Tíminn - 02.03.1993, Side 4

Tíminn - 02.03.1993, Side 4
4 Tíminn Þriðjudagur 2. mars 1993 Tíminn MÁLSVARI FRJÁLSLYNDIS, SAMVINNU OG FÉLAGSHYGGJU Útgefandi: Timinn hf. Framkvæmdastjóri: Hrólfur Ölvisson Ritstjóri: Jón Kristjánsson ábm. Aðstoöarritstjóri: Oddur Ólafsson Fréttastjórar: Birgir Guömundsson Stefán Ásgrlmsson Auglýsingastjóri: Steingrlmur Glslason Skrifstofur: Lynghálsi 9, 110 Reykjavik Slmi: 686300. Auglýsingasfml: 680001. Kvöldsfmar: Áskrift og dreifing 686300, ritstjóm, fréttastjórar 686306, iþróttir 686332, tæknideild 686387. Setning og umbrot: Tæknideild Tlmans. Prentun: Oddi hf. Mánaöaráskrift kr. 1200,- , verö I lausasölu kr. 110,- Grunnverð auglýsinga kr. 725,- pr. dálksentimetri Póstfax: 68-76-91 Fráleit skattlagning Fjöldi erlendra ferðamanna til landsins vex jafnt og þétt. Árið 1986 voru erlendir ferða- menn 113.529, en árið 1991, fimm árum seinna, voru þeir 143.413. Aukningin er 26% á fimm árum. Á landsbyggðinni hefur árs- verkum í ferðaþjónustu fjölgað um meir en helming á 10 ára tímabili og eru 1204 árið 1990. Ferðamál eru því vaxtarbroddur í atvinnulíf- inu og þróunin á þessum vettvangi skiptir verulegu máli, ekki aðeins fyrir atvinnulíf í þéttbýli, heldur ekki síður fyrir atvinnulíf dreifbýlisins. Það liggur í eðli ferðamennsk- unnar hingað til lands að útlendingar ferðast um landið, byggðir og óbyggðir. Það er því eðlilegt að nokkrar vonir séu bundnar við vöxt í ferðaþjónustu. Hins vegar er það staðreynd, sem ekki verður á móti mælt, að íslandsferðir eru dýrar. Það má búast við enn harðnandi samkeppni í ferðaþjónustu á næstu árum, ef friður helst í heiminum. Ný lönd opnast, jafnvel á norðlægum slóðum. Það er alveg nauðsynlegt fyrir aðila í ferða- þjónustu hérlendis að hafa augun opin fyrir þessu og búa sig undir harðnandi samkeppni. Sú aðgerð ríkisvaldsins að leggja virðisauka- skatt á ferðaþjónustu er auðvitað fráleit við þær aðstæður, sem nú eru. Ferðaþjónustan er mannfrek atvinnugrein, og byggist frekar öllum atvinnugreinum öðr- um á vinnuframlagi fólks. Samkvæmt spá Þjóðhagsstofnunar um miðjan janúar gæti at- vinnuleysi orðið 5% á yfirstandandi ári. Mest- ar líkur eru á að sú tala verði enn hærri. Það er alveg sýnt að sú ákvörðun að skattleggja ferðaþjónustuna getur haft skaðleg áhrif á þróun hennar, miðað við þær aðstæður sem nú eru. Það vakti nokkra athygli að samgönguráð- herra lýsti því yfir í heimsókn í Egiftalandi að skattlagning ferðaþjónustu væri stórskaðleg. Það vakti vonir um að ráðherrann myndi beita sér fyrir því að þessari ákvörðun yrði breytt. Það olli því vonbrigðum að hinn sami ráð- herra lýsti því yfir í svari við fyrirspurn á Al- þingi að hann hygðist ekki aðhafast neitt í þessu máli. Það er auðvitað alveg lágmarkskrafa við nú- verandi aðstæður í atvinnumálum að stjórn- valdsaðgerðir dragi ekki úr krafti og þróunar- möguleikum atvinnugreinar sem er í hröðum vexti. Þann vöxt sýna þær tölur, sem greint var frá í upphafi þessarar greinar. Aðgerðir stjórnvalda þurfa að beinast að því að efla þessa atvinnugrein, sem tekur til sín mikið vinnuafl og skapar gjaldeyristekjur í þjóðar- búið. Það blæs ckki byrlega fyrir sljóm- arflokkunum um þessar mundir, cins og skoóanakönnun Félagsvís- indastofnunar gaf til kynna í síó- ustu viku. Forustumenn SjStf- stæðisflokksins hafa b'tið tjáð slg opinberiega eftlr að niðúrstaða kíjnnuuarinnar lá fyrir, en fomrað- ur Alþyðuflokksins kveðst enga jafnvel óvinsældir SighvaLs ekki tii að útskýra sllkt fyigishvarf. Óvinsældir ríkisstjómarinnar koma okkur, almennu iaunafóitó, ekki á óvart, þó að söómariiðar hafi