Tíminn - 26.03.1993, Blaðsíða 8

Tíminn - 26.03.1993, Blaðsíða 8
8 Tíminn Föstudagur 26. mars 1993 Öllum þeim, sem glöddu mig á sjötugsaf- mælinu með heimsóknum, skeytum, símtöl- um, söng og gjöfum, færi ég bestu kveðjur og alúðarþakkir. Guð blessi ykkur öll. Torfi Guðbrandsson, Bogahlíð 12, Reykjavík VELKOMIN TIL U.S.A. Sértilboð frá bandarísk- um stjórnvöldum Bandarísk stjómvöld gefa þér kost á að sækja um og öðlast varanlegt dvalar- og atvinnuleyfi samkvæmt áætlun AA-1. Dregiö verður úr umsóknum og þú getur þannig hreppt tæki- færi til að setjast að í Bandaríkjunum og stunda þar vinnu. (orðið handhafi „græna kortsins“). Umsóknarfrestur um dval- arteyfi rennur út 31. mars nk. og þvi nauðsynlegt að bregð- ast við strax, svo umsókn þín nái fram i tíma. Allir þeir, sem eru fæddir á Islandi, Bretlandi eða Irlandi og/eða eiga foreldri eða foreldra af sömu þjóðemum, hafa rétt til að sækja um þetta leyfi. Sendiö 45 Bandarikjadala greiðslu fyrir hvem umsækjanda til okkar ásamt nafni umsækjanda, fæðingardegi, fæðingar- stað, nafni hugsanlegs maka og nöfnum og dvalarstað ógiftra bama undir 21 árs aldri. Heimilisfangið er: VISA USA, P.O. Box no. 822211 Dallas, Texas, 75382, USA. Umboðsmenn Tímans: Kaupstaður Nafn umboðsmanns Helmlll Slml Keflavfk Guðrfður Waage Austurbraut 1 92-12883 NJarövfk Katrfn Sigurðardóttir Hólagata 7 92-12169 Akranes Aöalheiöur Malmqvist Dalbraut 55 93-11261 Borgarnes Sofffa Óskarsdóttir Hrafnarkletti 8 93-71642 Stykkishólmur Erta Lárusdóttir Silfurgötu 25 93-81410 Grandarfjöröur Anna Aöalsteinsdóttir Gmndargötu 15 93-86604 Hellissandur Lilja Guðmundsdóttir Gufúskálum 93-66864 Búöardalur Sigurlaug Jónsdóttir Gunnarsbraut 5 93-41222 Isafjörður Jens Markússon Hnlfsdalsvegi 10 94-3541 Hólmavfk Ellsabet Pálsdóttir Borgarbraut 5 95-13132 Hvammstangl Hólmfrlður Guömundsd. Fffusundi 12 95-12485 Blönduós Snorri Bjamason Uröarbraut 20 95-24581 Skagaströnd Ólafur Bemódusson Bogabraut 27 95-22772 Sauöárkrókur Guörún Kristófersdóttir Barmahlíð 13 95-35311 Siglufjörður Guðrún Auöunsdóttir Hverfisgötu 28 96-71841 Akureyri Halldór Ingi Ásgeirsson Sólvöllum 7 96-24275 Svalbaröseyri Þröstur Kolbeinsson Svalbaröseyri 96-25016 Húsavik Sævar Salómonsson Vallholtsvegi 11 96-41559 Ólafsfjörður Helga Jónsdóttir Hrannarbyggð 8 96-62308 Raufarhöfn Erla Guömundsdóttir Aðalbraut 60 96-51258 Vopnafjöröur Svanborg Vlglundsdóttir Kolbeinsgötu 44 97-31289 Egilsstaöir Páll Pétursson Árskógum 13 97-11350 Seyöisfjöröur Margrét Vera Knútsdóttir Múlavegi 7 97-21136 Neskaupstaður Bryndis Helgadóttir Blómsturvellir 28 97-71682 Reyöarfjöröur Ólöf Pálsdóttir Mánagötu 31 97-41167 Esklfjörður Björg Sigurðardóttir Strandgötu 3B FáskrúösfjörðurGuðbjörg Rós Guðjónsd. Skólavegi 26 97-51499 Djúplvogur Ingibjörg Ólafsdóttir Borgariandi 21 97-88962 Höfn Sigurbjörg Einarsdóttir Vikurbraut 11 97-81274 Selfoss Margrét Þorvaldsdóttir Enqjaveqi 5 98-22317 Hverageröi Þórður Snæbjamarson Heiðmörk 61 98-34191 Þorlákshöfn Halldóra S. Sveinsdóttir Egilsbraut 22 98-33627 Eyrarbakki Bjami Þór Erlingsson Túngötu 28 98-31198 Laugarvatn Kjartan Kárason J.K.I. 98-61153 Hvolsvöllur Lárus og Ottó Jónssynir Króktúni 18 98-78399 Vfk Sigurbjörg Bjömsdóttir Mánabraut 4 98-71133 VestmannaeyjarMarta Jónsdóttir Helgafellsbraut 29 98-12192 Afmælis- og minningargreinar Þeim, sem óska birtingar