Tíminn - 24.08.1993, Síða 2

Tíminn - 24.08.1993, Síða 2
2 Tíminn Þriðjudagur 24. ágúst 1993 Verðkönnun Neytendasamtakanna í samvinnu við neytendafélög í öllum landshlutum og verkalýðsfélögin á Eskifirði og Eyjum: Verulegar hækkanir og mikill verðmunur JVuövitað stingur það ( stúf þegar maður sér innfluttar vörur hækka talsvert meira í verði en sem nemur gengisfellingunni. Þannig aö mér finnst margir hafa gengið glannalega um gleðinnar dyr þegar gengið var fellt á sama tíma og kaupmáttur heimilanna minnkar," segir Jóhannes Gunnarsson, formaöur Neytendasam- takanna. Ráðstefna um verslun, tjárfestingu og vamir: Samskipti íslands og Bandaríkj- ur haldin í samvinnu við Útflutn- anna á sviði verslunar, fjárfest- ingsráð íslands, Verslunarráð fs- inga og vamarmála verða rædd á iands og sendiráð íslands í Wash- ráðstefnu sem haldin verður af ington. Umræðuefnið er valið í íslensk- ameriska verslunarráð- Ijósi þeirra öru breytinga sem inu þann 1. október n.k. í Wash- eru á sviði viðskipta og stjóm- ington D.C. Af ræðumönnum má mála í heiminum. Meðal ræðu- m.a. nefna Bond Evans, fostjóra manna verða þrír íslenskir ráð- Alumax, sem ætlar að ijalla um herrar: Jón Baldvin Hannibals- gárfestingar í orkufrekum iðnaði son, Friðrik Sophusson og Sig- á íslandi frá sjónarhorni Banda- hvatur Björgvinsson og tveir ríkjamanna og Ron Bulmer, bandarískir aðstoðarráðherrar; framkvæmdastjóri kanadíska Walter B. Slocombe I varnar- fiskveiðiráðsins, ætlar að fræða málaráðuneytinu og Peter F. All- ráðstefnugesti um reynslu Kan- geiner aðstoðviðskiptaráðherra. adamanna af fríverslunarsamn- Af öðrum umræðuefnum má ingi við Bandaríkin. td. nefna erindi um ástand og Aukin viðskipti milli íslands og horíur í íslenskum efnahagsmál- Bandaríkjanna og aukinn skiln- um, stöðu íslands í vamarsam- ingur á mikiivægi þeirra er sagt starfi vestrænna þjóða, mögu- helsta markmið íslensk-ameríska leika útlendinga til fjárfestingar á verslunarráðsins, sem íslandi og stöðu íslands í alþjóða- starfað hefur f Bandaríkjunum viðskiptum. frá árinu 1985. Ráðstefhan verð- - HEl Verð á matvöru hækkaði verulega í júlí og fram í byrjun þessa mánaðar, samkvæmt verðkönnun sem Neyt- endasamtökin gerðu á þessu tímabili. Sem dæmi þá hækkaði verð á t.d. Jacob’s tekexi að meðaltali um rúm- lega 10% en mest um 38% í einni verslun. Sömuleiðis hækkaði verð á Silkience sjampói að meðaltali um rúmlega 10% á milli kannana og mest um 49% í einni verslun. Þá reyndist einnig vera verulegur verðmunur á milli verslana. Mestur var munurinn á grænmeti og ávöxt- um eða á bilinu 152%-479%. Þannig var hægt að kaupa kfló af grænni papriku á 171 krónu en 990 krónur í annarri. Af 147 vörum var verðmunur í 19 tilvikum 100% eða meira og f 90% tilvika var munurinn 50%-100%. Samkvæmt útreikningum á meðal- verði reyndist verðið lægst í Bónus í Hafnarfirði en hæst f Kaupfélagi ís- firðinga í Súðavík. Fyrri könnun Neytendasamtakanna var gerð 5. júlí og náði til 18 verslana víða um land. Síðari könnunin var gerð dagana 5.-9. ágúst sl. í 41 verslun og var sú könnun gerð í samvinnu við neytendafélögin í Grundarfirði, Stykk- ishólmi, ísafirði, Akureyri, Húsavík, Egilsstöðum, Suðurlandi og Suður- nesjum, auk verkalýðsfélaganna í Vestmannaeyjum og verkalýðsfélags- ins Árvakurs á Eskifirði. í þessum könnunum var kannað verð á 147 vörutegundum og þá einkum al- gengum dósa- og pakkavörum, en einnig nokkrum tegundum kjöt,- fisk- og mjólkurvörum, ávaxta og græn- metis. Jóhannes Gunnarsson segir að það sé ekkert launungarmál að verkalýðsfé- lagið Árvakur á Eskifirði og verkalýðs- félögin í Eyjum hafi haft samband við samtökin og óskað eftir samstarfi. ,Mér fannst það mjög ánægjulegt og ég hefði gjaman viljað heyra í fleir- um.