Tíminn - 21.07.1993, Blaðsíða 8
8 Tíminn
Miðvikudagur 21. júlf 1993
Njáluslóðir— Þórsmörk
Árieg sumarferð framsóknarfélaganna I Reykjavlk veröur farin laugardaglnn 14.
ágúst 1993. Að þessu slnnl verður fariö á söguslóðir Njálu og inn I Þórsmörk.
Aöalleiösögumaöur ferðarinnar veröur Jón Böövarsson.
Feröaáætfunin er þessi:
Kl. 8:00 Frá BSl.
Kl. 10:00 Frá Hvolsvelli.
Kl. 11:15 Frá Bergþórshvoli.
Kl. 12:30 Frá Gunnarshólma.
Kl. 17:00 Úr Þórsmörk.
Kl. 18:45 Frá Hllöarenda.
Kl. 20:00 Frá Keldum.
Kl. 20:45 Frá Gunnarssteini.
Kl. 22:00 Frá Hellu.
Aætlaö er aö vera I Reykjavlk Id. 23:30.
Skráning i feröina er á skrifstofu Framsóknarflokksins I slma 624480 frá 9.-13.
ágúst. Verö fyrir fulloröna 2.900 kr., böm yngri en 12 ára 1.500 kr.
Sumarhappdrætti Framsókn-
arflokksins 1993
Drætti I Sumarhappdrætti Framsóknarflokksins hefur veriö frestað til 9. ágúst n.k.
Velunnarar flokksins, sem enn eiga ógreidda miöa, eru hvattir til aö greiöa heims-
enda glróseöla fýrir þann tlma.
Allar frekari upplýsingar ve'ittar á skrifstofu flokksins eöa I slma 91- 624480.
Fjölskylduhátíð framsóknar-
manna á Vesturlandi
Fjölskylduhátlö framsóknarmanna á Vesturiandi veröur haldin 24. júll 1993.
Mæting aö Holti, Borgarhreppi, kl. 13.30.
Dagskrá:
1) Gróöursetning I landgræöslugiröingu Skógræktarfélags Borgarfjaröar.
2) Haldiö I Danlelslund I landi Svignaskarös og hann skoöaöur undir leiösögn
Ágústs Ámasonar.
3) Eftir Id. 16.30 veröur kveikt upp I stóru grilli viö sumarhús Steingrfms Her-
mannssonar aö Kletti I Reykholtsdal.
Takiö meö ykkur þaö sem þiö viljiö helst grilla til kvöldveröar. Margir góöir grilF
meistarar veröa meö I för og svo njótum viö saman ánægjulegrar kvöldstundar I
góöum féiagsskap og fögru umhverfi.
Formenn fnmsóknariééaganna i Vesturtandl
Héraðsmót framsóknar-
manna í V-Skaftafellssýslu
veröur haldiö i Tunguseli laugardaginn 24. júll og hefst kl. 23.00. Hljómsveit Stef-
áns P. leikur fyrir dansi. Mætum öll.
Framsóknarfólögln I Vestur-SkaftafeHssýslu
Umboðsmenn Tímans:
Kaupstaóur Nafn umboðsmanns Helmlll Síml
Ketlavfk Guörföur Waage Austurbraut 1 92-12883
Njarövfk Katrfn Siguröardóttir Hólagata 7 92-12169
Akranes Aöalheiöur Malmqvist Dalbraut 55 93-14261
Borgames SofFIa Óskarsdóttir Hrafnarkletti 8 93-71642
Stykkishóknur Erla Lárusdóttir Silfurgötu 25 93-81410
Grundarflöröur Anna Aöalsteinsdóttir Gmndargötu 15 93-86604
Hedissandur Lilja Guömundsdóttir Gufuskálum 93-66864
Búöardalur Siguriaug Jónsdóttir Gunnarsbraut 5 93-41222
Isaflöiöur Petrfna Georgsdóttir Hrannargötu 2 94-3543
Hólmavík Elfsabet Pálsdóttir Borgarbraut 5 95-13132
Hvammstangl Hólmfrföur Guömundsd. Flfusundi 12 95-12485
Blönduós Snorri Bjamason Uröarbraut 20 95-24581
Skagasbönd Ólafur Bemódusson Bogabraut 27 95-22772
Sauöárkrókur Guörún Kristófersdóttir Barmahllö 13 95-35311
SighiQöiöur Guörún Auöunsdóttir Hverfisgötu 28 96-71841
Akureyri Baldur Hauksson Drekagili 19 96-27494
Svalbaiöseyri Þröstur Kolbeinsson Svalbaröseyri 96-25016
Húsavfk Sævar Salómonsson Vallholtsvegi 11 96-41559
Óiafsflöiöur Helga Jónsdóttir Hrannarbyggö 8 96-62308
Raufarttöfn Eria Guömundsdóttir Aöalbraut 60 96-51258
VopnaQöröur Svanborg Vlglundsdóttir Kolbeinsgötu 44 97-31289
Egllsstaðlr Páll Pétursson Árskógum 13 97-11350
Seyðisfjöröur Margrét Vera Knútsdóttir Múlavegi 7 97-21136
