Tíminn - 10.08.1993, Síða 9
Þriðjudagur 10. ágúst 1993
Tíminn 13
Frá félagi eldri borgara í
Reykjavík og nágrenni
Opið hús f Risinu í dag frá kl. 13.00 -
17.00. Bridge og frjáls spilamennska.
Þriðjudagshópurinn kemur að nýju
saman í Risinu, Hverfisgötu 105 íd.
20.00 íkvöld.
Fjölbreytt blaö
kvennaathvarfsins
Út er komið fréttablað Samtaka um
kvennaathvarf.
í blaðinu er fjölbreytt efni, greinar, við-
töl og margs konar fróðleikur um
kvennaathvarfið og starfsemi þess.
Meðal greinahöfunda eru séra Sólveig
Lára Cuðmundsdóttir sem er prestur
kvennaathvarfsins, Ragnheiður Indriða-
dóttir sálfræðingur, Guðrún Ágústsdótt-
ir upplýsinga- og kynningafulltrúi
kvennaathvarfsins og Jenný Baldursdótt-
ir vaktkona.
í blaðinu eru viðtöl um kvennaathvarf-
ið og starfsemi þess. Birt er viðtal við
eina dvalarkvennanna um aðdragandann
að dvöl hennar, viðtal við Áslaugu Frið-
riksdóttur fyrrv. skólastjóra um skóla at-
hvarfsins þar sem Áslaug kennir og sagt
er sérstaklega frá bamastarfinu með
grein eftir bamastarfsmanninn Díönu
Sigurðardóttur. Creinin heitir „Mánu-
dagur á miðjum vetri".
Eitthvert athyglisverðasta efriið f blað-
inu eru teikningar eftir böm sem dvalist
hafa í athvarfinu með mæðmm sínum.
Á árinu 1993 hafa fleiri konur og böm
komið f athvarfið en nokkm sinni fyrr á
þeim tæplega 11 árum sem það hefur
starfað.
Fréttablaðið er sent til mörg þúsund að-
ila um land allL
Námskeiö um lýsingu í ylrækt
Notkun garðyrkjulýsingar hér á landi
hefúr mjög aukist hin síðari ár. Fyrst var
lýsig eingöngu notuð við uppeldi á plönt-
um, en núna er hún orðin mikilvægur
þáttur f ræktun plantnanna. Rósaræktun
er möguleg allan ársins hring með til-
komu lýsingar. Á síðari ámm hefúr áhugi
manna beinst að því að nota lýsingu við
ræktun og á grænmeti f gróðurhúsum.
Nú þegar hafa garðyrkjubændur notað
lýsingu við gúrkuræktun með góðum ár-
angri.
Garðyrkjuskóli ríkisins mun halda
námskeið um lýsingu f ylrækt dagana
16.-17. ágúst Fyrirlesari námskeiðsins
verður Svein O. Grimstad en hann vinn-
ur við rannsóknir og þróun garðyrkju-
lýsingar á tilraunastöð landbúnaðarins f
Særheim í Noregi. Hann mun fjalla al-
mennt um gaðyrkjulýsingu svo sem val á
lömpum, lampaskerma, uppsetningu og
viðhald lampa. Sagt verður frá reynslu
Norðmanna við ræktun á ýmis konar
grænmeti með lýsingu s.s. gúrkum,
tómötum og paprikum. Einnig verður
fjallað um notkun lýsingar við ræktun
afskorinna blóma. Eftir námskeiðið
verður garðyrkjubændum boðið upp á
ráðgjöf.
Garðyrjuskóli ríkisins
Leikskólastjóri
Leikskólinn Kæribær, Fákrúðsfirði auglýsir eftir leikskóla-
stjóra með fóstrumenntun.
I skólanum er starfemaður í fjamámi við Fósturskóla (s-
lands.
Umsóknarfrestur er til 1. september ‘93. Upplýsingar eru
veittar í síma 97-51339, Elsa og 97-51220, sveitarstjóri.
Leikskóli, Kjalamesi
Fóstru eða annan hæfan starfekraft vantar til starfa við
leikskólann Kátakot á Kjalamesi firá 1. september nk.
Upplýsingar um starfið veita leikskólastjóri í símum
667383 og 666039 og undirritaður í síma 666076.
Svertarstjóri Kjalameshrepps
SJÁLFSBJÖRG
FÉLAG FATLAÐRAI REYKJAVfK OG NÁGRENNI
Hátúni 12, pósthólf 5183, slmi 17868
SjáHsbjörg,
félag fatlaðra í Reykjavík og nágrenni,
auglýsir eftir framkvæmdastjóra frá 1. október nk.
Skriflegum umsóknum ber að skila á skrifstofu fé-
lagsins, Hátúni 12,105 Reykjavík, fýrir20. ágúst.
Upplýsingar gefur formaður félagsins í síma
38132 milli kl. 18 og 19 virka daga.
Móðir mfn, tengdamóöir og amma okkar
Guðrún Melstað
Bjarmastíg 2 Akureyri
veröur jarösungin frá Akureyrarkirkju miövikudaginn 11.
ágústkl. 13.30.
Blóm og kransar vinsamlega afþakkaöir en þeim sem vildu minnast henn-
ar er bent á llknarfélög.
Karftas Melsteð
Sverrir Ragnarsson
og bamaböm hlnnar látnu
V________________________________________________________________/
i. 8$
Sonur leikkonunnar hélt á hringjunum viö athöfnina. Systur brúöarinnar voru brúöarmeyjar auk stjúpdóttur og dóttur.
Glæsibrúökaup í Kaliforníu:
^ómantík í
Hollywood
Leikonan Jane Seymour og
kvikmyndaleikstjórinn James
Keach gengu í það heilaga á
dögunum. Þetta var fjórða
hjónaband hennar og hér
kvæntist brúðguminn f þriðja
sinn en parið hittist nákvæm-
lega ári áður við upptökur á
kvikmyndinni „Sólstingur". Að
sögn hafa þau verið ákaflega ást-
fangin síðan og ekki var annað
að sjá og finna á brúðkaupsdag-
inn en ástin yrði sönn og viðvar-
andi, enda sagðist brúðguminn
aldrei hafa elskað nokkra mann-
eskju eins innilega og hana Jane
sína. Viðstödd brúðkaupið voru
börn beggja, foreldrar og vinir
hvaðan æva að úr veröldinni
sem sumir hverjir flugu langa
leið til Kalifomíu þar sem vígsl-
an fór fram. Brúðhjónunum
voru færðar margar og dýrar
gjafir en ein var sú gjöf þó sem
gladdi James mest en það var
bók, innbundin í lcður sem Jane
gaf manni sínum. í þessa bók
ætla þau að skrifa hugleiðingar
sínar, hvort til annars í hjóna-
bandinu, sem eins konar fram-
hald bréfaskrifanna sem á milli
fóru í tiilhugalífinu, því líf
þeirra hjóna verður væntanlega
áfram sem hingað til í formi
mikilla íjarvista, svo önnum kaf-
in eru þau við störf sín, oft sitt
hvom megin við Atlantshafið.
Brúöurin var klædd I síöan laxa-
bleikan brúöarkjói sem rheö einu
handtaki mátti breyta I sumarlegan
samkvæmisklæönaö.
James er bróöir Stacy Keach sem
geröi mikla lukku I rlkissjónvarpinu
fyrir nokkrum árum sem hetjan
Mike Hammer.