á afmælis- og/eða minningargreinum í blaðinu, er bent á, að þær þurfa að berast a.m.k. tveimur dögum fyrir birtingardag. Þœrþurfa að vera vélritaðar. Tímlnn hf. óskar eftir umboðsmanni í Vestmannaeyjum frá 1. maí 1993. Upplýsingar gefur Marta Jónsdóttir í síma 98-12192 ARSTIÐIRNAR eftir Joseph Haydn Næstkomandi helgi, laugardaginn 27. og sunnudaginn 28. mars, flytur Söngsveitin Fflharmónía óratónið Arstíðimar eftir Joseph Haydn í Langholtskirkju í Reykjavík, kl. 16.00 báða dagana. Texti þessa stórverks er eftir Gottfried van Swieten, en unninn úr kvæði eftir James Thomson. Lýsir hann daglegri önn og skemmtan sveitafólksins í lágsveitum Austur- ríkis á átjándu öld, sáningu, upp- skeru, veiðum, komu vetrar og bið eftir nýju vori. Einsöngvarar eru þrír: stórbóndinn Símon (bassi), Hanna dóttír hans (sópran) og ungur bóndi að nafni Lúkas (tenór). Með hlutverk þeirra fara Bergþór Pálsson, Inga Backman og Gunnar Guðbjömsson, en kór- inn, Söngsveitin Fflharmónía, fer með hlutverk sveitafólksins. Hljóm- sveitína skipa alls 36 manns. Kons- ertmeistari er eins og oft áður Szymon Kuran, en stjómandi Úlrik Ólason organisti, sem verið hefúr söngstjóri kórsins síðan árið 1988. Árstíðimar eftir J. Haydn voru frumfluttar í einkasamkvæmi í Schwarzenberghöll og nokkru síðar við austumsku hirðina, þar sem sjálf María Theresía söng hlutverk Hönnu við mikinn fógnuð áheyr- enda. Verkið var síðan flutt opinber- lega 29. maí 1801 við frábærar und- irtektir og hefur notið mikilla vin- sælda síðan, enda mjög fallegt og áheyrilegt og á köflum afar létt og fjörugt Þess má geta að Árstíðir Haydns voru fyrsta stórverkið sem fyrrum stjómandi og stofnandi Söngsveit- arinnar Fflharmómu, dr. Róbert Abraham Ottósson, færði upp hér- lendis, fyrir hálfri öld síðan. Var það með Hljómsveit Reykjavíkur og Söngfélaginu Hörpu, og raunar einnig í fyrsta sinn sem Guðmundur Jónsson óperusöngvari kom fram í viðamiklu einsöngshlutverki á ís- landi. Árstíðimar eru eitthvert stærsta verk sem Söngsveitin Fflharmónía hefur tekið tíl flutnings á síðustu ár- um, en miðaverði á tónleikana næstu helgi er stillt í hóf, m.a. með aðstoð nokkurra aðila sem söng- sveitin er mjög þakkláL Aðgöngu- miðar verða tíl sölu í bóka- og gjafa- vörubúðinni Kilju og við inngang- inn í Langholtskirkju. Stjómandinn Úlrik Ólason gerir eftirfarandi grein fyrir verkinu: Joseph Haydn samdi verk það sem hér er flutt, Árstíðimar, árin 1799- 1801 og var það frumflutt 29. maí árið 1801. Hann hóf að semja Árstíðimar strax eftir að hann lauk Sköpuninni. Textinn er eftir van Swieten barón. Aðalsögupersónumar eru 3: Hanna bóndadóttir, sem sungin er af sópr- an, Lúkas, ungur bóndi, tenór, og Símon stórbóndi, bassi. Hlutverk kórsins er stórt Hann túlkar vonir Joseph Haydn. sveitafólksins um gott veðurfar og uppskeru, gleði þess yfir fegurð Selfoss — Suðurland Steingrímur Jón Guðni Steingrimur Hermannsson, fomiaður Framsóknarflokksins, og alþingismennimir Jón Helgason og Guðni Ágústsson boða til opins umræðufúndar um átak til endurreisnar i atvinnu- og efríahagsmálum að Hótei Selfossi miðvikudaginn 31. mars kl. 21. Framsóknarfélögin í Hafnarfirði Opiö hús að Hverfisgötu 25 alla þriðjudaga kl. 20.30. Komið og fáið ykkur kaffisopa og spjallið. Framsóknarfélögin Kópavogur — Opið hús Opið hús er alla laugardaga kl. 10.00-12.00 