“ Hins vegar vekur það athygli að Verð- Iagseftirlit Verkamannafélagsins Dagsbrúnar lagði þessum verðkönn- unum ekki lið og mun ekki hafa haft samband við Neytendasamtökin þar að lútandi. -grh Seðlabanka þykir athyglivert að vextir óverðtryggðra innlána hækki óverulega en þeir eru nú niður í 0,5% á sparisjóðsbókum. Allt að 41 % ávöxtun af 45 daga víxli sem velt er í ár „Hvað kosta peningamir," er spurt og svarað, f nýjasta fróttabréfi Félags íslenskra iðnaöarmanna. Og niðurstaðan er sú, að nafn- ávöxtun fari í allt að 41% á ári hjá fslandsbanka og hefur þar hækk- að úr 26% fyrir rúmu ári, eða um 15 prósentustig. Landsbankinn er meö lægstu prósentuna, 33%. Viö útreikningana er miöað vlö ávöxtun 45 daga 100.000 kr. viðskiptavfxils sem velt er í eitt ár og tillit tekið til kostnaðar, þ.e. þóknunar banka og sparisjóða. Á sama tíma og bankamir taka allt að 41% í vexti og þóknun fyrir pen- inga sem þeir lána, og rökstyðja geysilegar vaxtahækkanir sínar með mikilli verðbólgu um þessar mund- ir, þá þykir Seðlabankamönnum þeir ansi naumir á innlánsvextina. í Hagtíðindum Seðlabankans segir m.a.. ^thygli vekur að óverulegar hækkanir hafa orðið á hreinum óverðtryggðum innlánsreikningum eins og almennum sparisjóðsbók- um.“ Og þar á íslandsbanki líka metið — þ.e. með lægstu innláns- vextina. Þótt hann taki frá 17,7% til 23,7% nafnvexti af þeim peningum sem hann lánar, þá virðist hann ekki treysta sér til að borga nema 0,5% nafnvexti á innistæður í almennum sparisjóðsbókum og sértékkareikn- ingum og 0,25% vexti af almennum tékkareikningum. Þarna verður þvf allt að 23% vaxtamunur, auk þókn- unar af útlánum. Þótt landsmenn hafi heldur verið að minnka það fé sem þeir geyma á almennum sparisjóðsbókum þá er þar ennþá um geysimikið fé að ræða sem bankamir greiða nær enga vexti af. í lok júní voru rúmlega 13 milljarðar „ávaxtaðir" á almennum sparisjóðsbókum í bönkum og sparisjóðum. Eigendur þessara milljarða verða nú af um 60 milljón- um kr. vaxtatekjum á mánuði, þ.e. ef miðað væri við það að bankamir hefðu hækkað nafhvexti á þessum óverðtryggðu innistæðum um 5- 7% eins og á sínum óverðtryggðu útlánum. Þar á ofan var svo tvöfalt hærri upphæð, eða rúmlega 26 milljarðar Nafnávöxtun 45 daga viöskiptavíxla í %, á ársgrundvelli miðaö við 100.000 kr. víxil Við útreikning nafnávöxtunar banka og sparisjóða á við- skiptavtxlum er tekið tillit til kostnaðar, þ.e.a.s. þóknunar banka og sparisj. Gen er ráð fyrir að 100.000 kr. 45 daga viðskiplavíxli sé velt í eitt ár. Ha’ldtin liuiskjaravísjiiilu stíinusta iuán- iið.'ir umrt’iknuð <í ársgruáJvi))1 Hækkun iánskjaravtsitöju seinustu 3ja máu. umrtiknuö 3 nrsgrundvOll 3.6% Hækkuit lánskjaravísitölu seinustu 12 míínuöa 2,3% ■ pr. 11/7/92 : pr. 11/4/93 □ pr. 1/8/93 □ pr. 11/8/93 Seljaucli viðskijHávixils grctðir eínnig 0,25% stimpilgjúld tíl hins opinbem.*’ króna, innistæður á tékka/hlaupa- reikningum í bönkum og sparisjóð- um nú á miðju ári. Samanlagt var þarna um að ræða rúmlega fjórðung (26%) allra innlána í bankakerfinu. í kjölfar gengisfellingarinnar 28. júní segir Seðlabankinn banka og sparisjóði hafa hækkað vexti óverð- tryggðra útlána vemlega „enda útlit fyrir aukna verðbólgu nú um sinrí'. Nafnvextir óverðtryggðra útlána hafi hækkað um 5,5 til 6,1 prósent- ustig að meðaltali. Forvextir víxil- lána og viðskiptavíxla hafi hækkað um 6,1 prósentustig að meðaltali frá 21. júní. Hækkunin hafi verið mis- munandi, allt frá 4,85 og upp í 7,5 prósentustig, mest hjá ísiands- banka. Vextir yfirdráttarlána og skuldabréfalána hafi hækkað um 5,5 prósentustig að meðaltali, enn einu sinni mest hjá íslandsbanka, 7,0 prósentustig en minnst hjá Lands- banka 4,5 prósentustig. - HEI

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.