Neskaupstaður Bryndls Helgadóttir Blómsturvellir 46 97-71682
ReyöarQöiöur Ólöf Pálsdóttir Mánagötu 31 97-41167
EskHJörður Björg Sigurðardóttir Strandgötu 3B 97-61336
Fáskrúösqöiöur Ásdls Jóhannesdóttir. Skólavegi 8 97-51339
DJÉplvogur Ingibjörg Ólafsdóttir Borgariandi 21 97-88962
Höfn Sigurbjörg Einarsdóttir Vlkurbraut 11 97-81274
Selfbss Margrét Þorvaldsdóttir Engjavegi 5 98-22317
Hverageiöi Þóröur Snæbjamarson Heiömörk 61 98-34191
Þorfákshöfn Halldóra S. Sveinsdóttir Egilsbraut 22 98-33627
EyrarbakkJ Bjami Þór Eriingsson Túngötu 28 98-31198
Laugarvatn Margrét Lárusdóttir Miðey 98-61236
Hvoisvödur Láms og Ottó Jónssynir Króktúni 18 98-78399
Vfk Sigurbjörg Bjömsdóttir Mánabraut 4 98-71133
Vestmannaeyjar Hrefna Hilmisdóttir Bröttugötu 39 98-12408
Manuela í Skálholti
Satt að segja var ég búinn að
gleyma því hve óumræðilega flínkur
flautuleikari Manuela Wiesler er og
mikill listamaður. Því enda þótt hún
hafi komið hingað annað veifíð sl.
13 ár, þá hefur hún verið búsett ann-
ars staðar, fyrst í Svíþjóð (þar sem
hún var kjörin tónlistarmaður árs-
ins 1991), en síðan í Austurríki. Nú
kom Manuela hingað til að taka þátt
í Sumartónleikum í Skálholti, en
hún átti einmitt þátt f að stofna til
þeirra, ásamt Helgu Ingólfsdóttur,
fyrir 19 árum. Manuela spilaði sömu
efnisskrána bæði á laugardag og
sunnudag — allt verk fyrir einsamla
flautu og öll eftir nútímatónskáld
önnur en sónata í a-moll eftir Carl
Philipp Emanuel Bach, næstelsta
bam Jóhanns Sebastians.
Svo mikil er snilli Manuelu, að hún
getur gert nánast hvaða tónlist sem
er áhugaverða og spennandi — en
þó ekki alveg alla. „Venjulegasta"
verkið á efnisskránni var sjálfsagt
sónata Bachs, en hið „óvenjuleg-
asta“ heitir Laconisme de l’alle
(1982) eftir finnska konu, Kaju Sa-
ariaho. Þar er beitt ýmiss konar
brellum sem einu sinni voru nýstár-
legar, en eru það ekki lengur, svo
sem eins og því að flautuleikarinn
syngi sjálfur ýmist í flautuna eða
ekki, flytji ljóð o.s.frv. Þá var þama
Solo per Flauto (1983) eftir Karl-
Erik Welin, sem, að því er skráin
segir, vann sér frægðarorð fyrr á ár-
um með því að eyðileggja konsert-
flygla með sleggju á tónleikum. Ég
man einmitt þá tíð, fyrir svosem 30
ámm, þegar fslenskum ungskáldum
þótti mikið til slíks hugmyndaflugs
og andríkis koma og það standa lítt
að baki þeirri uppákomu að selja
upp yfir flygil á tónleikasviði. En nú
er Welin víst allur og menn orðnir
leiðir á gemingum af þessu tagi.
Flautuverk Welins var annars mjög
áheyrilegL Þá var þama Sequenza
(1958) eftir Luciano Berio, en
skemmtilegasta nútímaverkið var
þó hið síðasta, EI Amolador (hnífa-
brýnarinn, 1992) eftir Adina Izarra,
þar sem flautan hermir eftir hljóði
brýnis á hnífsegg.
Manuela Wiesler er næsta fullkom-
inn tónlistarmaður og flytjandi,
með frábæra, áreynslulausa tækni,
óvenjulega hreinan og hljómmikinn
tón, fölskvalausan tónlistarskilning,
heillandi framkomu. Og öllu þessu
beitti hún til hins ýtrasta til að skapa
áheyrendum eftirminnilega stund í
Skálholtskirkju, meðan sólin ham-
aðist við að skína fyrir utan.
Næst verða tónleikar í Skálholti
um aðra helgi (31. júlí og 1. ágúst);
þeir verða helgaðir tónskáldinu og
knéfiðlaranum Hafliða Hallgríms-
syni. Sig. SL
r
Jarðfræði Alandseyja
Enn eiga fjögur frímerki eftir að
koma út á þessu ári á Álandseyjum.
