Tíminn - 10.08.1993, Qupperneq 3

Tíminn - 10.08.1993, Qupperneq 3
Þriðjudagur 10. ágúst 1993 Tíminn 3 Salan í hámarki hjá lceiand Seafood og birgðir safnast upp. Magnús Friðgeirsson: Allar pípur fullar til Bandaríkjanna „Þær pípur sem eru fýrír hendi til Bandaríkjanna eru fullar," segir Magnús Fríðgeirsson, forstjórí lceland Seafood, í samtali við Tim- ann. Það sem af er þessa árs hefur orðið söluaukning hjá lceland Seafood í Bandaríkjunum sem nemur að meðaltali 13% f magni og 9% í verðmætum. Segja má að salan hjá lceland Seafood sé í há- marki um þessar mundir á öllum tegundum nema ufsa. Framleiðsla á Bandaríkjamarkað hefur verið mikil einkum vegna þess hversu hár dollarinn hefur verið. Að sögn Sæmundar Guðmundssonar, að- stoðarframkvæmdastjóra íslenskra sjávarafurða, hefur þess vegna verið reynt að fylla allar pípur, eins og Magnús bendir á, að hafi tekist „Þannig að við liggjum nú með tölu- verðar birgðir," segir Sæmundur. J>etta eru helst birgðir af þorski og við erum núna að koma fram á haust- ið og það er minnkandi kvóti. Þannig að ég myndi segja að það gæti farið svo, þegar kemur fram á vetur, að mönnum þykji ágætt að eiga einhveij- ar birgðir. Það gæti orðið hið besta mál.“ Á sama tíma og sala og framleiðsla á Bandaríkjamarkað hefur aukist hefur salan á Evrópumarkaði dregist saman. J»að hefur orðið samdráttur á Evr- ópumarkaði, það er alveg rétt, bæði í Frakklandi og Bretlandi. Það er aðal- lega efnahagsástandið í þeim löndum sem hefur þau áhrif og það er líka töluvert framboð af fiski,“ segir Sæ- mundur. „Þetta sveiflast alltaf milli markaða eftir því hvemig gengið og efnahagsástand landanna er.“ Söluaukningin hjá Iceland Seafood hefur átt sér stað þrátt fyrir að margir af stórum kaupendum íslensks þorsks í Bandaríkjunum hafi snúið sér til annarra tegunda. Stórar veitinga- húsakeðjur eins og Long John Silver, Burger King og Macdonalds hafa vikið sér að verulegu leyti frá þorski yfir í Alaska-ufsa. „Þessi þróun hefur verið að eiga sér stað á síðustu tveimur til þremur ár- um. Þorskverðið keyrði fram úr öllu hófi á fyrstu mánuðum 1991. Þá fóru þessir stóru aðilar að líta í kringum sig og fóru í sínar breytingar. Þar af Ieiðandi má segja sem svo, að þorsk- notkun í Bandaríkjunum hefi farið verulega mikið niður," segir Magnús. „Við höfum reynt að bæta upp í þetta með því að auka viðskiptin við smærri aðilana. En það er að sjálfsögðu sein- unnara, því hvert smátt vígi sem mað- ur vinnur gefur minni aukningu held- ur en þegar stóru aðilamir hreyfa sig.“ Verðið hefur sigið nokkuð og á þessu ári hefur þorskblokkin lækkað úr 2.10 Bandaríkjadölum allt niður í 1.75. Samningur um sölu á ufsa Salan er í hámarki á Bandaríkja- markaði, en að sögn Magnúsar gæti Iceland Seafood þó vel selt umtalsvert meira af ufsa. Nú hafa íslenskar sjáv- Curver - Rubbermaid: Zimsen fær einkaumboð Jes Zimsen hf., sem rekur tvær heimilsvöruverslanir í Reykjavík, hefur tekið að sér einkaumboð fyrir Curver - Rubbermaid á íslandi. Cur- ver-Rubbermaid er eitt þekktasta vörumerkið í plastvörum sem flutt er til landsins. Jes Zimsen hf. og Mikligarður hafa um langt árabil flutt inn Curver - Rubbermaid samhliða, en við fráfall Miklagarðs varð Jes Zimsen hf. einkaumboðsaðili. arafurðir gert samning við rússneska útgerðarfyrirtækið UTRF í Kamchatka um sölu á Alaska-ufsa, en eins og áður segir, nýtur hann talsverðrar eftir- spumar á Bandaríkjamarkaði um þessar mundir. „Við gerðum samning um sölu á af- urðum frá einum frystitogara fyrir- tækisins. Við tókum hann yfir í endað- an júní og erum með tvo menn úti, sem eru þar við leiðbeiningarstörf og við að koma þessu í gang," segir Sæ- mundur. „Fyrsta sendingin, 140 tonn, er á leiðinni á markaðinn." GS. Nýr forstjóri Landhelgis- gæslunnar: Hafsteinn ráðinn Hafsteinn Hafsteinsson hæstaréttarlögmaður hefur verið skipaður í starf for- stjóra Landhelgisgæslu ís- lands frá 1. september n.k. Hafsteinn hefur meðal ann- ars starfað sem lögfræðingur Landhelgisgæslunnar og sinnt ýmsum trúnaðarstörf- um svo sem formennsku Mönnunamefndar frá árinu 1985. -GKG. Nu er ÞrefaMur 1 .viimingur \ Spilaðu með fyrir kl. }t 16 á miðvikudag Verður liami 100.000.000 kr.?

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.