Tíminn - 02.03.1993, Síða 6
6 Tíminn
Þriðjudagur 2. mars 1993
Margrét Frímannsdóttir alþingismaður gagnrýnir hvernig opinberri þjónustu er skipt í Rangárvallasýslu:
Þarna starfa tveir
læknar en sex prestar
„Er það ekki alveg makalaust að á meðan starfa tveir læknar í fullri stöðu
og einn í hlutastarfi í Rangárvallasýslu allri, sem eiga að sinna öllum íbú-
um sýslunnar ásamt þeim fjölda sem flyst til sýslunnar um helgar og á
sumrin í sumarbústaðabyggð, þá eru þar starfandi miklu fleiri prestar, ég
held sex.“ Þetta sagði Margrét Frímannsdóttir alþingismaður á Alþingi í
umræðum um sparaað í heilbrigðiskerfinu.
Margrétsagðiþettavekjauppþáspum- tilfellum veittar með tilliti til heildar-
ingu hvort stöðuheimildir væru í öllum þarfa. Margrét sagði að margoft hefði
verið beðið um eina heila stöðu læknis
til viðbótar en það hefði ekki fengist
nema að hluta.
„É g er ekki með þessu að segja að prest-
ar séu ekki nauðsynlegir mannsálinni en
væri ekki eðlilegt að jafna þama og færa
eina stöðuheimild á milii stétta. Það
gæti Ld. í þessu tilviki gerst án þess að
skerða þjónustu kirkjunnar en fuílnægja
þörfinni fyrir læknishjálp. Kostnaðar-
auki ríkisins væri lítill sem enginn,"
sagði Margrét
Hún sagði að það væri nauðsynlegt að
horfa á ráðuneyti og stofnanir þeirra
sem heild við forgangsröðun verkefna og
afgreiðslu fjárlaga. Þannig mætti ná
bestum árangri í stjóm ríkisljármála
þegar til lengri tíma væri litið. -EÓ
Þuríður Bernódusdóttir, varaþingmaður Framsóknarflokksins:
LEYSA VERÐUR HERJÓLFS-
DEILUNA TAFARLAUST
Ófremdarástand hefur skapast í Vestmannaeyjum vegna stöðvunar
Heijólfsfeijunnar. Þessi deila hefur svo sannarlega sett mark sitt á
mannlíf og atvinnurekstur í Vestmannaeyjum og það er sorglegt að
þetta mál skuli hafa fallið í þann jarðveg sem það nú er í.
Tilefni þessarar deilu milli stjómar
Herjólfs hf. og stýrimanna virðist
vera óánægja með samanburð á
launakjörum meðal áhafnarinnar.
Stýrimenn boða til verkfalls fyrir
meira en þremur vikum.
Það er orðin mikil óánægja í Vest-
mannaeyjum með þetta langa verk-
fall. Það hefur vakið undrun að
stjóm Herjólfs hefur lagt meiri
áherslu á viðræður við háseta sem
ekki em í verkfalli en stýrimenn.
Sýnast þau viðbrögð síst hafa orðið
til að leysa deiluna.
Þá em margir undrandi á því að
bæjarstjóm Vestmannaeyja skuli
ekkert hafa látið til sín heyra um
þetta mikla hagsmunamál bæjar-
búa. Þessi deila sýnir glögglega hvað
Vestmannaeyingar em háðir góðum
samgöngum.
Það hefur berlega komið í ljós að
nauðsynlegt er að hafa gott og
traust skip í ferðum milli lands og
Eyja. Menn verða sennilega seint
sáttir um það hvort skipið sé of stórt
eða of dýrt. Vestmannaeyjaferjan er
hins vegar komin í rekstur og svo
Þuríður Bernódusdóttir, vara-
þingmaður Framsóknarflokksins
á Suðurlandi.
mun áreiðanlega verða um nána
framtíð. Við verðum að gera okkar
besta til þess að rekstur þess verði
viðunandi. Ég vona að stjórn Her-
jólfs beri gæfu til þess að taka á þess-
um málum þannig að farsæl lausn
fínnist nú þegar og allir sem tök
hafa á leggi því lið.
