Tíminn - 02.03.1993, Blaðsíða 8
12 Tíminn
Þriðjudagur 2. mars 1993
Námskeið á Skriðuklaustri
Akveðin hafa verið fyrstu fjögur námskeið á vormisseri.
TÖLVUNOTKUN I, 8.-9. mars.
Kennari: Þórarinn Leifsson, Bændaskólanum Hólum.
BÆNDABÓKHALD 1,10.-11. mars.
Kennari: Þórarinn Sólmundarson, Bændaskólanum Hólum.
SKATTFRAMTALSGERÐ 12.-13. mars.
Kennari: Þórhallur Hauksson, Egilsstöðum.
ÖSKJUGERÐ 15.-17. mars.
Kennari: Lára Vilbergsdóttir handavinnukennari.
Mörg fleiri námskeið eru fyrirhuguð en ekki nákvæmlega tímasett ennþá, en verða
auglýst fljótlega. Nefna má frjósemi nautgripa og júgurheilsa, tamning fjárhunda,
kynbótagildismat og byggingardómar hrossa, járningar, rúning, ullarmat og -með-
ferð, rafgirðingar o.fl.
Nánari upplýsingar og skráning hjá Búnaöarsambandi Austuriands, slmi 11161 og
11226 á kvöldin i slma 11944.
Bændaskólamir Búnaðarsamband Austurtands
Eiginkona mín, mágkona, móöir okkar, tengdamóöir, amma og langamma
Jóna Ingibjörg Ágústsdóttir
Álftamýri 40, Reykjavík
lést ( Landspítalanum 27. febrúar.
Sverrir Meyvantsson
Jóhann B. Sigurgeirsson
Ingólfur Kr. Sigurgeirsson
Ásthildur Fr. Sigurgeirsdóttir
Erla Sigurgeirsdóttir
Soffia H. Sigurgeirsdóttir
Sigrföur E. Sverrisdóttir
Vilhelm Sverrisson
Hreggviöur Sverrisson
barnaböm og barnabarnabörn
Elisabet Meyvantsdóttir
Sigrún Þorgeirsdóttir
Geröa Pálsdóttir
Eggert Andrésson
Benedikt Bjarnason
Gunnar Hilmarsson
Hulda Jósepsdóttir
"N
Hjartans þakkir fyrir auösýnda vináttu og viröingu viö andlát og útför eigin-
manns mins, fööur okkar, tengdafööur, afa og langafa
Ólafs E. Guðmundssonar
frá Mosvöllum
Þorbjörg Þorvaldsdóttir
Guömundur Ólafsson Sigurrós Þorgrfmsdóttir
Þorvaldur Ólafsson Brynja Jóhannsdóttir
Kristfn Á. Ólafsdóttlr Óskar Guömundsson
Eggert Ólafsson Sigrún Þorvarðardóttir
Snjólfur Ólafsson Guörún S. Eyjólfsdóttlr
barnabörn og bamabamabörn
f-------------------------------
1Í
Móöir okkar, tengdamóöir, amma og langamma
Gunnþórunn Klara Karlsdóttir
Birkivöllum 13, Selfossi
andaöist i Borgarspítalanum sunnudaginn 28. febrúar.
Sveinn J. Sveinsson Björg Sigurðardóttir
Nina S. Sveinsdóttir Amór Hannibalsson
Ingibjörg S. Sveinsdóttir Freysteinn Sigurðsson
Siguröur G. Sveinsson
barnabörn og bamabamabörn
S vikahr appur inn
Man Troublc ★ 1/2
Framlei&endun Bruce Gilbert og Carole
Eastman.
Handrit: Caroie Eastman.
LeUcstjóri: Bob Rafelson.
Aöalhlutveric Jack Nicholson, EUen Baridn,
Beverly D'Angelo, Harry Dean Stanton,
Michael McKean og John Kapelos.
Regnboginn.
ÖUum leyfð.
