Tíminn - 20.07.1993, Blaðsíða 3
Þriðjudagur 20. júlí 1993
Tíminn 3
Leitað að sex tonna
plastbáti:
Lét ekki
vita af sér
Umfangsmíklar fyrirspumir og
leít var gerð að sex tonna plast-
báti, Blakki RE, si. sunnudags-
kvöld og aðfaranótt mánudags
þar sem hann hafði hvorid til-
kynnt sig né svarað ítrekuðum
köllum í talstöð.
í fyrstunni var talið að báturinn
hefði ætlað frá Rifi til Suðureyr-
ar í Súgandafirði en í gærmorg-
un fann flugvél Landhelgisgæsl-
unnar, TF-Sýn, bátinn þar sem
hann var á veiðum á Breiðafirði
og amaði ekkert að. Fljótlega eft-
ir að vélin hafði flogið yfir bátinn
tilkynnti hann sig á leið til Rifs.
FVrr um nóttina höfðu varðskip
og TF-Sýn leitað að bátnum auk
þess sem strandstöðvar báðu
skip og báta að svipast eftir hon-
um.
Bátum undir 30 tonnum ber að
tilkynna sig tvisvar á sólarhring
en ekki er vitað hvers vegna bát-
urinn tilkynnti sig ekki eða svar-
aði fyrr en flugvél Gæslunnar
fann hann. -grh
Velta fyrir vestan:
brotnaði
Kona fótbrotnaði þegar biU
sem hún var farþegi í, valt í
Mjóafirði í ísafjarðardjúpi á
föstudaginn.
Þrennt var í bflnum og voru
þau öll flutt suður með sjúkra-
flugi. Enginn annar slasaðist.
-GKG.
Bruni í Keflavík:
Kviknaöi í út
frá sjónvarpi
Eldur kom upp í tveggja hæða
einbýlishúsi að Austurgötu 8 í
Keflavík aðfaranótt sunnu-
dags.
Enginn íbúanna var heima
þegar eldurinn kom upp. Táls-
verðar skemmdir urðu á hús-
inu bæði af eldi og reyk og er
talið að kviknað hafi í út frá
rafinagni. -GKG.
Ökufantar
hræðast menn
ísbergs
„Lögreglumennimir mínir eru
úti að vinna í stað þess að sitja
inni á rassinum. En við erum
ekkert að básúna það þótt við
tökum nokkra tugi bflstjóra fyr-
ir of hraðan akstur. En héma í
umdæminu eru góðir og beinir
vegir og mönnum verður það á
að þiýsta of mikið á bensínfót-
inn,“ segir Jón ísberg, sýslu-
maður á Blönduósi.
Lögreglumenn í Húnaþingi
hafa gengið vasklega fram í því
að koma í veg fyrir of hraðan
akstur á þjóðvegum í umdæm-
inu. Enda er nú svo komið að
ökumenn sem leið eiga um
Húnaþing hafa nær allan vara á
þegar þeir fara þar um og reyna
eftir megni að koma í veg fýrir
að of mikill þrýstingur verði á
bensíngjöfinni.
Jón ísberg segir að það sé alltaf
átak í gangi í umferðarmálum í
sínu umdæmi og sé það eina
sem dugi í baráttunni gegn
hraðakstri. Hann segir að þetta
hafi leitt til þess að alvarlegum
umferðarslysum hafi fækkað í
Húnaþingi. -grh
Skilningur á stöðu Akureyringa. Form. TR: Hvorki rök né siðferði fyrir því að unnin sé
yfirvinna á meðan hundruð manna eru atvinnulaus:
Deilt um milljarðinn
og úthlutun verkefna
„Ég held að flestir sem komu að gerð síðustu kjarasamninga hafi
veríð meðvitaðir um að það værí ekki óeðlilegt að meirihlutinn af
þessum milljarði rynni til verkefna á suðvesturhominu. Hins veg-
ar tek ég undir þau sjónarmið að það em öll rök fyrír því að einhver
hluti þessara fjármuna verði nýttur á Akureyrar-svæöinu, því þar
er atvinnuástandið mjög slæmt. Að öðm leyti er ég tiltölulega sátt-
ur við þetta,“ segir Grétar Þorsteinsson, formaöur Trésmiðafélags
Reykjavíkur.
