héldu þeir í þingveislu um kvöldið. Allt var þetta að sjálfsögðu á kostnað okkar skattborgaranna. haldi af því ákveðið að nýta sér at- kvæði hans. Formaður kjörstjómar sagðist ekki hafa heyrt af þessu máli en sagði að kjósendum væri gert að sanna hverjir þeir væru þegar þeir kysu. -EÓ ur. Barri hf. telur að ekki sé jafnmikil þörf fyrir ríkisrekstur í trjáplöntu- framleiðslu og áður og bendir í því sambandi á sífellt öflugra starf skóg- ræktarfélaga, tilkomu Barra hf. og mikla plöntuframleiðslu hjá ein- staklingum. Þessi einkafyrirtæki hafi ekki að- stöðu til að keppa við Skógræktina sem búi við önnur rekstrarskilyrði. -EÓ STÖÐVUM BÍLINN ef við þurfum að tala í farsímann! yUMFERÐAR RÁÐ A

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.