Ég vona líka að þessi kjaradeila og
rekstrarstöðvun ferjunnar leiði ekki
til varanlegrar röskunar á þeirri
þjónustu sem þetta fyrirtæki hefur
veitt eða að dregið verði úr þjónust-
unni. Það má aldrei verða. Það er
krafa okkar Vestmannaeyinga að
þessi deila verði Ieyst tafarlaust.
Ræöa þessi var flutt viö utandagskrár-
umræöu um Herjólfsdeiluna f síðustu
vlku.
Hringvegurinn styttist um
tæpa átta kílómetra:
Framkvæmdir
hafnar viö
Kúðafljótsbrú
Nú eru hafnar fyrstu fram-
kvæmdir við nýja brú yfir Kúða-
fijót. Verið er að setja niður svo-
kallaða niðurrekstrarstaura en á
þeim munu stólpar brúarinnar
hvíla. Þegar brúin verður tilbú-
in til umferðar, sem verður í lok
þessa árs, mun hringvegurinn
styttast um 7,6 km. og þess ut-
an losna vegfarendur við veginn
um Hrífunesheiði sem þykir
miður skemmtilegur og er þess
utan snjóakista á vetrum.
Vegagerð ríkisins hefur auglýst
útboð á smíði brúarinnar og
samkvæmt þeim skilmálum sem
þar eru settir fram um smíði
brúarinnar á smíði hennar að
vera lokið þann 15. október á
næsta ári. Þarna er um að ræða
smíði tveggja landstöpla með sjö
metra millibili, uppsetningu og
frágang stálbita á 302 metra brú
ásamt „byggingu sjö metra
breiðrar akbrautar á stálbitana"
eins og segir í útboðslýsingu.
Gert er ráð fyrir að í þessa fram-
kvæmd fari 800 rúmmetrar af
steypu og rúm 100 tonn af bindi-
jámi.
Jafnframt þessari brúarsmíði
eru fyrirhugaðar umfangsmiklar
vegabætur á þessu svæði. Lagð-
ur verður ýmist nýr eða byggður
upp garnall vegur á 38 km. kafla
frá ánni Skálm á Mýrdalssandi
að Kirkjubæjarklaustri. Nýlagn-
ingin á þessum kafla verður alls
16 km. eða frá núverandi vegi að
nýju brúnni og aftur á núverandi
veg. Þá verður Iagt bundið slitlag
á sex km. kafla frá því þar sem
Eldhraunið endar og að Kirkju-
bæjarklaustri.
SBS, Selfossi.
Tilraun með danskennslu í tveimur grunnskólum borgar-
innar á vegum fræðsluskrifstofu og heilbrigðisráðuneytis:
Dans sem vörn
gegn vímuefnum
Á vegum fræðsluskrífstofu Reykja-
víkurumdæmis og heilbrigðisráðu-
neytisins er að hefjast tilraun með
danskennslu sem tengd verður
íþrótta-, tónmennta- og almennri
bekkjakennslu. Kennt verður í 4. og
5. bekk Laugaraesskóla og 6. og 7.
bekk Selásskóla í samkvæmisdöns-
um, gömlu dönsum og þjóðdönsum.
Tilraunin mun standa yfir í mars og
lýkur í bytjun apríL
Matthildur Guðmundsdóttir
kennslufulltrúi segir að þessi tilraun
sé liður í fyrirbyggjandi starfi til að
styrkja nemendur gegn neyslu vímu-
efría jafnframt sem þeim er gefið tæki-
færi til hefðbundinnar líkamsþjálfun-
ar. Hún segir að markmiðið með
kennslunni sé m.a. að vekja áhuga á
dansi sem vöm gegn vímu þannig að
seinna meir þurfi nemendumir ekki
að drekka í sig kjark eða neyta annarra
vímuefna til að geta dansað. Þar fyrir
utan er talið að dansinn komi til með
að efla sjálfsvitund og muni auka eðli-
leg samskipti og samvinnu kynjanna,
stuðli að frjálsari fiamkomu í um-
gengni við aðra og jafnframt verður
kannað hvort danskennsla höfði frek-
ar til eins aldurskeiðs en annars.