Einstakir þingmenn á Norðurlandi
eystra, og skiptir þá ekki máli hvort
þeir eru í stjóm eða stjómarand-
stöðu, og bæjarfulltrúar á Akureyri
hafa gagnrýnt það harðlega að ekki
hafi verið tekið tillit til bágborins at-
vinnuástands þar í bæ við úthlutun
atvinnuskapandi verkefna upp á
röskan einn milljarð króna. Ekkert
verkefni er sérstaklega eymamerkt
því svæði en aftur á móti em ýmis
fjárfrek verkefni sem á eftir að út-
færa nánar og því ekki útilokað að
eitthvað af þeim komi í hlut þeirra
norðanmanna.
„Auðvitað gráta menn yfir þessu og
ég á ákaflega auðvelt með að segja
að ég hefði viljað fá meira hingað
o.s.frv. Þannig að það er endalaust
hægt að togast á um þennan eina
milljarð. En að hinu leytinu tek ég
alveg undir það að atvinnuástandið
á Akureyri er mjög alvarlegt og ég
hefði ekki orðið hissa þótt eitthvað
sérstakt hefði verið gert þar,“ segir
Jón Karlsson, formaður Verka-
mannafélagsins Fram á Sauðárkróki
og varaformaður Verkamannasam-
bands íslands.
Jón segir að fljótt á litið stingi 140
milljóna króna framlag til Þjóðar-
bókhlöðunnar töluvert í augu. Sér-
staklega þegar það er haft í huga að
stjórnvöld tóku að sér þetta verkefni
með miklum „bravor" hér um árið.
„Þeir sem eru famir að grána í
vöngum muna það. En fjárveiting-
arvaldið og alþingi hafa lagt áherslu
á að klára það verkefni."
Þar fyrir utan minnir Jón á að í ráð-
herratíð Sverris Hermannssonar
bankastjóra var Þjóðarbókhlöðunni
ánafnaður sérstakur skattur til að
standa straum af byggingarkostnaði
hennar.
„Ég veit ekki betur en þessi skattur
sé enn innheimtur," segir Jón Karls-
son.
Grétar Þorsteinsson, formaður TR,
leggur afar þunga áherslu á það að
viðkomandi verkefni verði unnin í
dagvinnu og það ætti að verða tekið
sérstaklega ffam í komandi útboð-
um. „Við þessar aðstæður í atvinnu-
málunum á það ekki að þekkjast að
það sé unnin yfirvinna. Það era
hvorki rök fyrir því né siðferði þegar
hundrað manna ganga um atvinnu-
Iaus.“
-grh
Sérstök framlög ríkissjóös 1993 til atvinnuskapandi aögerða
I. Sérstakt átak til atvinnuskapandi verkefna í fjárlögum 1993 . . . 1.850,0
Framkvæmdaátak í vegagerÖ ............................................... 1.550,0
Hæstaréttarhús, nýbygging ................................................. 100,0
ÞjóÖminjasafn, viöhald .................................................... 100,0
Stofnanir heilbrigðisráöuneytis ............................................ 80,0
RáÖherrabúsiaðurinn ........................................................ 20.0
II. Verkefni samkvæmt vaentanlegu fjáraukalagafrumvarpi,
ákveöin í tengslum viö kjarasamninga .................................... 1.045,0
Viöhald húseigna ríkisins ................................................. 184.0
Skólar og stofnanir menntamálaráÖuneytis .................................. 150,0
Hæstaréttarhús ............................................................. 25.0
Viðhald og breytingar á húsnæði StjómarráÖsins ............................. 35,0
Viöhald húscigna heilbrigÖisráÖuneytisins .................................. 25,0
ÞjóÖgarÖar, viðhald ........................................................ 15,0
Vettvangur, HALIOS samstarfsverkcfni ráöuneyta, FÍI o.fl..................... 5,0