Bandaríski leikstjórinn Bob Raf-
elson á gloppóttan feril að baki í
kvikmyndaiðnaðinum. Hann hefur
tvisvar áður gert myndir þar sem
stórleikarinn Jack Nicholson leikur
aðalhlutverkið en það voru Five
Easy Pieces (1970) og The Postman
Always Rings Twice (1981). Sú fyrr-
nefnda þótti mjög góð og þykir enn
í dag besta mynd Rafelsons en sú
síðarnefnda fékk mjög dræmar
móttökur. Svikahrappurinn er því
þriðja myndin þar sem þessir lista-
menn starfa saman og útkoman er
frekar slakur farsi sem veldur mikl-
um vonbrigðum ef mið er tekið af
stóru nöfnunum sem eiga þátt í
honum.
Jack Nicholson leikur varðhunda-
þjálfara, með skugglega fortíð og
fyrirtæki, sem berst í bökkum
vegna fárra viðskiptavina. Hann
grípur því tækifærið þegar óperu-
söngkona, sem Ellen Barkin leikur,
vill fá traustan varðhund vegna
morðhótana og innbrots í íbúð
hennar. Barkin flytur í íbúð systur
sinnar, sem er í felum vegna ætlun-
ar sinnar að gefa út bók um hjóna-
band sitt við vafasaman viðskipta-
jöfur.
Hún er því ein ásamt hundinum í
stóru húsi og þar sem viðskiptajöf-
urinn vill stöðva útgáfu bókarinnar
og nálgast handritið að henni er
Barkin í sífelldri hættu. Nicholson
þarf þess vegna alltaf að vera að
koma og hughreysta hana og verja
fyrir glæpamönnunum. Þau verða
svo náttúrulega ástfangin þótt Nic-
holson „gleymi" að nefna að hann
er harðgiftur maður. Það breytir því
ekki að eiginmaðurinn fyrrverandi
er ákveðinn í að stöðva útgáfuna og
Nicholson þarf að beita öllum gráu
sellunum til að bjarga þeim úr klíp-
unni.
Myndin Svikahrappurinn líður að-
allega fyrir slakt handrit sem er alls
ekki nógu fyndið. Það er vandræða-
legt að horfa á sum atriði sem eiga
að vera ofboðslega fyndin en engum
stekkur bros á vör yfir. Ellen Barkin
og Jack Nicholson, sem bæði eru
góðir leikarar, gátu ekki einu sinni
bjargað sumum atriðunum fyrir
horn. Handritið hefur vissulega að
geyma nokkra góða punkta en alls
ekki nógu marga til að halda uppi
heilli mynd. Það eru helst atriðin
með hundinum sem ná að vekja upp
almennan hlátur. Einnig eru bráð-
skemmtileg atriði þar sem Nichol-
son og kona hans sækja tíma hjá
ráðvilltum hjónabandsráðgjafa.
Jack Nicholson og Ellen Barkin
leika í sjálfu sér ágætlega, þótt bæði
hafi þau sýnt mun meiri tilþrif. Það
er helst Beverly D’Angelo sem kem-
ur á óvart, fyrir utan Schaeffer-
hundinn sem er besti leikarinn í
myndinni.
Bob Rafelson var hampað mjög eft-
ir að Five Easy Pieces var frumsýnd
en ég er nú farinn að hallast að því
að um einhvers konar byrjenda-
heppni hafi verið að ræða því fátt
markvert hefur komið frá honum
þessi rúmlega 20 ár sem liðin eru
síðan. Svikahrappurinn er nokkuð
skondin gamanmynd á köflum, en
allir þeir sem standa að þessari
mynd hafa þó gert betur annars
staðar. Ég mæli með við fastagesti
kvikmyndahúsanna að þeir láti
þessa mynd bíða þangað til hún
kemur út á myndbandi. Þeir eru
ekki að missa af neinu.
Öra Markússon
„Genova-92“
Á síðastliðnu ári var haldin mikil
frímerkjasýning á „Fiera di Geno-
va“, undir nafninu „Genova-92“.