Einnig verður vakin athygli á að dans-
kennslan styrkir ýmsar námsgreinar
svo sem stærðfræði, móðurmál, tón-
mennt, fþróttir og samfélagsgreinar.
Hver bekkjardeild fær fjórar kennslu-
stundir í samkvæmisdönsum og aðrar
fjórar í gömlu dönsum og þjóðdöns-
um. Kennslan fer þannig fram að
danskennarar koma inn í tíma hjá
íþróttakennurum og tónmennta-
kennurum og auk áðumefndra dansa
verða kenndir leikdansar og þeir sem
efst eru á baugi hverju sinni.
-grh
Auðvelt fyrir forsætisráðherra að benda á aðra en hinsvegar er ekk-
ert auðveldara en að hækka launin á Herjólfi og senda reikninginn til
ríkisins. Forseti bæjarstjórnar í Eyjum:
Inngrip bæjaryfir-
valda ekki á dagskrá
„Hvorki forsætisráðherra né aðrir
hafa sagt hvernig leysa eigi þessa
deilu. Það er voða einfalt að benda á
einhvera annan.
Skipið er rekið af sjálfstæðu félagi
og ríkisvaldið hefur borgað halla-
reksturinn, sem hefur verið tölu-
verður. Það er ekkert auðveldara en
að hækka bara kaupið og senda síð-
an reikninginn til ríksins. Þá mundi
skipið sigla strax,“ segir Sigurður
Einarsson, forseti bæjarstjórnar í
Vestmannaeyjum.
í utandagskráumræðu á Alþingi í
síðustu viku um verkfall stýrimanna
á Herjólfi sagði Davíð Oddsson for-
sætisráðherra að mikilvægt væri að
heimamenn og bæjaryfirvöld legðu
sig alla fram til að fá aðila til að láta
af verkfalli. Jafnframt hafnaði hann
„ÞRUSK"I
LEYNILEIKHÚSI
Þrír ungir leikarar hafa sett á
stofn leikhús sem þeir nefna
Leynileikhúsið og frumsýndu á
sunnudag sýninguna Þrusk á Café
Sólon íslandus.
I frétt frá hópnum kemur fram
að sýníngin byggi á tveimur ein-
ræðum og atriðum úr Galdm-Lofti
eftir Jóhann Siguijónsson. Þá
segir að markmið Leynileikhúss-
ins sé fyrst og fremst að þróa og
vinna að nýsköpun í íslensku leik-
húsi og að gefa ungum listamönn-
um tækifæri til að móta og fram-
kvæma hugmyndir sínar um lif-
andi Hst í leikhúsi.
Aðstandendur Ieikhússins hafa
allír numið leiklist eríendis og
heita Jóhanna Jónas, Vilhjálmur
Hjálmarsson og Ásdís Þórhalls-
dóttir.
-HÞ
setningu bráðabirgðalaga sem
lausn.
Þá mætti eitthvað um þúsund
manns á borgarafund um verkfallið í
Eyjum í síðustu viku þar sem skorað
var á deiluaðila að koma Herjólfi í
rekstur á ný.
Sigurður Einarsson, forseti bæjar-
stjórnar í Vestmannaeyjum, segir að
deiluaðilar í Herjólfsdeilunni hafi
ekki óskað eftir aðstoð bæjarins til
lausnar deilunni. Hann segir jafn-
framt að inngrip bæjaryfirvalda í
deiluna hafi ekki verið rædd enda
vandséð með hvaða hætti það ætti
að gerast þar sem málið er í höndum
sáttasemjara.
Aftur á móti hefðu bæjaryfirvöld
fylgst grannt með framvindu mála
frá upphafi en verkfall stýrimanna
hefur staðið yfir í rúmar þrjár vikur.
Þá hélt ríkissáttasemjari sáttafund í
gær, 1. mars, en þá urðu kjarasamn-
ingar undirmanna og yfirmanna á
Herjólfi Iausir.
Til fundarins voru boðaðir fulltrúar
stéttarfélaga áhafnarinnar sem eru
fimm talsins.
-grh