Tíminn - 24.08.1993, Qupperneq 1
Frétta-Tíminn.Frétta-síminn—68-76-48...Frétta-TíminnFrétta-símínn...6Ö-76-48...FréttaTíminnFrétta-síinmn..>68-76-48
Þriðjudagur
24. ágúst 1993
157. tbl. 77. árg.
VERÐí LAUSASÖLU
KR. 125.-
Maður á reynslulausn drepur mann í Reykjavík:
Nýleg reglugerð
hefði komið í veg
fyrir reynslulausn
Þijátíu og tveggja ára Reykvíking-
ur var myrtur aðfararnótt sunnu-
dags. Þórður Jóhann Eyþórsson,
36 ára gaf sig fram við lögregluna
í Reykjavík um morguninn. Hann
hefur áður gerst sekur um morð
og var á reynslulausn. Ari Edvald,
aðstoðarmaður dómsmálaráð-
herra, segir Þórð hafa verið á skil-
orði reynslulausnar frá árinu
1989 sem hann hafi ekki rofíð
fyrr en nú. Hann segir að nýleg
reglugerð hefði samt komið í veg
fyrír reynslulausn hefði hún verið
ígildL
Þórður Jóhann stakk með hnífi
húsráðanda kjallaraíbúðar við
Snorrabraut en fyrrverandi sam-
býliskona Þórðar var þar einnig.
Húsráðandinn lést af völdum
áverkanna seinna um nóttina.
Umræður hafa vaknað í kjölfar
þessa um reynslulausn fanga sem
hafa framið alvarlega glæpi. Ari
minnir á nýja reglugerð um
reynslulausn á föngum sem gefin
var út í upphafi þessa árs. Þar er
dregið úr möguleikum á náðun
efdr helming afþlánunartímans
hjá þeim föngum sem gerst hafa
sekir um alvarlega glæpi.
Ari bendir því á að sá afbrotamað-
ur sem um ræðir hefði því ekki
fengið reynslulausn, hefði beiðni
þar að Iútandi komið ffam í dag en
honum var veitt reynslulausn í lok
árs 1989. Ari segir að það hafi ver-
ið eðlilegt miðað við þá reglugerð
sem þá var í gildi.
Ari segir að Fangelsismálastofh-
un ríkisins sjái um framkvæmd
reglugerðarinnar. Synji stofnunin
um reynslulausn er hægt að skjóta
þeim úrskurði til sérstakrar náð-
unamefhdar sem leggur sitt mat á
úrskurðinn sem síðan er skotið til
dómsmálaráðherra. Það er svo
hann sem á síðasta orðið en að
sögn Ara fer ráðherra undantekn-
ingalaust eftir áliti náðunamefnd-
ar.
Ari bendir á að umræddur af-
brotamaður hafi setið af sér 7 ár
fyrir morð sem hann ffamdi í upp-
hafi ársins 1983 og því hafi hann
sem nær lokið helmingsrefsingu.
í frétt DV í gær er sagt að viðkom-
andi brotamaður hafi rofið skilorð
þar sem hann gerðist sekur um
ölvunarakstur. Þetta segir Ari vera
ranga fullyrðingu og veit ekki til að
þessi maður hafi gerst sekur um
ölvunarakstur. „Samkvæmt þeim
upplýsingum sem ég hef hefur
hann ekki rofið það skilorð," segir
Ari og bendir á að þótt viðkomandi
hafi gerst sekur um ölvunarakstur
dugi það ekki til að rjúfa skilorðið.
Þar vísar hann til þess að saka-
menn þurfi að brjóta ákvæði al-
mennra hegningalaga en ölvuna-
rakstur brjóti í bág við umferðalög.
Þá bætir hann við að dómarar
dæmi um þetta og ákveði mönn-
um eftirstöðvar refsinga brjóti þeir
skilorð. „Framkvæmdavald, eins
og Fangelsismálastofnun getur
ekki kallað menn til afplánunar
nema um sé að ræða ótvírætt brot
á hegningalögum," segir Ari.
Ari segir að sakamönnum sem
hefur verið veitt skilorðsbundin
refsilausn beri að tilkynna sig
reglulega. „Ég veit ekki til annars
en það sé í sæmilegu horfi," segir
Ari og veit ekki betur en að Þórði
hafi verið gert að sæta því.
-HÞ
METÞATTTAKA var í Reykjavíkurmaraþoni um helgina þegar 3.546 manns tóku þátt f
fjórum flokkum. Hlaupið þótti heppnast sérstaklega vel, þrátt fyrir að eldri maður hafi fengið slag
og látist þegar hann var að hlaupa. Sjá íþróttaumfjöllun á bls. 7-10 Tfmamynd G.E.
Fækkar í Smugunni
Nokkrir fslensku togaranna sem
hafa verið á veiðum í Smugunni
svonefndu í Barentshafí eru lagðir
af stað heimleiðis sökum lélegra
aflabragða og einnig vegna þess
hversu hátt hlutfall af smáfíski er í
aflanum. Þegar mest var voru hátt í
30 togarar á veiðum í Smugunni.
í morgun lagði íslenska sendi-
nefndin af stað til Stokkhólms til
viðræðna við Norðmenn um veið-
amar í Smugunni. Þann fund munu
Rússar ekki sitja að sögn Kristjáns
Ragnarssonar, formanns LÍÚ. Hann
segir það jafiiframt ekki vera neina
forsendu í málinu að íslensku togar-
amir haldi áfram veiðum á meðan
viðræður þjóðanna fari fram í
Stokkhólmi eins og sjávarútvegs-
ráðuneytið mun hafa kvatt skip-
stjórana til að gera.