Sjóvamargaröur, Höfn í HomarfirÖi........................................... 15,0
Flýting hafnarframkvæmda á Ólafsfiröi ...................................... 30,0
Matvælaþróun í sjávarútvegi................................................. 10,0
Atvinnumál kvenna, samkvæmt sérstöku samkomulagi ........................... 60,0
Til eflingar heimilis- og listiönaöi ....................................... 20,0
Bessastaðir, endurbætur..................................................... 42,5
Þjóögaröur á Þingvöllum, viðhald............................................. 5,0
Nýr framhaldsskóli í Grafarvogi............................................. 42,5
Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum ........................................... 8,0
Menntaskólinn á Laugarvatni ................................................ 10,0
Framhaldsskólar, aðrir...................................................... 40,5
ÞjóÖarbókhlaÖa............................................................. 140,0
HúsfriÖunarsjóÖur, viöhaldsverkefni ........................................ 10,5
HúsnæÖi löggæslustofnana, viöhald ........................................... 4,0
Húsnæöi sýslumanna ......................................................... 12,0
Fangelsisbyggingar.......................................................... 24,0
FramkvæmdasjóÖur fatlaöra .................................................. 32,0
Sjúkrahús í Reykjavík, endurbætur .......................................... 40,0
Sjúkrahús og læknisbústaðir ................................................ 10,0
Hafnaframkvæmdir............................................................ 50,0
Samtals til atvinnuskapandi aögeröa............................................. 2.895,0
þ.a. til stofnkostnaöar....................................................... 2,113.5
þ.a. til viöhalds ............................................................. 781,5
Rannveig Guðmundsdóttir segist ekki hafa trú á að verið sé að reyna að ýta Jóhönnu
Sigurðardóttir út úr pólitík:
Hörmulegt væri það tilfellið
Rannveig Guömundsdóttir, nýkjörinn varaformaöur Alþýðu-
flokksins, segist telja að því farí fjarri að einhverjir séu að vinna að
því að bola Jóhönnu Sigurðardóttur út út Alþýðuflokknum. „Ef að
þannig væri, þá værí það hörmulegt, ef einhverjir væru með slíkar
hugrenningar," segir hún. Hún treystir sér ekki til þess að svara
því hvort hún styðji Jóhönnu, bjóði hún sig fram gegn Jóni Bald-
vini á næsta flokksþingi. „Mér finnst of snemmt að tala um næstu
forystuskipti," segir Rannveig.
En hvemig metur hún stöðuna í Al-
þýðuflokknum? Ríkir sátt eða er þetta
biðstaða?
„Ég reikna með að þetta sé nokkurs
konar sáttastaða."
-Nú störfuðuð þið Jóhanna nokkuð
náið saman áður, hvað þýðir þetta fyr-
ir ykkar samstarf?
„Við höfum alltaf unnið mikið saman
við Jóhanna og ég reikna með að við
munum starfa á sama hátt áfram."
-Samt ferð þú í varaformanninn í
óþökk Jóhönnu, ekki satt?
.Jóhanna hefúr ekkert latt mig til
þess að fara í þetta, hún gerði sér full-
komlega grein fyrir þeirri stöðu sem
að þama var komin upp.“
-Hvemig metur þú stöðu Jóhönnu
eftir þetta, er hún ekki á niðurleið
innan Alþýðuflokksins?
,J4ei. Jóhanna Sigurðardóttir er AI-
þýðuflokknum ákaflega mikilvæg.