að Digranesvegi 12. Kafli og létt spjall. Siguröur Geirdal bæjarstjóri verður til viötals. Framsóknarfélögln Sigurður Bændagisting Til sölu nokkrar ódýrar rúmgrindur 90x200 cm. Sfmi 91-682909 eftir kl. 18.00. Úlrik Ólason. náttúrunnar þegar hún vaknar af vetrardvalanum, ótta við þrumuveð- ur og hamfarir og lofar skaparann fyrir ríkulega uppskem. Verkið hefst á vorinu. Hljómsveitin leikur fiömgan og kraftmikinn for- leik; veturinn hopar. Kórinn syngur því næst einskonar bæn um að vor- ið megi koma fljótt og leysa náttúr- una úr vetrarviðjum. Símon syngur um bóndann sem plægir akur sinn glaður í bragði. Hér fær Haydn al- þekkt stef að láni úr „Surprise“-sin- fóníu sinni. Einsöngvarar og kór syngja saman og biðja þess að regn falli á akurinn og sólin skíni, svo uppskeran verði góð. Kaflinn endar á kórfúgu og notar höfundur sama stef og Mozart í sálumessu sinni við orðin „quam olim Abrahae". Áfram syngja einsöngvarar og kórinn glað- legan söng, þau dást að fegurðinni, blómunum, fuglunum, býflugun- um, lömbunum og fiskunum í vatn- inu. Hljómsveitin „hermir" eftir dýrunum. Síðasti þáttur vorkaftens er þakkaróður, sem endar með kröftugri kórfúgu í B-dúr. „Heiður, lof og dýrð sé þér, eilífi máttugi góði Guð!“ Sumarið hefst með stuttum hljóm- sveitarforleik sem lýsir döguninni. Óbóið leikur sérkennilegt stef er haninn galar og vekur bóndann til starfa. Hirðirinn safnar hjörðinni kringum sig og kór og einsöngvarar fagna sólarupprásinni og þakka Guði þá blessun sem geislar hennar valda. Sólcirgeislamir verða brenn- heitir og notar Haydn síendurteknar hraðar og veikar nótur strengjanna tíl að tákna hitann. Brátt dregur ský fyrir sólu og óveður nálgast. Hraðir fallandi flaututónar tákna eldingar og kórinn hrópar í angist „Hvert getum við flúið?“ Haydn tekst meistaralega að túlka óveðrið, heyra má þrumumar drynja, en brátt gengur veðrið yfir og endar þáttur- inn í ró. Sumrinu lýkur með kyrrlát- um söng kórs og einsöngvara, veðr- ið gengið hjá, stjömur skína á heið- um næturhimni og klukkur kalla fólk til náða. Haustið. Hljómsveitarinngangur- inn lýsir ánægju bóndans með ríku- lega uppskeru. í glaðlegum dúett þeirra Hönnu og Lúkasar heymm við léttar og leikandi laglínur sem minna á sakleysi æskunnar. Símon tekur við og syngur um veiðamar sem fylgja haustinu. Hraðinn eykst, hundurinn eltir bráðina og skot- hvellur heyrisL Veiðamar halda áfram, homin gefa tóninn og veiði- mennimir hrópa. Um miðbik kafl- ans verða tóntegundaskipti, D-dúr í Es-dúr og eykur það spennuna. Haustkaflanum lýkur með gleði- söng kórsins (allegro molto) að lok- inni vínuppskemnni. Veturinn. Hljómsveitarinngangur. Þykk þokan grúfir yfir og boðar vetr- arkomuna. Fólkið safnast saman, Hanna syngur við rokkinn og kór- inn svarar. Stefið er einfalt og ákveð- ið, leikur hljómsveitarinnar undir- strikar taktfastan klið rokksins, svip- að undirleiknum í sönglagi Schu- berts, Gréta við rokkinn. Hanna og kórinn halda áfram. Hún segir skemmtilega sögu. Aðalsmaður reynir að tæla unga stúlku, en hún leikur á hann. Stefjaefnið er létt og leikandi og iðar af æskufjöri og gáska. Símon stórbóndi hefúr upp raust sína og minnir á að líf mann- anna líkist gangi árstíðanna. Verk- inu lýkur með voldugum lofsöng tíl Drottíns." (Fréttatilkynning)

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.