Þrjú þeirra em frímerki er sýna
berggmnn eyjanna og koma út þann
3. september. Kynningin hljóðar svo
að þetta séu þrjú fyrstu frímerkin í
samstæðu sem á að sýna berggmnn
Álandseyja. Þetta verður samstæða
notkunarfrímerkja til daglegrar
notkunar, sem sagt í bundnum
verðgildum almennrar notkunar á
hverjum tíma. Eitt af sérkennunum
í berggmnni Álandseyja er rauða
grantíð sem þar er að finna. Það em
annars rauð afbrigði af rapakivi-
graníti, sem bókstaflega þekja mik-
inn hluta eyjanna, en gneis og gran-
ít em helstu bergtegundimar.
Fyrsta frímerkið er að verðgildi
2,00 álensk mörk og sýnir diabas-
berggang frá Sottungu, Bessaskeri
fyrir austan Húsey. Það em þekktir
yfir 300 berggangar með diabas í
eystri hluta skerjagarðsins umhverf-
is Áland, fastalandsins eins og þeir
kalla það. Þessi hluti skerjagarðsins
liggur frá Kökar, eyjunni þar sem
verið er að grafa upp gamalt Frans-
iskanaklaustur, og til Brandeyjar.
Þessir berggangar mynduðust þegar
bráðið basalt þrengdi sér inn í
hverskonar spmngur sem opnuðust
vegna hreyfinga í jarðskorpunni. Yf-
irleitt em berggangarnir upp á rönd
í landslaginu, sbr. hellumar á norð-
vesturhluta íslands, Hvítserk og
fleiri. Upplag þessa frímerkis er ekki
endanlega ákveðið ennþá, en það
verður prentað strax í upplaginu ein
milljón og þá er útgáfúdagur
áprentaður í jaðarprentinu, svo að
auðvelt er að ákvarða hvað er fyrsta
prentun. Þegar svo viðbótarútgáfur
koma em aðrar dagsetningar á
þeim.
Annað frímerkið er svo að verðgildi
2,70 álensk mörk. Myndefni þess er
bólstrahraun frá Kumlinge, nánar
tiltekið Vestra Varpskeri. Þama er að
finna vel varðveitt bólstraberg, sem
sannar að gos hafa átt sér stað á
Kumlinge fyrir um það bil 1,900
milljón ámm síðan. Bólstrabergið
myndaðist þegar hraunið rann út í
vatnið. Jafriframt lagðist aska í lög-
um í leir og sand í hrauninu og má
nú skoða þessi lög sem bönd í ýms-
um litum í gneisunum. Þetta frí-
merki er einnig áætlað að gefa út í
ótakmörkuðu upplagi, en fyrsta
prentunin verður 700 þúsund frí-
merki.
Þriðja frímerkið er svo að verðgildi
6,00 álensk mörk. Myndefni þess er
svo gneis frá Gloskeri í Sottunga,
sunnan við Hestey. Þama hefir berg-
keðjan einhver fallegustu form sem
þekkt em á eyjunum af gneisþráð-
um í berginu, í ríkri litadýrð. Sökum
þess að mismunandi efni em í þess-
um þráðum, ásamt með granítæð-
Afmælis- og
minningargreinar
Kirkjan I Sottunga, stimpillinn og
fyrstadagsumslagið.
unum, verður það einnig þess vald-
andi að margskonar myndform
koma fram á steinum, stundum ekki
ósvipað kaðalmyndunum eins og
þekktar em í íslensku hrauni. Þessi
frímerki em gefin út í 800 þúsund-
um í fyrstu útgáfu.
Frímerkin em hönnuð af Charles
Hemmingson og prentuð í fjögurra
lita offset hjá House of Questa á 102
gr/m pappír í 2x20 merkja örkum
með gutter pömm á milli. Tökkun
er 14 og stærð merkjanna
35,96x25,73 mm.
Síðasta útgáfa ársins er svo kirkju-
frímerkið, sem kemur út þann 8.
október. Það er af kirkjunni í Sot-
tunga, sem er helguð Maríu Magdal-
enu. Upphaflega kapellan var frá
miðöldum, en var flutt og brann síð-
an á 16. öld. Ása Ringbom, sem hefir
rannsakað sögu kapellunnar, segir
að hún hafi bmnnið í Ófriðnum
mikla, sem kallaður er. Það var svo
1726 að farið var að byggja kirkju á
ný í Sottunga. Var hún byggð á sama
stað og að mestu leyti eins og vitað
var að hin fyrri hafði verið. Þetta er
trékirkja í einu skipi með þríhliða
kór og skrúðhús er á miðri norður-
hlið. Klukknatuminn er svo um 60
metra suðvestur frá kirkjunni. Báð-
ar byggingarnar em tjargaðar og
rauðmálaðar. Síðari byggingin var
svo vígð árið 1730 og mikil viðgerð
Þeim, sem óska birtingar á afmælis- og/eða
minningargreinum í blaðinu, er bent á, að
þær þurfa að berast a.m.k. tveimur dögum
fyrir birtingardag.
Þœrþurfa að vera vélritaðar.
fór fram árið 1974.
Verðgildi frímerkisins er ekki
ákveðið ennþá; það er hannað af
Pirkko Vahtero, en umslagið er
hannað af Ingu-Britt Wiktorsson.
Upplagið er 650 þúsund stykki og er
frímerkið prentað hjá Setec Oy.
Sigurður H. Þorsteinsson