Hún kaus að víkja úr starfi varafor-
manns, úr forystunni, og ég tek það
fram að þar var ég ritari í þriðja emb-
ætti. Þetta er ákvörðun sem hún segir
að hafi haft langan aðdraganda. Hún
er ekki að víkja úr störfum fyrir flokk-
inn. Hún er í mikilvægu starfi og er
mjög miklivæg í okkar pólitísku for-
ystu, sem að hún heldur áfram að vera
í þó að hún hafi farið úr nákvæmlega
varaformannsembættinu."
-Nú gagnrýndi Jóhanna starfshætti
Alþýðuflokksins á flokksstjórnar-
fundinum á sunnudag. Ert þú ekki í
raun og veru að mótmæla hennar
gagniýni með því að taka varafor-
mannsembættinu?
,AHs ekki. Menn mega ekki gleyma
því að Jóhanna var ekki að fara úr Al-
þýðuflokknum. Jóhanna tók sjálf-
stæða ákvörðun um það að víkja úr
varaformannsembætti, vera áfram
ráðherra fyrir flokkinn og vinna að
framgangi mála hans. Ég hafði tekið
ákvörðun um það að vera þingflokks-
formaður - starfa með félögum með
féiögum mínum í þingflokki, alveg
óháð því sem áður hafði gerst - Ég hef
unnið bæði með Jóhönnu og Jóni
Baldvini. Mitt nána samstarf hefur
verið meira með Jóhönnu og ég á ekk-
ert von á að það breyti svo mjög miklu
um mína stöðu þó að ég taki að mér
þetta embætti." -ÁG
Rífandi veiði á loðnumiðunum og er aflinn orðinn rúm 70 þúsund tonn:
Hvalurinn farinn að venjast skipunum
„Það er bjart framundan og við vonum að viö getum fljótlega skál-
að fyrír vaxandi afla og hækkgndi prís,“ segir Snorrí Gestsson,
skipstjórí á loðnuveiðiskipinu Gígju VE frá Vestmannaeyjum.
Gígjan kom inn til löndunar á Siglu-
firði í fyrrakvöld með um 740 tonn af
ágætis loðnu. Þar af fengu skipsverjar
á Gígju VE um 350 tonn gefins frá
Sunnuberginu.
Rífandi loðnuveiði hefur verið á loð-
numiðunum djúpt út af norðaustur-
landi og eftir sl. helgi var heildaraflinn
frá 1. júlí orðinn rúm 70 þúsund tonn.
Um 20 skip hafa þegar hafið veiðar af
um 40 sem leyfi hafa til loðnuveiða.
Sökum góðrar veiði hafa skipin orðið
við þeim tilmælum verksmiðja að
stoppa í landi í 36 tíma og ef ekkert lát
verður á mokinu er viðbúið að sá tími
verði lengdur upp í tvo sólarhringa,
eða 48 tíma.
Enn er eitthvað um átu í loðnunni og
því þarf að vinna hana hratt þegar í
land er komið. Þurr- og fituinnihald
loðnunnar mælist nú samtals sum
30% sem þykir ágætt. Enn sem komið
er þá greiða verksmiðjur um 4 þúsund
krónur fyrir tonnið af loðnunni.
Þótt töluvert hafi orðið vart við hval
á miðunum þá virðist sem hann sé
farinn að venjast loðnuskipunum.
Snorri Gestsson segir að hvalurinn sé
farinn að synda út úr nótinni í tíma og
því sé minna um skemmdir af hans
völdum en oft áður.
Þá fögnuðu Vopnfirðingar því sl.
laugardagskvöld að sameign þeirra og
Þórshafnarbúa, Júpiter RE, kom með
fullfermi á miðunum eftir skamma
útivisL En eins og kunnugt er þá
keyptu þeir skipið af þrotabúi EG í
Bolungarvík á dögunum til að tryggja
hráefni fyrir bræðslumar á Þórshöfn
og Vopnafirði. -grfa