Sjálfstæðisflokkurínn með 35,5% í Reykjavík Þegar litjk Jpyi flokkanna eftir landsh ir talsverður mismunur í jp æðisflokkur- inn er til dí *+ 5% í Reykja- vík, 46,4% á Reykjanesi en 21,7% úti á landi. aðeins hálfnað og því tvö ár tii stefnu til að bæta stöðuna. Aðeins eitt ár til stefnu Híns vegar er ektd nema ár þar til kosið veröur tB bæjan og sveitar- stjóma um land ailt og því forvitni- legt að skoða hvemig það litla fylgþ sem stjómarflokkamir hafa, sldpt- ist í cinstökum iandshlutum. Það, sem mesta athygli vekur, er bág- borin staða Sjáifstæöisflokksins í Reykjavík þar sem hann fær ein- göngu um 354>% atkvæða sam- kvæmt könnuninni og missir meirihluta sinn. Þó sjálfstæöis- menn hafi sloppíö við þá niðurfæg- ingu, sem kratar máttu þola i könnun Félagsvísindastofnunar, er fylgishrunið t Reyígavík mildð og alvariegt áfall fyrir þá. Það, sem gerir málið enn erflðara fyrir sjálf- stæðismenn, eraö auk þess að tím- brunarústir einar. Það er þvf fldri miidir kærieikar milH núverandi forustusveitar {haldsins í Reykjavik og fyrrverandi borgarstjóra og nú- verandi forsætisráðherta. Ekki ein- asta valtar Dawð yfir flokksbraeður vandamálin. sem íhaidið þarf að berjast við til að reyna að halda ................ o.Ekk- og óstjóm, sem viðgekkst í fjármál- um þegarhannrikti með einræðis- tilburðum sem borgarstjóri í Reyigavík. l»að er í þessu ljósi sem .Vb á fúiltrúariðsfundi Sambands sveitarfélaga á fostudag, þar sem hann fysti nánast frati á Davíð Oddsson og rðdsstjómina, en Vilhjálmur er einmitt eírm af þungavigtarmönnunum í borgar- stjómarfloidd sjálfstæðismanna t .......m..... sveRarinnar um hver eigí að leiða flokkinn, og a.m.k. fiórir eða fimm vonbiðlar em um upphefó þá, sem felst í því að vera flokksforingi í höfuðstaðnum. Þessttm vonWði- um reynist erfiðata með hveijum deginum að lcyna innbyiöis ósætti sthu. Er nú svo komið að engum rfylst lengur að sjálfstæöismenn eiga erfiðara með að vinna bver með öðmm en með fulltrúum minnihlutaflokkanna. Sumir von- fara í séríramboð, hreppi annar en þá stendur nú yfir uppskerutúni fjármálasukks undanfarinna ára og hin áður sterka fjármálastaöa er nú Flokkur í upplausn En það er ekki éins og skammur tími og flátmálasukk séu einu lisLutum í Reykjavíit. Því er það, að þó að fylglshrun Al* þýðuflokksins f skoðanakönnun Féiagsvísindastofunar sýni að þann flokk tná nánast afskrifa, þá er niðurstaðan ekki síður dramat- tsk fyrir Sjálfstæðisflokkiim. 35,5% duga eldd borgarstjómar- floidd til að ná meirihluta og eítt ár er of skammur túni fyrir fiofck, sem er í upplausn, til að bæta við sigþvísemávantar. Gani A slitnum barnsskóm Þótt sjónvarp ríkisins sé komið hátt á þriðja áratuginn, er það enn að slíta barnsskónum, sem eru orðnir ærið slitnir og skældir. Það eru álög á stofnuninni að ein- att þegar menningarsperringur- inn er hvað mestur og hæst reitt til höggs til að búa til frambæri- legt efni, verða klámhöggin hvað neyðarlegust. í gegnum áranna rás sest maður aftur og aftur og enn og aftur framan við sjónvarpstækið sitt og bíður opnum huga eftir að rosal- ega mikið auglýst ný íslensk kvik- mynd eða annað dagskrárefni birtist á skjánum eftir langa aug- lýsingahrinu á vegum ríkisins. S.l. sunnudagskvöld var eitt svona frumsýningarkvöld. Þá fékk landslýður að njóta ávaxtar verðlaunasamkeppni, sem ríkið gekkst fyrir, en keppt var um besta kvikmyndahandritið fyrir sjónvarp. Camera Obscura þótti besta handritið, að mati dóm- nefndar, og fékk verðlaun. Og ekki nóg með það, heldur var bú- in til kvikmynd í anda verðlauna- gripsins. Sérstæð leikhefð Öll var gerð myndarinnar