Þetta var fyrst og fremst heimssýn-
ing á tegundasöfnum, undir vernd
Alþjóðasamtakanna F.I.P. Varðandi
hin ýmsu þemu, sem sýningin
beindi kastljósi sínu að, má nefna
þemað „Sæfarar", og þá voru það
aðeins þeir mestu, eins og til dæm-
is Kristófer Kólumbus. Á þessari
sýningu var hinsvegar litið svo á, að
hann hafi verið merkur maður, sem
vissi hvað hann var að gera og hvert
hann var að fara. Hann vissi að
landið, sem hann ætlaði að finna og
athuga nánar, var til og að aðrir
höfðu verið þar á undan honum.
Þetta viðurkennir ítalska póst-
stjórnin og gaf því út frímerki með
korti af fýrri ferðum hans, þar á
meðal til íslands. ítalir vissu líka
um samband páfastólsins við ís-
lensku nýlenduna á Grænlandi og
að hinn kristni bóndi og sæfari,
Leifur Eiríksson, var talinn hafa
fundið land þarna, þegar í kringum
árið 1000. Þetta vissi páfastóllinn
um, allar götur frá Adrian IV að
minnsta kosti, en hann hafði verið í
Noregi um 1153. Þá hafði hann
skipað erkibiskup yfir kirkjuna í
m.a. Grænlandi, en þar var þá þegar
biskup og landafundasaga þessa
fólks þekkt og skráð. Þannig vissi
einnig Alexander III um þetta og að
það tók 12 daga að sigla niður til
Evrópu. Gregorius páfi skrifar einn-
ig bréf vegna Grænlands og um
málefni kristna fólksins þar, árið
1237. Þá eru til bréf frá Jóhannesi
XXI frá 1276 og frá Nikulási III frá
árinu 1279. Síðasta bréfið varðandi
Grænland er svo bréf Nikulásar V til
biskupanna á íslandi árið 1448. En
allra síðasta páfabréfið varðandi
málefni Grænlands er frá 1492,
sama árinu sem Kólumbus siglir og
finnur land, einmitt þar sem hann
vænti þess. Þannig var hann heiðr-
aður af ítölum í fyrrahaust, sem
annar hinna tveggja miklu land-
könnuða Evrópu.
Annað þema á sýningunni var hið
sígilda safn og efni. Þar voru þekkt-
ustu söfn ítalskra ríkja og konung-
dæma allt aftur á 18. öld.
Þriðja þemað var svo að „Roll of
Distinguished Philatelists" var sýnd
þarna og ekki aðeins var þessi skrá,
sem aðeins frægustu safnarar fá að
undirrita, sýnd, heldur einnig dýr-
mætustu gripirnir úr söfnum núlif-
andi undirritenda. Þessi skrá hefir
verið í gangi frá 1921.
Genova-92 var sjötta heimssýning-
in þar sem sýnd voru tegunda- og
mótífsöfn. ísland tók þátt í henni og
var Frímerkjasalan til staðar og
seldi vel af frímerkjum sínum með
mynd skipa Leifs Eiríkssonar og
Kristófers Kólumbusar. Þá heiðraði
einnig póst- og símamálastjóri ís-
lands, Olafur Tómasson, sýninguna
með nærveru sinni.
Það er samdóma álit þeirra, sem ég
hefi rætt við, að þarna hafi tekist
eindæma vel til.
Sigurður H. Þorsteinsson
Sölubás Islensku Póstmálastofnunarinnar á Genova-92. Framan viö
básinn standa: Ólafur Tómasson póst- og símamálastjóri, Ragna Karls-
dóttir sölumaöur, og póstmálastjóri Ítalíu Enrico Veschi. Inni á básnum
eru forstööumaöur Frímerkjasölunnar, Sigurþór Ellertsson, og dóttir
Rögnu, sem einnig vann á sölubásnum.
ítölsku frímerkin, sem sýna siglingarleiöir Kristófers Kólumbusai, meö-
al annars til íslands.