Um helgina stóð jafnvel til að ís-
lensku skipin myndu færa sig yfir á
fiskverndunarsvæðið við Svalbarða.
Þessi ákvörðun var tilkynnt til sjáv-
arútvegsráðuneytisins sem hvatti
skipstjórana eindregið til að hætta
við þá ákvörðun þar sem búast
mætti við beinum afskiptum Norð-
manna og þeir myndu jafnvel færa
viðkomandi skip til hafnar fyrir
landhelgisbrot.
„Þettajjefur gengið allt á afturfót-
unum aðþví4eytinu til aðafli er lít-
ill og mjög smár fiskur. Ástandið er
þannig núna að þeir eru að meta
sína stöðu og sumir em lagðir af
stað heim. Ég geri ráð fyrir að þar sé
aðallega um ísfisktogara að ræða en
ég veit ekki hvað þeir em margir,"
segir Kristján Ragnarsson.
Svo virðist sem ásakanir Norð-
manna í síðustu viku, að í afla ís-
lensku skipanna væri of hátt hlutfall
af smáfiski, hafi verið á rökum reist-
ar.
„Það má ekki gleyma því að okkar
menn hlýddu, tóku upp og fóm út
fyrir það svæði þar sem mikið var
um smáfisk. Þeir ráku svo í ágætis
fisk á öðm svæði en þar sem mörg
skip vom á litlu svæði fór aftur að
bera á of háu hlutfalii af smáfiski í
aflanum. Mörgum finnst af þeim
sökum að þeir séu komnir í stöðu
sem ekki er réttlætanleg."
-grh
Davíð Scheving Thorsteinsson leitar hófanna hjá erlendum og innlendum kröfuhöfum Smjörlíkis hf.
í bréfí sem Davíð Scheving Thorsteinsson, forstjóri Sóiar Smjörlík-
is h.f., sendi nýlega eríendum kröfuhöfum fyrirtækisins er leitað
eftir meömælum þeirra með nauðasamningum sem byggi á því að
30% af upphaflegum kröfum fáist greidd. „Undirtektimar hjá þeim
aðilum sem ég hef talað við, erlendum sem innlendum, hafa verið
afskaplega jákvæðar," segir Davíð og telur því fyllstu ástæðu til
bjartsýni.
Davíð hefur að undanförnu róið líf-
róður til að bjarga fyrirtækinu og
m.a. fallið frá kröfum um eftirlaun
sem hann hefur unnið sér á fjörtíu
ára ferli.
Eins og kunnugt er flutti dótturfyr-
irtæki Sólar, íslenskt bergvatn, ís-
lenskt vatn í neytendapakkningum
til Bandaríkjanna. Þar brást salan og
tapaði fýrirtækið 6 millj. $ eða rúm-
lega 420 millj. íslenskra króna
vegna rangra ákvarðana við mark-
aðssetningu að sögn Davíðs.
Hann segir að til viðbótar þeim
30%, sem hann býður kröfuhöfum,
komi 14% virðisaukaskattur sem
þeir fái endurgreiddan og því sé í
raun verið að fara fram á að kröfú-
hafar fái 44% greidd af kröfúm sfn-
um.
„Málið er ekki komið lengra en það
að við erum að reyna að fá leyfi til
nauðasamningaumleitana," segir
Davíð og bendir á að einungis sé um
þreifingar að ræða. „Fyrst þurfum
við að tala við þessa menn og það
tekur langan tfrna," bætir Davíð við.
Davíð segir að aðallega sé um er-
lenda kröfuhafa að ræða eða erlenda
birgja eins og hann orðar það sem
hafi selt fyrirtækinu hráefni en
hann vill ekki greina frá heildarupp-
hæð skuldanna.
„Það þarf 25% atkvæðis manna og
25% upphæða og þessu erum við
ekki búnir að ná,“ segir Davíð um
það sem þurfi til að geta lagt fram
beiðni um nauðasamninga til yfir-
valda. Hann á von á að þetta takist í
vikunni.
í lok júlí tók Sól rekstrarfélag við
rekstri Smjörlíkis Sólar og segir
Davíð að frá þeim tíma hafi allir
reikningar verið greiddir. „Menn eru
kannski miklu rólegri því það hafa
streymt til þeirra tugir milljóna kr.
frá þeim tírna," segir Davíð en geta
má þess að Sól rekstrarfélag er rekið
sem dótturfyrirtæki Smjörlíkis Sól-
ar h.f.
Davíð segir að gangi nauðasamn-
ingarnir eftir sé bjart framundan.
Hann vísar m.a. til þess að fyrr í
Davið Schevlng Thorstelnsson.
mánuðinum yfirtók breska fyrir-
tækið Seltzer rekstur íslensks berg-
vatns og leigir hann til að byrja með
til sex mánaða.
Davíð bendir á að með þessum ráð-
stöfunum takist að forðast að nokk-
ur starfsmaður verði atvinnulaus.
„Útflutningurinn heldur áfram á
ftillu og það markaðsstarf sem búið
var að vinna hérlendis og erlendis
glatast ekki,“ bætir hann við og seg-
ir að með þessu hafi sér tekist að
forða fyrirtækinu frá gjaldþroti. „Að
öðrum kosti hefðu 70 manns misst
vinnuna," bætir hann við og
ótryggðir kröfuhafar tapað öllu
sínu.
Davíð segir að erlendir lánadrottn-
ar séu yfirleitt tryggðir gegn áhættu
við útflutning og oftast sé það hið
opinbera í viðkomandi löndum sem
tryggi þá. „Það verða því skattgreið-
endur víða um lönd sem borga þetta
þegar upp er staðið," sagði Davíð að
lokum. -HÞ