að hefðbundnum hætti menningar- geira stofnunarinnar. Hafi verð- launahandritið verið skiljanlegt, hlýtur úrvinnslan að hafa mistek- ist, nema það sé vísvitandi stefna að íslenskar sjónvarpsmyndir hafl hvorki upphaf né endi og lítið þar á milli. Ungar og huggulegar manneskj- ur vafra hver um aðra og fara með orðræður sem hvorug þeirra skil- ur, hvað þá aðrir. Dulskynjanir, geðveiki, draugagangur, ein- manalegir staðir, hvort sem er í þéttbýli eða á heiðum, og auka- persónur sem enginn veit hvaðan koma eða hvert fara og enn síður hvaða erindi þær eiga inn í leik- verkin er allt með í sérstæðri leikhefð allra sjónvarpsmynda ís- lenskra. Ungæðingslegar tæknibrellur og ofhlaðið „myndmál" auka á ring- ulreiðina og úr verður einhvers konar skipulagt kaos, sem á lítið skylt við að segja sögu með þeirri Vitt og breitt V.__________________________J tækni sem kvikmyndamenn eiga að hafa yfir að ráða. Ef til vill ráða ungu kvikmyndagerðarmennirn- ir aðeins yfir tækninni, en botna minna í hvernig á að beita henni til að koma söguefninu til skila. Hér er ekki beinlínis verið að gagnrýna kauðska gerð verð- launahandritsins, sem brá fyrir á skjánum á sunnudagskvöld, held- ur þann „skóla“ kvikmyndagerðar sem islenska sjónvarpið ver um- talsverðum upphæðum í að láta búa tii. Hvaða foglar eru það, sem telja þessi handrit brúkleg til að gera myndir eftir? Afturgöngur og andlega vanheilt fólk eru helstu söguefnin, og er minnislaus rugiudallur einna skásta útgáfan á íslensku skjáhetjunni. Úa, álfa- kroppurinn mjói og heitkona djáknans á Myrká eru aldrei víðs fjarri til að teygja úr handritinu. Gamlar lummur Á laugardagskvöld var sjónvarp- að einstaklega skrautlegum skemmtiþætti, sem RÚV Sjónvarp lét búa tii. Limbóið var ekkert verra eða betra menningarefni en lista- og skemmtideild ríkisins býður upp á að öliu jöfnu. Handritið var eins hallærislegt og allar gömlu lummurnar, sem eru sjónvarpskvikmyndir sem gerast að tjaldabaki í sjónvarps- húsinu. öll sú hugmyndasnauða framleiðsla er mikil að vöxtum og eins og staðnaður taktur rokkbar- smíðanna. Stjórnendur þáttanna gerðu vel ef þeir fengju að fylgjast með starfsfólki Stundarinnar okkar til að læra undirstöðuatriði faglegra vinnubragða. Oft er rætt um að meira þurfi að vera af innlendu efni í sjónvörp- unum og er nokkuð til í því. En oftar en ekki er iítill fengur að ís- lensku framleiðslunni, þótt margar góðar og gleðilegar und- antekningar séu þar á. Undarlegt er það að þótt ríkis- sjónvarpið sé að nálgast þrítugs- aldurinn, vottar ekki fyrir framför í gerð sjónvarpskvikmynda. Sí- fellt er verið að gefa ungu og efni- legu fólki tækifæri til að spreyta sig, en enginn getur skrifað handrit sem nokkur veigur er í, og sjálf kvikmyndagerðin er ekk- ert annað en hvimleið tilrauna- starfsemi, sem fremur virðist vera að ganga í barndóm en að taka út nokkurn þroska. Kvikmyndajöfrar í USA hafa miklar áhyggjur af síminnkandi aðsókn að kvikmyndahúsum. Markaðsrannsóknir sýna að full- orðið fólk er hætt að fara í bíó, enda er höfuðáhersla lögð á myndir fyrir yngra fólk. Vestra er unglingadekrið kallað „kiddie culture" eða krakkamenning. Þegar henni er gert of hátt undir höfði, snúa aðrir aldurshópar baki við fjölmiðluninni og tóma- hljóð kemur f kassana. Ef sá grunur er réttur að kvik- myndagerð fyrir sjónvarp sé krakkamenning, þá var ekki nema ofureðlilegt að fullorðið fólk horfði í forundran hvert á annað, þegar mætt var í vinnu á mánudagsmorgi, og spurði: Um hvað var myndin sem við horfð- um á í sjónvarpinu f gærkvöldi?

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.